Íþróttir

Fréttamynd

Stjarnan þarf einn sigur í viðbót

Stjarnan vann HK í þremur hrinum gegn einni í 1. deild karla í blaki í gær. Stjarnan þarf einn sigur til viðbótar til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.

Sport
Fréttamynd

Boxari framdi sjálfsmorð

Ungur hnefaleikakappi, þátttakandi í bandarískri raunveruleikasjónvarpsþáttaröð "The Contender" framdi sjálfsmorð á mánudaginn skömmu áður en þáttaröðin verður tekin til sýningar á NBC sjónvarpsstöðinni. Strákurinn þótti mjög efnilegur og líklegur til árangurs í keppni 16 boxara sem etja kappi gegn hvorum öðrum í þáttaröðinni en hann státaði af einstaklega góðri tölfræði.

Sport
Fréttamynd

Etoo knattspyrnumaður Afríku 2004

Kamerúninn Samuel Etoo var í gærkvöldi valinn knattspyrnumaður ársins í Afríku annað árið í röð. Etoo, sem leikur með Barcelona, er markahæstur í spænsku deildinni með 17 mörk. Didier Drogba, leikmaður Chelsea, sem kemur frá Fílabeinsströndinni, varð í öðru sæti og Jay Jay Okocha frá Nígeríu, leikmaður Bolton, varð þriðji.

Sport
Fréttamynd

Níu mörk skoruð

Níu mörk voru skoruð á Nývangi í Barcelona í gærkvöldi þegar úrvalslið Ronaldinho frá Brasilíu og Andriy Shevchenko frá Úkraínu leiddu saman hesta sína í ágóðaleik fyrir þá sem eiga um sárt að binda vegna flóðanna í Asíu á annan í jólum. Ronaldinho og félagar sigruðu, 6-3.

Sport
Fréttamynd

Nýr eigandi Vikings

Viðskiptajöfur í Arizona, Reggie Fowler að nafni, ætlar að kaupa ameríska fótboltaliðið Minnesota Vikings. Fowler verður þar með fyrsti blökkumaðurinn sem eignast fótboltalið sem spilar í NFL-deildinni. Fowler þarf að reiða fram tæpa 39 milljarða íslenskra króna.

Sport
Fréttamynd

KA meistari eftir sigur HK

HK sigraði Þrótt Reykjavík 3-0 í 1. deild kvenna í blaki í gærkvöldi. Þar með er ljóst að KA er deildarmeistari en Þróttur og HK berjast um annað sætið.

Sport
Fréttamynd

Owen ekki ósáttur hjá Real

Enski framherjinn Michael Owen þvertekur fyrir það að hann vilji segja skilið við spænska stórliðið Real Madrid.

Sport
Fréttamynd

Sigur hjá Guðmundi og félögum

Guðmundur E. Stephensen og félagar í Malmö gerðu í gær jafntefli við Söderhamns í sænsku úrvalsdeildinni í borðtennis. Leikar fóru 5-5. Guðmundur tryggði liði sínu þrjá vinninga, hann vann báða einliðaleikina og vann einnig tvíliðaleik með kínverskum félaga sínum, Zhao Peng. Malmö er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar með 26 stig, stigi á eftir Eslövs.

Sport
Fréttamynd

Grunaður um ölvun undir stýri

Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður með Chelsea og Íþróttamaður ársins 2004, var tekinn ölvaður undir stýri aðfaranótt sunnudagsins eftir að hafa tekið þátt í gleðskap með öðrum leikmönnum Chelsea. Voru þeir að fagna góðu gengi liðsins en á laugardaginn lagði liðið Everton á útivelli og skoraði Eiður Smári sigurmark liðsins.

Innlent
Fréttamynd

Annar sigur Mickelsons í röð

Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson hrósaði sigri á Pebble Beach mótinu í bandarísku mótaröðinni í gær. Þetta var annar sigur hans í röð á mótaröðinni. Mickelson hafði forystu alla fjóra keppnisdagana og lék samtals á 19 höggum undir pari. Kanadamaðurinn Mike Weir varð annar, þremur höggum á Mickelson, og Englendingurinn Greg Owen þriðji á 13 höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Tvö lið betri en Ferrari

Renault og McLaren eru bæði með hraðskreiðari bíla en Ferrari í Formúlu 1 kappakstrinum samkvæmt Ralf Schumacher, ökumanni Toyotaliðsins.

Sport
Fréttamynd

Roddick varði titilinn

Tenniskappinn Andy Roddick þurfti ekki nema 49 mínútur til að leggja Cyril Saulnier af velli í San Jose og varði þar með SAP Open titilinn sinn.

Sport
Fréttamynd

Steve Davis vann meistarann

Ballskáksgoðið og Íslandsvinurinn Steve Davis gerði vonir Paul Hunter um að verja Masters-titil sinn að engu með 6-5 sigri í London í fyrradag.

Sport
Fréttamynd

Grönholm úr leik

Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm er úr leik í sænska rallinu eftir að hafa keyrt út af  og og velt bíl sínum á 16. sérleið kappakstursins í gær. Norðmaðurinn Petter Solberg hefur því góða forystu en aðeins fjórar af tuttugu leiðum eru ófarnar.

Sport
Fréttamynd

Silja tryggði sér keppnisrétt

Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona úr FH, tryggði sér í gærkvöld keppnisrétt í 400 metra hlaupi á bandaríska háskólameistaramótinu innanhúss þegar hún varð fjórða á móti í Arkansas á 53,51 sekúndu.

