Ástin og lífið

„Hringarnir gleymdust rétt fyrir athöfnina“
Innanhússhönnuðurinn Stella Birgisdóttir og Jakob Helgi Bjarnason, framkvæmdarstjóri Modulus giftu sig við fallega athöfn í Flórens í síðasta mánuði. Þau hafa verið saman í níu ár og eiga eina dóttur, Katrínu Önnu.

Arnar og Vítalía sögð flutt inn saman
Einkaþjálfarinn Arnar Grant og Vítalía Lazareva eru flutt inn saman að því er fram kemur í frétt Smartlands.

„Ég hélt bara að það væri eitthvað hræðilegt að fara að koma fyrir“
„Þessi manneskja reiðir sig hundrað prósent á þig og þú verður bara að gjöra svo vel að standa þig.“

„Maðurinn minn er besti pabbinn í öllum heiminum!“
„Það er alveg ofboðslega margt spennandi framundan, en því miður ekkert sem ég get talað um að svo stöddu,“ segir leyndardómsfull María Birta Bjarnadóttir aðspurð um framtíðarplön í viðtali við Makamál.

María Rut og Ingileif eiga von á barni
„Fjölskyldan stækkar og hjörtun með“ segja hjónin María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir í sameiginlegri Instagram færslu.

Íris Stefanía jarðaði fylgjuna í uppáhaldsfjörunni
Listakonan Íris Stefanía Skúladóttir jarðaði fylgjuna sína í uppáhalds fjörunni sinni. „Ég vildi bara hafa nánasta kjarnann með mér, fólkið sem ég treysti. Ég var að kveðja og vildi fá að gera það án þess að vera meðvituð um fólkið í kringum mig,“ segir hún um athöfnina í samtali við Vísi.

Hefur samanburður á samfélagsmiðlum áhrif á ástarsambandið?
Fyrr í vikunni birtist viðtal við leikkonuna Anítu Briem þar sem hún talar heiðarlega um áskoranir og óraunhæfar kröfur nútímans þegar kemur að langtíma samböndum og hjónabandi.

Var ekki góður maki í upphafi sambandsins
Söngvarinn John Legend segist ekki hafa verið góður maki fyrir eiginkonu sína Chrissy Teigen þegar þau voru að byrja saman. „Ég var sjálfselskari þá,“ segir hann í viðtali við Jay Shetty.

Elísabet Metta og Áki trúlofuð í París
Parið Elísabet Metta Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, betur þekktur sem Áki, deildu fréttum af trúlofun sinni í París á Instagram. Saman reka þau staðinn Maikai og hafa verið par í sex ár. Ágúst bað hennar með hring ömmu Elísabetar sem hún hefur haft augastað á frá unga aldri.

Blása á sögusagnir barnfóstrunnar
Fyrrum parið Olivia Wilde og Jason Sudeikis tók höndum saman og gaf út yfirlýsingu þar sem þau segja fyrrum barnfóstru sína til þriggja ára vera að segja ósatt í viðtali við DailyMail. Olivia og Jason byrjuðu saman árið 2011, eiga saman tvö börn og fóru í sitthvora áttina í nóvember 2020.

Erfiðleikar hjónabandsins ættu ekki að vera leyndarmál
Leikkonan Aníta Briem hefur nú nýlokið við tökur á þáttaseríunni Svo lengi sem við lifum en þættirnir verða sýndir á Stöð 2 næsta vor. Handritið, sem er að mörgu leyti innblásið af persónulegri reynslu Anítu, er hennar fyrsta verk sem handritshöfundur.

„Við erum sálufélagar“
Harry Potter leikarinn Tom Felton opnaði sig um mótleikkonu sína Emmu Watson í nýju bókinni sinni Beyond the Wand. Emma skrifaði sjálf kafla í bókinni þar sem hún kallar leikarann sálufélaga sinn.

„Þrjú í apríl“
Ari Ólafsson og kærastan hans Sólveig Lilja Rögnvaldsdóttir, hjúkrunarfræðingur, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Söngvarinn vann hug og hjörtu landsmanna þegar hann sigraði Söngvakeppni sjónvarpsins og keppti í Eurovision með lagið Our Choice.

Stjörnulífið: Árshátíðir, ofurhlaup og bleiki dagurinn
Árshátíðir voru áberandi um helgina þar sem einstaklingar voru mættir í sínu fínasta pússi að fagna saman. Bakgarðshlaupið átti hug og hjörtu margra þar sem hlauparar kepptust um að standa einir eftir. Hinn árlegi bleiki dagur fór fram í vikunni og var samstaðan gríðarleg.

Selena og Hailey settu samfélagsmiðla á hliðina
Það ætlaði allt um koll að keyra á samfélagsmiðlum um helgina þegar þær Selena Gomez og Hailey Bieber stilltu sér upp saman fyrir myndatöku á viðburði í Los Angeles. Með myndatökunni má segja að þær hafi þaggað niður orðróm um óvild þeirra á milli í eitt skipti fyrir öll.

