Sport
Sir Alex: Sá ekki hvernig þeir gátu byrjað með Torres á bekknum Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagðist hafa verið nokkuð viss um það að Fernando Torres yrði í byrjunarliði Chelsea í seinni leiknum á móti United í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. United tryggði sér sæti í undanúrslitunum með 2-1 sigri á Old Trafford í gær þar sem Torres var tekinn útaf í hálfleik. Fótbolti 13.4.2011 10:45
Giggs: Seinna markið kom á hárréttum tíma Ryan Giggs átti stóran þátt í því að Manchester United sló Chelsea út úr átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og komst í undanúrslitin. Giggs lagði upp öll þrjú mörk United í leikjum þremur, sigurmarkið fyrir Wayne Rooney í fyrri leiknum og svo mörkin þeirra Javier Hernandez og Ji-Sung Park í gærkvöldi. Fótbolti 13.4.2011 10:15
Karlalandsliðið niður um eitt sæti - stelpurnar nú 100 sætum ofar Íslenska karlalandsliðið féll niður um eitt sæti á nýjum Styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í morgun. Íslenska landsliðið situr nú í 116. sæti og er nú aðeins einu sæti frá því að jafna sína verstu stöðu frá upphafi. Íslenski boltinn 13.4.2011 09:45
Rosberg: Erfið byrjun á tímabilinu Nico Rosberg og Michael Schumacher mæta á Sjanghæ Formúlu 1 brautina í Kína um helgina og keppa í þriðja Formúlu 1 móti ársins. Rosberg varð í þriðja sæti í mótinu í Sjanghæ í fyrra. Formúla 1 13.4.2011 09:32
Selfyssingar fóru illa með gamla þjálfara sinn Gumma Ben Selfyssingar hafa sýnt á sér ýmsar hliðar í Lengjubikarnum í ár en í gær voru þær sparihliðarnar sem voru í sviðsljósinu í 3-0 sigri á Íslandsmeisturum Breiðabliks í Kórnum. Íslenski boltinn 13.4.2011 09:15
NBA: Chicago og San Antonio jöfn á toppnum fyrir síðasta leik Chicago Bulls komst upp að hlið San Antonio Spurs á toppi NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt eftir að Bulls-liðið vann New York Knicks og San Antonio tapaði fyrir Los Angeles Lakers. Verði liðin áfram jöfn eftir síðustu leikina í kvöld verður dregið um hvort liðið fær heimavallarrétt mætist þau í úrslitunum þar sem að innbyrðisárangur þeirra er jafn. Chicago tekur á móti New Jersey Nets í lokaleik sínum í nótt en San Antonio fer í heimsókn til Phoenix. Körfubolti 13.4.2011 09:00
Heidfeld ánægður með bronsið Nick Heidfeld tryggði Renault bronsið í kappakstrinum í Malasíu á sunnudaginn og lið hans náði þriðja sæti einnig í fyrsta móti ársins með Vitaly Petrov. Heidfeld er staðgengill Robert Kubica. Formúla 1 13.4.2011 08:30
Messi jafnaði 60 ára gamalt met Lionel Messi skoraði í gær sitt 48. mark á tímabilinu og jafnaði þar með 60 ára gamalt met á Spáni. Fótbolti 13.4.2011 06:00
McCarthy farinn frá West Ham Benni McCarthy hefur fengið sig lausann frá West Ham en samningur hans átti að renna út nú í sumar. Þessi 33 ára gamli sóknarmaður náði aldrei að skora fyrir félagið. Enski boltinn 12.4.2011 23:30
Brighton í ensku B-deildina Brighton & Hove Albion tryggði sér í kvöld sæti í ensku B-deildinni með 4-3 sigri á Dagenham & Redbrigde. Knattspyrnustjóri liðsins er Gus Poyet. Enski boltinn 12.4.2011 22:48
Ancelotti: Þurfum að bíða eftir Torres Carlo Ancelotti segir að Manchester United hafi átt skilið að fara áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu en United vann í kvöld 2-1 sigur á Chelsea í fjórðungsúrslitum keppninnar og 3-1 samanlagt. Fótbolti 12.4.2011 22:38
Ferguson: Spiluðum vel gegn góðu liði Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að það hafi verið erfitt að spila gegn sterku liði Chelsea í kvöld en þá áttust liðin við í síðari viðureign þeirra í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Enski boltinn 12.4.2011 21:28
Giggs: Áttum þetta skilið Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, átti góðan leik í kvöld en hann lagði upp bæði mörk sinna manna í 2-1 sigri á Chelsea í fjórðungsúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 12.4.2011 21:15
Aron hafði betur gegn Hermanni Aron Einar Gunnarsson og félagar í Coventry unnu 3-0 útisigur á Portsmouth, liði Hermanns Hreiðarssonar, í ensku B-deildinni í kvöld. Enski boltinn 12.4.2011 20:50
Öruggur sigur Kiel Kiel vann í kvöld öruggan sigur á Lemgo á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, 33-26. Handbolti 12.4.2011 19:43
Ólafur: Ég veit ekki hvernig við ætlum að toppa forsetann Ólafur Guðmundsson var einn af þremur leikmönnum FH sem fengu verðlaun þegar umferðir 15 til 21 í N1 deild karla voru gerðar upp í dag. Ólafur hefur verið lykilmaður í FH-liðinu sem náði í 13 af 14 mögulegum stigum í þriðju umferðinni. Handbolti 12.4.2011 19:00
