Fréttir
Fjölveiðiskip aflvana í Smugunni Þorsteinn ÞH 360, fjölveiðiskip í eigi Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, varð aflvana þar sem skipið var að síldveiðum í Síldarsmugunni síðastliðið sunnudagskvöld. Ingunn AK er með Þorstein í togi og eru skipin væntanleg til Akureyrar á morgun. Innlent 14.10.2005 06:40
Dreifi gulli rétt fyrir kosningar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að ríkisstjórnin sé að dreifa gullinu rétt fyrir sveitarstjórnarkosningar, með ákvörðun sinni um hvernig söluandvirði Símans skuli varið. Innlent 14.10.2005 06:40
Vekja foreldra til umhugsunar Átakið verndum bernskuna hófst með pompi og prakt í Rimaskóla í dag. Það er forsætisráðuneytið, biskup Íslands, Velferðarsjóður barna, umboðsmaður barna og Samtökin heimili og skóli sem standa að átakinu. Átakinu er ætlað að vekja foreldra og uppalendur til umhugsunar um uppeldi barna sinna en það stendur í tíu mánuði. Innlent 14.10.2005 06:41
Niðurstaða staðfesti hroðvirkni Ef það verður niðurstaða Héraðsdóms að átján ákæruliðir af 40 séu ekki dómtækir, eftir þriggja ára rannsókn efnahagsbrotadeildar þá staðfestir það hversu hroðvirknislega málið er unnið, segir Einar Þór Sverrisson, verjandi Jóhannesar Jónssonar, í Baugsmálinu svokallaða. Hann telur heimildir til lagfæringar ákæranna mjög takmarkaðar. Innlent 14.10.2005 06:40
Hefði viljað hafa Davíð áfram Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, hefði frekar kosið að hafa Davíð Oddsson áfram í ríkisstjórn. Hann segir að stjórnin sé veikari eftir - fyrst um sinn. Innlent 14.10.2005 06:41
Klukka gengur á fleiri en skákmenn Að loknum sameiginlegum miðstjórnar- og þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins í gær tilkynnti Davíð Oddsson þá ákvörðun sína að bjóða sig ekki fram til áframhaldandi formennsku í Sjálfstæðisflokknum á landsfundi flokksins í næsta mánuði. Jafnframt lætur Davíð af embætti utanríkisráðherra á ríkisráðsfundi 27. september næstkomandi. Innlent 14.10.2005 06:41
Réttindi verði skert vegna varna Þegnar ríkja Evrópusambandsins kunna að þurfa að sætta sig við afnám einhverra borgaralegra réttinda ef á að vera hægt að verja þá fyrir hryðjuverkamönnum og skipulagðri glæpastarfsemi. Erlent 14.10.2005 06:40
Moussa Arafat skotinn til bana Moussa Arafat, fyrrverandi yfirmaður öryggismála í Palestínu, var myrtur í morgun. Tugir byssumanna skutu úr sprengjuvörpum á heimili Arafats og réðust síðan inn og skutu hann til bana að sögn vitna. Ekki er ljóst hvort sonur hans, sem einnig var heima, náði að flýja eða hvort honum var rænt. Erlent 14.10.2005 06:40
Leituðu konu við Stokkseyri Björgunarsveitir í Árnessýslu vour kallaðar út klukkan hálftíu í morgun til að leita að vistmanni frá hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi á Stokkseyri. Um klukkan 10.30 var svo ákveðið að senda sérhæfða leitarhópa og leitarhunda til leitar frá höfuðborgarsvæðinu. Einnig var einkaflugvél notuð við leitina. Um klukkan 10.50 fundu björgunarsveitarmenn konuna heila á húfi skammt frá Kumbaravogi og í kjölfarið voru björgunarsveitir afturkallaðar. Innlent 14.10.2005 06:41
Forsetakosningar í Egyptalandi Í morgun opnuðu kjörstaðir í Egyptalandi, en þar fara í dag fram fyrstu lýðræðislegu forsetakosningarnar. Mjög fáir hafa nýtt atkvæðisrétt sinn á fyrstu klukkutímunum, en fastlega er búist við að Hosni Mubarak nái kjöri og hefji í kjölfarið sitt fimmta kjörtímabil. Erlent 14.10.2005 06:40
