Íþróttir
Þjóðverjar og Túnismenn kljást Tveir leikir eru í Álfukeppninni í knattspyrnu í dag. Gestgjafar Þýskalands og Afríkumeistarar Túnis eigast við í A-riðli. Þjóðverjar unnu Ástrali, 4-3, en Túnisar töpuðu fyrir Argentínu, 2-1. Leikurinn hefst klukkan 16 og verður í beinni útsendingu á Sýn. Ástralía og Argentína eigast við klukkan 18.45 og verður leikurinn beint á Sýn 2. Sport 13.10.2005 19:23
Þórey Edda keppir ekki Þórey Edda Elísdóttir stangvastökkvari, sem átti að keppa í Evrópubikarkeppninni í Tallinn í Eistlandi um helgina með íslenska landsliðinu í frjálsum íþróttum, mun ekki keppa eins og til stóð. Vegabréf hennar gleymdist í Tékklandi og barst ekki í tæka tíð. Sport 13.10.2005 19:23
ÍA spilar í Finnlandi í dag Skagamenn leika í dag fyrri leik sinn gegn finnska liðinu Inter Turku í fyrstu umferð Intertoto-keppninnar í knattspyrnu. Leikurinn hefst klukkan 16 en leikið er í Finnlandi. Sport 13.10.2005 19:23
Djurgarden á toppnum í Svíþjóð Djurgarden er á toppnum í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með 20 stig eftir að liðið lagði Malmö FF, 3-1, í gær. Kári Árnason var í liði Djurgarden. Helsingborg vann Asseryska,1-0, Gautaborg skellti Sundsvall, 2-0, og Lanskrona og Kalmar skildu jöfn, 1-1. Sport 13.10.2005 15:33
KA vann Víking KA vann Víking í Víkinni með tveimur mörkum gegn engu í 1. deild karla í gær. Þór sigraði Völsung, 2-1, og Breiðablik, sem er á toppnum í deildinni með 18 stig, vann öruggan sigur á KS, 3-0, á Siglufirði. Sport 13.10.2005 15:33
TBR í úrslit í Evrópukeppninni Íslandsmeistarar TBR í badminton leika í til úrslita í C-riðli í Evrópukeppni félagsliða. Þetta varð ljóst eftir að TBR sigraði Maccabi frá Ísrael með sex vinningum gegn einum í gær. TBR mætir Beul frá Þýskalandi í úrslitum. Sport 13.10.2005 15:33
Brassarnir burstuðu Grikki Brasilía vann Grikkland með þremur mörkum gegn engu í Álfukeppninni í knattspyrnu í gær. Adriano, Robinho og Juninho skoruðu mörk Brasilíumanna. Fyrr í gær vann Japan Mexíkó með tveimur mörkum gegn einu. Sport 13.10.2005 15:33
Norsku stúlkurnar í úrslit Noregur vann Svíþjóð með þremur mörkum gegn tveimur í undanúrslitum í Evrópukeppni kvennalandsliða í knattspyrnu á Englandi í gær. Norðmenn mæta Þjóðverjum í úrslitum á sunnudag. Sport 13.10.2005 15:33
Stofna nýjan íþróttastyrktarsjóð Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands og Alcoa undirrituðu í dag samstarfssamning um stofnun nýs styrkjarsjóðs sem nefnist Sprettur. Hann hefur það markmið að efla ungmenna- og íþróttastarf á Austurlandi. UÍA og Alcoa Fjarðaál hafa með samningnum skuldbundið sig til að leggja fjármagn til sjóðsins næstu þrjú árin og verður útlutað úr honum þrisvar á ári. Sport 13.10.2005 19:22
Afmælismótið hefst í dag Í ár eru liðin 20 ár síðan keppnin Sterkasti maður Íslands var haldin hér á landi í fyrsta sinn og í tilefni af því verður sérstakur heiðursgestur með í keppninni. Það er sterkasti maður Bretlands, Adrian Rollings, sem náði góðum árangri í keppninni um sterkasta mann heims í fyrra. Sport 13.10.2005 19:22
