Reykjavík

Bíl ekið ofan í Elliðaár
Bíll hafnaði út í Elliðaám í dag en engan sakaði. Þetta staðfestir Loftur Þór Einarsson hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í samtali við fréttastofu.

Gosið sést víða að
Eldgosið við Grindavík sést vel frá höfuðborgarsvæðinu og víðar.

Unglingur hótaði hópi með hnífi
Talverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars var tilkynnt um hóp ungmenna þar sem einn af hópnum hafði ógnað öðrum hópi ungmenna með hnífi í Kópavogi. Ungmennin voru á aldrinum fjórtán til fimmtán ára. Lögregla afgreiddi málið á staðnum þar sem hnífur var haldlagður og tilkynning send á barnaverndarnefnd.

„Komin býsna mikil alvara í málið“
Ráðherra íþróttamála segir tímamótaskref hafa verið tekið í átt að byggingu nýrrar þjóðarhallar í vikunni. Stefnt er að því að höllin rísi árið 2027.

Hátt í tvö þúsund manns mættu í samstöðugöngu
Fjölmenn samstöðuganga fyrir Palestínu var gengin niður Laugaveg í dag. Skipuleggjendur telja að hátt í tvö þúsund manns hafi tekið þátt í göngunni, sem endaði með samstöðufundi á Austurvelli.

Hraðasektir dauðadómur fyrir suma en aðrir finni ekkert fyrir þeim
Ökumaður undir áhrifum fíkniefna olli stórtjóni þegar hann ók á átta bíla við Hringbraut í morgun. Íbúi segir ofsaakstur á svæðinu hafa verið vandamál til margra ára. Hann kallar eftir því að hraðasektir taki mið af tekjum ökumanna.

Hætt við lendingu vegna þokunnar
Þétt þoka liggur yfir Reykjavík og á hún að hanga fram í nótt að sögn Þorsteins V. Jónssonar veðurfræðings hjá Veðurstofunni. Hún hefur orðið til þess að ekki var hægt að lenda flugvél á Reykjavíkurflugvelli í dag.

Flugeldar forsetaframbjóðanda vöktu barn
Sigríður Hrund Pétursdóttir tilkynnti framboð sitt til forseta í gær með pompi, prakt og flugeldum, eflaust til mikillar gleði viðstaddra. Minni gleði vakti það þó hjá íbúum nágrennisins en þeir kunnu ekki að meta uppátæki Sigríðar.

Myndir sýna gríðarlegt tjón á Hringbraut
Af ljósmyndum af vettvangi að dæma varð mikið eignatjón þegar ungur maður ók á fjölda bíla á Hringbraut í morgun. Ljóst er að einhverjir bílanna eru ónýtir.

Kallar eftir tekjutengdum sektum eftir að ekið var á átta bíla
Snemma í morgun ók ungur maður, sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna, utan í átta kyrrstæðar bifreiðar á Hringbraut í vesturbæ Reykjavíkur. Íbúi við Hringbraut lýsir ófremdarástandi í götunni.

Hringbraut lokað vegna áreksturs
Hringbraut í vesturbæ Reykjavíkur var lokað til vesturs í morgun vegna áreksturs bifreiða.

Fékk að gista í fangaklefa eftir að hafa ógnað húsráðanda með hnífi
Í gærkvöldi var tilkynnt um hávaða í fjölbýli í Reykjavík. Þegar lögreglu bar að garði tilkynnti gestur í íbúð í húsinu að maður hefði ráðist á húsráðanda og ógnað með hnífi. Maðurinn var að endingu handtekinn og vistaður í fangageymslu.

„Það er einhver tenging á milli okkar en við höfum aldrei hist“
Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn á í einlægum en óhefðbundnum vinskap við 75 ára konu á Akureyri. Þær hafa aldrei hist en Ólafía fær reglulega sendar heimaprjónaðar peysur frá konunni.

Lést eftir hátt fall við Landspítalann
Sjúklingur á Landspítalanum í Fossvogi lést við hátt fall út um glugga spítalans um eftir hádegið í dag. Ekki er grunur um að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.

Fluttu úr miðbænum í einstaka náttúruparadís
Heiðar Logi Elíasson brimbrettakappi og kærastan hans, Anný Björk Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, fluttu nýverið úr miðbæ Reykjavíkur og festu kaup á sumarhúsi í landi Miðdals við Silungatjörn í Mosfellsbæ. Húsið er staðsett á 5000 fermetra eignarlóð með einstöku útsýni og veiðileyfi í tjörninni.

Fólk muni koma víða að til að sjá styttu af Reykvíkingi á heimsmælikvarða
Einar Þorsteinsson, sem tekur við embætti borgarstjóra í næstu viku, segir að Björk Guðmundsdóttir sé sá Reykvíkingur sem mest hefur gert til að koma Reykjavík á kortið á heimsvísu. Því hafi einróma ákvörðun borgarráðs um að heiðra hana með listaverki verið bæði góð og skemmtileg.

