Verðlag
1 2 3 4 5 6 … 41 ›
Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Nýkynntar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa ekki vakið hrifningu innan bankanna eða verkalýðshreyfingarinnar. Innt eftir viðbrögðum segir Kristrún Frostadóttir útspilið sem kynnt var í gær væri framlag ríkisstjórnarinnar til þess að „breyta umræðunni og breyta því skjóli sem felst í því að við tölum okkur upp í verðhækkanir“. Innlent 11.4.2026 13:27
Felur í sér „verulega áhættu“ fyrir efnahagsstöðugleika og magnar hagsveiflur Fjármálaráð fer hörðum orðum um ákvörðun stjórnvalda að vísitölutengja bætur almannatrygginga, þar sem verið sé að bregðast við „ofmetnum“ vanda, og segir afleiðingarnar vera „veruleg áhætta“ fyrir stöðugleika í efnahagslífinu með því auka sjálfvirkni í útgjaldaþróun, magna hagsveiflur og minnka getu ríkisins til að beita mótvægisaðgerðum. Í ljósi reynslu annarra þjóða þá „sætir það furðu“, að mati ráðsins, að slíkt kerfi sé tekið upp, einkum þegar litið er til þess að tekjur öryrkja hafa vaxið hraðar en vinnandi fólks undanfarin áratug. Innherji 11.4.2026 13:12
Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Formaður Eflingar lýsir yfir vonbrigðum með nýkynntar efnahagsaðgerðir stjórnvalda sem taki ekki á raunverulegum vanda heimilanna. Hún telur ólíklegt að aðgerðirnar dugi til að kjarasamningar haldi í haust og sakar stjórnvöld um samráðsleysi. Innlent 11.4.2026 12:53
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, segir stjórnvöld hafa misst tökin á efnahagsástandinu og hún beini spjótum að öllum öðrum en sér sjálfum. Ásdís er ómyrk í máli. Innlent 10.4.2026 16:37
Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Ríkisstjórnin hefur samþykkt að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti af dælu úr 24 prósentum í 11 prósent. Tímabundið lagaákvæði mun skylda söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og fela Samkeppniseftirlitinu að vakta að það sé gert. Viðskipti innlent 10.4.2026 11:52
Vara við lausafjárvanda verktaka þegar bankarnir setja þeim stólinn fyrir dyrnar Vegna fordæmalausrar sölutregðu á nýbyggingum þá er einungis tímaspursmál hvenær bankarnir fara að setja fjármagnsþörf áframhaldandi birgðasöfnunar á nýjum íbúðum „stólinn fyrir dyrnar,“ samkvæmt nýrri greiningu um fasteignamarkaðinn, sem mun þá birtast í lausafjárvanda byggingarverktaka. Sögulega mikið ójafnvægi á milli fasteignaverðs og getu heimila til íbúðakaupa, ásamt horfum á aðhaldssamri peningastefnu, ætti að styðja við að verðið gefi enn eftir á komandi mánuðum og spurningin er aðeins hversu hröð sú aðlögun verður. Innherji 10.4.2026 11:21
Bein útsending: Kynna atvinnustefnu og aðgerðir gegn verðbólgu Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 11:30, þar sem ný atvinnustefna verður kynnt auk aðgerða gegn verðbólgu. Beina útsendingu frá fundinum má sjá hér á Vísi. Innlent 10.4.2026 10:58
Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðar aðgerðir í efnahagsmálum til að vinna gegn verðbólgu sem kynntar verða á blaðamannafundi á morgun. Ríkisstjórnin hefur samþykkt tíu ára vaxtaplan sem hluta af fyrstu atvinnustefnu Íslands. Viðskipti innlent 9.4.2026 16:37
Snörp aukning verðbólgu að undanförnu lítur sumpart verr út en raunin er Mikill meirihluti aukinnar verðbólgu á undanförnum fjórum mánuðum má rekja til þátta, einkum opinberra gjaldabreytinga og hækkun flugfargjalda, sem gefa takmarkaða vísbendingu um verðbólguþrýsting í hagkerfinu og eru utan áhrifasviðs peningastefnunefndar. Innherji 8.4.2026 15:19
Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Bensínverð hefur hækkað um þrettán prósent frá áramótum samkvæmt tölum Alþýðusambands Íslands. Sú hækkun kom nær öll fram í síðasta mánuði eftir að Bandaríkjamenn og Ísraelar fóru með vopnum gegn Írönum sem keyrði upp heimsmarkaðsverð á olíu. Viðskipti innlent 8.4.2026 11:47
Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Stjórn Neytendasamtakanna sér tækifæri til að draga úr verðbólgu í gegnum vátryggingakerfið á Íslandi sem sé óþarflega flókið og kostnaðarsamt samanborið við tryggingakerfið á Norðurlöndunum. Tillögurnar verða kynntar ráðherrum ríkisstjórnarinnar á næstu vikum. Viðskipti innlent 4.4.2026 15:31
Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Þó að verðbólga mælist 5% eða einhver önnur prósenta hjá Hagstofunni, þýðir það ekki að við séum öll að upplifa sömu verðbólgu. Sum heimili finna fyrir hærri verðbólgu, önnur lægri. Skoðun 4.4.2026 13:00
Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Skiptar skoðanir voru innan peningastefnunefndar Seðlabankans um síðustu stýrivaxtahækkun og vildu tveir nefndarmenn af fimm hækka vexti um 0,50 prósentustig í stað 0,25. Seðlabankastjóri og aðrir nefndarmenn sem studdu hófsamari tillöguna telja skýrt að frekara hækkunarskref þurfi að taka í maí nema verðbólguhorfur „batni verulega í millitíðinni.“ Viðskipti innlent 1.4.2026 18:00
Ekki okkar verðbólga Það er orðið þreytandi að hlusta á síendurtekna möntru frá Seðlabankanum, stjórnvöldum og fulltrúum atvinnulífsins: að launahækkanir og kjarasamningar launafólks séu meginorsök verðbólgunnar. Skoðun 1.4.2026 16:02
Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða Forseti ASÍ segir brýnt að stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins komi sér saman um aðgerðir til að ná tökum á neikvæðri þróun í efnahagslífinu. Ekki sé hægt að ræða um þjóðarsátt fyrr en þær komi fram. Ríkisstjórnin þurfi að hafa frumkvæði að því að kalla fólk saman. Fyrri fundir hafi þó reynst árangurslausir. Innlent 31.3.2026 12:31
Nærri sjötíu prósent neyslukörfunnar hækkað um meira en fjögur prósent Hlutfall undirliða í vísitölu neysluverðs sem eru að hækka langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans fer vaxandi en um tveir þriðju þeirra hafa hækkaði í verði um meira en fjögur prósent á ársgrundvelli. Innherjamolar 30.3.2026 16:17
Of miklar verðhækkanir á eldsneyti kalli á inngrip stjórnvalda Framkvæmdastjóri FIB telur eðlilegt að stjórnvöld mæti gríðarlegum hækkunum á olíuverði með því að lækka álögur á eldsneyti tímabundið líkt og aðrar þjóðir hafa gert undanfarið. Fyrir því séu fordæmi í sögunni. Þá þurfi að veita olíufélögunum aukið aðhald. Innlent 30.3.2026 13:49
„Fólk er bara að vinna minna“ Hagfræðingur segir þá þróun eiga sér stað í hagkerfinu að hagvöxtur standi í stað milli ára og það eigi erfitt með að vaxa. Hann bendir á samdrátt í útflutningsgreinum á Íslandi undanfarin ár. Lektor við viðskiptafræðideild HÍ segir skorta á traust í samfélaginu til aðgerða til að ná tökum á verðbólgu. Innlent 29.3.2026 12:24
Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Forstjóri Icelandair telur að með markvissum aðgerðum sé hægt að koma í veg fyrir að Seðlabankinn sjái sig knúinn til að hækka stýrivexti í maí og hann lækki í stað vexti. Til þess þyrfti að umbylta vinnumarkaðsmódelinu, efla valdheimildir Ríkissáttasemjara og leggja alla áherslu á að lækka ríkisútgjöld. Til að sýna áherslurnar í verki mætti fresta þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB um ár. Viðskipti innlent 26.3.2026 16:42
