Innlent
Söluþóknun fasteignasala breytileg Söluþóknun sú er fasteignasalar taka við sölu eigna er mjög breytileg samkvæmt könnun sem Neytendasamtökin og Húseigendafélagið stóðu fyrir. Þóknunin er miðuð við söluverð íbúðar og er lægst 0.75 prósent en hæst 2.9 prósent og getur því munað tugum eða hundruðum þúsunda eftir því hvar eignin er seld. Innlent 13.10.2005 19:08
Hæstiréttur mildaði dómana Hæstiréttur mildaði dómana yfir sakborningunum þremur í Landssímamálinu rétt í þessu. Árni Þór Vigfússon var dæmdur í 15 mánaða fangelsi og Kristján Ragnar Kristjánsson í 18 mánuði. Báðir voru dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir Héraðsdómi síðastliðið sumar. Innlent 13.10.2005 19:08
Vaðlaheiðarfórnarlambið ók bílnum Einn þeirra sem stóðu að líkamsárásinni við Akureyri sem greint var frá fyrr í dag er sá sem skotið var á úr loftbyssu á Vaðlaheiði fyrir tæpum hálfum mánuði. Hann segist hafa ekið bílnum og viðurkennir að hafa verið á vettvangi, en neitar að hafa tekið þátt í barsmíðunum. Innlent 13.10.2005 19:08
Óttast að sé verið að tefja málið "Ég óttast að það sé verið að tefja málið, fyrst í allsherjarnefnd og síðar uppi í ráðuneyti," sagði Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður um frumvarp sem hann hefur lagt fram um afnám fyrningarákvæðis þegar um er að ræða kynferðisbrot gegn börnum undir 14 ára aldri. Innlent 13.10.2005 19:08
Hagnaður jókst um 266% Hagnaður af rekstri Kaupþings banka eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi nam ellefu milljörðum króna og jókst um rúm 266 prósent frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður á hvern hlut nam 17 krónum en var sjö krónur í fyrra. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Vill afnema tekjutengingu öryrkja Félagsmálastjórinn í Reykjavík vill afnema tekjutengingu öryrkja, annarra en þeirra sem hafa umtalsverðar tekjur. Lára Björnsdóttir segir að samfélagsleg skylda eigi að hvíla á fyrirtækjum um að ráða fólk með skerta starfsgetu í vinnu. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:08
Má kjósa í formannskjörinu Steingrímur Sævarr Ólafsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, öðlaðist óvænt kosningarétt í formannskjöri Samfylkingarinnar. Innlent 13.10.2005 19:07
Út í hött, segir Grétar Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir þremenningunum í líkfundarmálinu í Neskaupstað. Einn sakborninga, Grétar Sigurðsson, segir út í hött að hann skuli fá jafn þungan dóm og hinir tveir sakborningarnir, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas. Innlent 28.4.2005 00:01
Dómur í líkfundarmáli óbreyttur Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms yfir sakborningunum þremur í Líkfundarmálinu svokallaða fyrir stundu. Þeir fengu allir tveggja og hálfs árs dóm í héraði á síðasta ári. Innlent 28.4.2005 00:01
Er ekki sáttur við dóminn Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Grétari Sigurðarsyni, Jónasi Inga Ragnarssyni og Tomasi Malakaukas, en hver þeirra hafði verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Dóminn hlutu þeir fyrir smygl á tæpum 224 grömmum af amfetamíni, brot gegn lífi og líkama og fyrir ósæmilega meðferð á líki Vaidasar Juceviciusar. Innlent 13.10.2005 19:08
Marijúana í togara í Hafnarfirði Tollgæslan og lögreglan í Hafnarfirði fundu tæplega fimm grömm af marijúana við leit í færeyskum togara sem lá að bryggju við Óseyrarbryggju í Hafnarfjarðarhöfn. Eins fundust tól til neyslu kannabisefna. Innlent 13.10.2005 19:08
Búið að slökkva eldinn Búið er að slökkva eldinn sem kviknaði í Framheimilinu við Safamýri síðdegis. Eldurinn logaði í útvegg og í hluta af þaki hússins. Mikill viðbúnaður var á staðnum en fólk var ekki í hættu. Talið er að kviknað hafi í út frá vinnu við tjörupappalagningu. Innlent 13.10.2005 19:07
Eldur logaði í útvegg Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafði mikinn viðbúnað vegna elds í Framheimilinu í Reykjavík laust eftir klukkan eitt í gærdag. Enginn meiddist og búið var að hefta útbreiðslu eldsins um klukkustund síðar. Nemendur í Álftamýrarskóla, sem er í næsta húsi, voru sendir heim vegna brunans. Innlent 13.10.2005 19:08
Kona lést í bílveltu Rúmlega fimmtug kona lést þegar bíll sem hún ók fór út af og valt nokkrum sinnum á Upphéraðsvegi um einn kílómetra frá Egilsstöðum á leiðinni inn í Hallormsstað á tíunda tímanum á þriðjudagskvöldið. Bremsuför á vettvangi benda til þess að konan hafi misst stjórn á bílnum en að öðru leyti eru tildrög slyssins ókunn. Konan var ein í bílnum. Innlent 13.10.2005 19:07
Dómar í Landssímamálinu mildaðir Dómar Héraðsdóms yfir Árna Þór Vigfússyni, Kristjáni Ra. Kristjánssyni og Ragnari Orra Benediktssyni voru í Hæstarétti samtals mildaðir um 20 mánuði. Allir kröfðust þeir sýknu í málinu, en ákæruvaldið vildi staðfestingu héraðsdóms. Innlent 13.10.2005 19:08
