Innlent
Ísland verið fremst í fjarskiptum Ísland kemst í fremstu röð í heiminum í upplýsingatækni og fjarskiptum með fimm ára fjarskiptaáætlun sem hefst í ár. Með henni á að bæta sjónvarps- og útvarpssendingar til dreifðra byggða og sjómanna auk þess sem farsímakerfið verður eflt og háhraðatengingu komið upp um allt land. Innlent 13.10.2005 19:04
Tölvupóstur verður dulkóðaður Til skoðunar er að dulkóða tölvupóst á milli starfsmanna ráðuneytanna til að koma í veg fyrir að viðkvæm mál berist til óviðkomandi. Dæmi eru um að mál er varða þjóðaröryggi hafi lent í röngum höndum. Innlent 13.10.2005 19:03
Fjárfestar gæti sömu hagsmuna Litlir og stórir fjárfestar hafa sameiginlegra hagsmuna að gæta og átök milli þeirra geta skaðað fyrirtækin. Þetta kom fram á opnum morgunverðarfundi sem Samtök fjárfesta efndu til á Hótel Sögu í morgun. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Tornæmur maður í fangelsi Tvítugur fangi á Litla-Hrauni situr hálfu ári lengur inni þar sem Hæstiréttur þyngdi dóm héraðsdóms. Fanginn er dæmdur í eitt og hálft ár þrátt fyrir að sálfræðingur telji greind mannsins "á sviði tornæmis" og að hann hafi veruleg frávik í þroska. Innlent 13.10.2005 19:04
Undrast hlutleysi Ágústs Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður tilkynnti í morgun að hann gæfi kost á sér til embættis varaformanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í maí. Ágúst Ólafur er 28 ára og var kjörinn á þing í kosningunum árið 2003. Samfylkingarmenn sem fréttastofa ræddi við í morgun eru undrandi á yfirlýsingum Ágústs um að hann ætli engan að styðja til formannskjörs. Innlent 13.10.2005 19:03
Hafi tíma til að skila inn tilboði Forsætisráðherra telur einsýnt að almenningssímafélagi Agnesar Bragadóttur og fleiri vinnist tími til að skila inn tilboði í Landssímann, fresturinn verði rýmri en talið var. Agnes gekk ásamt félögum sínum á fund í stjórnarráðinu í hádeginu. Innlent 13.10.2005 19:04
Avion opnar nýjar höfuðstöðvar Avion House, nýjar höfuðstöðvar Avion Group flugrekandans, verða opnaðar í nýbyggingu við Hlíðarsmára 3 í Kópavogi í dag og munu 220 manns starfa þar á vegum félagsins, auk dótturfélagsins Atlanta. Annars er félagið með starfsstöðvar í 29 löndum í öllum byggðum heimsálfum, gerir út 67 flugvélar og eru strarfsmenn i heild um 3.200. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:03
Þúsundir þjást af fótaóeirð "Eins og gosvatn renni um æðar eða ormar skríði undir húð."Þannig lýsir yfirlæknir á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss fótasjúkdómi sem er algengur meðal landsmanna. Umfangsmiki, rannsókn er nú að hefjast á lyfi gegn honum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:04
Tré gróðursett til heiðurs Vigdísi Í tilefni af 75 ára afmæli Vigdísar Finnbogadóttur í dag hefur stjórn Landverndar ákveðið að gróðursetja 75 bjarkir í við fræðasetur samtakanna við Alviðru undir Ingólfsfjalli. Í tilkynningu segir að trén muni mynda Vigdísarrjóður og verða skjól þeim börnum sem í framtíðinni munu sækja fræðslu og útvist í Alviðru, en á hverju ári sækja um 2.000 skólabörn Alviðru heim. Innlent 13.10.2005 19:03
Landburður af nýjum félögum Talið er að allt að 4.000 nýir félagar hafi skráð sig í Samfylkinguna, en frestur til skráningar fyrir formannskjörið rann út klukkan sex í gærkvöld. "Það er landburður af nýjum félögum," segir Flosi Eiríksson formaður kjörstjórnar Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 19:04