„Platan varð eiginlega óvart til“
„Platan varð eiginlega óvart til,“ segir söngvarinn Aron Hannes Emilsson í samtali við Vísi. Hann var að gefa út plötuna Twenties í dag og nýlega varð hann einnig faðir. Hann segir plötuna vera yfirferð á fyrri helming þrítugsaldursins þar sem hann fer yfir ástina, hugsanir, heimþrá og óöryggið.

Totti og fyrrverandi konan hans stálu af hvort öðru
Skilnaður Francescos Totti og Ilary Blasi virðist ætla að vera ansi ljótur en ásakanir um þjófnað ganga milli hjónanna fyrrverandi.

Notar makinn þinn fýlustjórnun í samskiptum?
Fæst höfum við þann ofurkraft að lesa hugsanir þó svo að margir hafi eflaust óskað þess heitt í gegnum tíðina til að einfalda samskiptum í ástarsamböndum eða koma í veg fyrir misskilning.

Ingó veðurguð og Alexandra eignuðust son
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, einnig þekktur sem Ingó veðurguð, er orðinn pabbi. Hann tók á móti sínu fyrsta barni ásamt kærustu sinni Alexöndru Eir Davíðsdóttur. Drengurinn kom í heiminn þann 9. október. Smartland greindi fyrst frá.

Á von á sínu fyrsta barni
Bandaríska leikkonan Kaley Cuoco á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum, Tom Pelphrey.

Hefur ADHD valdið álagi og/eða erfiðleikum í ástarsambandinu?
Vert er að taka það fram að þó svo að Spurning vikunnar vísi til álags eða erfiðleika tengda röskuninni ADHD er ekki ætlunin að teikna upp neikvæða mynd af ADHD. Þvert á móti er hún sett upp til að vekja upp umræðu um ástina og þennan ævintýralega heim sem fólk með ADHD greiningu lifir í.

„Lagið er algjör ástarjátning“
Söngkonan Kristín Sesselja gaf út lagið Rectangular Bathroom Tiles síðastliðinn föstudag. Í laginu sækir hún meðal annars innblástur í ástina, samtöl við fyrrverandi kærastann sinn og hornréttar baðherbergis flísar. Blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá tónlistinni og lífinu.

Pétur Jóhann og Sigrún giftu sig
Leikarinn Pétur Jóhann Sigfússon og Sigrún Halldórsdóttir giftu sig um helgina við litla athöfn. Grínistinn greindi frá því í Blökastinu fyrir nokkrum vikum að til stæði að hafa brúðkaupið lítið við dræmar undirtektir frá þáttastjórnendum. Parið kynntist árið 2007 eftir að hún sendi honum skilaboð á Myspace.

„Ég var bara að ákveða hvort ég ætlaði að lifa eða ekki“
Athafnakonan Camilla Rut Rúnarsdóttir segist hafa þurft að hafa fyrir því að halda sér gangandi eftir röð áfalla í upphafi síðasta árs.

Edda Sif og Vilhjálmur trúlofuð: „Hún sagði já!“
Sjónvarpskonan Edda Sif Pálsdóttir og Vilhjálmur Siggeirsson eru trúlofuð. „Hún sagði já,“ skrifaði Vilhjálmur undir færslu frá parinu.

„Glæsileg Gunnarsdóttir kom í heiminn með hvelli“
Trendnet bloggarinn og athafnakonan Elísabet Gunnarsdóttir og handboltamaðurinn Gunnar Steinn Jónsson hafa tekið á móti sínu þriðja barni. „Glæsileg Gunnarsdóttir kom í heiminn með hvelli,“ segja hjónin í sameiginlegri Instagram færslu.

Hjónabandið á slæmum stað
Hjónaband fyrirsætunnar Gisele Bündchen og ruðnings kappinn Tom Brady hefur verið mikið í umræðunni síðustu vikur. Nú hafa þau bæði ráðið skilnaðarlögfræðing samkvæmt heimildum Page Six.

Leikarinn Hilmir Snær er á lausu
Leikarinn Hilmir Snær Guðnason og Bryndís Jónsdóttir móttökufulltrúi Listasafns Íslands eru skilin.

Faðir Miley Cyrus hefur fundið ástina á ný
Söngvarinn Billy Ray Cyrus, faðir Miley Cyrus, er kominn með kærustu. Kærastan er ástralska söngkonan Firerose. Það var í apríl á þessu ári sem fyrrverandi eiginkona hans til tuttugu og átta ára, Tish Cyrus, sótti um skilnað.

Hailey Bieber opnar sig um kynlífið og Selenu Gomez dramað
Fyrirsætan Hailey Bieber opnaði sig um kynlíf sitt og eiginmannsins Justin Bieber í hlaðvarpinu Call Her Daddy. Þar segist hún einnig hafa rætt málin með fyrrverandi kærustu kappans, Selenu Gomez, eftir að hún gekk í hjónaband með Justin.