Innlent

Fréttamynd

Fundað vegna ólátabelgjanna

Áhöfn Kaupmannahafnarvélar Iceland Express situr þessa stundina á fundi með stjórn félagsins um ólátabelgina sem voru um borð á laugardag. Sex farþegar vélarinnar hótuðu hverjum öðrum og áhöfn vélarinnar líkamsmeiðingum.

Innlent
Fréttamynd

Árekstur strætisvagns og jeppa

Strætisvagn og jeppabifreið lentu í árekstri í Vesturbænum fyrir stundu. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík var áreksturinn, sem átti sér stað á mótum Dunhaga og Tómasarhaga, minniháttar og urðu engin slys á fólki.

Innlent
Fréttamynd

Óvíst um heimför flugdólganna

Óvíst er hvernig sex flugfarþegar, sem létu dólgslega í vél Iceland Express á laugardag, munu komast aftur heim til Íslands. Almar Örn Hilmarsson, framkvæmdarstjóri Iceland Express, átti fund með áhöfn flugvélarinnar í morgun og segir hann flugdólgana hafa verið með hótanir í garð starfsfólks flugfélagsins, auk hrópa og kalla sem hafi haft áhrif á aðrar flugfarþega.

Innlent
Fréttamynd

Ekki í óþökk heimamanna

Sameining heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu verður ekki knúin fram með ráðherraskipun. Þetta kom fram í svari Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Guðmundar Árna Stefánssonar í gær.

Innlent
Fréttamynd

Sameining Samfylkingar og VG?

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, telur fátt standa í vegi fyrir að Vinstri grænir og Samfylkingin geti sameinast í einn flokk. Ungir Vinstri grænir vilja hins vegar slíta R-lista samstarfinu og bjóða fram sér næsta vor.

Innlent
Fréttamynd

Fjölgað um helming í Samfylkingu

Stuðningsmenn Ingibjargar söfnuðu rúmlega þrjú þúsund nýjum Samfylkingarmönnum og stuðningsmenn Össurar tvö þúsund. Tvö þúsund að auki komu í gegnum skrifstofu. Samfylkingarmönnum hefur fjölgað um rúman helming frá áramótum, úr þrettán þúsund í tuttugu. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ofbeldismanna leitað

Lögreglan í Reykjavík leitar enn þriggja til fjögurra manna sem börðu tvo menn til óbóta í miðborg Reykjavíkur í fyrrinótt. Árásirnar virðast báðar hafa verið tilefnislausar og þekkja fórnarlömbin ekkert til árásarmannanna.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnin segi af sér

Stjórn Verkstjórasambands Íslands hefur skorað á stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins að segja af sér. Segir í ályktun að ávöxtun sjóðsins hafi verið óviðunandi í samanburði við aðra sjóði og sá slaki árangur sé óafsakanlegur.

Innlent
Fréttamynd

Ákvörðun Hæstaréttar áhyggjuefni

Sveitarstjóri Grímsness- og Grafningshrepps segir viðurkenningu Hæstaréttar, á lögheimili fjögurra manna fjölskyldu í húsi á frístundarbyggðarsvæði Bláskógarbyggðar, valda sér miklum áhyggjum. 

Innlent
Fréttamynd

Kennarar í Versló án samnings

Kennarasamband Íslands hefur fundað tvisvar með samninganefnd ríkisins vegna kjarasamnings kennara í Verzlunarskóla Íslands sem rann út í lok janúar.

Innlent
Fréttamynd

Borgarstjóri fagnar Kjarvalsmáli

Borgarstjóri segir gott að óvissu um meinta gjöf Kjarvals til borgarinnar verði eytt. Mál barnabarns Kjarvals gegn borginni verður þingfest í héraðsdómi á morgun.

Innlent
Fréttamynd

Kosningarnar byggðar á trausti

Tæplega tuttugu þúsund flokksmenn Samfylkingarinnar fá að um það bil viku liðinni senda heim til sín kjörseðla vegna formannskjörsins.

Innlent
Fréttamynd

Kaupa 25 nýja bíla

Gert er ráð fyrir að embætti Ríkislögreglustjóra kaupi 25 nýja lögreglubíla á þessu ári og eyði til þess um hundrað milljónum króna.

Innlent
Fréttamynd

Standa við Biblíubreytingarnar

Einar Sigurbjörnsson prófessor, sem situr í þýðingarnefnd Hins íslenska biblíufélags, segir nefndina standa við sínar breytingatillögur og að hann hefði jafnvel viljað ganga lengra.

