Starfsemi Lindarhvols

Óskar eftir skýringum frá ráðuneyti Bjarna
Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum fjármála- og efnahagsráðuneytisins á fullyrðingum um að ólöglegt sé að gera vinnuskjöl ríkisendurskoðanda opinber.

„Skrípaleikur“ Sigmars
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar hefur lýst yfir mikilli furðu yfir beiðni meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að fá á fund nefndarinnar þá ríkisendurskoðendur sem komu að gerð skýrslu embættisins um Lindarhvol þrátt fyrir tilvist trúnaðarskjals í málinu. Furða þingmannsins yfir beiðninni er reyndar svo gríðarleg að hann kallar hana „einhvers konar heimsmet í skrípaleik“ og farsa sem sé „með þeim lélegri á dagskrá Alþingis í manna minnum“

Segir sýknudóm vonbrigði
Framkvæmdastjóri Frigusar segir dóm í máli gegn ríkinu og Lindarhvoli koma gríðarlega á óvart og vera vonbrigði. Íslenska ríkið og Lindarhvoll voru í dag sýknuð af kröfu félagsins vegna sölu á eignarhaldsfélaginu Klakka.

Hefja viðræður um kaup Festi á Lyfju fyrir um 7,8 milljarða króna
Forsvarsmenn Festi hf. og SID ehf. undirrituðu í dag samkomulag um helstu skilmála vegna fyrirhugaðra kaupa Festi á öllu útgefnu hlutafé Lyfju hf.. Samkomulagið felur í sér að heildarvirði Lyfju sé 7,8 milljarðar króna en endanlegt kaupverð hlutafjár mun ráðast af skuldastöðu félags við afhendingu ásamt gengi hlutabréfa í Festi á þeim tíma.

Lindarhvoll og ríkið sýknað af kröfum Frigusar
Héraðsdómur Reyjavíkur hefur sýknað Lindarhvol og ríkið af kröfum Frigusar II ehf. Dómur féll í málinu nú fyrir stundu. Málskostnaður fellur niður.

Leyndó í beinni útsendingu
Nýjustu vendingar í málefnum Lindarhvols eru sennilega þær furðulegustu hingað til. Hjá ríkisstjórnarflokkunum hefur farið gríðarleg orka í að koma í veg fyrir að almenningur fái að sjá greinargerð sem einn ríkisendurskoðandi vann um Lindarhvol, en hún stangast í veigamiklum atriðum á við skýrslu sem annar ríkisendurskoðandi gerði um sama mál.

Enn aukast flækjur Lindarhvolsmálsins á Alþingi
Þingmenn eru enn að vandræðast með hvort opinbera eigi greinargerð frá fyrrverandi settum ríkisendurskoðanda um eignarhaldsfélag ríkisins utan um eignir sem það leysti til sín eftir hrun bankanna. Málið verður furðulegra með hverjum deginum sem líður

Kalla settan ríkisendurskoðanda á fund um Lindarhvol: „Mögulega tilgangslausasti fundur þingsögunnar“
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hefur ákveðið að boða settan ríkisendurskoðanda á opinn fund um Lindarhvolsmálið. Þingmaður Pírata velti því upp hvort sá fundur yrði „mögulega tilgangslausasti fundur þingsögunnar“ og sakaði meirihlutann um sýndarmennsku. Stjórnarliðar sögðu ekkert óeðlilegt við að boðað hafi verið til fundar, þó ekki megi birta greinargerð um málið.

Mögulegt að greinargerð um Lindarhvol verði aldrei birt
Andstaða forseta Alþingis við að birta umtalaða greinargerð um Lindahvol ehf. gæti þýtt að hún komi aldrei fyrir augu þingmanna eða almennings þrátt fyrir vilja meirihluta þingheims, að sögn þingmanns Viðreisnar. Hann saknar þess að heyra forseta rökstyðja afstöðu sína.

Tekist á um Lindarhvol á þinginu: „Hvers konar rugl erum við eiginlega komin í?“
Þingmenn stjórnarandstöðunnar streymdu hver á fætur öðrum upp í pontu á Alþingi í dag og gagnrýndu forseta Alþingis fyrir að gera ekki greinargerð um Lindarhvol opinbera. Greinargerðin hefur verið mikið hitamál og furða þingmenn stjórnarandstöðunnar sig á því hvers vegna forseti Alþingis stendur í vegi fyrir því að greinargerðin sé birt.

