Seinni bylgjan

„Ástin blómstraði“ inn á vellinum í Olís-deildinni
Seinni bylgjan tók sérstaklega fyrir samskipti tveggja leikmanna í leik ÍBV og KA í síðustu umferð Olís-deildar karla í handbolta. Leikmennirnir eru Einar Rafn Eiðsson hjá KA og Dagur Arnarsson hjá ÍBV.

Robbi Gunn um Haukana og Guðmund Braga: Ég bara skil þetta ekki
Seinni bylgjan er búin að tala mikið um Guðmund Braga Ástþórsson á þessu tímabili og ekki af ástæðulausu því strákurinn, sem er ekki pláss fyrir í Haukum, hefur spilað mjög vel með liði Aftureldingar.

Stefán og Ásgeir Örn hituðu upp fyrir umferð vikunnar í Olís deild karla
Stefán Árni Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson fóru yfir komandi þriðju umferð í Olís deild karla í handbolta í sérstökum aukaþætti af Seinni bylgjunni sem finna má hér inn á Vísi.

„Við vorum allar þarna og þetta var hálfkjánalegt á köflum“
Svava Kristín Grétarsdóttir og sérfræðingar hennar í Seinni bylgjunni voru frekar hneykslaðar á sóknarleik HK liðsins í Olís deild kvenna í handbolta.

„Þær réðu ekkert við hana“
Valskonan Thea Imani Sturludóttir átti mikið hrós skilið eftir frammistöðu sína á móti HK um helgina og hún fékk það líka frá Seinni bylgjunni.

Færeyingurinn í Fram mætir „þykkari“ til leiks og byrjar frábærlega
Tuttugu og tveggja ára gamall Færeyingur hefur skorað tuttugu mörk í fyrstu tveimur leikjum Fram á Olís deild karla á tímabilinu. Seinni bylgjan fór yfir frammistöðu hans.

Meiddist við að taka vítakast: „Hef aldrei séð þetta áður“
Ekki er algengt að menn meiðist við að taka vítakast en það gerðist samt í leik Fram og Selfoss í Olís-deild karla í síðustu viku.

„Þetta er greinilega grjóthörð gella“
Seinni bylgjan auglýsti í gærkvöldi eftir markmanni fyrir kvennalið Aftureldingar í Olís deild kvenna eftir það sem gerðist í Vestmanneyjum um síðustu helgi.

„Handboltinn er eina íþróttin sem hefur staðist þeim bestu snúning í áratugi“
Guðjón Guðmundsson fór yfir frábæran árangur Íslands á alþjóða vettvangi í dagskrárliðnum Eina í Seinni bylgjunni ásamt Viðari Halldórssyni, prófessor í félagsfræði.

Upphitun SB: Mjög spenntar að sjá hvað Haukar gera gegn meistarakandítötunum
Seinni bylgjan eykur þjónustu við handboltaáhugafólk, meðal annars með upphitun fyrir hverja umferð í Olís-deild kvenna.

Fannst kominn tími til að gera eitthvað spennandi
Sænski línumaðurinn Emma Olsson hefur vakið mikla athygli í upphafi tímabils í kvennahandboltanum en hún kom til Fram í sumar frá sænska liðinu Önnereds.

Upphitun SB: Fjórtán marka maðurinn mætir liðinu sem „á hann“
Nýr liður hér á Vísi er þegar Seinni bylgjan hitar upp fyrir hverja einustu umferð í Olís deild karla í handbolta í allan vetur.

Seinni bylgjan kynnir nýjan dagskrárlið þar sem Gaupi fer á stúfana
Í gærkvöldi var Guðjón Guðmundsson, betur þekktur sem Gaupi, kynntur sem nýr liðsmaður Seinni bylgjunnar. Gaupi verður með fastan lið sem ber heitið „.Eina“ þar sem að hann fer á stúfana og hittir merkilegt fólk í tengslum við handboltann. Gaupi hitti fyrir Sigurð Örn Þorleifsson, bakarameistara og liðsstjóra handboltaliðs FH.

Sjáðu upphitunarþátt Seinni bylgjunnar þar sem Robbi Gunn var frumsýndur
Seinni bylgjan hóf nýtt tímabil á mánudagskvöldið þar sem var upphitunarþáttur fyrir Olís deild karla í handbolta sem hefst annað kvöld.

Jóhann Gunnar fékk afmælisköku í beinni með óborganlegri mynd af sér
Jóhann Gunnar Einarsson eyddi kvöldi 36 ára afmælisdags síns í myndveri Seinni bylgjunnar í gær en sérfræðingurinn fékk líka að launum veglega afmælisköku.