Fimm látnir af völdum sýkinga Fimm manns eru taldir hafa látist af völdum sýkinga sem rekja má til mengaðs vatns í kjölfar yfirreiðar fellibylsins Katrínar yfir suðurríki Bandaríkjanna. Frá þessu greindu sóttvarnayfirvöld í Bandaríkjunum í dag. Svo virðist sem fólkið hafi sýkst af bakteríu sem skyldi er kólerubakteríunni og er algeng í sjó í Mexíkóflóa. Erlent 14.10.2005 06:41
Passar upp á gengið Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir að mikill missir verði að Davíð þegar hann hættir afskiptum af stjórnmálum. "Hann er sá stjórnmálamaður sem hefur komið hvað mestu í verk af íslenskum stjórnmálamönnum, bæði fyrr og síðar og hefur gjörbreytt þessu samfélagi." Innlent 14.10.2005 06:41
Þrettán látnir af völdum Nabi Þrettán eru látnir og annarra þrettán er saknað eftir að fellibylurinn Nabi reið yfir suðurhluta Japans. 300.000 manns flúðu heimili sín, en fellibylnum fylgdi eitt þúsund millímetra úrkoma. Nabi er óðum að missa mátt og er nú flokkaður sem hitabeltisstormur. Erlent 14.10.2005 06:40
Herði aðgerðir gegn hryðjuverkum Búist er við því að Bretar þrýsti á aðrar Evrópusambandsþjóðir um að taka til athugunar að herða aðgerðir gegn hryðjuverkum, en Bretar ætla meðal annars að setja lög sem leyfa að vísa fólki úr landi verði það uppvíst að því að hvetja til hryðjuverka. Erlent 14.10.2005 06:41
Fagnar boðuðum samgöngubótum Borgarstjórn Reykjavíkur fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja áherslu á samgöngubætur í höfuðborginni við ráðstöfun söluandvirðis Landsíma Íslands. Sérstaklega er því fagnað að ákveðið hafi verið að leggja átta milljarða króna til fyrsta áfanga Sundabrautar á árunum 2007-2010 og að ekki séu uppi áform um gjaldtöku af umferð um mannvirkið. Innlent 14.10.2005 06:40
Hörð átök milli lækna og stjórnar Sérfræðingur í skurðlækningum á Landspítala háskólasjúkrahúsi hefur sagt upp störfum. Annar er með mál sín í höndum lögfræðings. Hinn þriðji hefur komið kvörtunum á framfæri bréflega. Ástæðan er alls staðar sú sama, ágreiningur við yfirstjórn spítalans. </font /></b /> Innlent 14.10.2005 06:41
Tómar rútur sendar til baka Tíu rútur sem sendar voru frá höfuðborg Bandaríkjanna, Washington, til að flytja flóttamenn frá New Orleans sneru aftur tómar því aðeins fannst ein hræða sem var tilbúin til að yfirgefa borgina og fara til Washington. Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa nú ákveðið að beita hörku til þess að fjarlægja þá sem enn þrjóskast við að yfirgefa borgina en fram að þessu hefur verið reynt að tala fólk til. Erlent 14.10.2005 06:41
Miðstjórnin einnig boðuð á fund Ekki aðeins þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur verið boðaður á fund í Valhöll í dag heldur einnig miðstjórn flokksins, en ráðherra og þingmenn flokksins grunar að Davíð Oddsson utanríkisráðherra muni þá tilkynna að hann hætti sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Innlent 14.10.2005 06:40
Fátt sem kemur á óvart Tilkynnt var í gær að Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, taki við sem sjávarútvegsráðherra 27. september. "Ég hef sem betur ferið verið þátttakandi í þeim miklu breytingum sem hafa orðið á undanförnum árum. Ég var um tíma formaður sjávarútvegsnefndar og sit í sjávarútvegsnefnd, þannig að það er fátt sem kemur mér í rauninni á óvart." Innlent 14.10.2005 06:41
