Fréttir
Stjórnarstefnan ógn við samninga Röng stjórnarstefna hefur leitt til þess að verðbólga er tvöfalt hærri en gert var ráð fyrir þegar kjarasamningar voru undirritaðir. Það er því röng stjórnarstefna sem gerir að verkum að kjarasamningum kann að verða sagt upp um áramót, segir í harðorðri ályktun frá stjórn stéttarfélagsins Eflingar. Innlent 23.10.2005 15:02
Markmiðið að lækka lyfjaverð Lyfjaverð í heildsölu á Íslandi nálgast nú meðalverð á Norðurlöndunum en fyrir ári náðist tímamótasamkomulag á milli lyfjahóps Félags Íslenskra stórkaupmanna fyrir hönd frumlyfjaframleiðenda og Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Innlent 23.10.2005 15:01
Ríkisstjórnin sögð í afneitun Ráðgert er að ríkissjóður verði rekinn með liðlega 14 milljarða króna afgangi árið 2006. Í fjárlagafrumvarpi, sem Árni Mathiesen fjármálaráðherra lagði fram á alþingi í gær, eru tekjur ríkissjóðs á næsta ári áætlaðar alls um 327 milljarðar króna en útgjöld um 313 milljarðar. Innlent 23.10.2005 15:01
Lýst eftir stöðugleika Formaður Samfylkingarinnar lýsir eftir stöðugleika ríkisstjórninarinnar, misskipting sé að aukast, verðbólgan aukist, vextir hækki og skuldir heimilanna vindi stöðugt utan á sig. Formaður Vinstri - grænna segir ríkisstjórnina í afneitun á jafnvægisleysið í efnahagslífinu. Öll met hafi verið slegin í skuldasöfnun en munurinn sé sá að þær hafi nú lagst á sveitarfélögin og heimilin í landinu. Innlent 23.10.2005 15:01
Ólafsfirðingar án sýslumanns Ólafsfirðingar eru ósáttir við að hafa engan sýslumann með aðsetur í bænum eftir að Ástríður Grímsdóttir, sýslumaður þeirra, ákvað að hverfa til annarra starfa áður en skipunartímabili hennar lauk. Í kjölfarið var ákveðið að Ólafsfjörður heyri, í það minnsta fyrst um sinn, undir sýslumanninn á Akureyri. Innlent 23.10.2005 15:01
Starfsmenn bíða eftir niðurstöðu Starfsmenn Slippstöðvarinnar bíða þess nú að gjaldþrotabeiðni fyrirtækisins verði tekinn til skoðunar. Til stóð að beiðnin yrði tekin fyrir nú klukkan 10. Innlent 23.10.2005 15:01
Íraksstríðið spillti fyrir Ofuráhersla á Írak spillti stórlega fyrir björgunaraðgerðum vegna fellibylsins Katrínar, samkvæmt nýrri skýrslu frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu sem breska blaðið<em> Independent</em> hefur komist yfir. Erlent 23.10.2005 15:01
Fjárlagafrumvarpið kynnt í dag Árni Mathiesen leggur í dag fram sitt fyrsta fjárlagafrumvarp eftir að hann tók við lyklavöldum í fjármálaráðuneytinu úr hendi Geirs H. Haarde fyrir nokkrum dögum. Frumvarpið verður lagt fyrir Alþingi klukkan þrjú í dag. Innlent 23.10.2005 15:01
Forskot kristilegra eykst Forskot Kristilegra demókrata eftir þingkosningarnar í Þýskalandi jókst um eitt sæti í gær þegar ljóst varð að þeirra maður hefði sigrað í Dresden. Þó að sigurinn í gær sé aðeins dropi í hafið, og breyti í raun engu, munu Kristilegir demókratar líta á sigurinn sem enn frekari sönnun þess að Angela Merkel, leiðtogi þeirra, eigi að verða næsti kanslari Þýskalands. Erlent 23.10.2005 15:01
Mandela leiðtogi heimsins Nelson Mandela fékk flest atkvæði í könnun BBC á því hverjir ættu að sitja í „heimsríkisstjórninni“, ef slík stjórn væri sett á laggirnar. Hins vegar virðist ekki vera vilji fyrir því að kona sitji í slíkri stjórn. Erlent 23.10.2005 15:01
