Slökkvilið

Stórbruni í Hafnarfirði
Allt tiltækt slökkvilið hefur verið sent á vettvang.

Olíuleki í Hvalfirði: „Við vorum dálítið hræddir um að allt myndi fara til andskotans“
Tengivagn vörubíls valt í Hvalfirði fyrr í kvöld, með þeim afleiðingum að olía tók að leka úr honum. Varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir að á tíma hafi útlitið á vettvangi verið svart.

Allt tiltækt slökkvilið var kallað út vegna elds í Rangárseli
Miklar skemmdir vegna hita og reyks.

Starfsánægja mælist lág meðal slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á höfuðborgarsvæðinu: "Það er rosalegt álag á okkar fólki“
Óánægja er meðal slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, samkvæmt niðurstöðum nýrrar starfsánægjukönnunar. Mannauðsstjóri segir engan undra að niðurstaðan sé þessi, en markmiðið sé að gera betur fyrir starfsfólkið sem vinni undir miklu álagi og standi sig gríðarlega vel við erfiðar aðstæður.

Bíll brann við Seljaskóla
Bíllinn er ónýtur eftir eldinn.

Eldur kviknaði í Hlíðarhjalla
Allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn.

Eldur kom upp í bíl á Þjóðbraut
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kallað út skömmu fyrir klukkan fimm í dag eftir að eldur kom upp í bíl á Þjóðbraut nærri Reykjanesbraut.

Náðu að bjarga bróðurparti skemmunnar
Slökkviliðsmenn hafa lokið störfum við skemmu á vegum Kópavogsbæjar, þar sem eldur kom upp skömmu eftir klukkan þrjú í dag.

Eldur í áhaldaskúr við Tennishöllina í Kópavogi
Eldur kom upp í áhaldaskúr á vegum Kópavogsbæjar fyrir aftan Tennishöllina og líkamsræktina Sporthúsið í Kópavogi.

Eldur kom upp í kjallara íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja
Slökkviliðið Vestmannaeyja var ræst út laust fyrir klukkan átta í kvöld þegar tikynning barst um eld og reyk í kjallara Íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja þar sem kviknað hafði í loftpressu.

Húsráðandi á Eggertsgötu sofnaði með logandi sígarettu í hönd
Rannsókn lögreglu hefur leitt í ljós að eldurinn sem kom upp í íbúð á Eggertsgötu á miðvikudaginn kviknaði út frá logandi sígarettu.

Rauði krossinn mun áfram sinna rekstri sjúkrabíla
Sjúkratryggingar Íslands og Rauði krossinn á Íslandi hafa nú loks náð samkomulagi um framlengingu á samningi um kaup og rekstur sjúkrabifreiða.

Segir viðurlög við framleigu íbúða mjög skýr
Aðstoðaryfirlögregluþjónn tjáir sig ekki um hvort grunur sé um íkveikju. Hann býst við því að rannsókn brunans verði lokið á föstudaginn.

Konan laus úr haldi lögreglu
Kona sem vistuð var í fangageymslu lögreglu eftir að eldur kom upp í stúdentaíbúð við Eggertsgötu hefur verið látin laus.

Konan sem vistuð var í fangageymslu í nótt vegna brunans er ekki leigutaki íbúðarinnar
Leigutökum stúdentaíbúða FS er óheimilt að framleigja íbúðirnar

Íbúi vistaður í fangageymslu í kjölfar brunans á Eggertsgötu
Íbúi íbúðarinnar á Eggertsgötu þar sem eldur kviknaði á sjöunda tímanum í kvöld var í annarlegu ástandi þegar hún var færð á slysadeild Landspítalans í Fossvogi.

Reykkafarar slökktu eld á stúdentagörðum
Sjónarvottur segir reyk leggja frá húsi á stúdentagörðum við Eggersgötu.

Dýr mahóníklæðning English Pub slapp við vatnselginn
Töluvert vatn flæddi á milli fjögurra hæða á Austurstræti 12 í morgun

Eftirtektarsamir nágrannar vöktu íbúa í brennandi húsi
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út.

Að slökkva gróðureld með fötu!
Með aukinni hættu á flóknum gróðureldum í landinu verður nauðsynlegt að njóta liðsinni Landhelgisgæslunnar.

Athugulir vegfarendur slökktu eld sem ungmenni kveiktu við FSU
Ungmenni kveiktu í trjálundi við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi um miðnætti í gær.

Ekki í kortunum að bæta aðstæður vegna slökkvibíla
Svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Vesturlandi segir vel athugandi að Vegagerðin, í samráði við Skorradalshrepp, útbúi athafnasvæði, eða snúningsvæði fyrir slökkvilið og slökkvibíla á svæðinu, en að það sé ekki í kortunum eins og staðan sé núna.

Sama áhætta á gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu og í dreifbýli
Sama áhætta er á gróðureldum á höfuðborgarsvæðinu og í dreifbýli vegna veðursældar, meiri gróðurs og þurrkatíðar. Aðstoðarslökkviliðsstjóri segir að huga þurfi að brunahólfum sem koma í veg fyrir að eldur breiðist út. Varlega þurfi að fara með allan opinn eld.

Sumarhúsaeigendur í Skorradal ósáttir við ummæli varaslökkviliðsstjóra
Stjórn sumarhúsafélagsins Fitjahlíðar í Skorradal gagnrýnir ummæli varaslökkviliðsstjóra Borgarbyggðar um að óbreyttir borgarar þvælist fyrir við slökkvistarf. Fjölmörg dæmi séu um að almenningur hafi skipt sköpum þegar eldar hafa kviknað í dalnum.

Keyrði á kyrrstæðan jeppa og valt á hliðina
Ökumaður fólksbíls var fluttur á slysadeild til skoðunar eftir að bíll hans valt í miðbæ Reykjavíkur laust fyrir klukkan þrjú í nótt.

Tilræði við almannaöryggi að kveikja elda í Skorradal
Varaslökkviliðsstjóri Borgarbyggðar biðlar til fólks að kveikja ekki elda í Skorradal.

Æfðu viðbrögð vegna gróðurelda af mannavöldum
Um helmingur slökkviliðs Borgarbyggðar æfði í Skorradal í gærkvöldi viðbrögð vegna gróðurelda. Varaslökkviliðsstjóri fagnar áhuga sumarbústaðaeigenda á þátttöku í æfingum en segir að eftir að slökkvilið sé komið á vettvangi trufli almenningur slökkvistarf.

Endurnýja þurfi slökkvibúnað fyrir þyrlu vegna gróðurelda
Landhelgisgæslan telur tímabært að endurnýja slökkvibúnað til að nota með þyrlu í baráttu við hugsanlega gróðurelda hér á landi. Búnaðurinn var keyptur fyrir 12 árum. Framkvæmdastjóri aðgerðasviðs hjá Landhelgisgæslunni segir þörf á tveimur nýjum svokölluðum slökkviskjólum fyrir næsta vor.

Eldur kom upp við svínabú í Borgarbyggð
Slökkviliðsmenn réðu fljótt niðurlögum eldsins á vettvangi en allt bendir til þess að eldurinn hafi kviknað út frá rafmagnstöflu.

Sumarbústaðaeigendur fá ekki að taka þátt í æfingu slökkviliðsins í Skorradal
Sumarbústaðaeigendur fagna því að slökkvilið ætli að æfa viðbrögð við gróðureldum í Skorradal í kvöld en eru jafnframt undrandi á því afhverju þeir fái ekki að taka þátt svo þeir geti lagt hönd á plóg og farið í fyrstu aðgerðir komi upp eldur.