Sport

IEX-deildin: Grindavík – Njarðvík | upphitunarþáttur Stöðvar 2 sport

Úrslitakeppnin í Iceland Express deild karla hefst á fimmtudaginn með tveimur leikjum. Sérfræðingar Stöðvar 2 sport fóru yfir málin með Arnari Björnssyni í upphitunarþætti sem sýndur var á Stöð 2 sport í gærkvöld. Í þessu innslagi fara þeir Guðmundur Bragason og Svali Björgvinsson yfir viðureign deildameistaraliðs Grindavíkur og Njarðvíkur.

Körfubolti

Cruyff: Madridingar eru tapsárir fýlupúkar

Hollenska goðsögnin Johan Cruyff gefur ekki mikið fyrir vælið í Real Madrid um að dómarar á Spáni séu á móti þeim. Svo ósáttir voru allir hjá Real með dómgæsluna að leikmenn og þjálfari voru settir í vikulangt fjölmiðlabann.

Fótbolti

Allt á suðupunkti fyrir Vesturlandsslaginn | Oddaleikur í Fjósinu

Í kvöld fer fram oddaleikur á milli Skallagríms úr Borgarnesi og ÍA frá Akranesi um hvort liðið leikur í Iceland Express deild karla í körfuknattleik á næsta tímabili. Staðan er 1-1 en báðir leikirnir hafa verið æsispennandi og heimaliðin hafa haft betur í báðum leikjum. Pálmi Blængsson formaður körfuknattleiksdeildar Skallagríms var í viðtali í Boltanum á X-977 í morgun þar sem að Valtýr Björn Valtýsson ræddi við hann um Vesturlandsslaginn sem hefst kl. 19.15 í kvöld.

Körfubolti

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Snæfell 93 - 85

Njarðvík komust í 2-1 í undanúrslitarimmu sinni við Snæfell í Ljónagryfjunni í kvöld. Eftir hörkuspennu allan leikinn fengu Njarðvíkustúlkur fjölda vítakasta undir lok leiksins sem þær nýttu vel og tryggði það að lokum 93 - 85 sigur.

Körfubolti

Hvað er um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld?

Það er nóg um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í kvöld þar sem að Meistaradeild Evrópu og enska bikarkeppnin eru í aðalhlutverki. Upphitun fyrir Meistaradeildarleikina í 8-liða úrslitunum hefst kl. 18:00 þar sem Þorsteinn J fer yfir málin með sérfræðingum þáttarins. Tveir leikir fara fram í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar.

Fótbolti

Hnýtingarnámskeið með Sigurði Pálssyni

Sigurður Pálsson fluguhnýtari heldur námskeið fyrir þá sem eru að taka fyrstu skrefin í hnýtingum. Nemendum verða kennd undirstöðuatriðin í hnýtingu, að lesa fluguuppskriftir og allt um efni og áhöld. Námskeiðið eru fjögur kvöld og innifalið er efni og áhöld.

Veiði

Nýr 10 ára samningur um leigu á Minnivallalæk

Um helgina var gerður nýr 10 ára samningur um áframhaldandi leigu Strengja á Minnivallalæk í Landssveit sem þegar hafa haft hann í leigu í 20 ár svo þarna stefnir í 30 ára samningstíma! Samstarfið við Veiðifélag Minnivallalækjar hefur verið gott og fjöldi erlendra veiðimanna farinn að venja komur sínar í ánna.

Veiði

Körfubolti og Meistaradeildin í aðalhlutverki í Boltanum á X977

Meistaradeildin í knattspyrnu og körfubolti verða aðalumræðuefni í Boltanum í dag á X-inu 977 á milli 11-12. Valtýr Björn Valtýsson er umsjónarmaður þáttarins í dag. Hann fær formann Körfuknattleiksdeildar Skallagríms í heimsókn en í kvöld fer fram oddaleikur á milli Skallagríms og ÍA um laust sæti í Iceland Express deild karla í körfuknattleik. Meistaradeildin verður einnig áberandi þar sem Heimir Guðjónsson sérfræðingur Stöðvar 2 sport fer yfir leiki kvöldsins.

Fótbolti

AG mætir Barcelona í Meistaradeildinni

Nú morgun var dregið í átta lið úrslit Meistaradeildar Evrópu. Íslendingaliðið AG frá Kaupmannahöfn fékk heldur betur risavaxið verkefni enda mætir AG spænska stórliðinu Barcelona.

Handbolti

Miami fékk skell gegn Indiana

Stjörnulið Miami Heat er eitthvað að gefa eftir í NBA-deildinni þessa dagana því liðið tapaði stórt annan leikinn í röð í nótt. Að þessu sinni gegn Indiana.

Körfubolti

Eyðimerkurgöngu Tigers lauk loksins

Eftir 923 daga eyðimerkurgöngu kom loksins að því um helgina að Tiger Woods vann golfmót. Það sem meira er þá vann hann mótið með yfirburðum og glans.

Golf

Cisse í fjögurra leikja bann en Heiðar fékk grænt ljós

Djibril Cisse var í kvöld dæmdur í fjögurra leikja bann í ensku úrvalsdeildinni en það er mikið áfall fyrir Queens Park Rangers sem er að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Jákvæðu fréttir dagsins eru þó þær að íslenski framherjinn Heiðar Helguson má aftur byrja að æfa aftur á fullu.

Enski boltinn

Haukakonur í lykilstöðu á móti Íslandsmeisturunum - myndir

Haukakonur eru komnar í frábæra stöðu í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Íslands- og deildarmeisturum Keflavíkur í Iceland Express deild kvenna í körfubolta eftir 73-68 sigur í kvöld. Haukaliðið vann einnig fyrsta leikinn í Keflavík og vantar nú aðeins einn sigur til viðbótar til þess að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu.

Körfubolti

Íris fór úr hnjálið í sigri Hauka

Haukakonur eru komnar í 2-0 á móti Íslands- og deildarmeisturum Keflavíkur eftir 73-68 sigur í öðrum undanúrslitaleik liðanna í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Haukar náðu að landa sigrinum þrátt fyrir að missa einn sinn besta leikmann upp á sjúkrahús í fyrri hálfleik og vantar nú aðeins einn sigur til þess að komast í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn.

Körfubolti

Sir Alex Ferguson: Fulham átti að fá víti í lokin

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sá sína menn ná þriggja stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með því að vinna Fulham 1-0 á Old Trafford í kvöld. United var miklu sterkara liðið framan af leik en tókst ekki að bæta við marki og slapp síðan með skrekkinn í lokin.

Enski boltinn

Inter búið að reka Claudio Ranieri

Claudio Ranieri var rekinn í kvöld en hann hefur verið þjálfari ítalska liðsins Inter Milan síðan í september. Það hefur ekkert gengið hjá liðinu eftir áramót, Inter datt út úr Meistaradeildinni og hefur einnig hrunið niður töfluna í ítölsku deildinni.

Fótbolti

Fabrice Muamba farinn að hreyfa sig úr rúminu

Fabrice Muamba, leikmaður Bolton, heldur áfram að braggast eftir að hafa orðið fyrir hjartastoppi í bikarleik Bolton og Tottenham fyrir rúmri viku. Muamba er farinn að geta hreyft sig úr rúminu sínu á sjúkrahúsinu en bata hans hefur verið líkt við kraftaverk.

Enski boltinn