Kennaraverkfall

Fá tvær vikur til lausnar
Formaður menntamálanefndar Alþingis segir að verði miðlunartillaga sáttasemjara ríkisins felld fái samninganefndir eina til tvær vikur til að ná sáttum. Formaður Kennarasambandsins segir tímann nægja en fjármagnið til samninganna ekki.

Kennarar leggja fram nýtt tilboð
Fyrir stundu lögðu kennarar nýtt samningstilboð fyrir launanefnd sveitarfélaga. Sjónvarpið greindi frá. Ekki hefur fengist staðfest hvað í tillögunni felst en vonir eru bundnar við að með þessu útspili megi afstýra því að verkfall grunnskólakennara hefjist á ný á miðnætti.

2 milljarða tap vegna verkfallsins
Þjóðarbúið hefur tapað að minnsta kosti tveimur milljörðum nú þegar vegna verkfalls grunnskólakennara. Verkfallið stóð í sex vikur og ef fram fer sem horfir hefst það á ný í vikunni.

Vilji til að setja lög á verkfall
Um 61 prósent landsmanna telur að ef kennarar fella miðlunartillögu ríkissáttasemjara og fara í verkfall á ný þá komi til greina að setja lög á verkfallið. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Óvissa með veittar undanþágur
Óvíst er hvort undanþágur sem veittar hafa verið í verkfalli kennara gildi áfram verði miðlunartillaga ríkissáttasemjara felld.

Lög á kennara
"Það er skelfileg tilhugsun allra, beggja vegna borðs, ef þessi miðlunartillaga verður felld. Þá erum við komin á byrjunarreit og vart hægt að hugsa það til enda," sagði Ragnheiður Ríkarðsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar.

Vilja að kennarar snúi sáttir
Foreldrar vilja væntanlega að börnin komist sem fyrst í skóla sem skýrir niðurstöðu könnunarinnar, segir Elín Thorarensen, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra.

Gríðarleg óánægja með tillöguna
Gríðarleg óánægja er meðal grunnskólakennara með miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Talið er fullvíst að hún verði felld sem þýðir að verkfall hefst á nýjan leik í grunnskólum landsins á þriðjudag.

Ekki aðeins kennarar óánægðir
Það eru ekki bara kennarar sem eru óánægðir með miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Þorri sveitarstjórnarmanna er óánægður með tillöguna og segir hana of dýra fyrir sveitarfélögin.
Óánægja sveitarstjórnarmanna
Gríðarleg óánægja og mikill kurr er meðal sveitarstjórnarmanna með mikinn kostnað miðlunartillögu ríkissáttasemjara, að sögn Stefáns Jóns Hafsteins borgarfulltrúa.
Hafa samningana í hendi sér
Kjarasamningur skólastjórnenda bíður samþykktar. Þeir gengu frá samningi við launanefnd sveitarfélaganna áður en miðlunartillaga ríkissáttasemjara var lögð fyrir grunnskólakennara.

Launamál komin á hreint
Launamál grunnskólakennara um allt land virðast vera komin á hreint og því ljóst að þeir eru allir komnir til vinnu eftir að verkalli var frestað.
Villandi atkvæðaseðlar
Borið hefur á að kennurum finnist atkvæðaseðlar um miðlunartillögu ríkissáttasemjara villandi.

Dagsetning samræmdra prófa ákveðin
Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið dagsetningar fyrir samræmd próf í 4. og 7. bekk að því tilskildu að skólahald verði með eðlilegum hætti á næstu vikum. Samræmd próf í íslensku verða fimmtudaginn 25. nóvember klukkan 9.30-12. Samræmd próf í stærðfræði verða föstudaginn 26. nóvember klukkan 9.30-12.

Viðhorf nemenda á verkfallinu
Nemendur hafa áhyggjur af námsframvindu sinni vegna verkfalls kenanra. Það hefði áhrif á framtíðaráform þeirra. Sumir virtust þó ekki hafna lengra verkfalli kæmi til þess.

Ánægður með ákvörðun nefndarinnar
Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segist ánægður með að ákveðið hafi verið að greiða kennurum í Reykjavík laun fyrir nóvembermánuð. Hann segir að í sínum huga hafi allan tímann verið um mistök að ræða sem nú hafi verið leiðrétt.

Kennsla á laugardögum
Stytt páskafrí og kennsla á laugardögum eru kostir sem koma til greina til að bæta 10. bekkingum í grunnskólum landsins "það tjón sem þeir hafa orðið fyrir í verkfallinu," eins og Stefán Jón Hafstein formaður Fræðsluráðs Reykjavíkur orðaði það. Hann sagði að þegar væri farið að huga að því máli.

