
Ástin á götunni

Kennslustund Bales nýttist landsliðinu okkar vel
Íslenska landsliðið hefur haldið hreinu í 422 mínútur eða í níu síðustu hálfleikjum sem liðið hefur spilað. Á sama tíma hefur íslenska liðið skorað tíu mörk í röð án þess að mótherjarnir hafi svarað.

Alfreð: Moyes örugglega góður kostur
Það hefur á ýmsu gengið hjá Real Sociedad, liði Alfreðs Finnbogasonar á Spáni. Jagoba Arrasate var rekinn úr stöðu knattspyrnustjóra á dögunum og var David Moyes, fyrrum stjóri Man. Utd, ráðinn í starfið í gærkvöldi. Það lá þó ekki fyrir er Fréttablaðið hitti á Alfreð í gær.

Kári: Líklega heppinn að deyja ekki í þessum leik
Kári Árnason, leikmaður Rotherham í Englandi, reiknar ekki með öðru en að verða klár í slaginn þegar Ísland mætir Tékklandi í undankeppni EM 2016 á sunnudagskvöld. Hann verður þó ekki með er strákarnir mæta Belgíu í vináttulandsleik ytra annað kvöld.

Þessir söngvar verða sungnir í stúkunni í Plzen
Ísland og Tékkland mætast í toppslag riðilsins í undankeppni EM á sunnudaginn kemur og það verður nóg af íslenskum stuðningsmönnum í stúkunni enda seldust upp 600 miðar sem KSÍ fékk á leikinn.

Lagerbäck fékk knús á Austurvelli
"Hann gæti orðið borgarstjóri í Reykjavík ef hann vildi," sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu um samstarfsmann sinn, Lars Lagerbäck, í viðtali við sænska ríkissjónvarpið.

Hólmar Örn kallaður inn í A-landsliðið
Landsliðsþjálfararnir, Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, hafa þurft að gera breytingu á landsliðshópnum sem þeir tilkynntu á föstudaginn.

Bankað á dyrnar í Belgíu
Íslenska fótboltalandsliðið er komið upp í 28. sæti á FIFA-listanum og það er allt annað en auðvelt að vinna sér sæti í byrjunarliði Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar. Fréttablaðið skoðar í dag hvaða leikmenn eiga möguleika á sæti í liðinu.

Tékkarnir eru eins og vel smurð vél
Ísland og Tékkland, tvö efstu liðin í A-riðli í undankeppni EM 2016, mætast sunnudaginn 16. nóvember næstkomandi og Heimir Hallgrímsson fór yfir tékkneska liðið á blaðamannafundi í dag þar sem íslenski hópurinn var tilkynntur.

Heimir: Markmiðið okkar hefur ekkert breyst
Heimir Hallgrímsson og Lars Lagerbäck, þjálfarar íslenska landsliðsins í fótbolta, kynntu í dag landsliðshóp sinn fyrir vináttuleik á móti Belgum og leik við Tékkland í undankeppni EM 2016.

Lagerbäck fagnar fáum spjöldum hjá Strákunum okkar
Lars Lagerbäck, annar þjálfara íslenska landsliðsins, er mjög ánægður með að leikmenn íslenska liðsins hafa ekki fengið mörg spjöld í fyrstu þremur leikjum íslenska liðsins í undankeppni EM.

Fleiri Íslendingar á leiknum í Tékklandi en voru í Króatíu
Það er gríðarlegur áhugi á leik Íslands og Tékklands í undankeppni EM sem fer fram í Tékklandi sunnudaginn 16. nóvember næstkomandi en þarna mætast tvö efstu liðin í riðlinum sem bæði hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína.

Atli sótti um hjá Motherwell
Meðal 50 áhugasamra þjálfara um stjórastöðuna hjá Motherwell.

Þóroddur gaf sjö gul og dæmdi tvö víti á Spáni
Þóroddur Hjaltalín dæmdi í dag leik Athletic Bilbao og Porto í Meistaradeild ungmenna í fótbolta en leikurinn fór fram í Baracaldo á Spáni.

Freyr fékk nýjan tveggja ára samning hjá KSÍ
Freyr Alexandersson verður áfram þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta en hann hefur gert nýjan tveggja ára samning við KSÍ og mun í það minnsta stýra liðinu út undankeppni EM 2017. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Gunnar tekur við Gróttu
Skrifaði undir eins árs samning við félagið í kvöld.