Innlent
Fréttamynd

Athugasemdir við Biblíuna óskast

Hið íslenska biblíufélag hefur sent frá sér athugasemd þar sem minnt er á að sú kynningarútgáfa sem nú liggur fyrir af þýðingu Nýja testamentisins er tillaga en ekki endanlegur texti. Öllum er velkomið að senda inn athugasemdir og hefur frestur til þess verið framlengdur til 5. maí.

Innlent
Fréttamynd

Atlantsolía opnar á Akranesi

Atlantsolía opnar í dag sjálfsafgreiðslu fyrir díselolíu við höfnina á Akranesi. Þar verður svonefnd kraftdæla sem styttir áfyllingartíma verulega. Í tilkynningu frá félaginu segir að í undirbúningi sé að taka upp sama fyrirkomulag á fleiri stöðum úti á landi.

Innlent
Fréttamynd

Ósammála um sameiningu

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að draumur sinn um sameiningu Samfylkingarinnar og Vinstri grænna sé nær því að rætast nú en áður. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, segir ástæðu fyrir því að flokkarnir séu í tvennu lagi.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn á sölu Búnaðarbankans

Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, vill að Alþingi láti fara fram opinbera rannsókn á sölu Búnaðarbankans á sínum tíma og skili þjóðinni skýrslu um málið.

Innlent
Fréttamynd

Hátt í 200 þingmál bíða afgreiðslu

Þegar aðeins níu fundadagar eru eftir af starfstíma Alþingis fram að sumarleyfi bíða enn hátt í 200 þingmál þess að komast á dagskrá þingsins. Ljóst er að meginþorri þeirra mun ekki ná því að komst í fyrstu umræðu, og er líklegt að reykingafrumvarp Sivjar Friðleifsdóttur verði meðal þeirra sem þau örlög hljóta.

Innlent
Fréttamynd

Vill leiða flokkinn áfram

Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst áfram bjóða sig fram til formanns á komandi landsþingi flokksins sem haldið verður í október næstkomandi þrátt fyrir erfið veikindi sín undanfarin misseri.

Innlent
Fréttamynd

Gæti greitt fyrir Sundabraut

Til greina kemur að ráðstafa hluta af söluandvirði Símans í að fjármagna Sundabraut og önnur samgönguverkefni sem eru ekki í vegaáætlun. Þetta kom fram í svari Halldórs Ásgrímssonar við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar, samflokksmanns hans.

Innlent
Fréttamynd

Engin dagsetning ákveðin

"Við gerðum ráð fyrir að hefja viðræður að nýju í þessum mánuði en engin dagsetning hefur verið ákveðin," segir Davíð Oddssson, utanríkisráðherra, en tafir hafa orðið á viðræðum íslenska og bandarískra embættismanna um framtíð varnarsamnings landanna tveggja.

Innlent
Fréttamynd

Íslendingum veitt ríkisorða Rússa

Tveimur Íslendingum var í dag veitt ríkisorða Rússlands fyrir að hafa siglt með skipalestum frá Bandaríkjunum til Rússlands í seinni heimsstyrjöldinni.

Innlent
Fréttamynd

Ofbjóða dylgjurnar

"Mér er ómögulegt að skilja hvaða hvatir liggja að baki því að senda út þátt á borð við þennan," segir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um viðtal við Jónínu Benediktsdóttur í Kastljósi Ríkissjónvarpsins á sunnudaginn.

Innlent
Fréttamynd

Bessastaðabóndinn í stjórn

Guðný Helga Björnsdóttir, bóndi að Bessastöðum í Vestur-Húnavatnssýslu var kjörin í stjórn Landssambands kúabænda á aðalfundi sambandsins á dögunum.

Innlent
Fréttamynd

Tilboðsfrestur framlengdur

Einkavæðinganefnd ákvað í gær að lengja frest til að skila inn óbindandi tilboðum í Símann til 17. maí næstkomandi. Átti fresturinn að renna út 6. maí. Jón Sveinsson, formaður nefndarinnar, segir það hafa tekið lengri tíma að útbúa trúnaðarsamning og viðbótargögn til að afhenda áhugasömum fjárfestum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Bjartsýni á samstarf R-listans

Formenn flokkanna þriggja í Reykjavíkurlistanum, sem og borgarfulltrúar, eru bjartsýnir á áframhaldandi samstarf R-listans. Málefnaviðræður flokkanna hefjast í dag. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Lokahnúturinn á morðrannsókn

Rannsókn lögreglunnar á láti hálfsextugs manns í desember er lokið en niðurstaðna gagna úr rannsókninni er beðið. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir málið verða sent ríkissaksóknara þegar gögnin berist.

Innlent