Gjaldþrot

Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna
Engar eignir fundust í búi GBN-2024 ehf., sem var í eigu Guðmundar Birkis Pálmasonar, sem er í daglegu tali kallaður Gummi kíró.

Sólon lokað vegna gjaldþrots
Veitingahúsið Sólon er hætt starfsemi. Þórir Jóhannsson sem átti staðinn segir félagið sem hafi rekið veitingastaðinn hafa farið í gjaldþrot fyrir um tveimur mánuðum. Hann hafi reynt að halda starfseminni gangandi en ekki náð samkomulagi við húseigendur um framhald á rekstri í húsinu.

Bjarki um gjaldþrotið: „Þú ert niðurlægður á ákveðinn hátt“
Bjarki Gunnlaugsson segir að það hafi verið högg þegar hann var úrskurðaður gjaldþrota. Ekkert annað hafi þó verið í stöðunni. Hann sagði nánasta samstarfsmanni sínum hjá umboðsskrifstofunni Total Football ekki frá gjaldþrotinu fyrr en eftir að fréttir af því birtust í fjölmiðlum.

Reyndu að fá Ingu á sitt band með fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum
Katrín Eir Ásgeirsdóttir, forseti KÍNEMA, nemendafélags Kvikmyndaskóla Íslands og Breki Snær Baldursson, varaforseti, félagsins fóru með tíu leggja fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum til Ingu Sæland, félags- og vinnumarkaðsráðherra, í tilraun til að fá hana til að bjarga Kvikmyndaskólanum. Katrín og Breki ræddu mál skólans í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

„Til hamingju hálfvitar“
Börkur Gunnarsson, fyrrverandi rektor Kvikmyndaskólans, gagnrýnir ríkisstjórnina harðlega fyrir „að leggja menntastofnun í rúst“ og „ráðast gegn þekkingu og menntun“.

„Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands“
Stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands segir gjaldþrot skólans eingöngu stjórnvöldum að kenna og sakar þau um að vera á móti uppbyggingu skólans. Þau hafi neitað að greiða til skólans af fjárlögum og skert aðgengi nemenda að skólanum. Hann er þakklátur fyrir yfirtöku Rafmenntar en telur að námið muni samt sem áður breytast til muna.

Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins
Þekkingarfyrirtækið Rafmennt hefur gengið til samninga við skiptastjóra þrotabús Kvikmyndaskóla Íslands og tryggt sér allar eignir þess. Skólastjóri Rafmenntar sér fram á að hægt verði að ljúka önninni og rektor Kvikmyndaskólans lítur björtum augum til framtíðar.

Nemendurnir neita að fara í Tækniskólann
Nemendur í Kvikmyndaskóla Íslands hafa afþakkað boð um að halda námi sínu áfram í Tækniskólanum og segja tillögurnar um áframhaldandi nám óljósar og illa ígrundaðar.

„Ég er bara örvæntingarfull“
Hlín Jóhannesdóttir, rektor Kvikmyndaskólan Íslands, segir stöðu skólans grafalvarlega. Hún segir yfirlýsingar mennta- og barnamálaráðherra sýna að hann, og starfsfólk embættisins, hafi ekki kynnt sér nám skólans. Um þúsund hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem stjórnvöld eru hvött til þess að tryggja skólanum áframhaldandi fjármagn.

Nemendafélag Kvikmyndaskóla Íslands: „Þetta er ekki eitthvað sem við viljum“
Nemendur í Kvikmyndaskóla Íslands eru mjög óánægðir með tillögu mennta- og barnamálaráðherra um að Tækniskólinn taki við nemendunum svo þeir fái að ljúka námi sínu. Fulltrúar nemendafélags skólans segja upplýsingaflæði til nemenda og kennara lélegt. Þá ætla þau að senda ráðherra opið bréf og safna dósum fyrir reikningum skólans.

Lítið sem ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú bakarísins
Einungis fjórtán prósent fengust upp í samþykktar kröfur í þrotabú Bakarís Jóa Fel. Lýstar kröfur námu 330 milljónum króna.

Kvikmyndaskóli Íslands er gjaldþrota
Rekstrarfélag Kvikmyndaskóla Íslands er farið í gjaldþrotameðferð. Þetta kemur fram í tölvupósti Hlínar Jóhannesdóttur rektors til starfsfólks og kennara í morgun. Hún biðlar til starfsfólks að halda starfsemi gangandi þótt margir eigi inni laun hjá félaginu.

Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri
Ekkert fékkst upp í ríflega 120 milljóna króna kröfur í þrotabú tveggja einkahlutafélaga hjóna sem ráku veitingastaði á Akureyri, meðal annars útibú keðjanna Hamborgarafabrikkunnar, Lemon og Blackbox þar í bæ.

Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman
Gjaldþrota veitingamaður mátti greiða innflytjanda Coca-Cola á Íslandi tæplega þrjátíu milljónir króna, rétt áður en hann varð gjaldþrota. Hæstiréttur taldi innflytjandann ekki hafa verið grandsaman um ógjaldfærni veitingamannsins þrátt fyrir að félög hans væru í verulegum fjárhagsvanda.

Gjaldþrota meðhöndlari
Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson meðhöndlari, sem var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn sex konum, hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp úrskurð þess efnis þann 4. febrúar síðastliðinn.

