Kvöldfréttir Stöðvar 2

Vandræði á stjórnarheimili í beinni
Jón Gunnarsson sat einn stjórnarþingmanna hjá í atkvæðagreiðslu um vantraust á matvælaráðherra og sagði þingflokk Vinstri Grænna varla hæfan til þingsetu.

Niðurrif í Grindavík og fegnir leigubílstjórar
Grindvíkingar syrgja nýlegt íþróttahús bæjarins sem þarf að rífa en segja það einnig nauðsynlegt til að tryggja öryggi. Slökkvilið og verktakar hafa staðið í ströngu við að halda hraunflæði í skefjum við Svartsengi síðasta sólarhringinn.

Hryðjuverkasamtökin Norðurvígi og raunveruleg skoðun túrista
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur formlega skilgreint nýnasistasamtökin Norðurvígi, sem eru meðal annars starfrækt hér á landi, sem hryðjuverkasamtök. Lektor í lögreglufræðum segir ástæðu til að ætla að samtökin geti falið í sér ógn við samfélagið.

Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli
Fimmtíu og sjö flugmönnum var sagt upp störfum hjá flugfélaginu Icelandair á föstudag. Áttatíu og tveimur starfsmönnum var sagt upp á skrifstofum félagsins í lok maí. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í beinni útsendingu.

Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn
Altjón varð í tíu verslunum Kringlunnar í gær þegar það kviknaði í þaki hennar. Eigandi verslunarinnar sem kom verst út úr brunanum segir Kringluna hafa litið hryllilega út í nótt. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið
Eldur kviknaði í þaki Kringlunnar síðdegis og allt tiltækt slökkvilið var kallað til. Rýma þurfti verslunarmiðstöðina. Við verðum í beinni útsendingu frá vettvangi í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Alvarlegt rútuslys og kona sem á níutíu þúsund servíettur
Rúta fór út af veginum yfir Öxnadalsheiði á sjötta tímanum. Tuttugu og tveir farþegar voru í rútunni auk ökumanns. Hópslysaáætlun og samhæfingarmiðstöð Almannavarna hafa verið virkjaðar. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar og tvær sjúkraflugvélar hafa verið sendar á staðinn og er byrjað að flytja slasaða frá vettvangi.

Lögregluaðgerð og áhyggjufullir foreldrar í Garðabæ
Það er algjörlega fráleitt að ráðherrar reyni að beita sér gegn lögreglu og ráðherra sem það gerir þarf að sæta ábyrgð. Þetta segir þingmaður Viðreisnar. Ríkisstjórnin þurfi að sameinast um stefnu um verslun með áfengi, svo íslensk fyrirtæki sitji við sama borð og erlend.

Pólitísk afskipti af rannsókn og heklari á níræðisaldri
Framkvæmdastjóri netverslunar með áfengi segir óeðlilegt að pólitískir valdhafar reyni að hafa áhrif á sakamálarannsóknir og vitnar þar í bréf sem fjármálaráðherra sendi lögreglu í gær. Dómsmálaráðherra sendir fjármálaráðherra kaldar kveðjur vegna málsins.

Umdeild ákvörðun ráðherra og gosmóða yfir borginni
Matvælaráðherra segir að þrátt fyrir að hún og Vinstri Græn séu á móti hvalveiðum hafi hún þurft að fara að lögum og leyfa veiðar. Hún vilji hins breyta lögunum og forsætisráðherra tekur undir að það þurfi að betrumbæta þau.

Efast um heimild ráðherra til rannsóknar
Barnamálaráðherra hafði ekki lagaheimild til að fela Gæða - og eftirlitsstofnun að rannsaka meðferðarheimili sem var á Laugalandi og Varpholti að mati Persónuverndar. Forstjóri stofnunarinnar segir miður þegar mál falla á formgalla. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Ný ógn við íslensk fyrirtæki og pönnukökumeistari krýndur
Svokallaðar iðnaðarnjósnir eru raunveruleg ógn við íslensk fyrirtæki að sögn forstjóra Samtaka iðnaðarins. Utanríkisráðherra lítur það mjög alvarlegum augum að hópar netþrjóta beiti njósnum gegn Íslandi. Netöryggismálin verða í öndvegi í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Blóðbað við björgun gísla og bein útsending frá Grindavíkurvegi
Íslensk stjórnvöld hafa ekki lagaheimild til að beita einhliða viðskiptaþvingunum gegn Ísrael. Þetta segir utanríkisráðherra sem segir þó ljóst að Ísraelsher hafi gengið of langt í aðgerðum sínum á Gasa. Íslenskir mótmælendur kalla eftir róttækari aðgerðum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við mótmælendur sem komu saman í fjölmennri kröfugöngu í miðborginni í dag.

Krísufundur VG, ónýt stúka og tónleikar í beinni
Stjórn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs ákvað í dag að flýta landsfundi til þess að velja nýja forystu og móta nýja stefnu. Fylgi flokksins hefur verið í frjálsu falli og VG-liðar boða róttækari vinstristefnu. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verðum við í beinni frá stjórnarfundi Vinstri Grænna og ræðum við flokksfélaga sem hafa áhyggjur af stöðunni.