Haukur Heiðar að semja við AIK í Svíþjóð
Sænski fréttamiðillinn FotbollDirekt hefur heimildir fyrir því að sænska úrvalsdeildarfélagið AIK sé mjög nálægt því að semja við íslenska bakvörðinn Hauk Heiðar Hauksson, sem hefur gert það gott hjá KR-liðinu síðustu ár.

Bannar FIFA fótboltamönnum að fagna eins og Klose?
Indverjinn Peter Biaksangzuala lést á dögunum eftir að hafa lent illa á hálsinum eftir misheppnað heljarstökk í leik í indversku deildinni. Afleiðingar þessa hræðilega slys í Indlandi gætu orðið að það væri bannað að fagna marki með því að taka heljarstökk.

Lars: Sumir þeirra sem hafa spilað minna fá tækifæri gegn Belgíu
Leikmenn sem hafa fengið færri tækifæri í síðustu leikjum með íslenska landsliðinu fá sumir hverjir að spila vináttuleikinn gegn Belgíu áður en kemur að stóra prófinu í Plzen.

BT: Íslendingar fyrir ofan stóru bræður sína á heimslistanum
Mikil umfjöllun fjölmiðla á Norðurlöndum um stöðu Íslands á nýjum FIFA-lista, en Ísland er besta Norðurlandaþjóðin í fótbolta samkvæmt nýjasta listanum.

Svíar í sárum: Erum verri en Grænhöfðaeyjar
Sjá ástæðu til að fagna samlanda sínum Lars Lagerbäck sem er með Ísland í 28. sæti heimslistans, ellefu sætum fyrir ofan Svíþjóð.

Geir: Ráðning Lars ein farsælasta ákvörðunin mín
Íslenska landsliðið í fótbolta komst upp í 28. sæti FIFA-listans og er besta Norðurlandaþjóðin í fótbolta.

Ísland á besta fótboltalandsliðið á Norðurlöndum
Íslenska karlalandsliðið hækkaði sig um sex sæti á Styrkleikalista FIFA en nýr listi var gefinn út í morgun. Ísland er nú í 28. sæti listans og hefur aldrei verið ofar á listanum.

U17 ára liðið komst í milliriðil
Máni Hilmarsson tryggði piltunum jafntefli gegn Ítalíu.

Þorgrímur: Ódrengileg gagnrýni á landsliðsmenn
Landsliðsnefndarmaðurinn Þorgrímur Þráinsson tjáir sig um gagnrýni á fyrrum þjálfara íslenska landsliðsins.

Sænska þjóðin er að uppgötva Lars upp á nýtt
Sumir samlandar Lagerbäcks vilja fá hann aftur í landsliðsþjálfarastarfið.

Pétur: Hann hefur verið á pöbbnum þegar leikskipulagið var rætt
Fyrrverandi aðstoðarlandsliðsþjálfarinn verulega ósáttur við ummæli Arnórs Smárasonar og Guðlaugs Victors Pálssonar í sænsku pressunni í dag.

„Skítt með það - förum á pöbbinn“
Arnór Smárason og Guðlaugur Victor Pálsson lýsa stemningunni í íslenska landsliðinu áður en Lars Lagerbäck tók við.

Miðinn á Tékkaleikinn kostar 6000 krónur hjá KSÍ
Næsti leikur íslenska karlalandsliðsins í undankeppni EM 2016 verður í Tékklandi 16. nóvember en þá mætast efstu lið riðilsins sem bæði hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína. Það er hægt að kaupa miða á leikinn í gegnum KSÍ.

Guðlaugur Þór: Laugardalsvöllur er eign Reykjavíkurborgar
Enn og aftur er komin umræða um stækkun stúkunnar á Laugardalsvelli og að fjarlægja hlaupabrautina sem umlykur völlinn. Valtýr Björn Valtýsson ræddi málið við Guðlaug Þór Þórðarson starfandi formann fjárlaganefndar, í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Endurbættur Laugardalsvöllur: Fjárfestar munu vilja peningana tilbaka
Það verður ekki auðvelt fyrir Knattspyrnusamband Íslands að láta draum sinn rætast og laða fjárfesta að endurbótum á Laugardalsvelli, að sögn Helga S. Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Regins, rekstraraðila Egilshallarinnar, sem er í núverandi mynd líkust því viðskiptamódeli sem KSÍ leggur til grundvallar fjármögnun endurbótanna.