Innlendar

Fréttamynd

Gunnar Nelson æfir stíft fyrir UFC

Bardagakappinn Gunnar Nelson undirbýr sig nú af fullum krafti fyrir fyrsta UFC-bardaga sinn sem fram fer í Nottingham á Englandi þann 29. september. Andstæðingur Gunnars er Þjóðverjinn Pascal Krauss sem hefur viðurnefnið "Skriðdrekinn". Krauss var veltivigtarmeistari Cage Warriors áður en hann gekk til liðs við UFC og er jafnframt fyrrum unglingameistari Þjóðverja í hnefaleikum. Hann hafnaði meðal annars í öðru sæti á þýska meistaramótinu í hnefaleikum, en úrslitabardaginn þar var eina tap hans á 18 bardaga ferli í hnefaleikum.

Sport
Fréttamynd

Rally Reykjavík hófst í dag

Rally Reykjavik hófst í dag í höfuðborginni og mun keppni standa yfir fram á laugardag. Þetta er í 33. skipti sem keppnin fer fram.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmótið í strandblaki - myndir

Íslandsmótið í strandblaki fór fram í Fagralundi um helgina og sáust ansi góð tilþrif á köflum. HK-stúlkurnar Berglind Gígja Jónsdóttir og Elísabet Einarsdóttir unni kvennaflokkinn þó svo þær séu aðeins 16 ára gamlar.

Sport
Fréttamynd

ÍR vann bikarkeppni FRÍ

ÍR sigraði þrefalt í 47. Bikarkeppni FRÍ, sem fram fór á Þórsvelli á Akureyri um helgina. ÍR hlaut samtals 184 stig, 97 stig í karlaflokki og 87 stig í kvennaflokki.

Sport
Fréttamynd

Freyr leikjahæstur hjá FH-sló met Harðar í gær

Freyr Bjarnason varð í gærkvöld leikjahæsti leikmaður FH í efstu deild frá upphafi. Freyr lék sinn 175. leik fyrir FH í úrvalsdeildinni í gærkvöld þegar liðið burstaði Selfoss, 5-2. Metið átti markaskorarinn, Hörður Magnússon en hann lék á sínum tíma 174 leiki fyrir FH í efstu deild.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Tryggvi og Eyþór í agabanni gegn KR í kvöld

Tryggvi Guðmundsson og Eyþór Helgi Birgisson, leikmenn ÍBV verða hvorugir í leikmannahópi félagsins sem mætir KR í Pepsideild karla í knattspyrnu í kvöld. Báðir brutu þeir agareglur liðsins um síðustu helgi og verða því fjarri góðu gamni í leiknum mikilvæga gegn Íslandsmeisturunum.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

"Hlægilegt hjá greyið manninum"

Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, gefur ekki mikið fyrir þau orð sem Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, lét falla eftir leik liðanna í Pepsideildinni í gærkvöld. Þar sakaði Þórður, Kjartan um "óþverraskap" þegar sá síðarnefndi steig ofan á hönd Guðjóns Sveinssonar með þeim afleiðingum að 18 spor þurfti til að sauma saman sárið.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Jensen ekki með ÍA í kvöld-Kjartan Henry með KR

Danski leikmaðurinn, Jesper Jensen sem skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við ÍA um helgina, verður ekki með liðinu í leik liðsins gegn KR í Pepsideildinni í kvöld. Þetta kom fram í viðtali við Þórð Þórðarson, þjálfara ÍA í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu í morgun.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

"Neitaði engum um viðtal"

Guðjón Þórðarson, þjálfari Grindvíkinga í knattspyrnu segir það ekki rétt að hann hafi neitað að veita fjölmiðlum viðtal eftir tapleik liðsins í Pepsideild karla gegn FH í gærkvöld. Þetta sagði hann í viðtali við Hjört Hjartarson í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu í morgun.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

FH hugsanlega á leið til Póllands

Karlalið FH í knattspyrnu mætir annaðhvort liði frá Póllandi eða Aserbaidsjan nái félagið að slá út AIK í forkeppni Evrópudeildarinnar. FH og AIK mættust í Svíþjóð í gær og skildu jöfn, 1-1. Seinni leikur liðanna verður í Kaplakrika í næstu viku.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Glódís Perla valin í A-landsliðshópinn

Glódís Perla Viggósdóttir, varnarmaður úr Stjörnunni er eini nýliðinn í landsliðshópi Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar sem tilkynntur var á blaðamannafundi í dag. Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir Skotum í æfingaleik ytra 4.ágúst næstkomandi.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Patrekur segir Íslendinga mega vera sátta með dráttinn á HM

Patrekur Jóhannesson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta, segir að íslenska landsliðið eigi góða möguleika á að berjast um sigur í riðlinum á Heimsmeistaramótinu í janúar á næsta ári. Dregið var í riðlana fjóra í morgun og er Ísland í riðli með Danmörku, Makedóníu, Rússlandi, Katar og Ástralíu.

Handbolti
Fréttamynd

"KSÍ ráðlagði okkur að láta þá ekki skrifa undir samning"

Ráðleggingar frá starfsmanni Knattspyrnusambands Íslands urðu til þess að Ben Everson og Theodore Furness, leikmenn 1.deildarliðs Tindastóls eru báðir á leið frá félaginu, án greiðslu, Everson til Breiðabliks og Fuerness til ÍA. Forráðamenn Tindastóls fóru að ráðum sambandsins og ákváðu að láta erlendu leikmenn sína ekki skrifa undir svokallaðan KSÍ-samning.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Gunnhildur Yrsa: Alltaf gott að spila á teppinu

Við erum sátt við að fá heimaleik, það er alltaf gott að spila á "teppinu“ í Garðabæ,“ sagði Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir leikmaður Íslandsmeistaraliðs Stjörnunnar eftir að ljóst var að Stjarnan mætir liði Þórs/KA í undanúrslitum Borgunarbikarsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Ásdís og Bergur Íslandsmeistarar

Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari og Bergur Ingi Pétursson sleggjukastari urðu Íslandsmeistarar án mikillar fyrirhafnar á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fer á Laugardalsvelli um helgina.

Sport
Fréttamynd

Kepptu í sjósundi í Tyrklandi

Um helgina hófst nýr kafli í sundíþróttinni á Íslandi er Ísland átti í fyrsta skipti sundmenn á Evrópumeistaramóti unglinga í Víðavatnssundi sem fram fór í Koceli í Tyrklandi.

Sport
Fréttamynd

Jóhanna Gerða setti Íslandsmet

Sundkonan Jóhanna Gerða Gústafsdóttir gerði sér lítið fyrir í gærkvöld og setti Íslandsmet í 400 metra fjórsundi í Fort Lauderdale í Flórída.

Sport
Fréttamynd

Aníta í fjórða sæti á HM

Hlaupakonan stórefnilega, Aníta Hinriksdóttir, var ekki fjarri því að næla sér í verðlaun í 800 metra hlaupi á HM 19 ára og yngri í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Fyrsta Íslandsmótið utanhúss í bogfimi um helgina

Fyrsta Íslandsmótið utanhúss í bogfimi fer fram að Laugum í Reykjadal um helgina. Keppt verður í sveigboga- og trissubogaflokki hjá körlum, konum og unglingum 17-20 ára á laugardeginum en í langbogaflokki á sunnudeginum.

Sport