Fréttir
Boðað til kosninga á Grænlandi Hans Enoksen, forsætisráðherra grænlensku landsstjórnarinnar, boðaði í morgun til kosninga í landinu þann 22. nóvember næstkomandi eftir að viðræður stjórnarflokkanna um fjárlög sigldu í strand. Síúmútflokkur Enoksens og samstarfsflokkur hans í landsstjórninni, Inúítaflokkurinn, hafa deilt hart undanfarna mánuði eftir að upp komst að tveir ráðherrar í Síúmútflokknum hefðu misnotað almannafé. Erlent 14.10.2005 06:42
Átta saknað eftir slys við Síberíu Óttast er að átta manns hafi farist þegar yfirhlaðið fraktskip sökk undan ströndum Síberíu í Rússlandi í morgun. Um fimmtán manns voru um borð í skipinu þegar óhappið varð og í kringum 80 tonn af ýmsum varningi, en skipið hafði einungis heimild til að hafa um þrjátíu tonna farm. Mjög slæmt veður var á svæðinu þegar skipið sökk. Erlent 14.10.2005 06:42
Hlé verði gert á kjarnorkuviðræðum Hlé verður gert á morgun á viðræðum Norður-Kóreu við Rússa, Bandaríkjamenn, Suður-Kóreumenn, Kínverja og Japana um að Norður-Kórea láti af kjarnorkuáætlunum sínum ef ekki tekst að ná samkomulagi nú með kvöldinu. Fundir hafa staðið á milli þjóðanna hátt á annan mánuð og lítið hefur þokast í samningsátt. Erlent 14.10.2005 06:42
Grútur yfir gljáfægðan brúðarbíl Glansinn hvarf heldur betur af gljáfægðum væntanlegum brúðarbíl þegar hann mætti vörubíl með grútarfarmi á Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi. Í sama mund rann hluti farmsins af vörubílnum með þeim afleiðingum að brúðarbíllinn varð löðrandi í grút og fitu og lagði af honum mikinn fnyk langar leiðir. Innlent 14.10.2005 06:42
Gengisvísitala nærri lágmarki Krónan styrktist um 0,45 prósent í gær og er gengisvísitalan nú við sögulegt lágmark, en eftir því sem vísitalan er lægri er krónan sterkari. Dollarinn er nú kominn niður undir 62 krónur, evran í tæpar 76 og pundið í rúmar 112 krónur. Einu sinni áður hefur krónan verði álíka sterk, en það var í í mars á þessu ári. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Erlendir starfsmenn óvíða fleiri Erlendir ríkisborgarar á Íslandi eru tvöfalt fleiri nú en fyrir áratug. Hlutfall erlends vinnuafls er með því sem mest þekkist á Norðurlöndunum og töluvert hærra en í Danmörku. Tæp 3.000 störf eru laus á Íslandi. Sigríður Dögg Auðunsdóttir ræddi við sérfræðinga og rýndi í nýjar tölur. </font /></b /> Innlent 14.10.2005 06:42
57% vilja Vilhjálm í fyrsta sætið 52 prósent sjálfstæðsimanna í Reykjavík vilja sjá Gísla Martein Baldursson skipa fyrsta sæti á lista flokksins við komandi borgarstjórnarkosningar og 48 prósent Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Þetta er niðurstaða könnunar sem Gallup vann fyrir einkafyrirtæki og birt er í <em>Morgunblaðinu</em>. Dæmið snýst hins vegar við þegar borgarbúar úr öllum flokkum voru spurðir. Þá völdu rúmlega 57 prósent Vilhjálm og tæp 43 prósent Gísla Martein. Innlent 14.10.2005 06:42
Á tvöföldum hámarkshraða á Sæbraut Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt ökumann á Sæbraut á 132 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60. Han var því á ríflega tvöföldum hámarkshraða og var hann sviptur ökuréttindum á staðnum. Innlent 14.10.2005 06:42
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 53,9% 52 prósent Sjálfstæðismanna í Reykjavík vilja sjá Gísla Martein Baldursson skipa fyrsta sæti á lista flokksins í komandi borgarstjórnarkosningum og 48 prósent Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson. Þá mælist fylgi Sjálfstæðisflokksins í borginni tæplega 54 prósent. Innlent 14.10.2005 06:42
Unglingar til starfa á leikskólum Sautján ára unglingar og fólk sem talar litla íslensku hefur verið ráðið til starfa í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu undanfarið. Dæmi eru um að foreldrar hafi þurft að senda börn sín til Vestmannaeyja vegna manneklu á leikskólum. Innlent 14.10.2005 06:42
Heildarlaun VR-félaga hækka um 10% Heildarlaun félagsmanna í VR hafa hækkað um tíu prósent frá því í fyrra, þremur prósentum meira en almennt á vinnumarkaði. Innlent 14.10.2005 06:42
Herjólfur sigli tvisvar á dag Herjólfur fer tvær ferðir daglega milli lands og Vestmannaeyja frá og með næstu áramótum. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur beint þeim tilmælum til yfirmanna Vegagerðarinnar að þeir semji við Samskip um að fjölga ferðum. Þær eru nú 590 á ári, eða rúmlega ein og hálf ferð á dag að meðaltali. Samgönguráðherra hefur jafnframt skipað Guðjón Hjörleifsson, þingmann og fyrrverandi bæjarstjóra Vestmannaeyja, sem formann nýrrar nefndar sem á að leita leiða til að efla ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum. Innlent 14.10.2005 06:42
Létust í vinnuslysi í Svíþjóð Að minnsta kosti tveir menn létu lífið þegar þak hrundi á byggingarsvæði í Helsingborg í Suður-Svíþjóð í morgun. Erlent 14.10.2005 06:42
Íslenskir fjárfestar kaupa Merlin Hópur íslenskra fjárfesta undir forystu íslenska fjárfestingarfélagsins Árdegis tilkynnti í dag um kaup sín á raftækjaverslanakeðjunni Merlin af danska fyrirtækinu FDB. Fjárfestahópurinn samanstendur af Árdegi, Milestone og Baugi Group. Viðskipti innlent 14.10.2005 06:42
Ekki athugasemdir við orð Halldórs Davíð Oddssson, utanríkisráðherra, gerir engar athugasemdir við það að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra skyldi nefna framboð Íslands til öryggisráðsins á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Innlent 14.10.2005 06:42
Aldrei fleiri útlendingar Tuttugasti hver starfsmaður á Íslandi er útlendingur og er hlutfallið það næsthæsta á Norðurlöndunum. Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi eru tvöfalt fleiri nú en fyrir áratug. </font /></b /> Innlent 14.10.2005 06:42
Óljós afstaða í flugvallarmáli Samgönguráðherra telur augljóst að innanlandsflugið flytjist til Keflavíkur ef það fer yfirhöfuð úr Reykjavík. Fyrir tveimur vikum sagðist hann þó ekki vilja bera ábyrgð á því. Innlent 14.10.2005 06:42
Tveir ráðherrar segja af sér Boðað hefur verið til kosninga á Grænlandi. Hans Enoksen landsstjórnarformaður tilkynnti þetta á fjárlagafundi í Landsþinginu nýverið. Kosningar til Landsþings verða haldnar þann 22. nóvember næstkomandi. Erlent 14.10.2005 06:43
Og Vodafone og Neyðarlínan semja Og Vodafone og Neyðarlínan hafa gengið frá samningi sem gerir Neyðarlínunni kleift að staðsetja farsíma Og Vodafone um leið og hringt er í 112. Innlent 14.10.2005 06:42
Dó úr fuglaflensu í Indónesíu Yfirvöld á Indónesíu staðfestu í morgun fjórða dauðsfallið í landinu af völdum fuglaflensu. Þá er annar maður smitaður af flensunni í landinu og staðfest hefur verið að banamein konu sem lést í síðustu viku hafi verið fuglaflensa. Heilbrigðisyfirvöld á Indónesíu óttast er að faraldur sé í aðsigi. Alls hafa nú 64 látist af völdum fuglaflensu í Asíu síðan hennar varð fyrst vart árið 2003. Erlent 14.10.2005 06:42
Stjórnkerfið brást í Bandaríkjunum Stjórnkerfið brást að öllu leyti eftir náttúruhamfarirnar við Mexíkóflóa, viðurkenndi George Bush, forseti Bandaríkjanna, í sjónvarpsávarpi í gærkvöldi. Bush sagði að sem forseti landsins bæri hann ábyrgðina á því sem miður fór. Erlent 14.10.2005 06:42
Tók af öll tvímæli um framboð Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tók í gærkvöldi af öll tvímæli um framboð Íslendinga til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar hann lýsti því yfir á leiðtogafundi samtakanna að Íslendingar ætluðu að bjóða sig fram. Verðandi utanríkisráðherra vill ekki tjá sig um málið. Innlent 14.10.2005 06:42
Fengu samanlagt 67 ár fyrir rán Mennirnir sem reyndu stærsta rán í sögu Bretlands voru í dag dæmdir til samanlagt 67 ára fangelsisvistar. Mennirnir reyndu að ræna gullstöngum, sem metnar eru á 3,7 milljarða króna, úr geymslu á Heathrow-flugvelli. Ræningjarnir voru handteknir þegar þeir hlóðu gullinu í sendibíl. Níu tóku þátt í ráninu. Átta þeirra voru dæmdir í dag en einn hefur aldrei náðst. Erlent 14.10.2005 06:42
Húsleit í Sarajevo Herlið NATO framkvæmdi leit á heimili Mladjens Kendjic í gær. "Kendjic var einn af lífvörðum Ratko Mladic, fyrrum hershöfðingja, og er hann grunaður um að veita Mladic stuðning enn þann dag í dag," segir Derek Chappel, erindreki NATO í Sarajevo. Erlent 14.10.2005 06:43
Fjórar Harrier herþotur lentu í Reykjavík Fjórar Harrier herþotur frá breska flughernum lentu í Reykjavík kl 14:57 í dag. Á vef Flugmálastjórnar segir að þoturnar hafi verið að koma frá Kinnloss á Bretlandseyjum á leið til Keflavíkur. Þar gátu þær hins vegar ekki lent vegna lélegs skyggnis. Flugvélarnar munu taka eldsneyti í Reykjavík og halda svo til Keflavíkur um leið og veðurskilyrði leyfa. Innlent 14.10.2005 06:42
Fékk brunnlok í sig í miðbænum Betur fór en á horfðist þegar strætisvagni var ekið á brunnlok á mótum Tjarnargötu og Skothúsvegar í Reykjavík rétt fyrir klukkan níu í morgun. Brunnlokið skaust upp og lenti á manni sem var á gangi í grenndinni. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík meiddist maðurinn þó ekki alvarlega og var hann með góða meðvitund þegar hann var fluttur á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar. Innlent 14.10.2005 06:42
Guttormur allur Ástsælasti boli landsmanna, Guttormur í Húsdýragarðinum, var felldur í morgun og borinn til grafar í dýragrafreitnum að bænum Hurðarbaki í Kjós. Innlent 14.10.2005 06:42
Boðaði framboð í öryggisráð Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tók í gærkvöldi af skarið með framboð Íslendinga til setu í Öryggisráði Sameinuðuþjóðanna þegar hann lýsti því yfir á leiðtogafundi samtakanna að Íslendingar ætluðu að bjóða sig fram. Miðað er við kjörtímabilið 2009 til 2010. Innlent 14.10.2005 06:42
Pattstaða sennileg í Þýskalandi Síðustu skoðanakannanir fyrir þingkosningarnar í Þýskalandi sýndu að óvíst er að stjórnarandstaðan nái meirihluta þótt stjórnin falli. Það gæti vel farið svo að upp komi pattstaða með vinstrisósíalista í oddaaðstöðu. Erlent 14.10.2005 06:43
Kynbundinn launamunur 14 prósent Kynbundinn launamunur er 14 prósent samkvæmt launakönnun VR. Heildarlaun hafa hækkað um tíu prósent á milli ára og sýnir könnunin að þeir sem fóru í starfsmannaviðtal á síðasta ári eru með fjórum prósentum hærri laun en þeir sem ekki fóru í viðtal. Innlent 14.10.2005 06:42