Staðfestir sekt en mildar refsingu Hæstiréttur mildaði í dag refsingu fyrrverandi forsvarsmanna Skjás eins fyrir að veita viðtöku og ráðstafa í eigin þágu yfir hundrað og sextíu milljónum af stolnu fé frá Landssímanum og hylma yfir glæpinn. Hæstiréttur telur algjörlega útilokað að þeir hafi ekki vitað að féð var illa fengið. Innlent 13.10.2005 19:08
Ásdís Halla verður forstjóri Byko Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri í Garðabæ, hefur verið ráðin forstjóri Byko. Hún tekur við starfinu í lok næsta mánaðar. Við starfi Ásdísar Höllu sem bæjarstjóri tekur Gunnar Einarsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar. Innlent 13.10.2005 19:08
Iðandi mannlíf Atvinnulífið í Fjarðabyggð iðar af lífi og bjartsýni nú þegar framkvæmdir í tengslum við fyrirhugað álver eru komnar vel á veg og áhrifin eru farin að skila sér í þjóðfélaginu. Innlent 13.10.2005 19:08
Gerir tilboð í Singer&Friedlander Kaupþing banki, sem á tæp tuttugu prósent í breska bankanum Singer og Friedlander, hefur gert bindandi kauptilboð í bankann upp á röska 64 milljarða króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Eldur í Framheimilinu Unnið er að slökkvistarfi í Framheimilinu í Safamýri en nú fyrir skömmu logaði eldur í útvegg og í hluta af þaki hússins. Mikill viðbúnaður er á staðnum en ekki er talið að fólk sé í hættu vegna þessa. Innlent 13.10.2005 19:07
Önnur alvarleg líkamsárás Lögreglan á Akureyri hefur lokið rannsókn á líkamsárás þar sem sautján ára piltur var lokkaður upp í bíl og lokaður í farangursgeymslu þar sem ráðist var á hann með ofbeldi. Árásarmennirnir óku með piltinn út út Akureyrarbæ og hann sleginn þar sem hann lá í myrkri farangursgeymslunni, auk þess sem honum var ógnað með kúbeini. Innlent 13.10.2005 19:07
Börðu mann við Gesthús Héraðsdómur sektaði fimm menn um tvítugt um 75 þúsund krónur hvern fyrir að ráðast á og berja mann við Gesthús á Selfossi haustið 2003. Mennirnir eru frá Selfossi og Árborgarsvæðinu. Innlent 13.10.2005 19:08
Hagnaður Avion 2,5 milljarðar Hagnaður af rekstri Avion Group, móðurfélags Atlanta, Íslandsflugs og Exel Airways, nam tveimur og hálfum milljarði króna eftir skatta í fyrra og munaði þar mestu um mikinn hagnað af Exel Airways. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:07
Siglingaverndarreglur of strangar Samtök atvinnulífsins telja að reglur um svonefnda siglingavernd, sem innleiddar voru hér á landi í kjölfar hryðjuverkaárasanna í Bandaríkjunum árið 2001, séu mun strangari hér á landi en víðast annars staðar og sömuleiðis kostnaður við að framfylgja þeim. Innlent 13.10.2005 19:07
Handrukkari fær þrjú ár Hæstiréttur þyngdi í gær fyrri dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni um hálft ár, en fyrri dómur hljóðaði upp á tveggja og hálfs árs fangelsi. Staðfestur var tveggja ára dóm yfir Ólafi Valtý Rögnvaldssyni. Innlent 13.10.2005 19:08
Kim Larsen til landsins Danski söngvarinn Kim Larsen er væntanlegur til landsins til að halda tvenna tónleika á NASA í ágúst. Hann kom hingað síðast fyrir tuttugu árum og fyllti þá Broadway nokkrum sinnum. Larsen hefur átt miklum vinsældum að fagna í Danmörku, og reyndar víðar upp á síðkastið, eftir rólegt tímabil sem sumir héldu að boðaði endalok á ferli hans. Lífið 13.10.2005 19:07
Keppst um nýja Landspítalalóð Fulltrúar sjö hópa sem keppa um skipulag nýrrar lóðar Landspítala við Hringbraut fengu afhenta samkeppnislýsingu í dag. Heilbrigðisráðherra segir að sameining allrar starfsemi spítalans undir eitt þak muni kosta þrjátíu og sex milljarða króna. Ágóði af sölu Símans verði líklega notaður til að fjármagna verkið. Innlent 13.10.2005 19:08
Ríkisendurskoðandi á fund Halldórs Ríkisendurskoðandi var kallaður fyrir fjárlaganefnd í dag til ræða einkavæðingu stjórnvalda, þar á meðal á Búnaðarbankanum. Einróma niðurstaða fundarins var að kalla þyrfti fleiri fyrir nefndina, svo sem einkavæðingarnefnd, þar sem ýmsu væri ósvarað. Fyrir fundinn átti ríkisendurskoðandi fund með forsætisráðherra en neitar að upplýsa um efni hans. Innlent 13.10.2005 19:08
Úrskurðarnefnd í ferðaþjónustu Samtök ferðaþjónustunnar og Neytendasamtökin undirrituðu í gær samkomulag um stofnun sérstakrar úrskurðarnefndar. Nefndin mun taka til meðferðar hvers konar kvartanir frá neytendum vegna vöru og þjónustu af fyrirtækjum innan samtaka ferðaþjónustunnar. Innlent 13.10.2005 19:07
Vilja reyklausa veitingastaði Sex hundruð nemendur í unglingadeild Áslandsskóla í Hafnarfirði vilja reyklausa veitingastaði í Hafnarfirði. Fulltrúar nemendanna gengu á fund Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra í gær og afhentu honum undirskriftalistanna þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að beita sér fyrir því að veitingastaðir í Hafnarfirði verði reyklausir. Innlent 13.10.2005 19:07