Vigdís Finnbogadóttir

Vigdís í aðalhlutverki á BBC: „Ég fór og þær fylgdu mér allar“
Vigdís sagði forsetatíð sína hafa valdið því að íslensk börn vöndust hugmyndinni um konu sem forseta og ræddi auk þess hlutverk sitt sem fyrirmynd íslenskra kvenna.

Vigdís heiðruð á heimsþingi stjórnmálakvenna
Um fjögur hundruð þingmenn og þjóðhöfðingjar sækja þingið sem fram fer á Íslandi.

Vigdís Finnbogadóttir plantaði birkitrjám í Skálholti með barnabörnunum
Fyrrverandi forseti Íslands segir að mýrarnar séu lungu heimsins en grafið var ofan í skurði í dag við Skálholt til að endurheimta votlendi.

Vigdís: „Ef við týnum tungunni erum við búin að týna okkur sjálfum“
Ný verkáætlun um máltækni fyrir íslensku var kynnt í dag en markmið hennar er að íslensku verði að finna í öllum tækjabúnaði og í hugbúnaði stærstu tæknifyrirtækja heims

Vandi íslenskunnar vekur heimsathygli
Fjölmiðlar víða um heim hafa fjallað um þá hættu sem steðja að íslenskri tungu eftir að Vigdís Finnbogadóttur varaði við því að íslenskan hæti hlotið sömu örlög og latínan.

Vigdís Finnbogadóttir: „Ef ekkert verður að gert lendir íslenskan í ruslinu með latínunni“
Fyrrverandi forseti Íslands hefur þungar áhyggjur af stöðu íslenskrar tungu. Íslenskt mál á undir högg að sækja í kjölfar aukinna áhrifa ensku í kjölfar alþjóðavæðingar í stafrænum heimi. Þetta segir í umfjöllun AP-fréttaveitunnar um stöðu íslenskunnar.

Hornsteinn lagður að Vígdísarstofnun
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, lagði hornsteininn að byggingunni ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands.

Forsetar Íslands í áranna rás: Senn ganga landsmenn að kjörborðinu
Fimm einstaklingar hafa gegnt embætti forseta Íslands og öll mótuðu þau embættið eftir eigin hugmyndum. Hér verður fjallað stuttlega um sögu embættisins.

Vigdís segir fyrstu kynslóð Vestur-Íslendinga hafa þjáðst af heimþrá
Ljósmynda- og sögusýning Vesturfarasetursins, Þögul leiftur, hefur verið sett upp í nýju sýningarými Hörpu.

„Verum Vigdís“
"Verum Vigdís“ voru lokaorð Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landabankans í erindi hans á morgunfundi um Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact (Women's Empowerment Principles) sem 18 íslensk fyrirtæki hafa innleitt.

Halda hátíð til heiðurs Vigdísi
35 ár liðin frá forsetakjöri

Frú Vigdís: Mikið verk óunnið í jafnréttismálum
Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti segir að þótt mikill árangur hafi náðst í jafnréttismálum sé merkilegt að ekki hafi tekist að ná launajafnrétti þótt 40 ár séu liðin frá lagasetningu þess efnis.

Vigdís Finnbogadóttir er brautryðjandi ársins
Árleg viðurkenning Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands var veitt í þriðja sinn í dag.

Vigdís Finnbogadóttir heillaði Ronald Reagan
Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseti, og Vigdís Finnbogadóttir áttu einstakt spjall sem Ken Adleman, fyrrum samstarfsmaður Reagan, segir frá.

Vigdís tók á móti gestum
Ævisagan Vigdís – Kona verður forseti er komin út. Af því tilefni var haldið útgáfuhóf í Iðnó þar sem Vigdís Finnbogadóttir tók á móti hverjum gestinum á fætur öðrum. Útgáfustjórinn Páll Valsson ritaði þessa ævisögu Vigdísar sem margir hafa beðið spenntir eftir. Þar ber margt á góma sem hefur ekki farið hátt í gegnum tíðina, bæði er varðar einkalíf og opinber störf Vigdísar sem forseta Íslands.

Margt óvænt í ævisögu Vigdísar forseta
Útgefandinn Páll Valsson er um þessar mundir að leggja lokahönd á ævisögu Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands. Bókin, sem kemur líklega út í nóvember, nefnist Vigdís - Kona verður forseti.

Upp með mér að mála Vigdísi
Eins og myndirnar sýna fræddi Elín Reynisdóttir förðunarfræðingur fjölda kvenna í verslun Make up store í Smáralindinni um andlitsförðun. Vísir hafði samband við Elínu og Margréti R. Jónasdóttur eiganda Make up store og spurði þær út í námskeiðin og hátíðarförðun. „Það sem ég er að leggja áherslu á á hópnámskeiðunum

Sólheimar opna hús til heiðurs Vigdísi forseta
Sólheimar í Grímsnesi fagna 78 ára afmæli sínu laugardaginn 5 júlí næstkomandi. Á þessum tímamótum verður nýtt þjónustuhús formlega opnað, Vigdísarhús.

Aðeins fyrir karla fyrir utan Vigdísi
"Við vonumst til þess að fylla salinn af körlum," segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra, sem boðar til karlaráðstefnu um jafnréttismál í Salnum í Kópavogi á morgun. Einungis karlar fá að taka til máls á ráðstefnunni, með einni undantekningu þó því Vigdís Finnbogadóttir ávarpar ráðstefnuna og situr hana sem heiðursgestur og verndari.

Kostar 8 þúsund í afmæli Vigdísar
Vigdís Finnbogadóttir verður 75 ára á morgun. Af því tilefni slær Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur upp veislu í Perlunni annað kvöld þar sem selt verður inn á átta þúsund krónur. Ráðherrar og fleiri fá þó frítt inn. Í gær höfðu nær þrjú hundruð manns skráð sig í veisluna og munu njóta þríréttaðrar máltíðar, söngs og ræðuhalda.