Sterkur ríkissjóður í þöndu kerfi "Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2006 er lagt fram með 14,2 milljarða króna tekjuafgangi og felur því í sér áframhaldandi aðhald í ríkisfjármálum og sífellt sterkari stöðu ríkissjóðs. Stefnan í ríkisfjármálum hefu stuðlað að stöðugleika samhliða öflugum hagvexti..." Innlent 23.10.2005 15:01
Aðalmeðferð í máli gegn ritstjórum Í morgun fór fram aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í meiðyrðamáli Ásmundar Gunnlaugssonar jógakennara á hendur Illuga Jökulssyni og Mikael Torfasyni, þáverandi ritstjórum DV. Ásmundur kærði ritstjórana fyrir fyrirsögn á forsíðu 6. október 2004 þar sem stóð að hann hefði tryllst hjá sýslumanni og verið leiddur burt í lögreglufygld. Innlent 23.10.2005 15:01
Handtóku háttsettan ETA-liða Franska lögreglan handtók í dag þrjá félaga í aðskilnaðarhreyfingu Baska, ETA, í bænum Aurillac í Mið-Frakklandi. Þar á meðal var næstæðsti maður innan samtakanna, Harriet Agurrie, en hún er m.a. grunuð um að hafa skipulagt morð á varaborgarstjóra á Spáni. Þá lagði lögregla einnig hald á skotvopn við handtökurnar. Erlent 23.10.2005 15:01
Réttarhöld hefjast 19. október Sérstakur dómstóll, sem fjalla á um glæpi Saddams Husseins, fyrrverandi forseta Íraks, staðfesti í dag að réttarhöld í máli hans myndu hefjast 19. október næstkomandi. Réttað verður yfir Husseins og sex meintum samstarfsmönnum hans vegna dauða 143 sjíta sem drepnir voru í þorpinu Dujail árið 1982 eftir að forsetanum var sýnt banatilræði þar. Erlent 23.10.2005 15:01
Krefjast afturköllunar veiðileyfis Dýraverndarsamband Íslands krefst þess að umhverfisráðuneytið afturkalli þegar leyfi til kanínuveiða í Vestmannaeyjum, enda brjóti það í bága við lög. Kanínur séu búfé ellegar gæludýr og verndaðar samkvæmt þrennum íslenskum lögum. Innlent 23.10.2005 15:01
Líklegt að Slippstöðin hætti Líklegt er talið að Slippstöðin hætti starfsemi og um eitt hundrað starfsmenn fyrirtækisins verði sendir heim eftir að gjaldþrotabeiðni var samþykkt í héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Skipaður skiptastjóri þrotabúss Slippstöðvarinnar fundar með starfsmönnum klukkan þrjú í dag. Innlent 23.10.2005 15:01
Einar Oddur styður tillögu SUS Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist munu styðja tillögu Sambands ungra sjálfstæðismanna um að íslensk stjórnvöld hverfi frá framboði til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Innlent 23.10.2005 15:01
Tuttugu létust í sjóslysi Tuttugu eldri borgarar létust þegar skemmtiferðabátur fór á hvolf í New York fylki í gær. Atvikið henti svo snöggt að enginn náði að fara í björgunarvesti í tæka tíð. Erlent 23.10.2005 15:01
Jónína hættir við framboð Jónína Benediktsdóttir er hætt við framboð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Hún vildi ekki greina frá því skömmu fyrir fréttir hvers vegna hún hefði hætt við framboð en sagðist myndu gera það síðar. 24 eru í framboði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, nítján karlmenn og fimm konur. Innlent 23.10.2005 15:01
Deyddu fóstur dóttur sinnar Foreldrar ungrar sænskrar konu í Kongsbacka í Svíþjóð misþyrmdu henni illilega og ollu henni fósturláti eftir að hún hafði tilkynnt þeim að hún væri ófrísk eftir araba. Foreldrarnir réðust einnig á unnusta konunnar og kölluðu hann öllum illum nöfnum með vísan til þjóðernis hans. Erlent 23.10.2005 15:01
