Uppgjörið: Vestri - Víkingur | Víkingur vann toppslaginn fyrir vestan Arnar Skúli Atlason skrifar 29. maí 2025 13:16 Tarik Ibrahimagic fiskaði vítaspyrnu sem Viktor Örlygur Andrason skoraði úr. vísir
Níunda umferð Bestu deildar karla hófst í dag þegar Víkingur frá Reykjavík vann Vestra á Ísafirði en úrslitin í leiknum voru 0-1. Sigurmarkið skoraði Viktor Örlygur Andrason úr vítaspyrnu. Það voru margir mjög spenntur í fyrir leiknum í dag. Víkingar á toppnum og Vestri í 2. sæti, svokallað spútnik lið deildarinnar það sem af er sumri. Vestri byrjaði betur í leiknum og átti Silas Dylan Singani fyrsta alvöru færi leiksins. Hann fékk sendingu inn fyrir vörn Víkings sem voru hátt á vellinum. Hann fór inn á teig Víkingana en skot hans var mjög lélegt og fram hjá markinu. Það dró til tíðinda á 27 mínútu leiksins þegar frábært spil Víkinga splundraði vörn heimamanna og Tarik Ibrahimagic komst inn á teiginn og fór fram hjá Eið Aron sem varð fyrir því óláni að brjóta á honum. Viktor Örlygur Andrason steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi fram hjá Guy Smith í marki Vestra og gestir því komnir í forystu. Nikolaj Hansen og Matthías Vilhjálmsson voru nálægt því að bæta við mörkum fyrir Víkinga en staðan í hálfleik var 0-1 gestunum í vil. Víkingar komu sterkari inn í seinni hálfleikinn. Voru meira með boltann og stjórnuðu leiknum. Vestramenn voru þéttir og gáfu fá færi á sig. Vestri reyndu að kasta teningunum og notuðu allar sínar skiptingar án þess að leikurinn breytist eitthvað. Enginn opinn færi litu dagsins ljós í seinni hálfleiknum og því endaði hann 0-1 fyrir Víking. Víkingur situr á toppi deildarinnar með 20 stig eftir leikinn en Vestri en enn í 2 sæti deildarinnar með sín 16 stig en Breiðablik geta farið upp fyrir þá sigri þeir sinn leik í dag. Atvik leiksins Vladimar Tufedzic fékk þá sendingu upp hægri vænginn og kom boltanum inn á teig Víkings þar sem boltinn endaði í markinu. Hann var dæmdur ranglega rangstæður í aðdragandanum og því hefði verið fróðlegt að sjá ef þetta hefði fengið að standa. Stjörnur Enginn sem stóð sérstaklega upp úr í dag. En hjá Víking Ég verð að gefa Oliver Ekroth og Gunnari Vatnhamar prik í kladdann. Því þeir komu öllu í burtu sem kom nálægt þeirra svæði í vörninni. Gylfi Þór var sprækastur hjá Víking sóknarlega í seinni hálfleik. Hjá Vestra fór mest fyrir Fatai Adebowale Gbadamosi á miðjunni. Lítið að frétta annars. Dómarar Sigurður Hjörtur hafði góð tök á þessu í dag. Ekki erfiður að leikur að dæma út á velli. Spurningarmerkið er þessi rangstæða sem var ekki rangstæða í fyrri hálfleiknum.
Besta deild karla Vestri Víkingur Reykjavík Íslenski boltinn Fótbolti Tengdar fréttir „Fannst Víkingarnir ekki eiga skilið neitt út úr þessum leik“ Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, var allt annað en sáttur eftir 0-1 tap sinna manna gegn toppliði Víkings í uppgjöri toppliða Bestu deildar karla í fótbolta. Davíð Smári var þó sáttur með hvernig lið sitt spilaði og hvernig það þvingaði Víking í að gera breytingar. 29. maí 2025 17:33 „Unnum klárlega baráttuna í leiknum“ Topplið Víkings fór vestur og lagði Vestra í toppslag Bestu deildar karla í knattspyrnu. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari gestanna, var sáttur með sigurinn. 29. maí 2025 17:12
„Fannst Víkingarnir ekki eiga skilið neitt út úr þessum leik“ Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, var allt annað en sáttur eftir 0-1 tap sinna manna gegn toppliði Víkings í uppgjöri toppliða Bestu deildar karla í fótbolta. Davíð Smári var þó sáttur með hvernig lið sitt spilaði og hvernig það þvingaði Víking í að gera breytingar. 29. maí 2025 17:33
„Unnum klárlega baráttuna í leiknum“ Topplið Víkings fór vestur og lagði Vestra í toppslag Bestu deildar karla í knattspyrnu. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari gestanna, var sáttur með sigurinn. 29. maí 2025 17:12
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Íslenski boltinn