Skattrannsókn leiddi til gjaldþrots Davíðs Smára
Gjaldþrot Davíðs Smára Lamude, þjálfara Vestra í Bestu deild karla í knattspyrnu, nam 79 milljónum króna. Skatturinn sektaði Davíð Smára um tugi milljóna króna að lokinni rannsókn skattrannsóknarstjóra á þjálfaranum. Hann horfir björtum augum fram á veginn og segist hafa lagt á sig mikla vinnu til að snúa lífi sínu til betri vegar.

Tugmilljónakröfur í tómt þrotabú Viljans
Ekkert fékkst upp í rúmlega 43 milljóna króna kröfur í þrotabú Útgáfufélags Viljans ehf., sem hélt úti Viljanum, fjölmiðli Björns Inga Hrafnssonar.

Ósætti með vinnubrögð Blackbox sem virðist á barmi gjaldþrots
Pítsastaðnum Blackbox í Borgartúni hefur verið lokað. Ekki hefur náðst í forsvarsmenn staðarins en viðskiptavinir sem áttu staðinn bókaðan komu að læstum dyrum um helgina.

Borguðu vaskinn sama dag og tilkynnt var um gjaldþrotið
Íslenska ríkinu hefur verið gert að greiða þrotabúi Torgs ehf., útgáfufélags Fréttablaðsins, fjórtán milljónir króna vegna riftunar greiðslu félagsins á virðisaukaskatti.

Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le
Quang Le eða Davíð Viðarsson hefur nú breytt nafni sínu enn á ný, nú frá því að heita Davíð Viðarsson yfir í það að heita aftur Quang Le eða Quang Ngoc Le fullu nafni. Það sést í þjóðskrá og í fyrirtækjaskrá þegar fyrirtæki í hans eigu eru leituð uppi.

Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir
Skúli Mogensen, stofnandi Wow air, og þrír stjórnarmenn flugfélagsins sáluga hafa verið sýknaðir af öllum kröfum þrotabús Wow air á hendur þeim í ellefu dómsmálum. Þrotabúið fékk þó fjölda ráðstafana félagsins í aðdraganda þrotsins rift.

Fjögur félög Bergvins gjaldþrota
Þann fjórtánda október voru fjórir gjaldþrotaúrskurðir kveðnir upp í Héraðsdómi Suðurlands. Öll félögin fjögur eru í eigu Bergvins Oddsonar, veitingamanns og fyrrverandi formanns Blindrafélags Íslands, eða eiginkonu hans.

Fimm milljarða dómur ekki talinn varða mikilvæga hagsmuni
Dómur í máli þrotabús Karl Wernerssonar og Jóns Hilmars Karlssonar, sonar hans, stendur óhaggaður. Landsréttur dæmdi Jón Hilmar til greiðslu alls um fimm milljarða króna en Hæstiréttur telur málið ekki varða sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans.

Segir aðför Eflingar með ólíkindum
Rekstrarfélag veitingastaðarins Ítalíu á Frakkastíg er gjaldþrota. Eigandi staðarins segir augljóst að aðgerðir stéttarfélagsins Eflingar hafi valdið gjaldþrotinu en að enginn hafi tapað jafnmikið á málinu og Efling.

Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota
Einkahlutafélagið Ítalgest ehf. var úrskurðað gjaldþrota á miðvikudaginn og hefur lögmaðurinn Björn Þorri Viktorsson verið skipaður skiptastjóri búsins. Ítalgest er rekstrarfélag veitingastaðarins Ítalíu á Frakkastíg.

Tveggja milljarða gjaldþrot Ingvars Jónadabs tók tíu ár
Skiptum er nú lokið á þrotabúi Ingvars Jónadabs Karlssonar, sem rak heildverslunina Karl K. Karlsson um árabil, tíu árum eftir að hann var úrskurðaður gjaldþrota. 18,7 prósent fengust upp í ríflega tveggja milljarða króna lýstar kröfur.

1,5 milljarða gjaldþrot og Landsbankinn fékk varla krónu
Gjaldþrot Blikastaða ehf. sem áður var byggingafélag sem bar heitið Gissur og Pálmi ehf. nam einum og hálfum milljarði króna. Svo til ekkert fékkst upp í kröfur í búið sem komu nær eingöngu frá viðskiptabanka félagsins, Landsbankanum.

Enn eitt félag Quangs gjaldþrota
Vietnam restaurant ehf. varð á dögunum sjötta félagið í eigu athafnamannsins Quangs Lé, sem úrskurðað hefur verið gjaldþrota.

Tupperware lýsir yfir gjaldþroti
Tupperware Brands og nokkur dótturfyrirtæki þess hafa lýst yfir gjaldþroti í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur staðið frammi fyrir gríðarlegu tapi vegna hækkandi kostnaðar og aukinnar samkeppni.

Kröfur upp á um 13 milljarða í þrotabú Skagans 3X
Gerðar hafa verið kröfur í þrotabú Skagans 3X sem nema um þrettán milljörðum króna. Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í júlí. Stærstu kröfurnar í búið eru almennar kröfur sem nema um níu milljörðum. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Frestur til að lýsa kröfu í búið rann út á mánudag í þessari viku.