
Ofurdeild Evrópu óþörf: Vandræði Barcelona, Dortmund og Atlético sanna það
Síðasta umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu hefst í kvöld. Enn á fjöldi liða eftir að tryggja sæti sitt í 16-liða úrslitum. Þar á meðal er spænska stórliðið Barcelona sem má muna fífil sinn fegurri, liðið þarf í raun á kraftaverki að halda til að komast áfram.

Ofurdeildarfélögin sleppa við refsingu
Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, hefur ákveðið að lögsækja ekki Real Madrid, Barcelona og Juventus fyrir þátttöku sína í tilraun til að stofna nýja Ofurdeild.

Reglur um fjárhagslega háttvísi á bak og burt svo moldríkir eigendur geti eytt eins og þeim sýnist
Reglur UEFA um fjárhagslega háttvísi (FFP) eru á leiðinni í grunna gröf. Unnið er að nýju regluverki til að passa upp á eyðslu knattspyrnuliða í Evrópu. Félögin sem voru á bakvið hugmyndina að svokallaðri ofurdeild munu vinna saman að nýju regluverki.

Forseti Real sagði Raúl og Casillas vera mestu brandara í sögu félagsins
Florentino Pérez, forseti Real Madrid, hefur tekið til varna eftir að gömul, niðurlægjandi ummæli hans um tvo af dáðustu sonum félagsins voru birt í spænska miðlinum El Confidencial.

„Ofurdeildarliðin eru eins og lítil börn“
Aleksander Ceferin, forseti UEFA, heldur áfram að skjóta föstum skotum í átt að Ofurdeildarliðunum Barcelona, Real Madrid og Juventus.

Ensku félögin fengu sekt fyrir þátttökuna í ofurdeildinni
Ensku félögin sex sem ætluðu að taka þátt í ofurdeildinni svokölluðu voru sektuð um samtals tuttugu milljónir punda af ensku úrvalsdeildinni.

Segja að Barcelona, Real Madrid og Juventus verði rekin úr Meistaradeildinni
Barcelona, Real Madrid og Juventus verður hent út úr Meistaradeild Evrópu. Þetta segja ítalskir fjölmiðlar.

UEFA í hart gegn óhlýðnu félögunum Real Madrid, Barcelona og Juventus
Knattspyrnusamband Evrópu hefur hafið mál gegn þremur af stærstu fótboltafélögum álfunnar vegna aðkomu þeirra að stofnum Ofurdeildar Evrópu.

Sakar forseta FIFA um að vera hugmyndasmiðinn að Ofurdeildinni
Yfirmaður La Liga á Spáni segir að Gianni Infantino, forseti FIFA, hafi ekki aðeins stutt Ofurdeildarhugmyndina heldur verið maðurinn á bak við tjöldin.

Stuðningsfólk Manchester United ruddist inn á Old Trafford | Myndir og myndskeið
Stuðningsfólk enska knattspyrnufélagsins Manchester United er allt annað en ánægt með eigendur félagsins. Fjöldi fólks ruddist inn á Old Trafford, heimavöll liðsins, nú rétt í þessu en liðið mætir Liverpool í stórleik enska boltans klukkan 15.30 í dag.

Lókal er leiðin
Á dögunum var greint frá áformum tólf stærstu knattspyrnuliða Evrópu um stofnun svokallaðrar Ofurdeildar. Hugðust liðin sneiða hjá skipulögðum keppnum á vegum Evrópska knattspyrnusambandsins, en keppa þess í stað á eigin vegum - í keppni þar sem þeim yrði tryggð þátttaka á grundvelli sögu og fjárhagsstöðu, ekki árangurs.

Settu reglu til að banna ofurdeildarlið
Ítalska knattspyrnusambandið hefur samþykkt reglu sem kemur í veg fyrir að lið geti spilað í ítölsku A-deildinni samhliða því að spila í annarri keppni sem ekki er á vegum FIFA eða UEFA.

Pérez: Liðin með „bindandi samning“ og „geta ekki farið“
Florentino Pérez, forseti Real Madrid og forsprakki ofurdeildarinnar, segir félögin tólf sem tóku þátt í stofnun hennar síðustu helgi geti ekki sagt sig frá verkefninu svo glatt. Samningur milli liðanna sé í gildi.

„Harma mjög“ aðkomu að Ofurdeildinni
Roman Abramovich, eigandi Chelsea, sendi ásamt stjórn félagsins út yfirlýsingu í gærkvöld þar sem aðkoma liðsins að stofnun ofurdeildarinnar er hörmuð. Félagið hefur, líkt og önnur ensk lið sem áttu hlut að máli, sætt mikilli gagnrýni.

Hörð mótmæli fyrir utan Emirates-völlinn í kvöld
Þó frammistaða Arsenal í 0-1 tapinu gegn Everton í kvöld hafi ekki verið upp á marga fiska voru leikmenn og forráðamenn félagsins eflaust sáttir með að reitt stuðningsfólk liðsins fékk ekki að vera í stúkunni.

Klopp ekki fengið afsökunarbeiðni frá Henry
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur ekki fengið persónulega afsökunarbeiðni frá John W. Henry, eiganda félagsins, vegna tilraunar til stofnunnar Ofurdeildarinnar fyrr í vikunni. Klopp segir það óþarft.

JP Morgan rekur enn einn naglann í kistu ofurdeildarinnar
Bandaríski fjárfestingabankinn JP Morgan hefur hætt við að styðja ofurdeildina. JP Morgan hafði veitt ofurdeildinni vilyrði fyrir láni upp á þrjá og hálfan milljarð punda.

Finnst nýtt fyrirkomulag Meistaradeildarinnar litlu skárra en ofurdeildin
Ilkay Gündogan, leikmaður Manchester City, segir að nýtt fyrirkomulag Meistaradeildar Evrópu sé litlu skárra en ofurdeildin sem sex af stærstu félögum Evrópu ætluðu að stofna.

Forseti Barcelona: Ofurdeildin er nauðsynleg fyrir fótboltann
Barcelona ætlar að reyna að halda Ofurdeildinni á lífi og forseti félagsins telur hana vera nauðsynlega svo að fótboltinn dafni áfram.

Grenjar af hlátri yfir því að Woodward hafi hætt vegna andstöðu við ofurdeildina
Enskir fjölmiðlar greindu í gær frá því að Ed Woodward hafi ákveðið að hætta sem stjórnarformaður Manchester United þar sem hann hafi ekki getað stutt áform eigenda félagsins um að taka þátt í ofurdeildinni. Ekki eru allir tilbúnir að kaupa þessa skýringu.