Fíkn

Telja að fíkniefnið Spice sé í meiri dreifingu en áður hefur verið talið
Rannsóknarlögreglumaður óttast að fíkniefnið Spice sé í meiri dreifingu en áður hefur verið talið. Efnið sé stórhættulegt og meðal annars valdið dauða. Hann segir áhyggjuefni að efnið hafi fundist í meðförum unglinga nýverið.

Staðfesta niðurfellingu á máli ungu konunnar sem lést eftir handtöku lögreglu
Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara að fella niður mál ungrar konu sem lést í apríl síðastliðnum eftir að hafa verið handtekin af lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu.

Alþingi mátti ekki veita skólastjóra aðgang að upptökum af krökkum í kannabisneyslu
Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu að skrifstofu Alþingis hafi ekki verið heimilt að veita skólastjóra í grunnskóla nokkrum aðgang að myndefni úr eftirlitsmyndavél árið 2018.

Íslenskir unglingar veipuðu spice
Fíkniefnið spice fannst nýverið í rafrettum hjá unglingum á höfuðborgarsvæðinu.

Fleiri nota kókaín í æð: Rauði krossinn fagnar viðhorfi dómsmálaráðherra til afglæpavæðingar
Skjólstæðingar Frú Ragnheiðar nota kókaín í æð í auknum mæli. Verkefnastjóri segir þá þurfa að hafa mikið fyrir því að fjármagna efnið. Gríðarlega mikilvægt sé að frumvarp um afglæpavæðingu á neysluskömmtum verði að lögum svo fólkið veigri sér ekki við að leita sér hjálpar af ótta við að efnin verði tekin af því.

Sjö prósent Íslendinga hafa verið í meðferð á Vogi
SÁÁ hefur gefið út viðamikið upplýsingarit um heilbrigðisþjónustu samtakanna síðustu fjörutíu ár eða frá 1977 til 2018.

Karlmaður lést í vikunni vegna ofskammts af kókaíni í æð
Karlmaður á fertugsaldri lést í vikunni eftir að hafa verið sprautaður með kókaíni. Lögregla og læknar á Vogi merkja fjölgun þeirra sem sprauta sig með efninu.

„Bannstefnan hefur einfaldlega ekki virkað“
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra kallar eftir endurskoðun á íslenskri fíkniefnalöggjöf og segir að bannstefnan hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Mikilvægt sé að líta á fíkniefnaneytendur í auknum mæli sem sjúklinga fremur en glæpamenn.

Nýtt neyðarskýli opnað við Grandagarð
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, opnaði í dag nýtt neyðarskýli fyrir unga heimilislausa karlmenn sem glíma við áfengis- og vímuefnavanda.

Handtekin með þrjátíu pakkningar af kókaíni innvortis
Konan var úrskurðuð í gæsluvarðhald á meðan rannsókn málsins fór fram en að sögn Lögreglustjórans á Suðurnesjum er rannsóknin á lokastigum.

Spice ólíkt öllum öðrum fíkniefnum
Spice er eitt erfiðasta efni sem fangelsisyfirvöld og lögregla fást við. Notendurnir tala um að fara í froskinn, þegar þeir fá krampaköst af ofneyslu og margítrekað hefur þurft að kalla til sjúkrabíl.

Fá rítalín eða Contalgin í skiptum fyrir að taka lyfin sín
Hópur langt leiddra fíkla með alvarlega smitsjúkdóma fær að gera samning um að fá töflu af Ritalin Uno eða Contalgin í skiptum fyrir að taka veirulyfin sín. Borgarfulltrúi og sóttvarnalæknir ósammála um fyrirkomulagið.

Kallar eftir því að fólk í valdastöðum vandi málflutning um vímuefnanotendur
Elísabet Brynjarsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Frú Ragnheiði – skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, gagnrýnir ummæli Baldurs Borgþórssonar varaborgarfulltrúa Miðflokksins um neyslurými.

Mælt fyrir frumvarpi um neyslurými í annað sinn
Landlæknir getur veitt sveitarfélagi leyfi til að stofna og reka neyslurými þar sem varsla og meðferð ávana- og fíkniefna er heimil, eða svo kölluð neyslurými, samkvæmt frumvarpi sem Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra mælti fyrir í dag.

Flugvallarstarfsmaður áfram í einangrun
Gæsluvarðhald yfir starfsmanni Airport Associates sem grunaður er um aðild að stóru fíkniefnamáli sem kom upp á Suðurnesjum fyrir viku var framlengt í gær um viku auk þess honum er gert að sæta einangrun. Lögmaður mannsins hefur kært úrskurðinn til Landsréttar.

Mikið af fíkniefninu Spice fannst við krufningu á fanga sem lést á Litla-Hrauni í lok sumars
Óvenju mikið af fíkniefninu Spice fannst við krufningu á fanganum sem lést á Litla-Hrauni í lok sumars. Lögreglan á Suðurlandi hefur gefið út tíu ákærur vegna Spice í fangelsinu á árinu.