Valsmenn kveðja gömul húsakynni Hátíð verður á Hlíðarenda í dag sem hefst klukkan 16, en þar verður boðið upp á skemmtiatriði fyrir alla fjölskylduna. Klukkan 17.15 verður kveðjuleikur í íþróttahúsi Vals og klukkan 18 verður hátíðardagskrá þar sem tekinn verður skóflustunga að nýjum íþróttamannvirkjum Vals að Hlíðarenda. Sport 13.10.2005 19:22
Bætti heimsmetið í 100 m hlaupi Asafa Powell frá Jamaíku setti nú síðdegis heimsmet í 100 metra hlaupi karla þegar hann hljóp á 9,77 sekúndum á móti í Aþenu í Grikklandi. Powell bætti heimsmet Tims Montgomerie um einn hundraðshluta úr sekúndu frá árinu 2002. Powell er 22 ára. Sport 13.10.2005 19:22
Parker til Newcastle Miðvallarleikmaðurinn Scott Parker hjá Chelsea er á leið til Newcastle fyrir 6,5 milljónir punda. Samkvæmt heimildum BBC þá hafa Newcastle og Chelsea komist að samkomulagi um kaupverð og er Newcastle tilbúið að borga Parker 55 þúsund pund á viku. Sport 13.10.2005 19:21
Álfukeppnin að hefjast Álfukeppnin í knattspyrnu hefst á morgun í Þýskalandi en þar keppa átta þjóðir um Álfumeistaratitilinn. Þetta er sjötta Álfukeppnin sem haldin er. Argentína og Ástralía mætast í beinni útsendingu á Sýn á morgun og hefst leikurinn klukkan 16. Sport 13.10.2005 19:21
Markalaust hjá Djurgarden Sölvi Geir Ottesen og Kári Árnason voru í liði Djurgarden sem gerði markalaust jafntefli við Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi. Djurgarden er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Malmö. Sport 13.10.2005 19:21
Gunnar Heiðar frá í 3-4 vikur Sóknarmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Halmstad meiddist í leik liðsins gegn Elfsborg í fyrradag og verður frá í 3-4 vikur. Gunnar Heiðar er tognaður aftan í læri. Sport 13.10.2005 19:21
Räikkönen vann í Kanada Finninn Kimi Räikkönen á McLaren vann kanadíska kappaksturinn í gær. Heimsmeistarinn Michael Schumacher á Ferrari varð annar og félagi hans, Rubens Barrichello, þriðji. Báðir Renault-bílarnir féllu úr leik. Sport 13.10.2005 19:21
Button á ráspól í dag Englendingurinn Jenson Button verður á ráspól þegar Formúlu 1 kappaksturinn í Montreal í Kanada hefst í dag, en hann náði bestum tíma í tímatökunni í gær. Lið Buttons, BAR, hefur ekki gengið eins vel og spáð hafði verið og því var þessi óvænti árangur liðinu mikið gleðiefni. Sport 13.10.2005 19:21
Silja komst ekki í úrslit Silja Úlfarsdóttir féll úr leik í 400 metra grindarhlaupi á bandaríska háskólameistaramótinu í frjálsum íþróttum í Sacramento í nótt. Silja varð í 12. sæti í undanúrslitum þegar hún kom í mark á 57,78 sekúndum sem er hennar annar besti tími í greininni. Sigrún Fjeldsted, sem keppti í spjótkasti, varð í sjötta sæti, en hún kastaði 47,75 metra í úrslitum. Sport 13.10.2005 19:21
Kristján tapaði í úrslitum EM Kristján Helgason vann silfurverðlaun á Evrópumóti áhugamanna í snóker í Póllandi í gær. Hann tapaði í úrslitum fyrir Alex Borg frá Möltu í sjö römmum gegn tveimur en Borg hampaði þar með Evrópumeistaratitli. Sport 13.10.2005 19:21
