Innlent

Fréttamynd

Skemmdi tvo bíla lögreglu

Tveir lögreglumenn voru fluttir á slysadeild í fyrrinótt eftir að hafa lent í eltingarleik við ölvaðan ökumann sem ók um á ofsahraða. Tókst loks að stöðva för hans við Rauðavatn ekki fyrr en brotamaðurinn hafði ítrekað ekið fram og aftur á þá tvo lögreglubíla sem króað höfðu hann af.

Innlent
Fréttamynd

Vilja meira fé til samgöngumála

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja áherslu á að framkvæmdafé til samgöngumála í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu verði aukið frá því sem nú er. Þótt framlög til höfuðborgarsvæðisins hafi aukist talsvert að undanförnu sé brýn nauðsyn til að gera enn betur. Þetta kemur fram í bókun sem þeir lögðu fram á borgarstjórnarfundi í dag.

Innlent
Fréttamynd

HR velur Vatnsmýrina

Háskólinn í Reykjavík hefur ákveðið að Vatnsmýrin verði framtíðarsvæði skólans og mun yfirstjórn háskólans nú taka upp formlegar samningaviðræður við Reykjavíkurborg um uppbyggingu háskólans og tengdrar starfsemi á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum.

Innlent
Fréttamynd

Tryllt árás í miðbænum

Lögreglan í Reykjavík leitar tveggja til fjögurra ofbeldismanna úr átta manna hópi sem réðust á tvo menn af tilefnislausu fyrir utan Hverfisbarinn í miðborginni á laugardagskvöldið. Mennirnir hafa lagt fram kæru. Árásin var tekin upp á myndband öryggismyndavéla sem gæta gestanna á staðum.

Innlent
Fréttamynd

Benedikt fylgi stefnu Jóhannesar

Kaþólikkar á Íslandi fögnuðu því innilega að vera búnir að fá nýjan páfa. Prestar þeirra búast ekki við að nýi páfinn muni víkja mikið frá stefnu Jóhannesar Páls.

Innlent
Fréttamynd

Skemmdi tvo bíla lögreglu

Tveir lögreglumenn voru fluttir á slysadeild í fyrrinótt eftir að hafa lent í eltingarleik við ölvaðan ökumann sem ók um á ofsahraða. Tókst loks að stöðva för hans við Rauðavatn ekki fyrr en brotamaðurinn hafði ítrekað ekið fram og aftur á þá tvo lögreglubíla sem króað höfðu hann af.

Innlent
Fréttamynd

Verðbólga eilítið hærri en á EES

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 116,9 stig í mars og hækkaði um hálft prósent frá febrúar. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 129,8 stig, hækkaði um 0,4 prósent frá fyrra mánuði. Frá mars 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan að meðaltali tvö prósent í ríkjum EES en hún var 2,1 prósent á evrusvæðinu og 2,5 prósent á Íslandi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Borgarstjórn fagnar ákvörðun HR

Borgarstjórn Reykjavíkur fagnar því að Vatnsmýrin hafi orðið fyrir valinu sem framtíðarsvæði Háskólans í Reykjavík. Tilkynning svo hljóðandi var samþykkt á borgarstjórnarfundi í dag. Þar segir enn fremur að samstarf Reykjavíkurborgar og Háskólans í Reykjavík við undirbúning ákvörðunar háskólaráðsins hafi skerpt sameignlega sýn þessara aðila á frekari þróun Vatnsmýrarinnar sem skapi einstakt tækifæri til að mynda þekkingar- og nýsköpunarumhverfi á heimsmælikvarða í hjarta höfuðborgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Mál vegna Kjarvalsverka þingfest

Mál erfingja Jóhannesar Kjarvals gegn Reykjavíkurborg var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Erfingjarnir krefjast þess að Reykjavíkurborg láti af hendi rúmlega 5000 málverk og yfir eitt þúsund bækur sem borgin telur að listamaðurinn hafi gefið sér árið 1968.

Innlent
Fréttamynd

Síminn kvartar vegna Og1

Landssími Íslands hefur kvartað til Samkeppnisstofnunar yfir auglýsingum vegna Og1, nýrrar þjónustu Og Vodafone. Landssíminn telur að auglýsingar vegna Og1 séu ólögmætar því óheimilt sé að gefa til kynna í auglýsingum eða með öðrum hætti að þjónusta fyrirtækis sé að kostnaðarlausu ef greiða þarf fyrir einhvern þátt þjónustunnar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hvar á að rækta íslenskan skóg

Hvar á að rækta skóg á Íslandi í framtíðinni og hvar ekki? Um þetta hefur náðst víðtæk sátt milli stjórnvalda, skógræktarfélaga og annarra umhverfissamtaka og var hún innsigluð í dag.

Innlent
Fréttamynd

Varlega í skuldbindingar

"Mér finnst afar varhugaverðar þær raddir sem heyrast að verðgildi Símans geti allt að fimmfaldast að útboði loknu," segir Davíð Oddsson, utanríkisráðherra. Hann fagnar þeim áhuga sem almenningur í landinu hefur sýnt á að eignast fyrirtækið en segir að fara verði varlega í ályktanir um stóran hagnað þeirra sem þátt munu taka.

