Ellert B. Schram

Forngripur á Alþingi
Ef einhverjir hafa orðið hissa á endurkomu minni inn á Alþingi, þá get ég sagt, að ég sjálfur hafi undrast mest. Það var skemmtileg jólagjöf.

Áfangasigur
Núna, um daginn, samþykkti ríkisstjórnin að skipa vinnuhóp, með fulltrúum aldraðra, sem skoða skal stöðu þeirra eldri borgara sem minnstu tekjur hafa og búa við fátækt.

Í svartnætti fátæktarinnar
Það gengur á ýmsu að því er varðar málefni eldri borgara. Ég held samt að stjórnvöld hafi toppað allar aðgerðir sínar, þegar fjárlög voru samþykkt í lok ársins.

Á hlíðarlínunni
Ný ríkisstjórn hefur verið skipuð. Við óskum henni góðs gengis, þótt stjórnarsáttmálinn varðandi málefni eldri borgara sé rýr, miðað við kosningaloforðin.

Alþingi þarf að endurspegla þjóðina
Nú er verið að kjósa enn og aftur og stjórnmálaflokkarnir hafa valið sína frambjóðendur. Ef við skoðum aldur alþingismanna í gegnum tíðina, má sjá að það er frekar sjaldgæft að fólk sem komið er á efri ár sitji á þingi. Kannski einn og einn. Nú er það hins vegar svo að fólk eldist og lifir lengur en áður.

Blóð, sviti og tár
Yndislegu sumri er að ljúka og tíminn er fljótur að líða þegar gaman er að vera til. Ekki síst hjá fólki sem komið er á efri ár og elskar hvern dag sem er dýrmætur.

„Við erum gömul en ekki dauð“
Því er ekki að neita að það rak marga í rogastans, þegar birtar voru ákvarðanir kjararáðs um hækkanir launa hjá alþingismönnum, ráðherrum, hæstaréttardómurum og öðrum vel launuðum starfsmönnum hins opinbera.

Hlustið, skiljið, styðjið
Ég horfði á sjónvarpið, núna um daginn, þegar 68 ára kennari í framhaldsskóla í Reykjavík sagði hreint vafningalaust að hann vildi halda áfram að kenna, svo lengi sem hann sjálfur taldi sig hæfan til kennslu. Aldur á ekki að skipta máli. Sem er auðvitað kjarni málsins.

Um áhyggjulausa ævikvöldið
Nú fyrr í mánuðinum flutti ungur varaþingmaður, Albert Guðmundsson, jómfrúarræðu sína á Alþingi og hún fjallaði um málefni aldraðra. Full ástæða er til að hrósa honum fyrir að nota þetta hátíðartækifæri sitt til að tileinka þessa fyrstu ræðu sína "þeim sem eldri eru“.

Ræddum við ráðherrann
Já, það hefur verið nóg að gera hjá mér, eftir að hafa verið kosinn formaður í Félagi eldri borgara hér í höfuðborginni. Fundir og heimsóknir hér og hvar, uppákomur og atburðir og svo náttúrlega afskipti af málefnum eldri borgara inn á við og út um allt.

Í nafni samstöðu
Þau tíðindi bárust frá Alþingi í síðustu viku, að mistök hefðu átt sér stað í texta lagafrumvarps um Almannatryggingar sem var samþykkt óbreytt en öðru vísi en til stóð. Afleiðingin er sú að ríkissjóður og TR eigi að greiða verulega hærri upphæð, a.m.k meðan þessi mistök eru ekki lagfærð.

Takk fyrir, borgarstjórn
Yfirleitt er það nú þannig að maður drepur niður penna og tjáir sig opinberlega, þegar manni mislíkar eða mótmælir einhverju sem er að gerast samfélaginu. Maður gleymir að láta í sér heyra þegar vel er gert.

Og hvað svo, jafnaðarmenn?
Ég get ekki brúkað neina tæpitungu, þegar demókratinn Hillary tapar í forsetakjöri Bandaríkjanna, fyrir manni, sem mér finnst ekki boðlegur. Ég get ekki heldur annað gert en krossa yfir leiðið hjá Samfylkingunni, þegar flokkurinn slefar inn rétt rúmum fimm prósentum í alþingiskosningum.

Nú er að duga eða drepast
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni ásamt Gráa hernum efndu til opins fundar í Háskólabíói fyrir skömmu. Málefni eldri borgara voru á dagskrá. Þar var fullt út úr dyrum, af fólki á þessu æviskeiði.

Hin pólitíska birtingarmynd
Um daginn sendi ég stutta grein til birtingar í Fréttablaðinu sem fjallaði um jafnaðarstefnuna og gildi hennar varðandi jafnan hlut og kjör, manna í milli. Minnti á kjör eldri borgara og þá hungurlús, sem þeim er ætluð til framfæris.

Um jafnaðarstefnuna
Sennilega er mér eins farið og flestum öðrum, sem komnir eru til ára sinna, að líta um öxl og skoða líf sitt og reynslu. Og samfélagið allt. Fylgjast með breytingum nútímans og gildismati í hugsunum og skoðunum. Eitt af því sem vekur

„Those were the days“
Ég hef eins og aðrir Íslendingar fylgst með Evrópukeppninni og bíð spenntur eftir leiknum gegn Frökkum í átta liða úrslitum. Stærstu stundar íslenskrar karlaknattspyrnu. Íslenskra íþrótta. Tek þátt í fagnaðarlátunum og spenningnum

Jólagjöfin í ár
Meirihluti þingmanna felldi fyrr í vikunni tillögu stjórnarandstöðunnar um hækkun lífeyrisbóta til aldraðra. Raunar gekk tillagan, sem felld var, út á það að hækkun bótanna næði frá þeim tíma í vor, sem launþegar sömdu um og fengu, auk þess sem kjararáð hækkaði laun þingmanna og ráðherra átta mánuði aftur fyrir sig

Blikkið strákar, blikkið
Það var stór stund á sunnudaginn, þegar íslenska knattspyrnulandsliðið tryggði okkur þátttöku í úrslitakeppni Evrópu, sem fram fer á næsta ári. En þetta hefur verið löng þrautarganga, löng saga, á bak við þennan árangur.

Þetta snýst ekki um ölmusu
Ég tek ofan fyrir Björgvin Guðmundssyni, fyrrum borgarfulltrúa og starfsmanni í utanríkisþjónustunni.