Verðstríð á tímaritamarkaði Verðstríð virðist hafið tímaritamarkaðnum hér á landi eftir að Office One tilkynnti í gær að fyrirtækið hefði hafið sölu á erlendum tímaritum á mun lægra verði en áður hefur tíðkast. Í dag tilkynnti Griffill í Skeifunni að verslunin ætlaði að taka þátt í verðstríðinu. Innlent 13.10.2005 19:04
Mannréttindi barna brotin Hæstiréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms og fólki er leyft að skrá lögheimili sitt í sumarhúsum. Fimm manna fjölskylda hefur búið í slíku húsi í rúmt ár. Börnin fengu ekki skólavist í heila önn. Faðirinn segir mannréttindi barnanna hafa verið brotin.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:04
Minni afla landað á Ísafirði Mikill samdráttur hefur orðið í lönduðum afla á Ísafirði fyrstu þrjá mánuði ársins, miðað við sömu mánuði í fyrra. Þetta kemur fram á vef <em>Bæjarins besta</em> í dag. Þar segir að á fyrstu þremur mánuðum ársins hafi rúmlega 2.700 tonnum verið landað af sjávarfangi á Ísafirði, miðað við rúmlega 4.250 tonn á sama tímabili í fyrra og hljóði samdrátturinn því upp á rúmlega 37 prósent á milli ára. Innlent 13.10.2005 19:04
Hvalfjarðargöng lokuð á morgun Hvalfjarðargöngin verða lokuð á morgun frá klukkan átta til þrjú síðdegis vegna almannavarnaæfingar. Hægt verður að aka fyrir Hvalfjörðinn eins og aðra daga. Innlent 13.10.2005 19:04
Versnandi staða mannréttinda Staða mannréttinda hefur versnað í heiminum eftir að stríðið gegn hryðjuverkum hófst. Þetta kom fram í máli Mary Robinson, fyrrum forseta Írlands og mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðana, í Hátíðarsal Háskólabíós í gær Innlent 13.10.2005 19:04
Undirbýr leyfi til olíurannsókna Ríkisstjórnin hefur ákveðið að hefja undirbúning að því að veita olíufyrirtækjum leyfi til rannsókna og vinnslu á olíu á landgrunni Íslands. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra lagði fram greinargerð um málið á ríkisstjórnarfundi í dag og samþykkti ríkisstjórnin áætlun sem gerir ráð fyrir að nauðsynlegum undirbúningi til að bjóða fram leyfi verði lokið í ársbyrjun 2007. Innlent 13.10.2005 19:04
Annasamur afmælisdagur Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, fagnaði 75 ára afmæli sínu í gær og er óhætt að segja að hún hafi haft í nógu að snúast. Innlent 13.10.2005 19:04
Vilja fella niður fyrningafrest Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna skora á allsherjarnefnd að hleypa frumvarpi um niðurfellingu fyrningarfrests í kynferðisafbrotamálum gegn börnum út úr nefndinni enda hafi frumvarpið legið óafgreitt í nefndinni í tvö ár. Innlent 13.10.2005 19:04
Auka kvóta til jafns við Norðmenn Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að íslenskum skipum verði heimilt að veiða 157.700 lestir af norsk-íslenskri síld á þessu ári, en það er 14 prósentum stærri hlutur en Íslendingum var ætlaður samkvæmt vísindaráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Þessi aukning er jöfn aukningu Norðmanna á kvóta sínum úr stofninum að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu. Innlent 13.10.2005 19:04
Íslendingar hækka kvóta Aflaheimildir íslenskra skipa í norsk-íslenskri síld verða 14 prósentum hærri í ár en þegar samningar voru í gildi um stjórn veiða úr stofninum. Ástæðan er sú að Norðmenn hafa ekki viljað fallast á skiptingu heildarmagnsins og krafist þess að fá stærri hlut en þeir hafa haft. Innlent 13.10.2005 19:04
