Fótbolti
Guðlaugur Victor lék í sigri Hibernian Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn þegar Hibernian sigraði Inverness Caledonian Thistle 1-0 á útivelli í annarri umferð skosku úrvalsdeildarinnar sem hófst í dag. Fótbolti 30.7.2011 17:08
Bankaði upp á hjá Ferguson með DVD disk og fékk að spreyta sig Max Lonsdale er ekki þekktasta nafnið í fótboltaheiminum. Hann virðist vera með bein í nefinu því hinn 18 ára gamli leikmaður er nú á reynslu hjá Manchester United eftir að hann bankaði upp á hjá Alex Ferguson og lét hann fá DVD disk sem innihélt hápunkta úr ýmsum leikjum hjá Lonsdale. Sir Alex tók vel á móti drengnum sem var látinn fara frá Macclesfield Town á síðustu leiktíð og Lonsdale er nú til reynslu hjá enska meistaraliðinu. Enski boltinn 30.7.2011 16:00
Torres tryggði Chelsea Asíubikarinn Chelsea sigraði Aston Villa 2-0 í úrslitum Asíubikarsins í dag þar sem Fernando Torres tryggði sigurinn með marki skömmu eftir að hafa komið inná sem varamaður. Enski boltinn 30.7.2011 15:41
Eriksson telur að Mourinho sé rétti maðurinn fyrir England Svíinn Sven Göran Eriksson, sem var þjálfari enska landsliðsins í fótbolta, telur að Portúgalinn Jose Mourinho ætti að sækjast eftir því að komast í það starf. Eriksson telur að Mourinho sé rétti maðurinn fyrir England en Ítalinn Fabio Capello er þjálfari liðsins. Enski boltinn 30.7.2011 15:30
Andrés Már komin til Haugesund Norska úrvalsdeildarfélagið Haugesund hefur staðfest að Andrés Már Jóhannesson sé orðinn leikmaður félagsins. Fótbolti 30.7.2011 15:09
Guðmundur samdi við ÍBV til tveggja ára Guðmundur Þórarinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV en hann gekk í raðir úrvalsdeildarliðsins fyrir þetta keppnistímabil í Pepsideildinni í fótbolta. Guðmundur er frá Selfossi og er bróðir Ingólfs sem oftast er kenndur við Veðurguðina. Íslenski boltinn 30.7.2011 13:30
Fer Tevez til Inter í skiptum fyrir Eto‘o? Forráðamenn enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City og Inter frá Ítalíu eru í viðræðum um leikmannaskipti samkvæmt heimildum breska dagblaðsins Telegraph. Viðræðurnar snúast um að Argentínumaðurinn Carlos Tevez fari til Inter í skiptum fyrir Samuel Eto‘o, landsliðsframherjann frá Kamerún Enski boltinn 30.7.2011 12:30
Steven Gerrard missir af upphafi keppnistímabilsins Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, mun missa af upphafi keppnistímabilsins í ensku úrvalsdeildinni vegna sýkingar í nára. Gerrard, sem er 31 árs gamall, er á sýklalyfjum og dvelur á sjúkrahúsi og er búist við að hann verði þar í nokkra daga. Enski boltinn 30.7.2011 11:45
Aston Villa keypti N'Zogbia fyrir um 2 milljarða kr. Enska úrvalsdeildarliðið Aston Villa virðast hafa tröllatrú á miðjumanninum Charles N'Zogbia því hann skrifaði undir fimm ára samning við liðið í gær en hann var áður í herbúðum Wigan. N'Zogbia er 25 ára gamall franskur landsliðsmaður. Hann segir í viðtali á heimasíðu félagsins að hann hafi tekið stórt skref á ferlinum þar sem að Aston Villa sé stórt félag sem ætli sér stóra hluti á næstu árum. Enski boltinn 30.7.2011 11:30
Veigar Páll fer til Vålerenga eftir allt saman Norskir fjölmiðlar telja sig hafa sterkar heimildir fyrir því að Veigar Páll Gunnarsson sé á förum til Vålerenga í Osló en hann virtist vera búinn að semja við Noregsmeistaralið Rosenborg í Þrándheimi fyrir nokkrum dögum. Veigar er ein verðmætasta söluvara Stabæk sem er í miklum fjárhagsörðugleikum. Fótbolti 30.7.2011 10:15