Þórey Edda þriðja í Tékklandi Þórey Edda Elísdóttir, Norðurlandamethafi í stangarstökki, varð í þriðja sæti á stigamóti Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins í Ostrava í Tékklandi í gærkvöldi þegar hún stökk 4,20 metra. Pavla Hamankova sigraði á mótinu þegar hún stökk 4,30 metra en það gerði einnig kanadíska stúlkan Dana Ellis. Sport 13.10.2005 19:20
Vala Flosadóttir hætt keppni Vala Flosadóttir Ólympíuverðlaunahafi í stangarstökki er hætt keppni. Þetta kemur fram í <em>Morgunblaðinu</em> í dag. Þar segist Vala ekki lengur hafa sömu ánægju af íþróttaiðkuninni og síðustu ár hafi hún ekki alveg vitað hvort hún var að æfa eða keppa fyrir sjálfa sig eða aðra. Vala vann til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 og í lok sama árs var hún kjörin íþróttamaður ársins á Íslandi með yfirburðum. Sport 13.10.2005 19:20
Ragnheiður náði lágmarki fyrir HM Ragnheiður Ragnarsdóttir, sundkona úr KR, náði í gær lágmarki fyrir heimsmeistaramótið þegar hún kom í mark á 26,34 sekúndum í 50 metra skriðsundi á móti í Laugardalslaug. Sport 13.10.2005 19:20
Kristján í úrslitum á EM í snóker Kristján Helgason leikur til úrslita á Evrópumóti áhugamanna í snóker í Póllandi. Kristján sigraði Mark Allen frá Norður-Írlandi með sex römmum gegn fimm í undanúrslitum en Allen er núverandi heims- og Evrópumeistari áhugamanna og aukinheldur Evrópumeistari unglinga. Kristján mætir Maltverjanum Alex Borg í úrslitum í dag. Sport 13.10.2005 19:20
Tyson heitur Mike Tyson hefur upphitun fyrir bardaga sinn við hinn írska Kevin McBride í kvöld eins og honum einum er lagið og í gaf hann út hvernig hann hyggðist fara með hann í hringnum. "Ég ætla að gera að honum eins og fiski," sagði Tyson. Sport 13.10.2005 19:20
Valsmenn kveðja kofann Valsmenn ætla að kveðja kofann sinn að Hlíðarenda á miðvikudaginn kemur og fagna því að framkvæmdir hefjist við ný íþróttamannvirki með því að halda allsherjar fjölskylduhátíð. Sport 13.10.2005 19:20
Silja í úrslit á meistaramóti Silja Úlfarsdóttir, hlaupakona úr FH, komst í nótt í undanúrslit í 400 metra grindahlaupi á bandaríska háskólameistaramótinu sem fram fer í Sacramento. Silja kom í mark á 57,55 sekúndum sem var sjöundi besti tíminn í riðlakeppninni. Sport 13.10.2005 19:20
Tveir leikir í 1. deildinni Tveir leikir eru í fyrstu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Víkingur Reykjavík tekur á móti HK og Breiðablik fær Víking Ólafsvík í heimsókn. Flautað verður til leiks klukkan 20. Sport 13.10.2005 19:20
Jafntefli hjá Þjóðverjum og Rússum Þrír vináttulandsleikir í knattspyrnu fóru fram í gær. Þýskaland og Rússland gerðu 2-2 jafntefli, Noregur lagði Svíþjóð að velli 3-2 á útivelli og Ítalía og Serbía-Svartfjallaland gerðu 1-1 jafntefli. Sport 13.10.2005 19:20
Argentínumenn komnir á HM Argentínumenn tryggðu sér farseðilinn á HM í Þýskalandi á næsta ári með glæstum 3-1 sigri á heimsmeisturum Brasilíu á Monumental-vellinum í Búenos Aíres í gærkvöldi. Leikurinn var algert augnakonfekt og fótboltinn gerist ekki betri. Sport 13.10.2005 19:20