Fréttir
Rúmlega fimmtán þúsund sóttu Októberbíófest Októberbíófest lauk formlega í gær. Hátíðin stóð yfir frá 26. október í Háskólabíói og Regnboga og hlaut hún frábærar viðtökur hjá áhorfendum, erlendum gestum og gagnrýnendum. Alls sóttu 15.500 manns hátíðina sem gerir hana að annarri aðsóknarhæstu hátið þessa árs. Innlent 17.11.2005 16:58
Góð rekstrarafkoma Hafnarfjarðarbæjar Á fundi bæjarráðs Hafnarfjarðar í morgun, fimmtudaginn 17. nóvember, var lagt fram 9 mánaða uppgjör Hafnarfjarðarbæjar. Niðurstöðurnar eru jákvæðar fyrir bæjarfélagið og gefa fyrirheit um góða afkomu bæjarins. Innlent 17.11.2005 16:52
Handtekinn fyrir að afneita helförinni Sagnfræðingurinn breski, David Irving, hefur verið handtekinn í Austurríki fyrir að afneita helförinni. Irving vakti fyrst athygli árið 2000 þegar hann lögsótti Bandaríkjakonuna Deborah Lipstadt fyrir að segja hann afneita helförinni. Hann tapaði málinu og dómarinn sagði hann ekki bara afneita helförinni heldur væri hann gyðingahatari og rasisti og að hann tengdist hægri öfgamönnum sem styðja ný-nasisma. Erlent 17.11.2005 17:17
Gæsluvarðhald staðfest Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir albönskum karlmanni sem grunaður er um morð í Grikklandi. Innlent 17.11.2005 17:10
Leiðtogi stjórnarandstöðu Úganda enn í fangelsi Bandaríkin krefjast skjótra réttarhalda yfir leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Úganda, Dr. Kizza Besigye. Forseti Úganda, Yoweri Museveni, lét handtaka Dr. Besigye, eftir að hann sneri aftur úr fimm ára útlegð sem hann lagðist í eftir að hafa boðið sig fram í forsetakosningum gegn forsetanum. Hann er kærður fyrir landráð og nauðgun. Eiginkona Dr. Besigye, og fyrrum þingkona, Winnie Banyima, segir ákærurnar tilbúning. Dr. Besigye er helsta ógn Museveni í komandi kosningum snemma á næsta ári. Erlent 17.11.2005 17:00
Flestir þreyttu samræmdu prófin 97 prósent nemenda í fjórða og sjöunda bekk grunnskóla þreyttu samræmd próf í stærðfræði og íslensku í síðasta mánuði. Einn af hverjum þrjátíu nemendum fékk hins vegar undanþágu frá Námsmatsstofnun og þurfti því ekki að þreyta prófin. Innlent 17.11.2005 16:45
Gary Neville snýr aftur í kvöld Gary Neville mun í kvöld leika sinn fyrsta leik síðan í ágúst, þegar hann leikur með varaliði Manchester United gegn West Brom. Neville meiddist á nára í leik gegn Villareal í Meistaradeildinni, en er nú óðum að braggast. Þá er fyrirliðinn Roy Keane farinn að æfa á ný eftir að hafa verið meiddur lengi, en nokkuð er í að hann geti byrjað að spila. Sport 17.11.2005 13:18
N-Kóreubúar losi sig við kjarnorkuvopn Kjarnorkuvopn í Norður-Kóreu eru óásættanleg segja George W. Bush, forseti Bandaríkjanna og Roh Moo Hyun, forseti Suður-Kóreu. George W. Bush segir að Norður-Kóreubúar muni ekki fá kjarnakljúf sem þeir vilja til orkuframleiðslu fyrr en þeir geti sannað að þeir hafi bæði afvopnast kjarnorkuvopnum og hætt kjarnorkuáætlunum sínum. Erlent 17.11.2005 16:34
Íslandsbanki metinn á rúmlega 200 milljarða Íslandsbanki er nú metinn á tæplega tvöhundruð og fimmtán milljarða króna eftir níu mánaða uppgjör félagsins. Miðað er við 16,8 krónur á hlut á 12.783 milljóna útistandandi hlutafé í lok september.Greiningardeild Íslandsbanka vann verðmatið og segir talsvert breyttar forsendur liggja að baki nýju mati miðað við þær forsendur sem gerðar voru í síðasta verðmati í lok desember 2004. Innlent 17.11.2005 16:32
