

Miðflokkurinn auglýsti eftir reynslusögum um samskipti við opinbera aðila á dögunum. Þingmenn ætla í framhaldinu að leggja fram lausnir.
Enga túlípana er að fá í landinu þar sem innlendir framleiðendur geta einungis boðið upp á þá frá desember til páska.
Hefur verið til umfjöllunar hjá RÚV og ráðuneytinu um hríð.
Sigríður Andersen og Jón Steindór Valdimarsson ræddu mál albönsku konunnar sem var vísað úr landi á dögunum, gengin 36 vikur á leið.
Innleiðing rafrænna undirskrifta er á meðal útfærslna Byggingavettvangsins sem kynntar verða eftir helgi. Eiga að skila sér í lægri kostnaði við uppbyggingu og þar með lægra húsnæðisverði.
Ekki er alltaf æskilegt að stofna þverpólitíska þingmannanefndir til að fara ofan í saumana á lagasetningu sem þarf að bæta. Þetta kom fram í máli umboðsmanns Alþingis á fundi hans með þremur þingnefndum í morgun.
Það er ómögulegt að hafa rétt fyrir sér um framtíðina, en þó er mikilvægt að hafa rangt fyrir sér með gagnlegum hætti.
Undanfarin misseri hefur orðið viðsnúningur í uppruna þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi. Umsækjendur frá skilgreindum öruggum ríkjum eru nú í minnihluta en voru meirihluti umsækjenda áður.
Ástandið hefur síðustu ár farið versnandi í Venesúela. Hagkerfið er í molum og óðaverðbólga herjar á þjóðina auk þess sem stjórnmálin eru í upplausn.
Dómsmálaráðherra er ánægð með að landlæknir og Útlendingastofnun ætli að skoða hvernig bæta megi ferla við heilsufarsmat á fólki sem bíði brottflutnings frá landinu. Einstaklingsbundið mat verði að liggja þar á bakvið en mikill fjöldi mála sé afgreiddur á hverju ári.
Búið sé að óska eftir fundi með embætti landlæknis svo hægt verði að fara yfir málið og kanna með hvaða hætti skuli standa að öflun læknisvottorða vegna mála eins og máls óléttu konunnar frá Albaníu sem var vísað úr landi í gær.
Einum eigenda ráðgjafarfyrirtækisins Attentus var gert að hætta störfum fyrir Vinnueftirlitið eftir meintan dónaskap í garð starfsmanna sem sendu kvörtunarbréf til félagsmálaráðherra. Annar úr eigendahópi Attentus tók síðar við.
Alexandra Ýr van Erven stjórnmálfræðinemi, sem sakaði Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra um óviðeigandi ummæli í vísindaferð í ráðuneytinu, segir að ummælin hafi augljóslega verið "smækkandi“ fyrir sig, þrátt fyrir yfirlýsingu ráðherra þar sem hann hafnar ásökununum.
Páll Magnússon hefur verið ráðinn í embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Ellefu umsækjendur sóttu um embætti forstjóra Umhverfisstofnunar.
Líklegt er að Seðlabanki Íslands hafi dregið frá staðgreiðslu skatts á átta milljóna króna greiðslum til Ingibjargar Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans.
Dómsmálaráðherra er bjartsýn á að unnt verði að útvega fé til reksturs Mannréttindaskrifstofu Íslands á næsta ári. Allt stefndi í að starfsfólki og húsnæði yrði sagt upp í gær og skrifstofunni lokað vegna fjárskorts. Framtíð skrifstofunnar hefur verið í óvissu.
Þriðjungi færri stjórnarfrumvörp hafa verið lögð fyrir á Alþingi í ár en á sama tíma í fyrra. Þá hafa ráðherrar aðeins mælt fyrir þriðjungi þeirra mála sem ættu að vera fram komin samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar.
Á tímabilinu 2001 til 2018 hafa um níu milljarðar króna verið greiddir úr ríkissjóði til framleiðenda á grundvelli endurgreiðslukerfis kvikmynda. Á undanförnum árum hefur vægi sjónvarpsefnis aukist innan endurgreiðslukerfisins og tilvikum fjölgað þar sem álitamál er hvort efnið falli að markmiðum laga um endurgreiðslu.
Tilkynnt var í síðustu viku að mennta- og menningarmálaráðherra hafi skipað fjölmiðlanefnd til næstu fjögurra ára. Af því tilefni sköpuðust umræður um nefndina í fjölmiðlum, þar sem nokkuð bar á rangfærslum um störf nefndarinnar.
Bankaráð Seðlabanka Íslands hefur óskað eftir skýringum bankans á samningi sem Már Guðmundsson, þáverandi seðlabankastjóri, gerði fyrir hönd bankans við Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, þáverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans.
Þegar rennt er yfir listann má sjá að elsta reglugerðin er frá árinu 1975.
Mennta- og menningarmálaráðherra mun á næstu dögum skipa Þjóðleikhússtjóra. Þjóðleikhúsráð, Capacent og valnefnd hafa lokið störfum í málinu og skilað gögnum til ráðherra.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samráðsnefnd um fiskeldi. Nefndin mun meðal annars hafa það hlutverk að meta forsendur og úrvinnslu gagna sem áhættumat erfðablöndunar byggist á.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að stjórnvöld hafi mátt ganga enn lengra við gerð frumvarps um breytingu á samkeppnislögum.
Umsjónarmaður meistaranáms í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands segir upplýsingaleynd of ríkjandi í stjórnsýslunni. Lærdóm þurfi að draga af máli Seðlabankans gegn blaðamanni.
Nýtt sameinað sveitarfélag á Austurlandi yrði það stærsta að flatarmáli hér á landi með tæplega fimm þúsund íbúa. Sameinað sveitarfélag fengi frá hinu opinbera rúman milljarð króna í meðgjöf.
Kjarasamningur á milli fimm aðildarfélaga Bandalags háskólamanna og Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, var undirritaður aðfaranótt mánudags.
Merkilegur dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness síðastliðinn föstudag.
Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, hefur sett Sigrúnu Ágústsdóttur, sviðstjóra hjá Umhverfisstofnun, til að gegna tímabundið embætti forstjóra stofnunarinnar til 1. mars 2020, þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.