Sport
Fréttamynd

Fast sigraði á Nýja-Sjálandi

Sænski kylfingurinn Niklas Fast sigraði á Opna Nýja-Sjálandsmótinu í golfi í dag þegar hann sigraði Miles Tunnicliff frá Englandi á annarri holu í bráðabana. Á Pebble Beach mótinu sem fram fer í Kaliforníu hefur Phil Mickelson sjö högga forskot að loknum þremur hringjum.

Sport
Fréttamynd

Safina vann á Open Gaz

Dinara Safina frá Rússlandi vann í dag Open Gaz mótið í Frakklandi með því að vinna hina frönsku Amalie Mauresmo 6-4, 2-6 og 6-3. Safina, sem er systir Marats Safins sem vann opna ástralska meistaramótið á dögunum, er aðeins 18 ára og fékk fyrir sigurinn tæpar 10 milljónir króna.

Sport
Fréttamynd

Nýtt heimsmet í stangastökki

Rússneski stangastökkvarinn Yelena Isinbayeva setti í gær heimsmet í stangastökki kvenna innanhúss er hún fór yfir 4,87 m á móti í Donetsk, Úkraínu. Þetta ver ennfremur fyrsta mót Isinbayevu, sem er Ólympíumeistari í greininni, á árinu. Isinbayeva á einnig heimsmetið utanhúss, 4,91 m.

Sport
Fréttamynd

Góður árangur á meistaramótinu

Góður árangur náðist á Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum innanhúss í Egilshöll í gær. Sigurbjörg Ólafsdóttir Breiðabliki vann sigur í tveimur greinum, 60 metra hlaupi og langstökki, og Ólafur Guðmundsson úr UMSS vann sigur í hástökki og langstökki. Keppni á meistaramótinu lýkur í dag.

Sport
Fréttamynd

Takaoka vann Tokyo maraþonið

Japaninn Toshinari Takaoka vann í nótt alþjóðlega Tokyo maraþonið. Takaoka kom í mark meira en þremur mínútum á undan næsta manni, Zebedayo Bayo frá Tansaníu, á tímanum 2 klukkustunum og 7.41 mínútum. Zebedayo var á tímanum 2:10.51.

Sport
Fréttamynd

Solberg vann sænska rallið

Norðmaðurinn Petter Solberg vann í dag sænska rallið í Karlstad sem er liður í heimsmeistarakeppninni. Sigur Solberg var í raun aldrei í hættu eftir að Finninn Marcus Grönhol keyrði út af í gær en þá skildu aðeins 12.6 sekúndur kappana að. Solberg endaði þriggja daga rallið 2 mínútum og 11.1 sekúndum á undan mæsta manni, Markko Martin.

Sport
Fréttamynd

Singh í 129. sæti

Banadríski kylfingurinn Phil Mickelson hefur fjögurra högga forystu að loknum tveimur hringjum á Pebble Beach mótinu í golfi í Kaliforníu. Vijay Singh, stigahæsti kylfingur heims, er í 129. sæti á tveimur höggum yfir pari.

Sport
Fréttamynd

Wilson með forystu

Á Opna Nýja-Sjálandsmótinu sem fram fer í Auckland er enski kylfingurinn Oliver Wilson með eins höggs forskot að loknum þriðja hring. Hann er á 17 höggum undir pari en landi hans, Mike Tunnicliff, er annar á 16 höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Solberg tók forystuna

Finninn Marcus Grönholm hafði forystu eftir fyrsta kepnisdag í Svíþjóðar-rallinu en Petter Solberg, sem kemur frá Noregi, tók forystu á níundu sérleiðinni í morgun. Núverandi heimsmeistari, Sebastían Leobe, frá Frakklandi er þriðji.

Sport
Fréttamynd

Ali heimsmeistari

Bandaríska hnefaleikakonan Laila Ali varð í gærkvöldi heimsmeistari í yfirveltivigt kvenna í boxi þegar hún sigraði Cassöndru Geiggar í bardaga í Atlanta. Ali, sem er dóttir Muhameds Ali, hafði mikla yfirburði í nótt en bardaginn var stöðvaður í 8. lotu.

Sport
Fréttamynd

KR og Fylkir unnu

Á Reykjavíkurmóti kvenna í knattspyrnu í gær vann KR HK/Víking með tveimur mörkum gegn einu og Fylkir lagði Fjölni, 3-2.

Sport
Fréttamynd

Ekki rétt hjá Gunnari

Forráðamenn Fylkis í Árbæ segja það ekki rétt sem kom fram hjá Gunnari Sigurðssyni, fyrrum hæstráðenda knattspyrnumála á Akranesi, í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöld að ekkert íslenskt lið hafi komist upp úr forkeppni á Evrópumótunum í knattspyrnu síðustu ár. Það hafi Fylkir gert árið 2001 og einnig FH á síðasta sumri.

Sport
Fréttamynd

Nice áfram í bikarnum

Í 32 liða úrslitum bikarkeppninnar í Frakklandi vann Nice Reims, 3-1, í framlengdum leik í gær. Í hollensku fyrstu deildinni gerðu Groningen og Vites Arnheim markalaust jafntefli.

Sport
Fréttamynd

Kostelic með þriðju gullverðlaunin

Króatíska skíðakonan Janica Kostelic vann í gær sín þriðju gullverðlaun á heimsmeistaramótinu í alpagreinum í Santa Catarína á Ítalíu þegar hún varði heimsmeistaratitil sinn í svigi.

Sport
Fréttamynd

Agassi úr leik í San Jose

Andre Agassi, sem er í öðru sæti á heimslista tennismanna, féll óvænt úr leik í átta manna úrslitum á opna SAP mótinu í San Jose í gær. Agassi tapaði 2-0 fyrir Austurríkismanninum Jurgen Melzer, 6-3 og 6-1. Melzer hefur núna sigrað Agassi tvisvar í þremur viðureignum þeirra félaga

Sport