Mál Davíðs Viðarssonar (Quang Le)
1 2 3 … 3 ›
Telja að Quang gæti spillt rannsókninni gangi hann laus Quang Lé og tveir sem grunaðir eru um mansal munu þurfa að sæta gæsluvarðhaldi lengur en lög kveða almennt á um. Lögreglufulltrúi segir að umfang málsins kalli á lengra varðhald svo rannsóknarhagsmunum verði ekki spillt áður en ákæra er gefin út. Innlent 22.5.2024 12:03
Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt Gæsluvarðhald yfir Quang Lé hefur verið framlengt af Héraðsdómi Reykjavíkur og var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til sautjánda júní. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í byrjun mars. Innlent 20.5.2024 20:07
Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Árið 2023 fengu 115 Víetnamar dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli sérfræðiþekkingar. Um er að ræða umtalsverða fjölgun frá fyrri árum og langstærsta hópinn sem fékk dvalarleyfi á þessum forsendum. Innlent 17.5.2024 09:27
Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Litlar líkur eru á því að innbrot á Facebook-síðu Quangs Le, sem gengur einnig undir nafninu Davíð Viðarsson, hafi áhrif á sakamálarannsókn lögreglu á hendur honum. Innlent 30.4.2024 17:56
Quang Le hakkaður á Facebook Óþekktur aðili hefur komist yfir Facebook-aðgang veitingamannsins Quang Le, sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson í fyrra. Viðkomandi hefur tekið sig til og birt skjáskot af ýmsum upplýsingum um veitingamanninn á Facebook-síðu hans. Innlent 30.4.2024 11:31
Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að fara fram á það í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að Davíð Viðarsson, áður Quang Le, sæti áfram gæsluvarðhaldi. Hann hefur verið í varðhaldi í sjö vikur ásamt barnsmóður sinni og bróður. Innlent 23.4.2024 12:24
Davíð Viðarsson þurfi að höfða mál til að skera úr um faðerni Veitingamaðurinn Quang Le er sakaður um að hafa platað félaga sinn til að giftast konu sem hann sjálfur eignaðist tvö börn með. Lögmaður segir manninn þurfa að höfða mál til að leiðrétta skráninguna en mikilvægt sé að börn séu rétt feðruð. Innlent 15.4.2024 21:00
Nældi í eiginkonu Davíðs, barnaði tvisvar og tók upp nafnið hans Ýmsir ráku upp stór augu þegar veitingamaðurinn umsvifamikli Quang Le fór að nota nafnið Davíð Viðarsson á síðasta ári. Enginn þó jafnhissa og miður sín og annar Davíð Viðarsson. Íslenskur karlmaður sem hefur verið skráður faðir tveggja barna Quang Le í hálfan annan áratug gegn vilja sínum. Hann segist brenndur af samskiptum sínum við Quang Le sem hófust fyrir tveimur áratugum. Innlent 15.4.2024 07:01
Stjórnvöld verða að standa með þolendum mansals Rúmar fimm vikur eru liðnar frá aðgerðum lögreglu þann 5. mars sl., þegar veitingastöðum í eigu Davíðs Viðarssonar var lokað og þau skilaboð gefin út til ætlaðra þolenda að framtíð þeirra á Íslandi yrði tryggð. Skoðun 11.4.2024 16:01
Vilja Davíð, eiginkonu og bróður í tveggja vikna varðhald Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar í dag að fara fram á að þrír sakborningar í mansalsmáli tengdu veitingastöðunum Pho Vietnam og þrifafyrirtækinu Vy-þrif verði úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna. Þau hafa þegar setið inni í fimm vikur. Innlent 9.4.2024 11:32
Gæsluvarðhald framlengt um tvær vikur Gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í mansalsmáli tengdu veitingastöðum Pho Vietnam hefur verið framlengt um tvær vikur. Aðstoðaryfirlögrelguþjónn segir rannsókn miða vel en umfang gagna sé mikið og því hægur gangur. Innlent 26.3.2024 14:26
Kærustuparið og bróðirinn enn í haldi Davíð Viðarsson, kærasta hans og bróðir hans sæta enn einangrun í tengslum við rannsókn lögreglu á vinnumansali, peningaþvætti og skipulagðri brotastarfsemi. Bókara fyrirtækja Davíðs, föður hennar og eiginkonu bróður hans hefur verið sleppt. Innlent 24.3.2024 11:19
Einum til sleppt úr haldi Einum til viðbótar hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í tengslum við umfangsmikið mansalsmál. Rannsóknarhagsmunir eru ekki lengur taldir fyrir hendi. Innlent 21.3.2024 17:21
Tveimur úr mansalsmálinu sleppt úr haldi Tveimur af þeim sex sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að umfangsmiklu mansalsmáli var sleppt úr haldi síðdegis í gær þar sem þeirra hlutur í málinu telst upplýstur. Innlent 21.3.2024 11:06
Davíð lofaði bót og betrun en hélt uppteknum hætti Nágrannar veitingastaðarins Pho Víetnam í kjallaranum á Laugavegi 27 kvörtuðu ítrekað undan því að staðurinn bryti í bága við starfsleyfi, mikil lykt bærist frá staðnum og hávaði væri of mikill. Endurtekið lofaði eigandi staðarins að starfrækja kaffihús eins og leyfi var fyrir en hélt svo uppteknum hætti við að selja heita rétti. Þá opnaði hann staðinn þrátt fyrir að honum hefði verið lokað af eftirlitinu. Innlent 21.3.2024 07:00