Gefst ekki upp og leggur aðra fyrirspurn fyrir þingforseta
Þrátt fyrir að Jóhanni Páli Jóhannssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, hafi síðastliðinn mánudag með atkvæðagreiðslu í þinginu verið bannað að spyrja þingforseta um greinargerð fyrrverandi ríkisendurskoðanda um Lindarhvol lætur hann ekki deigan síga og hefur enn á ný beint fyrirspurnum til forseta Alþingis um málið.

Lindarhvoli ber að afhenda álitsgerð MAGNA um félagið
Lindarhvoli ehf. er skylt að veita Frigus II ehf. aðgang að álitsgerð MAGNA lögmanna sem lögmannsstofan vann fyrir forsætisnefnd Alþingis. Álitsgerðin fjallar um hvort afhenda ætti blaðamanni greinargerð setts ríkisendurskoðanda, Sigurðar Þórðarsonar, um starfsemi Lindarhvols.

Synjun birtingar þrengi verulega að möguleikum þingmanna til eftirlits
Þingmaður Viðreisnar segir synjun birtingar á greinargerð fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol setja þingmenn í erfiða stöðu og hafa þrengt að möguleikum þeirra til að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu líkt og þeim ber að gera.

Hengilás fyrir forseta Alþingis
Það var dapurlegt að taka þátt í atkvæðagreiðslunni á Alþingi í fyrradag um fyrirspurn vegna Lindarhvols. Í stað þess að virða rétt þingmanna og almennings til að fá upplýsingar um mál sem varðar eigur almennings upp á hundruð milljarða, er reistur hár og voldugur þagnarmúr þar sem forseti Alþingis er verkstjórinn.

Bannað að spyrja um eignasölu Bjarna
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokks hafa nú beitt meirihlutavaldi á Alþingi til að banna mér að spyrja forseta Alþingis um greinargerð sem fjallar um sölu Bjarna Benediktssonar á tugmilljarða eignum ríkisins í gegnum einkahlutafélagið Lindarhvol ehf.

Einkennilegt að upplýsingarétti almennings sé mætt með lagaþrætu
Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur, segir kröfuna um að greinargerð fyrrverandi setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvolsmálið verði gerð opinber vera sjálfsagða og mikilvæga. Það sé einkennilegt að upplýsingarétti almennings sé mætt með lagaþrætu.

„Hafið yfir allan vafa að þingskaparlög eru með mér í liði“
Jóhann Páll Jóhannsson segir niðurstöðu atkvæðagreiðslu, um hvort hann megi leggja fram fyrirspurn um innihald greinargerðar fráfarandi setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol, koma á óvart.

Ráðvilltur ríkisendurskoðandi
Undanfarið hefur forseti Alþingis flúið úr einu horni í annað undan þeim sem berjast fyrir því að greinargerð setts ríkisendurskoðanda í Lindarhvolsmálinu verði birt. Forseti hefur bágan málstað að verja þar sem allir aðrir forsætisnefndarmenn hafa samþykkt birtingu greinargerðarinnar auk þess sem tvö lögfræðiálit liggja fyrir um að birta skuli greinargerðina.

Fær ekki að spyrja um Lindarhvol
Meirihluti Alþingis hafnaði í dag að leyfa Jóhanni Páli Jóhannssyni þingmanni Samfylkingarinnar að leggja fram fyrirspurn um innihald greinargerðar fráfarandi setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol. Þetta er í fyrsta sinn frá 1989 sem álíka atkvæðagreiðsla fer fram.

„Vona að hann leiðrétti mistökin áður en atkvæðagreiðslan fer fram“
Alþingi mun í dag skera úr um hvort tveir þingmenn stjórnarandstöðunnar fái að leggja fram fyrirspurnir um stafsemi ríkisendurskoðunar í máli Lindarhvols. Annar þeirra segir forseta þingsins hafa gert mistök með því að hafna framlagningu fyrirspurnarinnar og hann hljóti að sjá að sér áður en atkvæðagreiðslan fer fram.