Innlent

Quang Le hakkaður á Facebook

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hakkararnir hafa breytt prófílmyndinni hjá Quang Le og birt ýmsar háðskar færslur á Facebook-síðu hans.
Hakkararnir hafa breytt prófílmyndinni hjá Quang Le og birt ýmsar háðskar færslur á Facebook-síðu hans.

Óþekktur aðili hefur komist yfir Facebook-aðgang veitingamannsins Quang Le, sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson í fyrra. Viðkomandi hefur tekið sig til og birt skjáskot af ýmsum upplýsingum um veitingamanninn á Facebook-síðu hans.

Quang Le hefur setið í gæsluvarðhaldi undanfarnar tæpar átta vikur. Hann er grunaður um vinnumansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi í tengslum við rekstur á þrifafyrirtækinu Vy-þrif og veitingastöðunum Pho Vietnamese og Wok On. Þá heldur lögregla enn opnum möguleikanum á að fíkniefnasala eða -framleiðsla tengist málinu.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hökkuðu aðilar sem fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hverjir eru sig inn á Facebook-síðu Quang Le. Þeir byrjuðu að birta ýmislegt efni um klukkan ellefu, bæði á persónulegri Facebook-síðu Quang Le og Facebook-síðu Wok On. Þar er skotið föstum skotum á ríkisstjórnarflokkana, Krónuna, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, World Class og samstarfsmenn Quang Le. Meðal annars eru birt samskipti Quang Le við vin sinn þar sem þeir birta myndir af rössum kvenna í líkamsrækt í World Class og ræða líkama þeirra.

Quang Le hefur búið hér á landi í rúma tvo áratugi. Viðmælendur Vísis hafa lýst honum sem heillandi manni sem fólki líki vel við. Um leið virðist hann vera maður sem svífst einskis til að fá sínu fram. Fólk frá Víetnam hefur lýst því að hafa greitt honum milljónir króna fyrir aðstoð við að fá dvalarleyfi á Íslandi á fölskum forsendum. Meint vinnumansal snýr að því og um leið óeðlilega löngum vinnudögum víetnamskra starfsmanna hjá fyrirtækjum Quang Le sem þurfa að endurgreiða honum hluta launa sinna í reiðufé.

Þá sagði íslenskur karlmaður að nafni Davíð Viðarsson sögu sína á Vísi á dögunum. Hann lýsti því að hafa gifst konu í Víetnam fyrir tuttugu árum sem reyndist vera ástkona Quang Le. Davíð sá var skráður giftur konunni í fimm ár og á meðan eignaðist hún tvö börn. Þau eru bæði skráð börn Davíðs Viðarssonar, hins íslenska, enn þann dag í dag. Það kom flatt upp á Davíð þegar hann heyrði að Quang Le hefði breytt nafni sínu í fyrra, í Davíð Viðarsson.

Konan situr í gæsluvarðhaldi ásamt Quang Le og bróður hans. Þegar mest var sátu sex í gæsluvarðhaldi. Quang Le er skráður eigandi veitingastaðannaa Pho Vietnamese, Wok On auk þess að reka þrifafyrirtækið Vy-þrif sem hélt úti ólöglegum matvælalager í kjallara í Sóltúni. Þá er hann skráður eigandi fasteigna um alla Reykjavík, þeirra á meðal Herkastalans við Kirkjustræti.


Veistu meira um málin að ofan? Fréttastofa tekur við ábendingum á ritstjorn@visir.is. 


Tengdar fréttir

Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að fara fram á það í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að Davíð Viðarsson, áður Quang Le, sæti áfram gæsluvarðhaldi. Hann hefur verið í varðhaldi í sjö vikur ásamt barnsmóður sinni og bróður.

Davíð lofaði bót og betrun en hélt uppteknum hætti

Nágrannar veitingastaðarins Pho Víetnam í kjallaranum á Laugavegi 27 kvörtuðu ítrekað undan því að staðurinn bryti í bága við starfsleyfi, mikil lykt bærist frá staðnum og hávaði væri of mikill. Endurtekið lofaði eigandi staðarins að starfrækja kaffihús eins og leyfi var fyrir en hélt svo uppteknum hætti við að selja heita rétti. Þá opnaði hann staðinn þrátt fyrir að honum hefði verið lokað af eftirlitinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×