Mál Julians Assange

„Ekkert annað en yfirgripsmikil og alvarleg þöggun“
Kristinn segir í samtali við fréttastofu að það hafi ekki komið honum á óvart að innanríkisráðherrann hefði skrifað undir framsalsbeiðnina. Í gangi sé „ekkert annað en yfirgripsmikil og alvarleg þöggun“.

Innanríkisráðherra Breta skrifar undir framsalsbeiðni Assange
Verður dómstóla að meta hvort Assange verður framseldur til Bandaríkjanna.

Bandarísk yfirvöld óskuðu eftir því að réttarbeiðni hér á landi yrði hraðað
Bandarísk stjórnvöld óskuðu eftir því við íslensk stjórnvöld að réttarfarsbeiðni um að fá íslenskan mann til skýrslutöku hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vegna sakamálarannsóknar á Julian Assagne þar ytra, yrði hraðað sem kostur væri.

Undirbúin ef FBI hefur samband vegna Wikileaks
Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður, segir að svo virðist sem erlend yfirvöld geti komið hingað til lands óhindrað og fært íslenska þegna í skýrslutöku vegna rannsóknar mála.

Ekki vitað hvernig íslensk yfirvöld komu að rannsókn á Assange
Ráðmenn íslenskra stjórnvalda segjast ekki hafa verið upplýstir um komu embættismanna bandaríska dómsmálaráðuneytisins og bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, hingað til lands í síðustu viku þar sem þeir ræddu við Sigurð Inga Þórðarson og fengu hann til skýrslutöku vegna vitneskju sinnar um samtökin.

Krefur íslenska ráðamenn svara vegna Assange-rannsóknar
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, hefur sent formlega fyrirspurn.

Gæsluvarðhaldskröfu á hendur Assange hafnað
Saksóknarar höfðu vonast til þess að fá Assange framseldan frá Bretlandi.

Segir Asssange fórnarlamb „sálfræðilegra pyntinga“
Sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna í pyntingum hitti stofnanda Wikileaks í fangelsi fyrr í þessum mánuði.

Ný ákæra á hendur Assange markar tímamót í sögu Bandaríkjanna
Bandarísk yfirvöld hafa birt Julian Assange, stofnanda Wikileaks, nýja ákæru þar sem hann er sakaður um brot á njósnalögunum í sautján liðum. Ákæran þykir marka tímamót en þetta er í fyrsta sinn í sögu Bandaríkjanna sem blaðamaður er ákærður fyrir brot á njósnalögunum.

Leggja fram formlega beiðni um handtöku
Saksóknari í Svíþjóð hefur farið fram á það við þarlenda dómstóla að gefin verði út handtökuskipun á Julian Assange, stofnanda Wikileaks.

Segir málið tækifæri fyrir Assange til að hreinsa mannorð sitt
Rannsókn hefur verið opnuð á nýjan leik vegna ásakana á hendur Julian Assange um nauðgun.

Rannsókn á nauðgunarmáli Assange opnuð aftur
Lögmaður konu sem sakar stofnanda Wikileaks um nauðgun fór fram á að rannsókn yrði tekin upp aftur í kjölfar þess að hann er ekki lengur í skjóli í sendiráði Ekvadors.

Ákveða hvort nauðgunarrannsóknin verði hafin að nýju
Assange hefur ávallt neitað sök í málinu.

Pamela Anderson og Kristinn Hrafnsson þau fyrstu til að hitta Assange
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, segir að málið sé alvarlegt og snúist um líf eða dauða.

Assange vill ekki vera framseldur til Bandaríkjanna
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, segist ekki vilja vera framseldur til Bandaríkjanna. Réttarhöld standa nú yfir í London vegna framsalsbeiðni Bandaríkjanna sem vilja koma höndum yfir Assange vegna birtinga Wikileaks á leynilegum upplýsingum sem samtökin fengu frá Chelsea Manning árið 2010.

Assange dæmdur í 50 vikna fangelsi
Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, var dæmdur í 50 vikna langt fangelsi í Bretlandi í dag fyrir að brjóta gegn skilyrðum þess er hann var látinn laus úr haldi lögreglu í Bretlandi árið 2012.

Krefjast þess að Assange verði ekki framseldur
Þingkonur á þjóðþingum Spánar og Þýskalands og á Evrópuþinginu krefjast þess að komið verði í veg fyrir að Julian Assange verði framseldur til Bandaríkjanna.

Segir Assange hafa makað saur á sendiráðsveggina
Forseti Ekvadors segir að það hafi verið nægileg ástæða til að afturkalla hæli stofnanda Wikileaks.

Icesave-lekinn í greinargerð FBI um Assange: „10 Reykjavik 13“
Í greinargerð bandarísku alríkislögreglunnar FBI um mál Julians Assange er sérstaklega fjallað um leyniskýrslur bandaríska sendiráðsins um samskipti íslenskra ráðamanna í tengslum við Icesave-málið. Trúnaðargögnunum var lekið til WikiLeaks árið 2010.

Forvitin augu
Sama hvaða skoðun fólk hefur á Julian Assange, útgefanda Wikileaks, þá blasir við að fangelsun hans nýverið og yfirvofandi framsal til Bandaríkjanna er meiriháttar ógn við sjálfstæði og öryggi blaðamanna, ritstjóra og útgefenda vítt og breitt um heiminn.