Hækkanir á breiðum grunni en „góðs viti“ að húsnæðisliðurinn gefi enn eftir Hækkun verðbólgunnar í marsmánuði var einkum drifin áfram af auknum eldsneytiskostnaði á meðan reiknuð húsaleiga hreyfðist lítið annan mánuðinn í röð. Meðalspá greinenda hafði gert ráð fyrir eilítið meiri hækkun á vísitölu neysluverðs og verðbólguvæntingar skuldabréfafjárfesta hafa því lækkað nokkuð á markaði í dag. Innherjamolar 26.3.2026 12:43
Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Formaður VR telur að innleiða verði einhvers konar verðþak á olíu í ljósi hækkunar á heimsmarkaðsverði olíu og verðhækkana á dælum hérlendis sem fylgja. Viðskipti innlent 26.3.2026 11:27
Leggur til einfalt ráð í baráttunni við verðbólguna Dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands leggur til að virðisaukaskattur á matvöru og barnavörur verði lækkaður til þess að draga úr verðbólgu. Áhrifin yrðu skörp og myndi gagnast þeim hópum sem fara verst út úr aukinni verðbólgu. Viðskipti innlent 26.3.2026 09:54
Verðbólga eykst enn Verðbólga mælist 5,4 prósent í mars, miðað við 5,2 prósent í febrúar. Greiningardeildir viðskiptabankanna höfðu spáð 5,4 til 5,5 prósenta verðbólgu. Viðskipti innlent 26.3.2026 09:02
Meiri launaþrýstingur geti hrakið fyrirtæki úr landi Engin ótvíræð merki hafa komið fram um almennan greiðsluvanda í samfélaginu samkvæmt nýju riti fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Seðlabankastjóri segir eina af skýringunum liggja í háu atvinnustigi þótt blikur séu nú á lofti. Viðskipti innlent 25.3.2026 19:41
Óskað er eftir forystu í efnahagslegum þrengingum Horfur í efnahagsmálum hafa ekki verið jafn dökkar um langt skeið eins og nú. Verðbólgan er þrálát og verðbólguvæntingar því miður langt yfir öllum viðmiðunarmörkum. Hagvaxtarhorfur eru á niðurleið og atvinnuleysi vaxandi. Mun fleiri stjórnendur fyrirtækja búa sig undir að fækka starfsfólki en þeir sem gera ráð fyrir að bæta við sig starfsmönnum. Skoðun 24.3.2026 08:32
Landsbankinn hækkar einnig vexti Forsvarsmenn Landsbankans tilkynntu í dag að vextir yrðu hækkaðir. Hækkanirnar eru á milli 0,15 upp í 0,35 prósentustig eftir því hverslags lán er um að ræða en fyrstu breytingarnar tóku gildi í dag og hinar taka gildi á föstudaginn. Viðskipti innlent 23.3.2026 20:13
Búast við skarpri hækkun verðbólgunnar og óvissan í spánum áfram upp á við Útlit fyrir að verðbólgan muni hækka nokkuð skarpt í marsmánuði, ef marka má meðalspá greinenda, sem má einkum rekja til verðhækkana á olíu á heimsmarkaði. Óvissan í spánum er sögð meiri upp á við og áhyggjur eru af annarrar umferðar áhrifum af hærri verðbólgu á komandi mánuðum. Innherjamolar 23.3.2026 10:58
Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar segir dapurlegt að fylgjast með þróun hægriflokka á Alþingi sem séu að renna saman í einn jaðarflokk. Hún sagði að þrátt fyrir áskoranir í efnahagsmálum hefði ríkisstjórnin náð mikilvægum áföngum. Flokkurinn væri með skýr markmið í samstarfi ríkis og sveitarfélaga sem þau ætla að ráðast í, hljóti þau traust kjósenda. Innlent 21.3.2026 12:18
Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Skekkja í íslenskum skaðabótalögum hækkar iðgjöld viðskiptavina tryggingafélaga og kostar samfélagið milljarða króna á ári. VÍS kallar nú eftir endurskoðun laganna, einfaldara matsferli og miðlægu kerfi í bótamálum vegna líkamstjóna, einkum í umferðarslysum. Innlent 20.3.2026 22:22
Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Arion banki og Íslandsbanki hafa boðað vaxtabreytingar í kjölfar nýlegrar vaxtahækkunar Seðlabankans. Íbúðalánavextir hækka um allt 0,25 prósentustig og innlánsvextir um 0,35. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði meginvexti bankans um 0,25 prósentur á miðvikudag og standa þeir í 7,50%. Neytendur 20.3.2026 17:30