Sport
Inter og Anzhi ósammála um kaupverðið á Eto’o Rússneska félagið Anzhi Makhachkala er tilbúið að borga Samuel Eto’o næstum því tvöfalt meira í árslaun en Barcelona borgar Lionel Messi en það gengur illa hjá rússneska félaginu að semja við Inter um kaupverð á Kamerúnanum. Fótbolti 18.8.2011 17:30
Ólafur Björn á tveimur undir eftir sextán holur Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, stendur sig vel á PGA-mótinu á Sedgefield-vellinum í Norður-Karólínu. Hann hefur nú lokið sextán holum á fyrsta hring og er á tveimur höggum undir pari. Golf 18.8.2011 16:53
AZ tapaði í Noregi Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í hollenska liðinu AZ Alkmaar töpuðu fyrir Álasundi í leik liðanna í forkeppni Evrópudeildar UEFA í kvöld. Fótbolti 18.8.2011 16:52
Lukaku kominn til Chelsea - löglegur á laugardaginn Chelsea er búið að ganga frá kaupunum á Romelu Lukaku frá belgíska félaginu Anderlecht og framherjinn verður því löglegur í leiknum á móti West Brom á laugardaginn kemur. Enski boltinn 18.8.2011 16:00
FH-ingar góðir bæði manni fleiri og manni færri Rauðu spjöldin hafa svo sannarlega farið á loft í leikjum FH-inga í Pepsi-deild karla í sumar en þau eru orðin alls sjö í fimmtán leikjum. FH-ingar hafa fengið fjögur rauð sjálfir og mótherjar þeirra hafa þrisvar sinnum verið sendir snemma í sturtu. Nú er svo komið að það hefur vantað leikmann í annað liðið í leikjum FH í samtals 254 mínútur í sumar. Íslenski boltinn 18.8.2011 15:30
David Ngog á leiðinni frá Liverpool til Bolton David Ngog er á leiðinni til Bolton en félagið mun væntanlega borga Liverpool fjórar milljónir punda fyrir franska framherjann. Þetta kemur fram í The Liverpool Echo. Enski boltinn 18.8.2011 15:00
Ólafur með þrjá fugla á fyrstu sjö holunum Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, virðist kominn í stuð á Wyndham PGA-mótinu. Ólafur Björn fékk skramba á fyrstu holu en hefur síðan þá fengið þrjá fugla og parað þrjár holur. Golf 18.8.2011 14:58
Ræningjar pabba Mikel heimta veglegt lausnargjald John Obi Mikel, leikmaður Chelsea, stendur í ströngu utan vallar þessa dagana eftir að föður hans var rænt út í Nígeríu 12. ágúst síðastliðinn. Enski boltinn 18.8.2011 14:30
Ytri Rangá í góðum gír Ytri Rangá heldur áfram að gefa vel. Morgunvaktin í gær gaf 48 laxa en aflatölur dagsins enduðu í 72 lönduðum. Svæði eitt, fjögur, sex og sjö eru öll að gefa vel en annars er að veiðast á öllum svæðum þó þessi séu að gefa mest. Sem fyrr eru Sunray shadow, Collie dog, Bizmo og Snældur að gefa vel en það er nú oft þannig að menn nota það sem stendur fyrir í veiðibókinni. Mikið af laxinum var ný gengin því en lax að ganga í Ytri Rangá. Veiði 18.8.2011 14:04
Pique: Mourinho er að eyðileggja spænska fótboltann Gerard Pique, varnarmaður Barcelona, sakaði Jose Mourinho, þjálfara Real Madrid, um að vera að reyna að eyðileggja spænska fótboltann eftir 3-2 sigur Barcelona á Real Madrid í spænska Ofurbikarnum í gær. Fótbolti 18.8.2011 14:00
Góður dagur í Elliðaánum í gær en rólegt í morgun Mjög góður ágústdagur var í gær í Elliðaánum, þann 17. þm. Alls komu 19 laxar upp úr ánni og sá stærsti 78 cm. langur - hængur úr Teljarastreng. Nær allir laxarnir veiddust á flugu og flestir á efri svæðum árinnar. 9 laxar komu á morgunvaktinni en 10 seinni partinn. Veiði 18.8.2011 13:59
Petr Cech frá í þrjár til fjórar vikur - meiddist á æfingu Petr Cech, markvörður Chelsea og tékkneska landsliðsins, meiddist á æfingu hjá liðinu í gær og verður frá keppni næstu þrjár til fjórar vikurnar. Félagið staðfesti þetta í dag. Enski boltinn 18.8.2011 13:30
Sky Sports: QPR búið að bjóða fjórar milljónir í Parker Tony Fernandes er orðinn meirihlutaeignandi í Queens Park Rangers og hann er fljótur að láta til síns taka því Sky Sports hefur heimildir fyrir því að Queens Park Rangers er búið að bjóða fjórar milljónir punda í Scott Parker hjá West ham. Enski boltinn 18.8.2011 13:00
Eggert Gunnþór leikfær gegn Tottenham - í beinni á Stöð 2 Sport Eggert Gunnþór Jónsson er búinn að ná sér af meiðslunum sem hann varð fyrir á móti Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni um helgina og verður íslenski landsliðsmaðurinn því með þegar Hearts tekur á móti Tottenham í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Fótbolti 18.8.2011 12:30