Sundsvall komið í 2-0 Sundsvall Dragons tók í kvöld 2-0 forystu í rimmu sinni gegn Södertälje Kings í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta. Körfubolti 12.4.2011 18:43
Barcelona kláraði skylduverkið Barcelona er komið áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu með 1-0 sigri á Shakhtar Donetsk á útivelli og því samanlagt, 6-1. Fótbolti 12.4.2011 18:15
Hlynur: Mér fannst ég alltaf skulda liðinu „Við vorum einum leik frá því að komast í úrslitakeppnina sem er alveg grátlegt en svona er þetta bara. Þetta hafðist ekki," sagði Hlynur Morthens, markvörður Vals og besti markvörðurinn í umferðum 15 til 21 í N1 deild karla. Handbolti 12.4.2011 17:30
Þjálfari Gylfa hættir eftir tímabilið Marco Pezzaiuoli, þjálfari Hoffenheim, mun ekki halda áfram með liðið á næsta tímabili en framkvæmdastjóri félagsins gaf þetta út í dag. Pezzaiuoli tók við liðinu af Ralf Rangnick á miðju tímabili en undir hans stjórn hefur liðið aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum. Fótbolti 12.4.2011 16:45
Meistaradeildarmartröð Chelsea heldur áfram - United áfram Manchester United er komið áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 2-1 sigur á Chelsea á heimavelli og 3-1 samanlagt. Javier Hernandez og Ji-Sung Park skoruðu mörk United í kvöld en Didier Drogba fyrir Chelsea. Fótbolti 12.4.2011 16:19
Dalglish sér ekki eftir að hafa keypt þá Carroll og Suárez Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, sér ekki eftir því að hafa keypt þá Andy Carroll og Luis Suárez til félagsins en þeir áttu báðir skínandi leik í gær þegar Liverpool vann sannfærandi 3-0 sigur á Manchester City á Anfield. Enski boltinn 12.4.2011 16:00
Tottenham bannar níðsöng um Adebayor Stuðningsmenn Tottenham verða undir ströngu eftirliti á morgun þegar liðið leikur gegn spænska liðinu Real Madrid í síðari leiknum í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Tottenham tapaði fyrri leiknum 4-0 og þar skoraði Emmanuel Adebayor fyrrum leikmaður Arsenal tvívegis og það kunnu stuðningsmenn Tottenham ekki að meta. Fótbolti 12.4.2011 15:30
Einar Andri: Liðið er hægt og rólega að ná heilsu Einar Andri Einarsson var í dag valinn besti þjálfari umferða 15 til 21 í N1 deild karla en hann hlaut verðlaunin ásamt Kristjáni Arasyni. Þeir félagar hafa stýrt FH-liðinu saman í vetur og eru að koma upp með liðið á hárréttum tíma. FH fékk 13 af 14 mögulegum stigum í þriðju umferðinni. Handbolti 12.4.2011 14:45
Berlusconi: Ætla að kaupa Ronaldo ef AC Milan verður meistari Silvio Berlusconi, eigandi AC Milan og forsætisráðherra Ítalíu, hefur mjög háleit markmið fyrir sumarið fari svo að AC Milan vinni ítalska meistaratitilinn í vor. Fótbolti 12.4.2011 14:15
Button: Barðist til sigurs til síðasta hrings Jenson Button er annar í stigamótinu, 24 stigum á eftir Sebastian Vettel í stigakeppni ökumanna í Formúlu 1, eftir tvö fyrstu mótin. Vettel hefur unnið bæði mót ársins, en Button varð í öðru sæti á eftir honum á sunnudaginn í keppni í Malasíu. Formúla 1 12.4.2011 13:50
Ásbjörn: Fullt af öðrum leikmönnum í FH sem voru líka frábærir „Ég er hæstánægður með þessi verðlaun enda er þetta fínasta viðurkenning fyrir mann," sagði Ásbjörn Friðriksson sem í dag var valinn besti leikmaður umferða 15 til 21 í N1 deild karla í handbolta. Handbolti 12.4.2011 13:45
Ancelotti: Sigur hjá Chelsea er mikilvægari en mark hjá Torres Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, ætlar að reyna að brydda upp á einhverjum nýungum í kvöld þegar Chelsea sækir Manchester United heim í seinni leik liðanna í 8 liða úrslitum Meistaradeildarinnar. United vann fyrri leikinn 1-0 á Brúnni. Fótbolti 12.4.2011 13:15
Ólíklegt að Jón Halldór taki við karlaliði Keflavíkur Körfuknattleiksdeild Keflavíkur leitar nú að nýjum þjálfara til að taka við karlaliði félagsins af Guðjóni Skúlasyni sem hætti með liðið í gær. Körfubolti 12.4.2011 12:30
FH-ingar sópuðu til sín verðlaunum - Ásbjörn valinn bestur FH-ingar hlutu fjögur stærstu verðlaunin þegar Handknattleikssambandið gerði upp umferðir 15 til 21 í N1 deild karla í hádeginu í dag. Ásbjörn Friðrksson var valinn besti leikmaðurinn, Kristján Arason og Einar Andri Einarsson, þjálfarar FH þóttu vera bestu þjálfararnir, Sigurgeir Árni Ægisson var valinn besti varnarmaðurinn og FH-ingar fengu auk þess verðlaun fyrir bestu umgjörðina. Handbolti 12.4.2011 12:15