Deila Ronaldo og Manchester United

Al-Nassr þarf að fórna öðrum leikmanni til að Ronaldo megi spila
Cristiano Ronaldo getur ekki spilað fyrsta leikinn með Al-Nassr alveg strax. Koma hans mun kosta annan leikmann starfið.

Ronaldo um val sitt að fara til Al-Nassr: Vill líka hjálpa kvennafótboltanum
Flestir efast um að Cristiano Ronaldo tali gegn mannréttindabrotum í Sádí Arabíu á tíma sínum sem leikmaður Al-Nassr. Hann ætlar aftur á móti að hjálpa kvennafótboltanum í landi sem bannaði konum að mæta á kappleiki.

Ronaldo fékk ekki ósk sína uppfyllta
Cristiano Ronaldo er nýgenginn til liðs við Al Nassr í Sádi Arabíu þar sem hann fær 200 milljónir dollara í árslaun. Ronaldo vildi endurnýja kynni sín við gamla liðsfélaga en varð ekki að ósk sinni.

Ronaldo á leið í læknisskoðun í Sádi-Arabíu
Portúgalinn Cristiano Ronaldo er á leið í læknisskoðun hjá sádíska félaginu Al-Nassr í aðdraganda skipta sinn til liðsins. Sádar gera sér vonir um að ganga frá samningum fyrir áramót.

Ronaldo skrifi undir sjö ára samning við Sáda
Cristiano Ronaldo er við það að ganga frá stærsta samningi fótboltamanns í sögunni við Sádi-Araba. Sjö ára samningur muni skila honum yfir 560 milljónum króna á viku.

Ten Hag: Við vildum halda Ronaldo
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir það hafa verið ákvörðun Ronaldo að yfirgefa félagið. Ten Hag hefði sjálfur verið til í að hafa Ronaldo lengur hjá félaginu, þangað til hann fór í viðtalið umdeilda við Piers Morgan.

Systir Ronaldos grátbiður hann að hætta í landsliðinu
Systir Cristianos Ronaldo hefur grátbeðið hann um að hætta í portúgalska landsliðinu.

Lágkúra eða kynding hjá Cristiano Ronaldo þegar hann sýndi nýja úrið í gær?
Cristiano Ronaldo hefur spilað sinn síðasta leik með Manchester United en hann og enska félagið tilkynntu um það í gær að þau hefðu komist að samkomulagi um starfslok.

„Finnst eins og þetta sé rétti tíminn fyrir mig að leita að nýrri áskorun“
Cristiano Ronaldo sendi frá sér stuttorða yfirlýsingu fyrr í kvöld eftir að hann og Manchester United komust að samkomulagi að því að rifta samningi leikmannsins. Hann segist enn elska félagið og stuðningsmennina, en að tími hafi verið kominn á breytingar.

Ronaldo yfirgefur United
Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hefur leikið sinn síðasta leik fyrir enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United.

Ronaldo mætti óvænt á blaðamannafund: Segist vera skotheldur
Cristiano Ronaldo var mættur á blaðamannafund portúgalska landsliðsins í morgun. Það virðist hafa komið mörgum á óvart því tiltölulega fáir blaðamenn voru mættir til að spyrja hann spurninga.

Elanga kemur Ronaldo til varnar
Anthony Elanga tók upp hanskann fyrir Cristiano Ronaldo í viðtali eftir landsleik Svíþjóðar og Mexíkó í vikunni. Gagnrýni Ronaldo gagnvart ungum leikmönnum í viðtali hans hjá Piers Morgan hefur vakið töluverða athygli.

United íhugar að reka Ronaldo
Manchester United vinnur nú að því að reka Cristiano Ronaldo frá félaginu. Portúgalinn gerði sem kunnugt er allt vitlaust með viðtalinu umtalaða við Piers Morgan.

Ronaldo svaraði því af hverju hann hafnaði boði um hæstu laun sögunnar
Cristiano Ronaldo heldur því fram í viðtalinu umtalaða við Piers Morgan að hann hafi verið „mjög ánægður“ hjá Manchester United í sumar og séð fram á spennandi leiktíð.

„Ánægður ef Arsenal vinnur deildina“
Seinni hluti viðtals Piers Morgan við Cristiano Ronaldo var sýnt í kvöld. Þar sagði Ronaldo meðal annars að hann yrði ánægður að sjá Arsenal vinna deildina og þá ræddi hann einnig um virðinguna sem hann ber fyrir Lionel Messi.

„Engin leið til baka fyrir Ronaldo“
Gary Neville fékk sinn skerf af gagnrýni frá Cristiano Ronaldo í viðtalinu umtalaða við Piers Morgan. Neville segir að Ronaldo eigi ekki afturkvæmt hjá United og segist ekki vera á móti Portúgalanum.

Generalprufa Messi og Ronaldo fyrir HM: Annar skoraði en hinn með magakveisu
Landslið Argentína og Portúgals hafa innan borðs goðsagnakennda leikmenn á tímamótum og mæta á heimsmeistaramótið í Katar til að reyna að færa hetjum sínum langþráðan heimsmeistaratitil.

Ronaldo elskar Solskjær en segist aldrei hafa litið á Rangnick sem stjórann
Cristiano Ronaldo segir að Manchester United hafi staðnað og lítið breyst síðan hann yfirgaf félagið árið 2009. Hann segir að Ole Gunnar Solskjær hefði þurft meiri tíma með liðið og að hann hafi aldrei litið á Ralf Rangnick sem stjórann.

„Ég var nálægt því að ganga til liðs við City“
Cristiano Ronaldo segir í viðtalinu umtalaða við fjölmiðlamanninn Piers Morgan að litlu hafi munað að hann myndi ganga til liðs við Manchester City sumarið 2021. Alex Ferguson var sá sem náði að sannfæra hann um að ganga frekar til liðs við Manchester United.

Segir að Ronaldo gæti klórað sér í pungnum það sem eftir er án þess að skaða arfleifðina
Katia Aveiro, systir portúgalska knattspyrnumannsins Cristiano Ronaldo, hefur komið bróður sínum til varnar eftir að hann settist niður í umdeilt viðtal við þáttastjórnandann Piers Morgan. Hún segir að bróðir sinn gæti klórað sér í pungnum það sem eftir er af ferlinum og það myndi ekki hafa nein áhrif á arfleifðina sem hann skilur eftir sig.