Tilboðsfrestur framlengdur 18. apríl 2005 00:01
Einkavæðinganefnd ákvað í gær að lengja frest til að skila inn óbindandi tilboðum í Símann til 17. maí næstkomandi. Átti fresturinn að renna út 6. maí. Jón Sveinsson, formaður nefndarinnar, segir það hafa tekið lengri tíma að útbúa trúnaðarsamning og viðbótargögn til að afhenda áhugasömum fjárfestum. Einnig var tekið fyrir bréf Agnesar Bragadóttur og Orra Vigfússonar þar sem óskað var eftir fjögurra til átta vikna fresti til að skila inn tilboði. Jón segir nefndina hafa komist að þeirri niðurstöðu að búið væri að marka rammann um söluferlið, það hefði verið kynnt opinberlega og þýðingarmikið að fyrirkomulagið væri trúverðugt. Allir ættu að sitja við sama borð og gæta ætti fyllsta jafnræðis. Í ljósi þess var nefndinni ekki fært að verða við ósk Agnesar og Orra en Jón segir þeim hafa verið bent á að fresturinn til að skila inn tilboðum var lengdur af öðrum orsökum. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær að til greina kæmi að ráðstafa hluta af söluandvirði Símans í að fjármagna Sundabraut og önnur samgönguverkefni sem ekki væru í vegaáætlun. Einkavæðingarnefnd ákvað jafnframt á fundi sínum í gær að miða skyldleika og tengsl væntalegra tilboðsgjafa við hámark þrjátíu prósent atkvæða í félagi eða rétt til að tilnefna eða setja af fleiri en einn stjórnarmanna eða meirihluta stjórnar.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira