Sport
Messi hélt upp á Gullboltann með því að skora þrennu Lionel Messi skoraði þrennu í 5-0 sigri Barcelona á b-deildarliðinu Real Betis í kvöld í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum spænska Konungsbikarnum. Messi sýndi stuðningsmönnum Barcelona Gullboltann fyrir leik og sýndi af hverju hann fékk hann í leiknum sjálfum. Fótbolti 12.1.2011 23:19
King gæti þurft að fara í aðgerð vegna nárameiðslanna Ledley King gæti þurft að fara í aðgerð vegna nárameiðsla en meiðsli hafa plagað þennan þrítuga varnarmann nánast allan hans feril. Enski boltinn 12.1.2011 23:15
Samuel Eto’o skoraði tvö í bikarsigri Inter á Genoa Kamerúnmaðurinn Samuel Eto’o skoraði tvö mörk í ítalska bikarnum í kvöld þegar Inter vann 3-2 sigur á Genoa í 16 liða úrslitum keppninnar. Eto’o er búinn að skora 21 mark í öllum keppnum á tímabilinu. Fótbolti 12.1.2011 22:51
Umfjöllun: Valsstúlkur keyrðu yfir andlausa Framara í seinni hálfleik Valur bar sigur úr býtum gegn toppliði Fram ,23-16, í níundu umferð N1-deild kvenna í kvöld en leikurinn fór fram í Safamýrinni. Heimastúlkur voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik en í síðari hálfleiknum var aðeins eitt lið á vellinum. Gestirnir í Val lokuðu vörninni og spiluðu skynsaman sóknarleik sem skilaði þeim öruggum sigri. Handbolti 12.1.2011 22:44
Kristín: Máttum alls ekki við tapa í kvöld. „Þessi sigur var svakalega mikilvægur fyrir okkur,“ sagði Kristín Guðmundsdóttir, leikmaður Vals, eftir sigurinn í kvöld. Valur vann toppslaginn gegn Fram ,23-16, í Safamýrinni en leikurinn var hluti af níundu umferð N1-deild kvenna. Handbolti 12.1.2011 22:40
McParland: Ég er búinn að gera mitt Ian McParland, stjórnaði Ipswich í 1-0 sigrinum á Arsenal í fyrri undanúrslitaleik liðanna í enska deildarbikarnum í kvöld en hann fær ekki tækifæri til að stjórna liðinu í seinni leiknum því þá verður Paul Jewell tekinn við. Enski boltinn 12.1.2011 22:36
Arsene Wenger: Það vantaði allan neista í liðið í kvöld Arsene Wenger, stjóri Arsenal, þurfti á horfa upp á sitt lið tapa 0-1 á móti b-deildarliðinu Ipswich í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildarbikarsins. Arsenal fær tækifæri til að bæta fyrir tapiða á heimavelli eftir tæpar tvær vikur. Enski boltinn 12.1.2011 22:28
Einar: Sóknarleikur okkar hrundi í seinni hálfleik „Það er fátt hægt að segja eftir leik þar sem við skorum aðeins þrjú mörk í seinni hálfleik,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, svekktur eftir tapið gegn Val í kvöld. Handbolti 12.1.2011 22:21
Stefán:Frábær varnarleikur skilaði sigrinum Stefán Arnarsson, þjálfari Vals, var mjög svo sáttur með sigurinn í kvöld og sérstaklega spilamennsku sinna manna í síðari hálfleik. Valur vann virkilega mikilvægan sigur á toppliði Fram 23-16 í níundu umferð N1-deildar kvenna. Handbolti 12.1.2011 22:19
Blackpool vann Liverpool öðru sinni á tímabilinu Nýliðar Blackpool eru með fullt hús á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í vetur eftir 2-1 sigur í leik liðanna á Bloomfield Road í kvöld. Liverpool hefur því tapað tveimur fyrstu leikjum sínum undir stjórn Kenny Dalglish og alls þremur leikjum í röð. Enski boltinn 12.1.2011 21:53
Ipswich vann fyrri leikinn á móti Arsenal Enska b-deildarliðið Ipswich vann óvæntan 1-0 sigur á Arsenal í fyrri leik undanúrslitaleik liðanna í enska deildarbikarnum á Portman Road í kvöld. Ipswich hafði tapað 7-0 á móti Chelsea í enska bikarnum um síðustu helgi og er aðeins í 19. sæti í ensku b-deildinni með 8 sigra í fyrstu 24 leikjunum. Enski boltinn 12.1.2011 21:39
Valskonur halda áfram taki sínu á Fram - unnu sjö marka stórsigur Valur varð í kvöld fyrsta liðið til þess að vinna Fram í N1 deild kvenna á þessu tímabili en Íslandsmeistarnir unnu sjö marka sigur á Fram, 23-16 í Safamýrinni. Valskonur tryggðu sér sigurinn með frábærum seinni hálfleik sem liðið vann 12-3. Handbolti 12.1.2011 21:03
Birnulausar Keflavíkurstelpur töpuðu á móti Grindavík Grindavík vann óvæntan tólf stiga sigur í Keflavík, 71-59, í Iceland Express deild kvenna í kvöld en fyrir leikinn munaði átján stigum og fimm sætum á þessum liðum. Þetta var aðeins annað tap Keflavíkurliðsins á tímabilinu. Körfubolti 12.1.2011 21:00
Sigurganga Hamarskvenna heldur áfram - þrettándi sigurinn í röð Kvennalið Hamars hélt áfram sigurgöngu sinni í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld með því að vinna öruggan 26 siga sigur í Njarðvík. Haukakonur tryggðu sér endalega sæti í A-deild þrátt fyrir tap í Stykkishólmi og KR vann fimm stiga sigur á Fjölni í Grafarvogi. Körfubolti 12.1.2011 20:58