Ákveðið í samráði við kennara
Kennarar urðu öskureiðir í morgun þegar fréttist að sveitarfélögin ætluðu ekki að greiða laun fyrir nóvember. Í Valhúsaskóla voru börnin send heim til sín aftur. Stefán Jón Hafstein segir að ákvörðun um þetta hafi verið tekin í samráði við kennaraforystuna. Fallið hefur verið frá þessari fyrirætlan í öllum stærstu sveitarfélögunum.

Kennararnir mæta á morgun
Kennarar í Valhúsaskóla, sem í dag sendu nemendur skólans heim í vetrarfrí eftir að þeim var tilkynnt að ekki yrðu greidd laun til kennara í dag, munu mæta í skólann á morgun. Eftir að börnin höfðu verið send heim boðaði Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, skólastjóra og trúnaðarmenn kennara á sinn fund til að leysa málið.

Aftur í skólann
Fjörutíu og fimm þúsund grunnskólanemar halda í skólann í dag eftir sex vikna verkfall kennara. Miðlunartillögu ríkissáttasemjara verður dreift til allra kennara í dag og á atkvæðagreiðslu um hana að ljúka um næstu helgi.

Kennararnir stöðvaðir í dyrunum
"Menn geta dregið sínar ályktanir af því hvort framkoma sveitarfélaganna sé þeim til framdráttar," segir Jón Pétur Zimsen, kennari í Réttarholtsskóla.

Kennarar fái greitt fyrirfram
Launafulltrúar sveitarfélaganna tilkynntu á föstudaginn að kennarar fengju engar launagreiðslur í dag. Formaður Kennarasambandsins segist fara fram á að þessu verði breytt hið snarasta, enda sé það skylda sveitarfélaganna að greiða fyrirfram fyrir það tímabil sem sannarlega verði skólastarf.

Líst ekki vel á miðlunartillöguna
"Við fyrstu sýn líst mér ekki vel á miðlunartillögu ríkissáttasemjara og mér heyrist svona almennt á kennurum að hún leggist ekki vel í þá," segir Elín Kristófersdóttir umsjónakennari 10. bekkjar og líffræðikennari unglingadeildar hjá Austurbæjarskóla.

Kennarar fá full laun
Kennurum í Reykjavík verða greidd full föst laun fyrir nóvembermánuð sem ekki taka mið af því að þeir fengu greiddan allan septembermánuð, þó að kennsla hafi hætt tuttugasta þess mánaðar. Birgir Björn Sigurjónsson, formaður launanefndar sveitarfélaganna, segir að kennurum verði greitt samkvæmt þeim kjarasamningi sem var í gildi fyrir verkfall.

Óvissan um námið erfið
Í verkfalli kennara styrktist samböndin við vinina, segja Ingunn Freyja Guðmundsdóttir, Jónína Sif Eyþórsdóttir og Helgi Kristvin Sigurbjarnason. Þau stunda nám í 10. bekk í Hjallaskóla í Kópavogi.

Nemendur sendir heim
Kennsla var felld niður í unglingadeildum Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi í morgun eftir að vitnaðist að engin laun yrðu greidd fyrir nóvembermánuð. Kennarar eru farnir í vetrarfrí sem áður hafði verið ákveðið að fella niður.
Kennarar í Kópavogi mæta ekki
Kennarar í Kópavogi munu ekki mæta til vinnu í fyrramálið, berist þeim ekki staðfesting um að þeir fái greidd laun fyrir október og nóvember í kvöld frá bæjaryfirvöldum í Kópavogi. Öll bæjarfélög á höfuðborgarsvæðinu nema Kópavogur hafa ákveðið að greiða kennurum full föst laun fyrir nóvembermánuð, samkvæmt þeim kjarasamningum sem voru í gildi fyrir verkfallið.

Níu milljarða hækkun
Pétur Blöndal, alþingismaður, hafnar því að ríkið sé stikkfrí í kennaradeilunni og bendir á að ef kennarar samþykkja miðlunartillögu ríkissáttasemjara hækka lífeyrisskuldbindingar ríkisins um níu milljarða.
Engin laun til kennara
Þótt kennarar í grunnskólum, sem verið hafa í verkfalli, mæti til vinnu sinnar þessa viku fá þeir engin laun útborguð um þessi mánaðamót.

Óánægja kraumar í kennurum
"Það er mikill hiti í okkur og kraumandi óánægja," segir kennari í Rimaskóla, sem segist hiklaust ætla að segja upp starfi sínu í vor verði þessi miðlunartillaga samþykkt.