Innlent
Félagsráðgjafar höfnuðu tilboði borgaryfirvalda Félagsráðgjafar höfnuðu í morgun tilboði borgaryfirvalda í kjaraviðræðum aðilanna og svöruðu með gagntilboði. Formaður stéttarfélags félagsráðgjafa segir mikið hafa borið í milli. Innlent 24.2.2006 12:08
Nýsköpunarverðlaunin ekki fyrir konur? Runólfur Ágústsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, segir að sér virðist sem hvatningu Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands í ár hafa ekki verið beint til ungra kvenna. Verðlaunin voru veitt í gær og að þessu sinni voru þau gefin af Viðskiptaháskólanum. Fjögur verkefni voru tilnefnd og voru þau öll unnin af karlmönnum. Leiðbeinendur þeirra voru einnig karlar. 140 verkefni komu til greina. Innlent 24.2.2006 10:47
Spyrja þarf aldraða um þarfir þeirra og óskir Spyrja þarf aldraða um þarfir þeirra og óskir í búsetumálum og hætta að skattpína þá, segir Margrét Margeirsdóttir, formaður Félags eldriborgara í Reykjavík. Innlent 24.2.2006 09:04
Meleyri lokað Einni elstu rækjuverksmiðju landsins, Meleyri á Hvammstanga verður lokað innan skamms þar sem öllum 20 starfsmönnunum verksmiðjunnar hefur verið sagt upp. Þá verða aðeins sex til sjö rækjuverksmiðjur eftir í rekstri hér á landi en þær voru 20 fyrir nokkrum árum. Innlent 24.2.2006 09:01
Bæjarstjórinn tregur til að boxa 20-30 nemendur Háskólans á Akureyri afhentu Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra á Akureyri boxhanska á Akureyrarflugvelli í morgun. Bæjarstjórinn virtist tregur til að veita hönskunum viðtöku. Innlent 24.2.2006 09:20
Baugsmálið í dóm Ákæruliðirnir í Baugsmálinu snúa annars vegar að brotum á lögum um ársreikninga og hins vegar að brotum á tollalögum vegna innflutnings á bílum, en málið var dómtekið í gærkvöldi að lokinni aðalmeðferð. Dómarar hafa nú þrjár vikur til að kveða upp dóm. Innlent 24.2.2006 08:56
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja verkfall Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykktu einróma í gær heimild til boðunar verkfalls um allt land þar sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt í kjaraviðræðum þeirra og Launanefndar sveitarfélaganna. Ef af því verður hefst það væntanlega 16. eða 17. mars. Innlent 24.2.2006 08:46
Hlustað verði á óskir og þarfir aldraðra í búsetumálum Spyrja þarf aldraða um þarfir þeirra og óskir um búsetuúrræði og hætta að skattpína þá, segir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík. Innlent 23.2.2006 23:45
Erilsamt hjá lögreglunni í Hafnarfirði Maður liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hann féll af þaki við Lyngás í Garðabæ um klukkan hálf tvö í dag. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Hafnarfirði mun fallið hafa verið nokkuð hátt og var maðurinn fluttur með sjúkrabifreið á gjörgæsludeild . Innlent 23.2.2006 22:35
Stefnir í verkfall slökkviliðsmanna Slitnað hefur upp úr samningaviðræðum sveitarfélaga og slökkviliðsmanna, sem hyggjast óska eftir heimild til verkfallsboðunar á stéttarfundum víða um land í kvöld. Formaður samninganefndarinnar segir þolinmæði slökkviliðsmanna á þrotum. Heimildir NFS herma að slökkviliðsmenn íhugi að vinna ekki yfirvinnu á næstu dögum, sem er stór hluti af starfi þeirra. Innlent 23.2.2006 21:28
Ný tækni til að lina þjáningar íþróttamanna SPORT-COOL hlaut nýsköpunarverðlaun forseta Íslands í dag. Um er að ræða nýja tækni til að lina þjáningar íþróttamanna. Innlent 23.2.2006 22:06
Lést af slysförum Stúlkan, sem varð fyrir bíl í Garðabæ þann15. þessa mánaðar er látin. Hún var fædd árið 1990 og var nemi í Garðaskóla í Garðabæ. Stúlkan var á leið yfir gangbraut á Bæjarbraut í Garðabæ þegar slysið varð. Talið er að ökumaður bifreiðarinnar hafi blindast af sól þegar slysið varð. Þetta er þriðja banaslysið í umferðinni það sem af er þessu ári. Innlent 23.2.2006 22:03
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja heimild til verkfalls Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafa samþykkt heimild til boðunar verkfalls um allt land þar sem ekkert hefur þokast í samkomulagsátt í kjaraviðræðum þeirra og Launanefndar sveitarfélaganna. Ef af því verður hefst það væntanlega 16. eða 17. mars. Innlent 23.2.2006 22:01
Hjálmar Árnason fékk hjartaáfall í nótt Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, fékk hjartaáfall í nótt. Hann gekkst undir hjartaþræðingu á Landspítalanum í dag og mun vera úr allri hættu. Tilkynnt var við upphaf þingfundar í morgun að hann yrði frá þingstörfum í nokkrar vikur. Ísólfur Gylfi Pálmason er varamaður hans á þingi. Innlent 23.2.2006 21:19
Valgerður segir áhrif stóiðju ofmetin Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir áhrif stóriðju ofmetin í íslensku efnahagslífi. Ráðherrann segir þensluna helst stafa af útlánaaukningu bankanna. Þá segir hann ekki rúm fyrir allar þrjár stórframkvæmdirnar sem mest sé rætt um. Ekki verði á næstu tíu árum reist álver í Helguvík ef stækkað verði í Straumsvík. Innlent 23.2.2006 21:14
Ellefu ára fangelsi fyrir morð Magnús Einarsson var í dag dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir að bana konunni sinni á heimili þeirra í Kópavogi í nóvember árið 2004. Hæstiréttur þyngdi fangelsisdóm héraðsdóms yfir Magnúsi um tvö ár. Magnús var ákærður fyrir að bregða þvottasnúru um háls Sæunnar á heimili þeirra í Hamraborg í Kópavogi og þrengja síðan að þannig að hún lést af völdum kyrkingar. Börn þeirra tvö voru sofandi í íbúðinni á sama tíma. Magnús játaði að hafa banað konu sinni, en afbrýðisemi vegna framhjálds konu hans hafi valdið því að hann missti stjórn á sér. Innlent 23.2.2006 21:04
Vetrarhátíð sett kl. 20 í beinni á NFS Fimmta Vetrarhátíðin í Reykjavík hefst í kvöld kl. 20 á Austurvelli þar sem Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri setur hátíðina. Sýnt verður beint frá setningunni á NFS. Búast má við litskrúðugum gjörningi í kjölfarið þar sem öllu ægir saman, Vetri konungi, ljósum, risatrommum, dönsum og eldi. Innlent 23.2.2006 18:58
Málflutningi í Baugsmálinu lokið Málflutningi verjenda í Baugsmálinu er lokið og það hefur nú verið dómtekið. Búast má við að dómur verði kveðinn upp innan þriggja vikna. Innlent 23.2.2006 19:04
Þorgerður í stað Geirs til Indlands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, fer í opinbera heimsókn til Indlands um helgina í stað Geirs H. Haarde, utanríkisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. Þetta er af óviðráðanlegum ástæðum eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Innlent 23.2.2006 18:52
Ráðherra segir farið yfir fjárhagsleg málefni HA Menntamálaráðherra hefur sent frá yfirlýsingu sér vegna umræðu um fjárhagsstöðu Háskólans á Akureyri. Þar kemur fram að ráðherra hafi á undanförnum mánuðum unnið að því í góðri samvinnu við rektor Háskólans á Akureyri að fara yfir fjárhagsleg málefni skólans. Markmiðið sé að finna varanlega lausn á málefnum skólans. Innlent 23.2.2006 18:00