Menn vissu hvað gæti gærst Menn vissu nokkurn veginn fyrir hvað myndi gerast þegar fellibylur á borð við Katrínu gengi yfir suðurströnd Bandaríkjanna, segir Jónas Elíasson, verkfræðiprófessor við Háskóla Íslands, en málstofa um hamfarirnar verður haldin í dag. Erlent 14.10.2005 06:40
Mikið brottfall í inntökupróf Aðeins 51 umsækjandi af alls 140 sem sóttu um skólavist í Lögregluskóla ríkisins á næsta ári verða boðaðir til viðtals fyrir valnefnd en sú nefnd mun velja þá 32 hæfustu úr til að hefja nám árið 2006. Innlent 14.10.2005 06:41
Khodorkovskí vill á þing Rússneski olíujöfurinn Míkhaíl Khodorkovskí hefur í hyggju að bjóða sig fram til þings í aukakosningum í Moskvu sem fram fara í desember næstkomandi þrátt fyrir að vera í fangelsi. <em>Interfax</em>-fréttastofan hefur eftir lögfræðingi hans að hann hafi sent kjörstjórn viðeigandi skjöl, en kosningar um sæti í Dúmunni fara fram 4. desember. Erlent 14.10.2005 06:41
Fátæklegra þjóðlíf "Flokksstarfið, störf á þinginu og þjóðlífið verður mun fátæklegra þegar Davíð hverfur af þessum vettvangi," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður og borgarfulltrúi. Innlent 14.10.2005 06:41
Sprengjuhótun á spegli Sprengjuhótun fannst skrifuð á spegil á einu af salernum Boeing flugvélar íslenska flugfélagsins Atlanta sem lenti á Gatwick flugvelli um miðjan dag í gær. Innlent 14.10.2005 06:41
Brotthvarf Davíðs mikil tíðindi "Það eru auðvitað heilmikil pólitísk tíðindi þegar maður sem hefur sett jafnmikinn svip á stjórnmálin og Davíð Oddsson hefur gert er að hverfa af sjónarsviðinu," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. "Davíð er mjög öflugur og verðugur andstæðingur og ég mun auðvitað sakna hans af hinum pólitíska leikvangi. Innlent 14.10.2005 06:41
Talabani til Washington George Bush Bandaríkjaforseti tekur í næstu viku á móti Jalal Talabani, forseta Íraks, í Washington þar sem þeir munu ræða stöðu nýrrar stjórnarskrár í Írak og stríðið gegn hryðjuverkum. Nokkur styrr hefur staðið um íröksku stjórnarskrána sem samþykkt var á írakska þinginu síðasta mánuði og hafa súnnítar heitið því að vinna gegn því að hún verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu 15. október. Erlent 14.10.2005 06:41
Farið of geyst með ráðstöfun fjár Formaður Samfylkingarinnar telur ríkisstjórnina fara of geyst í að ráðstafa fénu, sem fékkst fyrir sölu Símans, fram í tímann. Hún telur farsælla að leggja peningana til hliðar og ávaxta þá fyrst um sinn í stað þess að ráðstafa fénu fram í tvö næstu kjörtímabil. Innlent 14.10.2005 06:41
Bilið milli fylkinga minnkar Heldur hefur dregið saman með kristilegum demókrötum og jafnaðarmönnum í Þýskalandi eftir sjónvarpskappræður leiðtoga flokkanna á sunnudagskvöld. Gerhard Schröder, núverandi kanslari, var almennt talinn hafa staðið sig heldur betur í kappræðunum en á móti kemur að Angela Merkel stóð sig samt betur en flestir höfðu átt von á. Erlent 14.10.2005 06:41
Seðlabankinn á kolrangri leið Seðlabankinn er á kolrangri leið í vaxtamálum, segir varaformaður fjárlaganefndar Alþingis. Húsnæðiskostnaður er aðal þensluhvatinn í efnahagslífinu, en þáttur stóriðjunnar er miklu minni en búist var við vegna fjölda erlendra starfsmanna. Lagt hefur verið til að fjölga þeim ennfrekar. Innlent 14.10.2005 06:41
Virði ákvörðun Davíðs "Davíð Oddsson á mjög farsælan feril í stjórmálum. Hann hefur verið í forystu íslenskra stjórnmála um langt skeið og reynst bæði traustur og úrræðagóður," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Innlent 14.10.2005 06:41