Innlent
Fréttamynd

22 milljarðar í íbúðalán í mars

Hækkun íbúðaverðs herðir enn á sér og nam fimm prósentum síðasta mánuð en 32 prósentum þegar til tólf mánaða er litið. Í mars lánuðu bankarnir tæpa 22 milljarða króna í íbúðalán sem var aukning um 1,2 milljarða frá fyrra mánuði og 3,5 milljarði meira en í janúar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hetjur hryllilegs stríðs fá orður

Rússneska sendiráðið veitti tveimur íslenskum sjómönnum heiðursorður í gær. Þeir voru á bandarískum skipum og fluttu vistir til sovésku þjóðarinnar í seinni heimsstyrjöldinni.

Innlent
Fréttamynd

Sorpustöðin ekki opnuð að nýju

Meirihluti umhverfisráðs Reykjavíkurborgar hafnaði í dag tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks um að umhverfisráð skyldi leita leiða til að opna að nýju móttöku- og endurvinnslustöð Sorpu við Bæjarflöt í Grafarvogi. Stöðinni var lokað í ársbyrjun við takmarkaða hrifningu Grafarvogsbúa en um 25.000 íbúar eru á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Héðinsfjarðargöng ekki töfralausn

Verkalýðsfélagið Vaka á Siglufirði telur að einungis með afnámi hrepparígs, opnu hugarfari, bjartsýni og framsýni verði hægt að skapa raunhæfan valkost á Norðurlandi við höfuðborgarsvæðið og bendir á að bættar samgöngur með Héðinsfjarðargöngum séu ekki einar og sér allra meina bót.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn á öllum einkavæðingum

Forsætisráðherra hefur farið þess á leit við Ríkisendurskoðun að hún fylgist sérstaklega með söluferli Landssímans. Formaður Vinstri-grænna segir hins vegar að ítarlega opinbera rannsókn þurfi á öllum einkavæðingum ríkisstjórnarinnar, sérstaklega sölu Búnaðarbankans. 

Innlent
Fréttamynd

Orkumálastjóri í leyfi

Þorkell Helgason orkumálastjóri hefur af persónulegum ástæðum óskað eftir leyfi frá starfi um tveggja mánaða skeið. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur sett Ragnheiði Ingu Þórarinsdóttur í embætti orkumálastjóra umrætt tímabil.

Innlent
Fréttamynd

Boðin aðstoð gegn streitu

Annað slagið koma upp aðstæður vegna mönnunar á Landspítala háskólasjúkrahúsi, þar sem fólki líður illa vegna álags. Þetta segir lögmaður á skrifstofu starfsmannamála. Hann segir ýmsa starfsemi í gangi sem standi starfsfólki til boða ef streita og álag hrjá það. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Kaupendur Símans reki hann einnig

Davíð Oddsson utanríkisráðherra er ánægður með þann áhuga sem almenningur sýnir á kaupum í Símanum. Hann vill sjá að þeir fjárfestar sem koma til með að kaupa Símann muni einnig reka fyrirtækið í framtíðinni, en selji það ekki í von um skjótfenginn gróða. Þá segir Davíð að nýja fjölmiðlaskýrslan sé bitlítil.

Innlent
Fréttamynd

Mjúkir andlitsdrættir eru málið

Þorri kvenna kýs menn með mjúka andlitsdrætti enda segir náttúran að þeir séu betri uppalendur. Fáir kjósa sér rekkjunauta sem líkjast þeim sjálfum enda gæti slíkt leitt af sér úrkynjun. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ráðningu frestað

Tillögu um að ráða Árnýju Sigurðardóttur sem forstöðumanns heilbrigðiseftirlits var frestað á fundi Umhverfisráðs Reykjavíkurborgar í gær eftir að sjálfstæðismenn óskuðu eftir áliti borgarlögmanns á nýju skipuriti Umhverfissviðs.

Innlent
Fréttamynd

7000 nýskráningar í Samfylkinguna

Gríðarleg smölun stuðningsmanna formannsefnanna í Samfylkingunni hefur skilað sjö þúsund nýjum flokksmönnum sem er aukning um tæp 54 prósent frá áramótum. Þá voru skráðir flokksmenn u.þ.b. þrettán þúsund en eru nú rétt um tuttugu þúsund eftir að frestur til að skrá sig í flokkinn, til að geta tekið þátt í formannskjörinu, rann út á föstudag.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið hætti fjölmiðlaafskiptum

Samband ungra sjálfstæðismanna hvetur ríkið til að hætta afskiptum af fjölmiðlum. Í ályktun ungliðanna er því mótmælt að sett séu fram hugmyndir um að skerða möguleika á fjármögnun einkarekinna fjölmiðla, á sama tíma og frumvarp liggi fyrir sem tryggi Ríkisútvarpinu rétt til aukinna umsvifa á markaðnum.

Innlent
Fréttamynd

Ákvörðun Hæstaréttar áhyggjuefni

Sveitarstjóri Grímsness- og Grafningshrepps segir viðurkenningu Hæstaréttar, á lögheimili fjögurra manna fjölskyldu í húsi á frístundarbyggðarsvæði Bláskógarbyggðar, valda sér miklum áhyggjum. 

Innlent
Fréttamynd

Kennarar í Versló án samnings

Kennarasamband Íslands hefur fundað tvisvar með samninganefnd ríkisins vegna kjarasamnings kennara í Verzlunarskóla Íslands sem rann út í lok janúar.

Innlent
Fréttamynd

Borgarstjóri fagnar Kjarvalsmáli

Borgarstjóri segir gott að óvissu um meinta gjöf Kjarvals til borgarinnar verði eytt. Mál barnabarns Kjarvals gegn borginni verður þingfest í héraðsdómi á morgun.

Innlent