Óvenjulegt listaverk Listaverkið „Áfangastaður“ eftir Finn Arnar var afhjúpað við hátíðlega athöfn í anddyri nýja Samskipahússins í gær en það var unnið sérstaklega fyrir félagið með þessa staðsetningu í huga. Lífið 23.2.2006 17:15
Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm HV Hæstiréttur hefur staðfest eins og hálfs árs dóm Héraðsdóms Vestfjarða yfir manni sem ákærður var fyrir að hafa nauðgað ungri stúlku í júní 2004. Innlent 23.2.2006 17:14
Slitnað upp úr viðræðum við sjúkraflutninga- slökkviliðsmenn Slitnað hefur upp úr viðræðum Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við launanefnd sveitarfélaganna. Allar deildir slökkviliða landsins hafa verið boðaðar til fundar í Reykjavík í kvöld þar sem ræða á stöðu mála. Innlent 23.2.2006 16:58
Dómur þyngdur í Hæstarétti vegna morðs í Hamraborg Hæstiréttur þyngdi í dag dóm yfir Magnúsi Einarssyni, sem ákærður var fyrir að hafa myrt eiginkonu sína, Sæunni Pálsdóttur, að heimili þeirra að Hamraborg í Kópavogi 1. nóvember 2004. Héraðsdómur hafði dæmt hann í níu ára fangelsi en Hæstiréttur þyngdi dóminn í ellefu ár að kröfu ákæruvaldsins sem áfrýjaði dómnum. Innlent 23.2.2006 16:48
Bæjarfulltrúar Neslistans áfram í efstu sætum Búið er að ákveða hvernig Neslistinn á Seltjarnarnesi verður skipaður við næstu sveitarstjórnarkosningar, en listinn hefur nú þrjá af sjö bæjarfulltrúum í bæjarstjórn Seltjarnarness. Bæjarfulltrúarnir skipa áfram sömu sæti og við síðustu kosningar. Innlent 23.2.2006 16:37
Samið um 900 nýjar íbúðir í Hveragerði Samningar á milli byggingafyrirtækisins Eyktar og Hveragerðisbæjar voru undirritaðir á bæjarskrifstofunum í Hveragerði í gærkvöldi. Í samningnum er stefnt að byggingu 8-900 íbúða hverfis austan Varmár á næstu 12 árum þar sem ríflega 2000 einstaklingar munu búa. Gangi uppbyggingaráformin eftir munu þau kalla á nýjan grunnskóla og 6 deilda leikskóla í Hveragerði. Strax verður hafist handa við athuganir á landssvæði því sem um ræðir og í kjölfar þeirra hefst vinna við deiliskipulag. Gert er ráð fyrir að gatnagerð á svæðinu hefjist á næsta ári. Innlent 23.2.2006 15:52
Röskva og Vaka í samstarf í Stúdentaráði HÍ Eftir margra ára baráttu hafa þær tvær stóru fylkingar sem barist hafa um Stúdentaráð Háskóla Íslands tekið höndum saman. Um sögulegt samstarf er að ræða og hefur stjórn Stúdentaráðs nú í fyrsta sinn 90% atkvæða á bak við sig. Innlent 23.2.2006 16:06
Hjálmar fékk hjartaáfall Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins og þingflokksformaður flokksins, fékk hjartaáfall síðast liðna nótt og verður frá þingstörfum í nokkrar vikur. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er líðan Hjálmars stöðug og hann úr hættu. Innlent 23.2.2006 16:26
Aðeins ein lóð á mann við Úlfarsfell Borgarráð samþykkti í dag að hver einstaklingur geti aðeins keypt byggingarrétt á einni lóð undir sérbýli á lóðum sem Reykjarvíkurborg er nú að útlhluta við Úlfarsfell. Þetta er gert svo að markmiðum sem upphaflega voru sett verði náð. En þau gerðu ráð fyrir að einbýlis- og parhúsalóðir á svæðinu geri fjölskyldum kleift að byggja yfir fjölskyldur sínar. Tillagan var samþykkt með fjórum samhliða atkvæðum. Innlent 23.2.2006 14:58
Íbúðalánasjóður í Kauphöllina Íbúðalánasjóður hefur viðskipti á skuldabréfamarkaði Kauphallar Íslands sjöunda mars næstkomandi undir auðkenninu ILS. Með aðild Íbúðalánasjóðs verða kauphallaraðilar orðnir 24. Viðskipti innlent 23.2.2006 14:38