Þorsteinn J. er bjartsýnn fyrir hönd handboltans Stöð 2 sport verður með mikinn viðbúnað vegna heimsmeistaramótsins í handknattleik en það verða gestgjafarnir í Svíþjóð sem leika opnunarleikinn gegn Síle á morgun, fimmtudag. Handbolti 12.1.2011 20:52
Bentley kominn til Birmingham Birmingham er búið að fá David Bentley á láni frá Tottenham og mun þessi 26 ára miðjumaður klára tímabilið með liðinu. Bentley tókst ekki að vinna sér fast sæti í liði Tottenham síðan að félagið keypti hann á 15 milljónr punda í júlí 2008. Enski boltinn 12.1.2011 20:15
Pique ætlar að binda enda á Meistaradeildarvonir Arsenal Gerard Pique, leikmaður Barcelona, segir að liðið ætli sér að slá Arsenal úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 12.1.2011 19:45
Danir stefna ekki á gullið á HM Ulrik Wilbek þjálfari danska landsliðsins í handknattleik kom Dönum verulega á óvart í gær þegar hann gaf það út að Danir væru ekki með lið sem geti stefnt á það að verða heimsmeistari á HM í Svíþjóð. Handbolti 12.1.2011 19:00
Craig Bellamy handtekinn grunaður um líkamsárás Velski knattspyrnumaðurinn Craig Bellamy er enn á ný kominn í vandræði því hann var handtekinn í dag grunaður um líkamsárás snemma á sunnudagsmorguninn. Tveir menn enduðu á sjúkrahúsi eftir samskipti við Bellamy sem er mikill skaphundur. Enski boltinn 12.1.2011 18:15
Pulis bauð í Noble Tony Pulis, stjóri Stoke, hefur boðið West Ham fjórar milljónir punda fyrir miðvallarleikmanninn Mark Noble. Enski boltinn 12.1.2011 17:30
Ferð á úrslitaleikinn í verðlaun í HM-leik Keflavíkurvallar Keflavíkurvöllur býður upp á einn skemmtilegasta leikinn um HM í handbolta á heimasíðu sinni, kefairport.is. Allir geta tekið þátt með því að tengjast síðunni í gegnum Facebook og hafa fjölmargir þegar skráð sig. Handbolti 12.1.2011 17:06
Liverpool sagt reiðubúið að greiða 10 milljónir punda fyrir táning Enska blaðið The Guardian heldur því fram í dag að Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, sé byrjaður að horfa til framtíðar og að félagið sé að undirbúa tíu milljóna punda í sautján ára táning, Alex Oxlade-Chamberlain að nafni. Enski boltinn 12.1.2011 16:45
Hrafn: Þessi keppni er okkur mjög mikilvæg „Tindastóll er lið sem er í mikilli framför og það verður ekki auðvelt að mæta þeim þrátt fyrir að við séum á heimavelli,“ sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari KR eftir að ljóst var að KR-ingar fengu Tindastól í undanúrslitum Poweradebikarsins í körfubolta karla. Körfubolti 12.1.2011 16:15
Charlie Adam orðaður við Liverpool Liverpool hefur bæst í hóp þeirra liða sem hafa áhuga á að fá miðvallarleikmann Blackpool, hinn skoska Charlie Adam, í sínar raðir samkvæmt heimildum fréttavefs Sky Sports. Enski boltinn 12.1.2011 15:45
Hildur ætlar ekki að lýsa úrslitaleiknum aftur „Við erum ánægð með það fá Hamar á heimavelli. Þær hafa verið með yfirhöndina gegn okkur í undanförnum leikjum. Mér finnst við eiga helling inni og það er bara fínt að fá svona sterkt lið strax í undanúrslitum,“ sagði Hildur Sigurðardóttir fyrirliði KR í dag eftir að dregið var í undanúrslitum Powerade-bikarsins. Körfubolti 12.1.2011 15:15
Vilja að Pearce þjálfi Ólympíulið Breta Knattspyrnusamband Englands vill að Stuart Pearce, þjálfari U-21 landsliðs Englands, verði þjálfari Ólympíuliðs Breta á leikunum í Lundúnum árið 2012. Enski boltinn 12.1.2011 14:45
Beckham myndi ekki spila gegn United Harry Redknapp, stjóri Tottenham, útilokar að David Beckham muni spila með liðinu gegn Manchester United um næstu helgi þó svo að Beckham fengi heimild til að spila með Tottenham fyrir þann tíma. Enski boltinn 12.1.2011 14:15
Faxi og Olsson skildu Beutler eftir í kuldanum Staffan Olsson og Ola Lindgren eru í stóru hlutverki á HM í Svíþjóð en þeir stýra liði gestgjafanna á heimsmeistaramótinu. „Faxi“ og Lindgren hafa tilkynnt 16 manna leikmannahóp sinn og vekur athygli að markvörðurinn Dan Beutler frá þýskala liðinu Flensburg var ekki valinn. Handbolti 12.1.2011 13:45
KR fær Tindastól í heimsókn í bikarnum Dregið var í undanúrslit í Powerade-bikarkeppni karla og kvenna í dag en útlit er fyrir spennandi viðureignir um sæti í sjálfum úrslitaleiknum. Körfubolti 12.1.2011 13:12
Ferguson tekur öðru sinni við Peterborough Darren Ferguson var í dag endurráðinn knattspyrnustjóri enska B-deilarliðsins Peterborough aðeins fjórtán mánuðum eftir hann hætti hjá félaginu. Enski boltinn 12.1.2011 12:30