Ólafur Björn má ekki taka við verðlaunafénu Áhugamaður hefur ekki sigrað á PGA-mótaröðinni í tvo áratugi. Phil Mickelson var sá síðasti sem afrekaði það, árið 1991. Ólafur Björn Loftsson getur ekki tekið við hundrað milljónum ef hann sigrar á PGA-mótinu í Norður-Karólínu. Golf 18.8.2011 12:00
Utan vallar: Krabbamein fótboltans Óheiðarlegir knattspyrnumenn sem svindla á vellinum eru að verða stærsta vandamál íþróttarinnar. Leikaraskapur er orðinn eðlilegur hluti af leiknum og það sem meira er – svindlurunum er aldrei refsað. Íslenski boltinn 18.8.2011 11:30
Arnór Sveinn fer til Hönefoss - kvaddi Blika á twitter Arnór Sveinn Aðalsteinsson, leikmaður Breiðabliks, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Breiðablik í bili, því hann heldur til Noregs í dag til þess að skrifa undir samning við Hönefoss. Þetta kom fyrst fram á fótbolti.net. Íslenski boltinn 18.8.2011 11:05
Hjörtur Júlíus Hjartarson: Þrisvar upp á fjórum árum Skagamaðurinn Hjörtur Júlíus Hjartarson þekkir þá tilfinningu vel að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni. Hjörtur tryggði Skagaliðinu sæti í Pepsi-deildinni næsta sumar með því að skora jöfnunarmark liðsins á móti ÍR í fyrrakvöld. Íslenski boltinn 18.8.2011 11:00
Bara töluð portúgalska í úrslitaleik HM 20 ára landsliða Portúgal og Brasilía mætast í úrslitaleik HM 20 ára sem fram fer í Kólumbíu þessa dagana en undanúrslitaleikirnir kláruðust í nótt. Brasilía er fyrrum nýlenda Portúgala og það verður væntanlega bara töluð portúgalska í úrslitaleiknum sem fram fer á laugardaginn kemur. Fótbolti 18.8.2011 10:45
Hækkaði sig um 300 sæti Keegan Bradley, bandaríski kylfingurinn sem sigraði í PGA-meistaramótinu um helgina, hækkaði sig um 300 sæti á heimslistanum í golfi með sigrinum, eins og greint er frá á kylfingur.is. Golf 18.8.2011 10:30
Sara Björk: Ég hef það mjög gott Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði þrennu þegar lið hennar, Malmö, vann 5-0 sigur á Jitex í sænsku úrvalsdeildinni í gær. Þetta er í annað skiptið á tímabilinu sem Sara Björk skorar þrjú mörk í einum og sama leiknum. Fótbolti 18.8.2011 10:00
Yngvi rekinn frá Val - Ágústi boðið starfið Yngvi Gunnlaugsson hefur verið rekinn frá karlaliði Val í körfuboltanum þótt að tímabilið sé ekki byrjað. Yngvi staðfesti þetta í samtali við karfan.is og segir að Ágústi Björgvinssyni hafi verið boðið að taka við karlaliði Vals en hann þjálfar kvennalið félagsins. Körfubolti 18.8.2011 09:49
Redknapp: Salan á Modric gæti styrkt Tottenham Það er komið annað hljóð í Harry Redknapp, stjóra Tottenham, sem er nú tilbúinn að horfa á eftir Luka Modric til Chelsea eftir allt saman því hann segir að Tottenham gæti fengið þrjá til fjóra góða leikmenn í staðinn. Enski boltinn 18.8.2011 09:45
Blysmönnum mögulega refsað Þór frá Akureyri var í gær sektað um 35 þúsund krónur vegna hegðunar stuðningsmanna liðsins á bikarúrslitaleiknum gegn KR um helgina en kveikt var á blysum í stúkunni. Íslenski boltinn 18.8.2011 09:30
Mourinho eftir tapið á Nývangi í gær: Boltastrákarnir földu boltana Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, mætti á blaðamannafund eftir 2-3 tap Real Madrid fyrir Barcelona í spænska Ofurbikarnum í gærkvöldi og reyndi að venju að hrista svolítið upp í hlutunum. Fótbolti 18.8.2011 09:15
Bjarte Myrhol með krabbamein í eista Bjarte Myrhol, einn besti línumaður heims og lykilmaður hjá bæði Rhein-Neckar Löwen og norska landsliðinu, greindist með krabbamein í eista fyrir viku síðan og er búinn að fara í aðgerð. Handbolti 18.8.2011 09:00
Fréttir úr Djúpinu Langadalsá er kominn uppí 184 laxa. Við heyrðum í Sigga veiðiverði og voru veiðimenn sem kláruðu í morgun að setja í lúsuga laxa og var mikið af nýjum laxi undir neðstu brúnni. Af nágranna hennar Laugardalsá er það að frétta að hún er kominn uppí 165 laxa það sem af er sumri. Veiði 18.8.2011 06:12
Eto'o við það að semja við Anzhi Rússneska félagið Anzhi hefur staðfest að það sé við það að ganga frá samningum við sóknarmanninn Samuel Eto'o frá Kamerún. Fótbolti 17.8.2011 23:30
Gary Martin á leið til Danmerkur Gary Martin, leikmaður ÍA, mun vera á leið til danska B-deildarfélagsins Hjörring þar sem hann leika á lánssamningi til áramóta. Íslenski boltinn 17.8.2011 23:18
Barcelona tók fyrsta titil tímabilsins Lionel Messi var enn og aftur hetja Barcelona en hann skoraði tvívegis í kvöld er Börsungar unnu Real Madrid í síðari leik liðanna um spænska ofurbikarinn. Fótbolti 17.8.2011 22:59