Skal fá aðgang að heimtaugum Póst- og fjarskiptastofnun hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landssímanum hafi verið óheimilt að synja Og Vodafone um aðgang að heimtaugum í grunnneti. Fyrirtækið hefur síðastliðna þrjá mánuði leitast við að fá afgreiddar beiðnir um aðgang að heimtaugum vegna viðskiptavina Margmiðlunar, en Og Vodafone og Margmiðlun sameinuðust í október 2004. Innlent 13.10.2005 19:04
Handteknir eftir fíkniefnaleit Lögreglan í Kópavogi handtók í nótt tvo menn eftir að fíkniefni fundust við leit í bíl þeirra og við húsleit heima hjá öðrum þeirra. Alls fundust 20 grömm af amfetamíni, 20 e-töflur og 20 grömm af hassi og eru mennirnir grunaðir um að hafa ætlað að selja efnin. Þeim var sleppt undir morgun að yfirheyrslum loknum en rannsókn málsins heldur áfram. Innlent 13.10.2005 19:03
Kaupa Símann út á landi "Sveitarstjórnir landsins ættu að láta þau skilaboð ganga til íbúa sinna að ef þeir kaupi hlut í Símanum að þá muni sveitarfélag hans setja sömu upphæð til slíkra hlutarbréfafékaupa." Þetta er mat Hauks Más Sigurðssonar fyrrum forseta bæjarstjórnar Vesturbyggðar og núverandi varamanns í bæjarstjórn. </font /> Innlent 13.10.2005 19:04
Farið fram á gæsluvarðhald Lögreglan á Akureyri krafðist í gærkvöldi gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þremur mönnum, sem handteknir voru í fyrrakvöld með 350 grömm af hassi í fórum sínum við komuna til Akureyrar frá Reykjavík. Smásöluandvirði hassins gæti numið allt að 900 þúsundum. Tveir mannanna hafa áður gerst brotlegir við lög, meðal annars fyrir fíkniefnabrot, líkamsárásir og hótanir. Innlent 13.10.2005 19:03
Safna fé fyrir börn á Indlandi Árleg söfnun ABC barnahjálpar, Börn hjálpa börnum, hófst í morgun og voru það Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sem hleyptu söfnuninni af stað með táknrænum hætti. Að þessu sinni verður safnað fyrir stórri byggingu á Heimili litlu ljósanna á Indlandi þar sem svefnaðstaða verður fyrir 800 drengi, en áætlaður byggingarkostnaður er um 10 milljónir króna. Innlent 13.10.2005 19:03
Börn hjálpa börnum Íslensk börn rétta indverskum jafnöldrum sínum nú hjálparhönd með því að safna fyrir skólabyggingu handa þeim. Meðal þeirra fyrstu verka var að fara að Bessastöðum þar sem forseti Íslands tók þeim fagnandi og gaf í marga söfnunarbauka. Innlent 13.10.2005 19:04
Brotið gegn samningi Félagsdómur segir Útgerðafélagið Sólbak brjóta gegn kjarasamningi við Vélstjórafélagið með tryggja tveimur vélstjórum ekki 30 tíma hafnarfrí. Vélstjórarnir tveir og forstjóri útgerðarfélagsins eru ósáttir. Formaður Vélstjórafélagsins er kátur. Innlent 13.10.2005 19:04
Meðalverð lóða ríflega 100% hærra Meðalverð á einbýlishúsalóðum í Norðlingaholti var vel á annað hundrað prósentum hærra í tilboðunum, sem opnuð voru í gær, en í tilboðunum í júní í fyrra. Þá er lóðaverð vegna íbúðar í fjölbýlishúsi orðið hærra en einbýlishúsalóð kostaði fyrir nokkrum misserum. Innlent 13.10.2005 19:03
Vegagerðin sýknuð af kröfum ÍAV Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun Vegagerðina af bótakröfum Íslenskra aðalverktaka og verktakafyrirtækisins NCC sem fyrirtækin gerðu í kjölfar þess að gerð Héðinsfjarðarganga var blásin af á sínum tíma. Innlent 13.10.2005 19:03
Brot á útlendingalögum Ákæra á hendur Jóni Guðmundssyni fyrir brot á lögum um útlendinga, atvinnuréttindi útlendinga og almennum hegningarlögum, var þingfest hjá Héraðsdómi Suðurlands á föstudag. Innlent 13.10.2005 19:04