Segir að allir muni styðja Ten Hag nema Ferdinand, Keane og Evra Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. nóvember 2022 14:01 Jamie Carragher í baráttu við Cristiano Ronaldo í leik Liverpool og Manchester United fyrir ansi mörgum árum. getty/Bryn Lennon Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir að Cristiano Ronaldo hafi skorað sjálfsmark með viðtali sínu við Piers Morgan. Hann segir að nær allir stuðningsmenn United myndi styðja Erik ten Hag, knattspyrnustjóra liðsins, frekar en Ronaldo.
Í viðtalinu við Morgan drullaði Ronaldo yfir allt og alla hjá United, sakaði félagið um metnaðarleysi og svik við sig, Ten Hag um vanvirðingu, sagði fyrrverandi samherja sinn, Wayne Rooney, vera ófríðan og þar fram eftir götunum. Carragher segir að Ronaldo hafi gert stór mistök með viðtalinu og stuðningsmenn United muni fylkja sér um Ten Hag. „Ronaldo „Ég ber ekki virðingu fyrir stjóranum“, Ronaldo undir stjórn ETH: Óskaði eftir því að fara, neitaði að koma inn á sem varamaður, yfirgaf varamannabekkinn og fór áður en leikurinn kláraðist,“ skrifaði Carragher á Twitter og vísaði til þess þegar Ronaldo vildi ekki koma inn á í sigri United á Tottenham. „Níutíuogníu prósent stuðningsmanna United verða á bandi ETH sem sýnir hversu illa Ronaldo fór með þetta.“ Carragher bætti við að þetta eina prósent sem myndi styðja Ronaldo væru fyrrverandi samherjar Portúgalans, Rio Ferdinand, Roy Keane og Patrice Evra. Viðtalið umtalaða fór í loftið í gærkvöldi, nokkrum klukkutímum eftir að United hafði unnið dramatískan sigur á Fulham á Craven Cottage, 1-2. Alejandro Garnacho skoraði sigurmark United nánast með síðustu spyrnu leiksins. Ronaldo sagðist vera of veikur til að geta mætt í leikinn, eftir að honum var tjáð að hann yrði ekki í byrjunarliði United.
Enski boltinn Deila Ronaldo og Manchester United Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Sjá meira