Flóttamenn koma til Reykjavíkur Borgarstjóri og félagsmálaráðherra undirrituðu í dag samning þess efnis að Reykjavíkurborg tekur á móti flóttamönnum sem koma hingað til lands á næsta ári. Flóttamennirnir munu dvelja í Reykjavík og njóta þjónustu borgarinnar og Rauða kross Íslands. Innlent 17.11.2005 16:17
Fékk einn mánuð fyrir fíkniefnasölu Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi mann á þrítugsaldri í eins mánaðar fangelsi fyrir vörslu fíkniefna af ýmsu tagi. Hafði hann innanklæða E- pillur, amfetamín og kókaín. Einnig var hann ákærður fyrir að hafa selt tveimur aðilum E-pillur. Ákærði játaði sök og var dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelisisvistar. Litið var til þess í dómnum að hann hafði ekki gerst brotlegur áður. Innlent 17.11.2005 16:10
Hefur ekki áhyggjur af miklu álagi Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að hann hafi ekki áhyggjur af því auka álagi sem fylgir þáttöku Liverpool í heimsmeistaramóti félagsliða sem fram fer í Japan dagana 15.-18 desember næstkomandi. Sport 17.11.2005 11:09
Væntingar stjórnenda stórfyrirtækja góðar Í nýlegri Gallup könnun þar sem könnuð var staða og framtíðarhorfur stærstu fyrirtækja landsins kemur fram að forráðamenn fyrirtækjanna telja aðstæður í efnahagslífinu í dag almennt góðar. Sjötíu prósent aðspurðra voru bjartsýnir en um tuttugu prósent telja aðstæður hins vegar slæmar. Innlent 17.11.2005 15:52
Versta frammistaða sem ég hef séð John Toshack, landsliðsþjálfari Wales, sagði að frammistaða leikmanna sinna í tapinu gegn Kýpur í gær, hefði verið sú versta sem hann hefði séð á ævi sinni. Wales tapaði 1-0, en þetta var vináttuleikur þjóðanna. Sport 17.11.2005 10:53
Hoyzer dómari í fangelsi í á þriðja ár Knattspyrnudómarinn Robert Hoyzer var í dag dæmdur í tveggja ára og fimm mánaða fangelsi fyrir að taka við mútugreiðslum í níu leikjum sem hann dæmdi á síðasta ári. Sport 17.11.2005 12:37
Krókódíll veldur usla á flugvallarsvæði í Miami Heldur óvenjulegur gestur komst inn á flugvöll í Miami í Bandaríkjunum í gær. Um var að ræða tæplega tveggja metra krókódíl sem hafði komið sér inn á flugvallarsvæðið og ætt yfir nokkrar af flugbrautunum áður en hann kom sér fyrir á grasflöt á vallarsvæðinu. Erlent 17.11.2005 13:53
David Duval í forystu í Japan Kylfingurinn David Duval er mjög óvænt í forystu á Dunlop Phoenix mótinu í golfi sem fram fer í Japan um þessar mundir. Duval lék fyrsta hringinn í gær á 64 höggum, eða sex höggum undir pari. Hann hefur eins höggs forystu á Tiger Woods, sem hefur titil að verja á mótinu. Sport 17.11.2005 13:27
Landsliðshópurinn valinn í dag Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari hefur gert fjórar breytingar á leikmannahóp sínum sem keppir þrjá æfingaleiki við Norðmenn hérlendis dagana 25.-28 nóvember, en í dag tilkynnti hann 16 manna hóp sinn. Sport 17.11.2005 12:15
Ásthildur Helgadóttir á leið í Kópavoginn Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur boðað til blaðamannafundar í íþróttahúsinu í Smáranum nú klukkan fjögur síðdegis þar sem tilkynnt verður að besta knattspyrnukona landsins, Ásthildur Helgadóttir, muni ganga í raðir félagsins. Ásthildur hefur spilað sem atvinnumaður í Svíþjóð undanfarið, en hefur hug á að ljúka ferlinum hér heima. Sport 17.11.2005 12:49