WBA fær Foster að láni frá Birmingham Ben Foster fær tækifæri til þess að leika í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð þrátt fyrir að hafa upplifað fall með Birmingham í lokaumferðinn s.l. vor. Markvörðurinn verður lánaður til grannaliðsins WBA sem einnig er staðsett í Birmingham og er lánssamningurinn til eins árs. Birmingham fær Boaz Myhill í staðinn frá WBA. Enski boltinn 30.7.2011 10:00
Aron Einar: Byrjaður að vaxa mosi á mér á hótelinu Aron Einar Gunnarsson leikmaður Cardiff tekur ekki þátt í æfingaleik Cardiff gegn Parma á Þúsaldarvellinum í Cardiff á morgun. Malky Mackay knattspyrnustjóri Cardiff vill hvíla Aron sem fékk lítið sumarfrí vegna anna með landsliðum Íslands. Enski boltinn 30.7.2011 09:00
Ólíkir draumariðlar hjá Gunnleifi og Aroni Dregið verður í riðla í undankeppni HM 2014 í Brasilíu í kvöld. Draumar landsliðsmannanna Arons Einars Gunnarssonar og Gunnleifs Gunnleifssonar eiga fátt sameiginlegt nema þegar kemur að frændum okkar Færeyingum. Fótbolti 30.7.2011 08:00
Átta ára fótboltagutti með snilldartakta - nýr Messi? Tomy Angel, átta ára gamall fótboltastrákur í Los Angeles í Bandaríkjunum, hefur vakið athygli á undanförnum mánuðum fyrir færni sína og hæfileika. Máltækið; sjaldan fellur eplið langt frá eikinni á vel við við um Tomy því faðir hans er Kólumbíumaðurinn Juan Pablo Angel, fyrrum framherji enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa. Fótbolti 29.7.2011 23:30
Enn óvissa með Jósef Kristin - FIFA komið í málið Lítið gengur í deilum Grindvíkingsins Jósefs Kristins Jósefssonar við búlgarska félagið PSFC Chernomorets Burgas. Jósef, sem æft hefur með Grindvíkingum undanfarnar vikur, hefur enn ekki fengið laun greidd frá félaginu sem ennfremur neitar honum um félagaskipti. Íslenski boltinn 29.7.2011 22:00
Wenger gæti róað stuðningsmenn með kaupum á Jagielka og Mata Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur staðið í ströngu í sumar við að reyna að halda sínum bestu leikmönnum, Cesc Fábregas og Samir Nasri, hjá félaginu. Nú lítur út fyrir það að Wenger ætli loksins að fara reyna að styrkja leikmannahópinn fyrir alvöru með því að kaupa tvo sterka leikmenn til félagsins. Enski boltinn 29.7.2011 21:15
Villa-Boas vill yngja upp - segir leikmannahóp Chelsea gamlan Knattspyrnustjóri Chelsea, Portúgalinn Andre Villas-Boas, segir að leikmannahópur félagsins sé gamall. Það sé ástæða þess að hann horfi til yngri leikmanna enda vilji hann byggja lið til framtíðar. Enski boltinn 29.7.2011 20:30
Enn einn Skotinn til Grindavíkur - ekki séð hann spila Skoski miðjumaðurinn Derek Young hefur gengið til liðs við Grindavík. Þorsteinn Gunnarsson formaður knattspyrnudeildar segir að Grindvíkingar renni að vissu leyti blint í sjóinn hvað Young varðar. Robbie Winters, framherji þeirra, gefi honum þó topp meðmæli. Íslenski boltinn 29.7.2011 19:45
Owen Coyle nær í hægri bakvörð til Bolton - staða Grétars í hættu? Owen Coyle, stjóri Bolton, er búinn að kaupa tvo leikmenn frá Burnley, þá Chris Eagles og Tyrone Mears, sem báðir spiluðu undir stjórn Coyle þegar hann réði ríkjum hjá Burnley. Enski boltinn 29.7.2011 19:00
Diaby missir af fyrstu leikjum Arsenal á tímabilinu Abou Diaby, miðjumaður Arsenal, þurfti að fara í aðgerð á ökkla og mun af þeim sökum missa af byrjuninni á tímabilinu. Diaby missir af þremur deildarleikjum og tveimur leikjum í forkeppni Meistaradeildarinnar. Enski boltinn 29.7.2011 18:15