Drukknuðu í Lake George Tuttugu eldri borgarar drukknuðu þegar skemmtibáti hvolfdi eftir að alda frá stærri báti skall á honum á Lake George í New York ríki í gær. Rannsókn er hafin á því hvernig þetta gat gerst en bátnum hvolfdi mjög hratt og því höfðu nær fimmtíu farþegar í bátnum, flestir þeirra eldri borgarar, ekki tíma til að fara í björgunarvesti. 28 komust lífs af úr harmleiknum en sjö þeirra liggja þungt haldnir á sjúkrahúsi. Erlent 23.10.2005 15:01
Allt að 80% munur á verði Fólk getur sparað sér allt að 4400 krónur við skiptingu á hjólbörðum, umfelgun og jafnvægisstillingu á bílum sínum ef það kannar fyrir fram hversu mikið hjólbarðaverkstæði rukka fyrir þjónustuna. Munur á hæsta og lægsta verði er frá 30 og upp í 80 prósent samkvæmt nýrri könnun Alþýðusambands Íslands. Innlent 23.10.2005 15:01
Gasknúin rúta sprakk Tuttugu og einn farþegi í rútu, sem knúin var áfram af gasi, lést þegar rútan lenti í árekstri við aðra rútu í vesturhluta Tadsjikistan, nærri höfuðborginni Dushanbe, í gær. Haft er eftir lögreglu á þessum slóðum að kraftur sprengingarinnar hafi verið slíkur að einungis hafi verið hægt að bera kennsl á fimmtán líkanna. Erlent 23.10.2005 15:01
28 uppreisnarmenn drepnir Afganski herinn drap tuttugu og átta uppreisnarmenn nærri landamærum Pakistans um helgina. Herinn gerði áhlaup á vígi uppreisnarmanna í kjölfar þess að ráðist var á herstöð nærri landamærunum. Erlent 23.10.2005 15:01
Erill hjá sjúkraflutningamönnum Mikill erill var hjá sjúkraflutningamönnum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu um helgina og um tíma dugðu ekki fjórir bílar á vakt til að anna flutningsþörfinni. Útköll voru um tvöfalt fleiri en á venjulegum virkum dögum. Innlent 23.10.2005 15:01
Villandi upplýsingar ráðherrans Lars Barfoed, neytendamálaráðherra Danmerkur, hefur orðið uppvís að því að hafa gefið danska þinginu villandi upplýsingar varðandi pólsk hindber sem í maí ollu því að yfir þúsund manns veiktust alvarlega og fimm dóu. Erlent 23.10.2005 15:01
25 í framboði hjá D-lista Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík rann út klukkan 17 síðastliðinn föstudag. Þrír af núverandi borgarfulltrúum flokksins bjóða sig ekki fram að þessu sinni, þau Björn Bjarnason, Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson. Innlent 23.10.2005 15:01
Koma að deilu Tyrkja og ESB Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa nú hlutast í málefni Tyrkja og Evrópusambandsins. Aðeins nokkrum klukkustundum áður en aðildarviðræður áttu að hefjast milli Tyrkja og Evrópusambandsins er málið allt í hinum mestu ógöngum. Austurríkismenn standa í vegi fyrir viðræðunum, en öll aðildarlöndin tuttugu og fimm þurfa að samþykkja viðræðurammann. Erlent 23.10.2005 15:01
Ljúka ekki verkum sem hafin voru Slippstöðin á Akureyri var úrskurðuð gjaldþrota í morgun. Skiptastjóri þrotabúsins óskaði ekki eftir því að starfsmennirnir lykju þeim verkum sem hafin voru. Innlent 23.10.2005 15:01
Hætti kjarnorkusamvinnu við Írana Bandaríkjastjórn hefur hvatt öll ríki sem koma að kjarnorkumálaáætlun Írana til þess að hætta allri samvinnu við Írana þar sem þeir hafi ekki sýnt fram á með óyggjandi hætti að ekki stæði til að framleiða kjarnorkuvopn. Erlent 23.10.2005 15:01