Seinni bylgjan skellur á áhorfendum í kvöld
Handboltatímabilið hefst formlega á Stöð 2 Sport í kvöld er Seinni bylgjan hitar upp fyrir tímabilið í Olís-deild karla.

Svona lítur áhöfnin á Seinni bylgjunni út í vetur
Tímabilið í Olís-deildunum er handan við hornið og Seinni bylgjan er orðin fullmönnuð fyrir veturinn.

Fóru yfir hvort Þráinn Orri hefði átt að fá rautt í leik Vals og Hauka
Þráinn Orri Jónsson, leikmaður Hauka, átti mögulega að fá rautt spjald í leik Hauka og Vals í úrslitarimmu Olís deildar karla í handbolta. Atvikið var til umræðu í Seinni bylgjunni að leik loknum og má sjá í spilaranum neðst í fréttinni.

„Hann er bara pabbi minn, ég lít ekki á hann sem einhverja stjörnu“
Einar Þorsteinn Ólafsson var hetja Valsmanna í seinni leiknum gegn Eyjamönnum í undanúrslitum Olís-deildar karla á föstudaginn. Hann stal boltanum í lokasókn ÍBV og sá til þess að Valur fór áfram í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn.

Björgvin um sparkið í höfuð Péturs: Allir hoppa aðeins lengra og aldrei viljaverk
Björgvin Páll Gústavsson var flottur í marki Hauka í gærkvöldi þegar liðið fór langt með að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu í Olís deild karla í handbolta með fimm marka útisigri á Stjörnunni. Björgvin var líka í aðalhlutverki í umdeildasta atviki leiksins.

„Þú ert búinn að skipta þér af öllu“
Kostuleg samskipti Róberts Arons Hostert, leikmanns Vals, og dómarans Antons Gylfa Pálssonar voru til umræðu í Seinni bylgjunni í gærkvöld eftir sigur Vals á ÍBV í undanúrslitum Olís-deildar karla.

Valsmenn þurfa að gera það í næstu leikjum sem þeim tókst ekki í vetur
ÍBV tekur á móti Val í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Olís deildar karla í handbolta en það lið sem hefur betur samanlagt út úr tveimur leikum spilar til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.

Seinni bylgjan: Ótrúlega rólegar undir pressu og þjálfarinn sultuslakur
Leikmenn og þjálfari KA/Þórs sýndu aðdáunarverða yfirvegun og öryggi í sigrinum á Val í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handbolta, að mati sérfræðinga Seinni bylgjunnar.

Árni Bragi leikmaður ársins að mati Seinni bylgjunnar
KA-maðurinn Árni Bragi Eyjólfsson var valinn besti leikmaður Olís-deildar karla í vetur af Seinni bylgjunni.

Seinni bylgjan: Heimir Örn lét Kidda heyra það
Skondið atvik átti sér stað í leik FH og ÍBV á dögunum þegar Kristinn Guðmundsson, þjálfari ÍBV, lét í sér heyra á hliðarlínunni. Dómari leiksins, Heimir Örn Árnason, var augljóslega ekki í stuði fyrir tuð.

Seinni bylgjan: Rúnar Sigtryggsson las dómurunum fyrir norðan pistilinn
Umdeilt atvik átti sér stað í lokasókn Þórs frá Akureyri þegar þeir heimsóttu KA í lokaumferð Olís deildar karla á dögunum. Gestirnir vildu þá fá víti eða mark dæmt gilt, en dómarar leiksins dæmdu aukakast sem varð til þess að niðurstaðan varð 19-19 jafntefli.

Seinni bylgjan: Var ÍBV sátt með tap í Krikanum?
ÍBV tapaði með tveggja marka mun gegn FH í lokaumferð Olís-deildar karla. Það þýðir að liðin mætast á nýjan leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Síðasta hefðbundna Seinni bylgja vetrarins á óhefðbundnum tíma
Farið verður yfir lokaumferð Olís-deildar karla í Seinni bylgjunni í dag. Þessi síðasti hefðbundni þáttur vetrarins er á nokkuð óvenjulegum tíma, klukkan 17:00 á Stöð 2 Sport 4.

Seinni bylgjan: Dýrmæta markið hennar Rakelar og svona sópaði Valur Fram út
Valskonur leika til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta en KA/Þór og ÍBV leika oddaleik í sínu einvígi. Farið var yfir leiki gærkvöldsins í undanúrslitunum í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport.

„Á ég að reyna selja úrslitakeppnina eða segja það sem mér finnst?“
Lokaskotið var á sínum stað er Seinni bylgjan gerði upp næst síðustu umferðina í Olís deild karla sem fór fram á mánudag.