Styrktu hjálparstarf í Pakistan í stað þess að setja upp jólaseríu Íbúar að Miðleiti 5-7 ákváðu að gefa gefa fórnarlömbum jarðskjálftans í Pakistan 50 þúsund krónur í stað þess setja jólaseríu á sameign hússins eins og gert hefur verið undanfarin ár. Innlent 17.11.2005 12:11
Þrír árekstrar í grækvöldi Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir þrjá harða árekstra í gærkvöldi. Þar af slasaðist einn lífshættulega í árekstri tveggja bíla á Kársnesbraut í Kópavogi á móts við Norðurver. Innlent 17.11.2005 12:04
Fleiri hyrðjuverkaárásir mjög líklegar í Bretlandi Hver einasta borg í Bretlandi er í hættu, segir yfirmaður lögreglunnar í Lundúnum. Hann segir aðeins tímaspursmál hvenær næsta hryðjuverkaárás verði gerð. Erlent 17.11.2005 10:43
Vilja erlenda fjárfesta til að fjárfesta í Úkraínu Öflug markaðsherferð er hafin í Úkraínu við að fá erlenda viðskiptajöfra til að fjárfesta í landinu. Forseti Úkraínu segir forgangsverkefni að komast inn í Evrópusambandið. Erlent 17.11.2005 10:39
Dýrara að taka húsnæðislán hér á landi en í nágrannalöndunum Það hallar verulega á íslenska neytendur þegar kemur að húsnæðislánunum, segir í helstu niðustöðum skýrslu sem neytendasamtökin hafa unnið í samvinnu við neytendasamtök í Evrópu. Innlent 17.11.2005 10:41
Níu manns hafa látist af völdum malaríu á Haítí Að minnsta kosti níu manns hafa látist af völdum malaríu á Haítí í mánuðinum. Óttast yfirvöld að talan eigi eftir að hækka mikið. Erlent 17.11.2005 10:36
Íhuga að koma upp lokunarbúnaði á vegum þegar ófærð er Lögreglan í Borgarnesi og Vegagerðin íhuga að koma upp afgerandi lokunarbúnaði til að loka vegum þegar ófært er eða hætta er á ferðum, þar sem margir ökumenn virða að vettugi upplýsingaskilti, sem vara við vá eða slæmum skilyrðum. Innlent 17.11.2005 10:45
Stjórnarandstaða Kanada vill fella stjórnina Stjórnarandstaðan í Kanada mun að öllum líkindum fella frjálslynda minnihlutastjórn Paul Martin og koma af stað nýjum kosningum. Samkvæmt samkomulagi sem Íhaldsflokkurinn hefur gert við tvo aðra stjórnarandstöðuflokka verður forsætisráðherrann, Paul Martin, beðinn um að leysa upp þingið í janúar og hafa kosningar í febrúar. Verði hann ekki við þessari beiðni mun stjórnarandstaðan lýsa yfir vantrausti á stjórnina. Forsætisráðherrann er ekki andsnúinn kosningum en vill fremur hafa þær í apríl í þeirri von að reiði almennings vegna hneykslis er varðar misnotkun stjórnarflokksins á almannafé hafi rénað. Erlent 16.11.2005 22:59
Undirgöngin loguðu í slagsmálum Landslið Tyrkja og Svisslendinga eiga ekki von á góðu frá Alþjóða Knattspyrnusambandinu eftir að uppúr sauð milli leikmanna og starfsmanna þegar þeir gengu af velli eftir viðureign liðanna í gær. Sport 17.11.2005 09:46
Vill leyfa norskum lesbíum að gangast undir tæknifjóvgun Jafnréttismálaráðherra Noregs, segir ríkisstjórn landsins verða að leyfa eigi lesbíum að gangast undir tæknifrjóvgun. Skiptar skoðanir eru um málið innan ríkisstjórnarinnar. Erlent 17.11.2005 10:37
Guðjón Valur skoraði 12 í sigurleik Landsliðsmaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson heldur uppteknum hætti með liði sínu Gummersbach í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik, en Guðjón skoraði 12 mörk í sigri liðsins á Willemshaven í gærkvöld 28-21. Sport 17.11.2005 10:16