„Þessi mál koma okkur ekkert við“ Björn Leifsson, eigandi World Class, segir þau mál sem Kristján Ólafur Sigríðarson sé flæktur í ekki koma sér, eiginkonu eða fyrirtæki við á neinn hátt. Hann fordæmir að vera dreginn inn í svo alvarleg mál og biðlar til fjölmiðla að vanda til verka. Innlent 16.3.2024 13:57
Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Kristján Ólafur Sigríðarson, einn níu sakborninga í meintu mansalsmáli tengdu Pho Vietnam og Wok On, hefur komið víða við síðan hann hóf veitingarekstur og fasteignaviðskipti. Kristján er í dag 33 ára gamall en byrjaði í viðskiptum aðeins 25 ára með aðstoð stjúpföður síns sem er einn þriggja hluthafa í World Class fjölskylduveldinu. Viðskipti innlent 16.3.2024 09:00
Reynt að hafa áhrif á meinta þolendur mansals Davíðs Ljóst þykir að einhver matar meinta þolendur í mansalsmáli Davíðs Viðarssonar með röngum upplýsingum um stöðu þeirra hér á landi. Verkefnastjóri hjá ASÍ segir þolendunum hafa verið hótað brottvísun á þeim tíma sem þau störfuðu fyrir fyrirtæki Davíðs. Innlent 15.3.2024 18:31
Leigusamningum Davíðs á Tryggvagötu og Vesturgötu rift Fjelagið eignarhaldsfélag ehf. hefur rift leigusamningum, sem það hafði gert við Vietnamese Cuisine ehf. Síðarnefnda félagið er í eigu Davíðs Viðarssonar, sem situr nú í gæsluvarðhaldi ásamt fimm öðrum og er grnaður um mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi. Innlent 14.3.2024 21:22
Fyrrverandi eigandi Wok On meðal sakborninga Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson þegar upp komst um ólöglegan matvælalegar í Sóltúni, verður í gæsluvarðhaldi næstu tvær vikurnar. Maki hans til margra ára er á meðal handteknu og sömuleiðis bróðir hans. Þá er nýdæmdur skattsvikari með stöðu sakbornings í málinu. Innlent 13.3.2024 14:59
Gefur ekki fimm aura fyrir gagnrýni á Krónuna Framkvæmdastjóri Krónunnar segir fjarstæðukennt að halda því fram að Krónan hafi fórnað hagsmunum viðskiptavina til að forðast mögulega skaðabótaskyldu. Fyrirtækið hafi strax brugðist við fréttum af matvælalager í Sóltúni, sem tengdist meðal annars veitingastaðnum Wok On. Þegar rökstuddur grunur um mansal og fleira ólöglegt athæfi hafi legið fyrir, hafi samningi Krónunnar við Wok On verið rift. Viðskipti innlent 12.3.2024 22:11
Krónan brást strax við Krónan áréttar að í nóvember á síðasta ári var samningi við Wok On sagt upp með samningsbundnum uppsagnarfresti. Var þetta gert í kjölfar fregna af matvælalagernum í Sóltúni. Á þessum tímapunkti lá ekki fyrir það sem komið hefur fram í fjölmiðlum síðustu daga um rekstur þessara staða; rökstuddur grunur um mansal og annað glæpsamlegt athæfi. Þegar það lá fyrir var stöðunum lokað, samningi rift og merkingar teknar niður. Skoðun 12.3.2024 21:01
Eik var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns og slítur samstarfi Eik fasteignafélagi var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns Ólafs Sigríðarsonar, sem var ráðinn rekstrarstjóri nýrrar mathallar á Glerártorgi á Akureyri. Eik hefur nú slitið samstarfi við Kristján. Sturla G. Eðvarðsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eik tekur við rekstrarstjórn á meðan framhald ræðst. Viðskipti innlent 12.3.2024 20:40
Úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald Sex manns voru úrskurðuð í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða glæpastarfsemi. Innlent 12.3.2024 18:01
Völdu hættu á matareitrun frekar en skaðabætur Ólafur Hauksson, almannatengill og hluthafi í Festi, gagnrýnir Krónuna harðlega fyrir að hafa metið hættu á skaðabótamáli æðri en þá hættu að selja viðskiptavinum sínum vafasaman mat í fjóra mánuði. Innlent 12.3.2024 10:38
Hallærislegt hjá Krónunni Forstjóri Festi, móðurfélags Krónunnar, segir í viðtali við Morgunblaðið í gær (11. mars) að Krónan hafi sagt upp samningum við Wok On í verslunum Krónunnar í nóvember. Skoðun 12.3.2024 10:00
Gengið vel að fá upplýsingar frá meintum mansalsþolendum Lögreglu gengur afar vel að fá upplýsingar frá þolendum meints mansals Davíðs Viðarsson. Þeim var létt þegar lögreglan handtók sex manns í tengslum við málið. Innlent 11.3.2024 18:26
Rannsókn enn opin hvort fíkniefnasala komi við sögu Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, segir tvo fulltrúa frá bandarísku fíkniefnalögreglunni hafa komið að aðgerðum í tengslum við húsleit og handtökur tengdar Davíð Viðarssyni og veitingastöðum og gistihúsum í hans eigum. Sá angi málsins er enn til rannsóknar. Innlent 11.3.2024 16:38
„Þetta er alveg skelfileg meðferð á starfsfólki“ Formaður MATVÍS segir meðferðina á starfsfólki hjá fyrirtækjum Davíðs Viðarssonar hafa verið skelfilega. Ábendingum um slæma meðferð á starfsfólki á öðrum stöðum hefur fjölgað eftir að upp komst um málið. Innlent 11.3.2024 12:16
Veitingamenn slegnir og kalla eftir skilvirkara eftirliti Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði kallar eftir að vinnustaðaeftirlit verði eflt. Veitingamenn séu slegnir eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir í tengslum við meint mansal á veitingastöðum Davíðs Viðarssonar í síðustu viku. Innlent 10.3.2024 19:07