Pétur Markan lánaður til BÍ/Bolungarvíkur Knattspyrnumaðurinn Pétur Georg Markan hefur verið lánaður til BÍ/Bolungarvíkur frá Víkingi. Pétur Georg er kominn vestur og mun mæta á sína fyrstu æfingu klukkan 10 í fyrramálið á Ísafirði. Íslenski boltinn 29.7.2011 17:36
Jurgen Klinsmann ráðinn þjálfari bandaríska landsliðsins Þjóðverjinn Jurgen Klinsmann var í dag ráðinn þjálfari bandaríska landsliðsins í fótbolta og mun taka við stöðu Bob Bradley sem var rekinn í gær. Klinsmann hefur verið orðaður við bandaríska landsliðið frá árinu 2006 en skrifaði undir samning í dag. Fótbolti 29.7.2011 17:30
Domenech fær milljón evrur frá franska sambandinu Raymond Domenech, fyrrum þjálfari franska landsliðsins, og franska knattspyrnusambandið hafa sæst á það að leysa skaðabótamál Domenech, utan réttarsalsins. Fótbolti 29.7.2011 16:45
Haukur Ingi til Grindavíkur - vantar karaktera í liðið Knattspyrnumaðurinn Haukur Ingi Guðnason er genginn til liðs við Grindavík. Þorsteinn Gunnarsson formaður knattspyrnudeildar segir vanta karaktera í Grindavíkurliðið og vonar að Haukur geti ekki síður styrkt liðið á því sviði. Íslenski boltinn 29.7.2011 16:15
Heiðar fær samkeppni - QPR að kaupa DJ Campbell frá Blackpool Heiðar Helguson fær meiri samkeppni í framlínu Queens Park Rangers á komandi tímabili því Neil Warnock, stjóri QPR, er við það að kaupa DJ Campbell frá Blackpool. Blackpool er búið að samþykkja tilboð QPR sem er líklega í kringum 1.25 milljónir punda. Enski boltinn 29.7.2011 15:45
Sam Hewson skrifar undir tveggja ára samning við Fram Framarar hafa gengið frá samningi við Sam Hewson fyrrum fyrirliða varaliðs Manchester United. Hewson hefur æft með Safamýrarpiltum að undanförnu og hefur þótt standa sig vel. Íslenski boltinn 29.7.2011 15:15
Semjum aldrei aftur við Íslendinga Forráðamenn sænska knattspyrnufélagsins Jitex eru allt annað en sáttir við markvörðinn Söndru Sigurðardóttur. Varaformaður félagsins hefur lokað dyrunum á íslenskt knattspyrnufólk og segir að brennt barn forðist eldinn og á þar við sænska félagið. Íslenski boltinn 29.7.2011 14:30
Pétur Georg hættur hjá Víkingum - spilar hugsanlega með BÍ/Bolungarvík Knattspyrnumaðurinn Pétur Georg Markan hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Víking í bili. Pétur hefur tekið við kennslustöðu við grunnskólann í Súðavík og komist að samkomulagi við knattspyrnudeild Víkings um að hann spili ekki meira fyrir Fossvogsliðið í sumar. Íslenski boltinn 29.7.2011 13:49
Alejandro Sabella tekur við Messi og félögum Alejandro Sabella tekur við þjálfun landslið Argentínu en Sergio Batista var rekinn eftir að liðið náði sér ekki á strik í Copa America. José Luis Meiszner formaður knattspyrnusambands Argentínu hefur staðfest við fjölmiðla þar í landi að Sabella verði næsti þjálfari liðsins. Fótbolti 29.7.2011 13:30
Knattspyrnusamband Malasíu biðst afsökunar en þó með fyrirvara Knattspyrnusamband Malasíu hefur beðið enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea afsökunar eftir að hrópað var að Ísraelsmanninum Yossi Benayoun í vináttuleik í síðustu viku. Leikurinn fór fram á þjóðarleikvanginum í Kuala Lumpur í Malasíu og voru forsvarsmenn Chelsea ósáttir við hegðun heimamanna. Enski boltinn 29.7.2011 13:00
Mörkin úr enska boltanum: Eitt flottasta mark tímabilsins, dramatík og dýrmætur sigur City Enski boltinn