Brosmild, traust og glaðvær manneskja þrátt fyrir veikindin
Fjölskylda Guðrúnar Maríu Gunnarsdóttur hefur hrundið af stað söfnun til að fjármagna flutning Guðrúnar Maríu til Íslands og standa undir útfararkostnaði.

Fundu kókaínið falið fyrir ofan loftklæðningu í íbúð mannsins
Sex lítrar af amfetamínbasa fundust á geymslugólfi og tvö kíló af kókaíni fundust fyrir ofan loftklæðningu íbúðar eins mannanna sem grunaðir eru um umfangsmikið fíkniefnasmygl til landsins.

Starfsmaður á Keflavíkurflugvelli og tveir fyrrverandi starfsmenn grunaðir um umfangsmikið fíkniefnasmygl
Starfsmaður á Keflavíkurflugvelli og tveir fyrrverandi starfsmenn flugvallarins eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um umfangsmikið fíkniefnasmygl. Eru þeir grunaðir um að hafa smyglað nokkrum lítrum af amfetamínbasa og rúmlega tveimur kílóum af kókaíni til landsins.

Starfsmaður á Keflavíkurflugvelli grunaður um umfangsmikið fíkniefnasmygl
Íslenskur karlmaður, fæddur árið 1992, var í síðustu viku handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa smyglað talsverðu magni af fíkniefnum til landsins.

Fengu hundrað einstaklinga til að uppljóstra hvaða fíkniefni þeir hefðu prófað
Alls staðar í heiminum eru til ólögleg fíkniefni sem fólk tekur inn. Sumir ánetjast þeim og oft fer mjög illa.

Milljónir streymdu inn á bankareikning grunaðra kókaínsmyglara
Tveir 23 ára karlmenn og einn nýskriðinn yfir tvítugt hafa verið ákærðir af héraðssaksóknara fyrir peningaþvætti í tengslum við innflutning á sextán kílóum af kókaíni í maí síðastliðnum.

Tólf fyrrverandi skjólstæðingar Vogs hafa látist á árinu
Læknir á Vogi segir að yngsti hópurinn sé oftast háður örvandi efnum en einnig séu dæmi um fíkn í sterk verkjalyf.

Dæmdir fyrir peningaþvætti og kannabisræktun en komu undan stærstum hluta gróðans
Tveir karlmenn á Austfjörðum hafa verið dæmdir í tíu mánaða fangelsi, skilorðsbundið að stærstum hluta, fyrir ræktun á kannabisplöntum, sölu og dreifingu á fíkniefnum og peningaþvætti.

Tuttugu og þrír létust af völdum sterkra verkjalyfja á Íslandi í fyrra
Tuttugu og þrír létust af völdum sterkra verkjalyfja, eða svokallaðra ópíóíða, á Íslandi í fyrra. Læknir á Vogi segir að greiningum á ópíóíðafíkn haldi áfram að fjölga.

Samningur um meðferðarstofnun í Krýsuvík til endurskoðunar
Félagsmálaráðherra hefur samning Krýsuvíkursamtakanna, sem reka meðferðarheimilið í Krýsuvík til endurskoðunar. Ungu maður svipti sig lífi í húsnæði meðferðarheimilisins nýverið en enginn starfsmaður var á staðnum þegar komið var að honum.

Káfaði á grunnskólastúlku og spurði hvort karlmenn hefðu borgað henni
Karlmaður á fertugsaldri situr í gæsluvarðhaldi grunaður um brot á stúlku yngri en fimmtán ára. Landsréttur hafnaði kröfu lögreglunnar um að karlmaðurinn sætti einangrun á meðan rannsókn málsins stendur.

Stóraukinn innflutningur á amfetamínvökva
Innflutningur á amfetamínvökva hefur stóraukist á liðnum árum. Það sem af er ári hafa tollayfirvöld í Keflavík haldlagt um átta sinnum meira magn en allt árið 2016. Úr einum lítra af vökvanum er hægt að framleiða um tólf kíló af amfetamíni.

Hafa rannsakað þrjátíu og eitt lyfjatengt dauðsfall á árinu: „Alltof algengt hjá fólki milli tvítugs og þrítugs“
Grunur leikur á að níu einstaklingar undir þrjátíu ára aldri hafi látist á þessu ári af völdum lyfjaeitrunar. Sá yngsti var tvítugur. Embætti landlæknis hefur rannsakað þrjátíu og eitt lyfjatengt dauðsfall á árinu.

Búið spil
Stríðið gegn fíkniefnum er löngu tapað. Það vita allir. Refsistefnan hefur litlu skilað öðru en fordómum og hræðslu gagnvart fíkniefnaneytandanum og undirheimum þar sem glæpahópar ráða ríkjum.