Netþrjótar sem herja á Ísland og heyskapur í viðvörunum
Staðfest dæmi eru um að hér á landi starfi hópar netþrjóta sem ganga erinda erlendra ríkja á borð við Rússland, Kína, Íran og Norður-Kóreu. Nokkur atvik hafa komið upp þar sem njósnað er um íslenska stjórnsýslu og fyrirtæki að sögn netöryggissérfræðinga.

Horfin skotvopn, óveður og píanósnillingur í beinni
Lögreglufulltrúi segir áhyggjuefni að hér á landi séu tvö þúsund skotvopn á skrá sem lögregla veit ekki um. Þrjú hundruð og fjörutíu vopn eru skráð stolin hér á landi og óttast lögregla að þau séu í röngum höndum.

Kynferðisbrot á vistheimili og síðbúin refsing Rolex-ræningja
Maður sem var fjórtán ára vistaður á Unglingaheimili ríkisins segir forstöðumann þess hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi í tvígang. Skelfilegt ofbeldi hafi átt sér stað af hálfu nokkurra starfsmanna.

Trúðamótmæli, viðvaranir og einfætt fegurðardrottning
Alþingi kom saman í dag í skugga mótmæla eftir tveggja vikna hlé vegna forsetakosninga. Dagurinn byrjaði á því að fundi í allsherjar-og menntamálanefnd var frestað en þar stóð til að taka fyrir útlendingafrumvarpið.

Nýr forseti, kjörsókn sú besta í 28 ár og mat kjósenda
Höllu Tómasdóttur nýkjörnum forseta var fagnað ákaft af stuðningsfólki sínu þegar hún ávarpaði það fyrir utan heimili sitt síðdegis. Halla tók forystuna í kosningunum strax og fyrstu tölur bárust og hélt henni allt til loka.

Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum
Landsmenn kjósa sjöunda forseta lýðveldisins í dag og kjörsókn hefur verið góð. Forsetakosningarnar verða fyrirferðamiklar í þessum fyrsta sjónvarpsfréttatíma júnímánaðar.

Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi
Undirbúningur er í fullum gangi fyrir forsetakosningarnar á morgun og víða verið að stilla upp kjörstöðum. Þátttaka í utankjörfundaratkvæðagreiðslu hefur verið minni en oft áður. Í kvöldfréttum verður rætt við almenning í landinu um morgundaginn og svo við sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu í beinni útsendingu um utankjörfundaratkvæðagreiðsluna.

Ólíkar sviðsmyndir í skoðanakönnunum og eldgos á Reykjanesi
Dregið hefur verulega úr virkni eldgossins við Sundhnúksgígaröðina í dag. Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir mun betur hafa farið en útlit var fyrir í gær. Kristján Már Unnarsson verður í beinni útsendingu frá gosstöðvunum í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Allt um enn eitt eldgosið og sjóðandi hiti á Hlíðarenda
Eldgosið í Sundhnúksgíg verður fyrirferðamikið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Kristján Már Unnarsson, fréttamaður okkar og reynslubolti þegar kemur að eldgosum, hefur verið á gosstöðvunum í allan dag og er enn.

Andlát í Bolungarvík og forsetaefni í slorinu
Sambýlisfólk á sjötugsaldri sem fannst látið í heimahúsi í Bolungarvík hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögregla fékk ábendingu um málið. Lögreglustjórinn segir krufningu geta leitt í ljós hvort eitthvað saknæmt átti sér stað, og hvenær fólkið lést.

Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga
Íslendingar ganga að kjörborðinu um helgina og spennandi lokametrar í kosningabaráttunni eru fram undan. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 mun Heimir Már Pétursson rýna í skoðanakannanir og greina stöðuna.

Þakka að ekki fór verr í rútuslysi og hafnfirsk börn þora varla út
Hjón sem lentu í rútuslysi, ásamt 25 öðrum í gær segja ótrúlegt að ekki hafi farið verr. Þrír úr hópnum köstuðust út úr rútunni þegar hún valt. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Bregst við áhyggjum af áfengissölu og áhyggjur brimbrettakappa
Forstjóri Hagkaups segir áhyggjur af áformum um netsölu áfengis í verslun keðjunnar skiljanlegar að einhverju leyti. Þess vegna verði gerðar ítrustu kröfur til þeirra sem vilja versla þar áfengi, sem hann segir meiri en aðrir á áfengismarkaði geri. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Aukinn viðbúnaður í verðmætaflutningum og óveður í beinni
Öryggismiðstöðin hefur aukið viðbúnað í verðmætaflutningabílum sínum, eftir að tugum milljóna var stolið úr bíl fyrirtækisins í Hamraborg. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður í fyrsta sinn frá atvikinu rætt við framkvæmdastjóra Öryggismiðstöðvarinnar sem segir að viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað stefnt starfsmönnum í hættu.

Vendingar í nýrri könnun og köttur heiðraður með styttu
Töluverðar breytingar eru á stuðningi við forsetaframbjóðendur samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu. Helstu tíðindi verða birt í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræðing í beinni.

Stefna ríkinu eftir andlát tveggja ára dóttur og örlög sjómanna sem hurfu
Fimm klukkustundir liðu frá skoðun hjúkrunarfræðings og þar til tveggja ára stúlka lést úr Covid-19. Þrátt fyrir að óháður sérfræðingur telji lækni hafa sýnt af sér vanrækslu í málinu telur landlæknir að brestum í kerfislægum og mannlegum þáttum sé um að kenna. Foreldarnir ætla að stefna ríkinu.