Verður formaður stjórnar Þjóðarhallar
Jón Arnór Stefánsson, fyrrverandi landsliðsmaður í körfubolta, hefur verið skipaður formaður stjórnar Þjóðarhallar ehf., nýs félags ríkis og borgar sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal.

Áfram gakk! Kjarni Kvosarinnar verður heildstætt göngusvæði
Göngugötur hafi notið vinsælda meðal borgarbúa undanfarin ár. Í nýlegri könnun Maskínu kom enn og aftur fram að mikill meirihluti Reykvíkinga eða nærri þrír af hverjum fjórum er hlynntur göngugötum og eykst stuðningurinn verulega milli ára.

Rekstur neyslurýmis í Borgartúni samþykktur
Byggingarfulltrúi samþykkti í vikunni umsókn Rauða kross Íslands um að koma upp einingahúsum fyrir neyslurými á lóð við Borgartún 5 í Reykjavík. Umsóknin var samþykkt þann 9. janúar.

Grunaðir um mörg skartgriparán í heimahúsum
Margt bendir til þess að sami eða sömu þjófar hafi framið tíu innbrot í íbúðir í fjölbýlishúsum á höfuðborgarsvæðinu yfir jól og áramót að sögn lögreglu. Fólk saknar helst skartgripa og fjármuna eftir ránin.

Norðlingaskóla breytt í Hogwarts: „Þau blómstra“
Norðlingaskóli er nánast óþekkjanlegur en honum hefur verið breytt í einn frægasta galdraskóla heims, Hogwarts þar sem nemendurnir keppa í þrautum og leysa námsverkefni á óhefðbundinn hátt. Kennararnir segja að það mætti gera meira af því að kenna börnum í gegnum leik enda blómstra börnin.

Frekari athugun verði gerð á meðferð vöggustofubarna
Þriggja manna nefnd óháðra sérfræðinga verður skipuð til að gera heildstæða athugun á starfsemi vöggustofu Thorvaldsenfélagsins á tímabilinu 1974 til 1979 en skýrsla sem gerð var um starfsemi hennar auk vöggustofunnar á Hlíðarenda sýndi fram á að börn sem þar dvöldu hefðu orðið fyrir varanlegum skaða vegna vistunarinnar.

Björk heiðursborgari Reykjavíkur og fær styttu sér til heiðurs
Borgarráð samþykkti í dag að útnefna Björk Guðmundsdóttur sem heiðursborgara Reykjavíkurborgar. Björk er sjöundi Reykvíkingurinn sem hlýtur þennan heiður og mun myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir gera Bjarkar- styttu.

Lokanir vegna fáliðunar „enn ein birtingarmynd leikskólavandans“
Loka þurfti deildum á leikskólum borgarinnar fyrir áramót alls 228 sinnum vegna fáliðunar. 67 sinnum þurfti að loka deild heilan dag vegna fáliðunar en í 161 skipti þurfti að skerða þjónustu vegna fáliðunar.

Ástarfundur á Ránargötu árið 1958 dregur dilk á eftir sér
Karlmaður á sjötugsaldri hefur stefnt meintum systrum sínum og stjúpmóður til viðurkenningar þess að látinn maður sé faðir hans.

Næsta mál sé að ráðast í útboð, úthluta lóðinni og sjá bygginguna rísa
Undirritun samkomulags um stofnun félags um uppbyggingu Þjóðarhallar í Laugardal er risastórt hagsmunamál að sögn borgarstjóra Reykjavíkur, enda verði höllin lykilinnviður fyrir íþróttir. Næsta mál sé að ráðast í úrboð og úthluta lóðinni.

Íbúa í kjallara gert að stöðva stöðuga kattaumferð inn um glugga
Óheimilt er fyrir íbúa í kjallara í fjölbýlishúsi í Reykjavík, sem lengi hefur hleypt köttum sem hann á ekkert í inn um glugga í íbúð sinni, að taka á móti köttum.

Hjólastólalyftan ítrekað biluð vegna of þungra hjólastóla
Hjólastólalyfta í kvikmyndahúsinu á Akureyri er ítrekað biluð því of þungir rafmagnsstólar fara í hana. Lyftan er aðeins gerð fyrir stóla sem eru ekki rafmagnsstólar. Aðgengismál eru misjöfn eftir kvikmyndahúsum Sambíóanna en best í Egilshöll og Kringlunni.

Reykjavík eignist nýja vini í Palestínu
Árið 1944 tóku enska borgin Coventry og Stalíngrað í Sovétríkjunum upp vinaborgasamband. Sú fyrrnefnda hafði farið verst allra borga á Bretlandseyjum út úr loftárásum Þjóðverja og sú síðarnefnda mátti heita rústir einar eftir langvinnt og blóðugt umsátur í stríðinu.

Samþykkt að Kvosin og Austurstræti verði göngusvæði
Forhönnun að nýju Austurstræti var kynnt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í morgun. Gatan á að verða göngugata og í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að hönnun götunnar ýti undir það að hún verði áfram „ein mikilvægasta gata miðborgarinnar.“