Fréttir
Yfir 40 milljónir manna hafa greinst með HIV veiruna 4,9 milljónir manna hafa greinst með HIV veiruna það sem af er þessu ári. Þar með er fjöldi HIV-smitaðra kominn upp í 40,3 milljónir um heim allan. Yfir 3,1 milljón manns hafa látist af völdum eyðni á árinu, þar af 570.000 börn. Erlent 21.11.2005 11:13
Umdeildar kosningar í Kenýa Umdeildar kosningar fara fram í Kenýa í dag, þegar kosið er um nýja stjórnarskrá í landinu sem mun styrkja stöðu forsetans. Forsetinn, Mwai Kibaki, hefur kallað kosningarnar sögulegt tækifæri en stjórnarandstæðingar vilja að forseti deili valdinu með lýðræðislega kjörnum forsætisráðherra. Miklar óeirðir hafa átt sér stað að undanförnu vegna kosninganna þar sem níu manns hafa látist. Innlent 21.11.2005 10:14
Helmingi fleiri háskólamenntaðir 23 prósent íbúa höfuðborgarsvæðisins eru háskólamenntuð en aðeins tólf prósent íbúa landsbyggðarinnar. Rúmlega helmingur landsbyggðarfólks hefur aðeins lokið grunnnámi en þriðjungur íbúa höfuðborgarsvæðisins. Innlent 21.11.2005 07:30
Á fjórða þúsund tilkynningar Barnaverndarnefndir fengu 3.648 tilkynningar vegna 3.576 barna fyrstu níu mánuði ársins. Sautján prósent tilkynninga sneru að ofbeldi gagnvart börnum, tæpur helmingur að áhættuhegðun barna og 36 prósent að vanrækslu barna. Innlent 21.11.2005 06:48
Einkaleyfi Lego útrunnið Hæstiréttur Kanada dæmdi Lego framleiðendum í óhag í málssókn fyrirtækisins gegn kanadískum kubbaframleiðenda. Lego hafði krafist lögbanns á kubba framleiðandans þar sem kubbarnir þóttu of líkir Legokubbunum. Kanadíski dómstóllinn sagði einkaleyfi Lego útrunnið og að tími frjálsrar samkeppni á kubbamarkaði væri runninn upp. Innlent 21.11.2005 07:36
Allir komnir með atvinnuleyfi Allir pólsku verkamennirnir sem komu til starfa á Akranesi og í nágrenni á vegum starfsmannaleigunnar 2B eru komnir með atvinnuleyfi og ráðningarsamning við þau fyrirtæki sem þeir starfa hjá. Innlent 21.11.2005 06:21
Ofbeldi í skoskum skólum 36 kennarar og 40 nemendur þurftu að leita á sjúkrahús í fyrra vegna árása af hálfu nemenda í Skotlandi. Þá þurftu 53 skólastarfsmenn á einhverri aðstoð að halda eftir árásir, þótt þeir hefðu ekki farið á spítala. Skólastjórar í Skotlandi hafa gagnrýnt yfirvöld fyrir að sýna ofbeldisfullum nemendum of mikla vægð og kennarasambandið segir að ofbeldi innan bekkja sé alls ekki tekið nógu alvarlega. Innlent 21.11.2005 07:36
Sharon segir af sér Ariel Sharon forsætisráðherra Ísraels hefur sagt af sér og krafist þess að þing verði rofið. Þetta gerði hann á fundi með Moshe Katsav, forseta landsins nú í morgun. Erlent 21.11.2005 07:15
Peningafalsarar handteknir í Kólumbíu Kólumbíska lögreglan réðst inn á starfsemi peningafalsara, handtók fimm manns og gerði þrjár milljónir dollara í fölsuðum peningaseðlum upptæka. Handtakan var afleiðing ítarlegrar rannsóknar af hálfu kólumbískra yfirvalda og leyniþjónustu Bandaríkjamanna. Talið er að fjörutíu prósent falsaðra seðla sem eru í gangi í heiminum séu framleiddir í Kólumbíu Erlent 21.11.2005 07:12
Umdeildar kosningar í Kenýa Umdeildar kosningar fara fram í Kenýa í dag, þegar kosið er um nýja stjórnarskrá í landinu sem mun styrkja stöðu forsetans. Forsetinn, Mwai Kibaki, hefur kallað kosningarnar sögulegt tækifæri en stjórnarandstæðingar vilja að forseti deili valdinu með lýðræðislega kjörnum forsætisráðherra. Miklar óeirðir hafa átt sér stað að undanförnu vegna kosninganna þar sem níu manns hafa látist. Erlent 21.11.2005 06:46
Tveir drengir í Grafarvogi hætt komnir vegna elds Tveir þrettán ára drengir voru hætt komnir þegar eldfimt efni fuðraði upp í höndum þeirra í Bryggjuhverfinu við Grafarvog í gærkvöldi. Eldur læstist í föt þeirra, einkum annars, og hljóp hann logandi í sjóinn. Fjölmennt björgunarlið var kallað á staðinn og voru piltarnir fyrst fluttir á Slysadeild og þaðan á brunadeild Landsspítalans, þar sem þeir dvelja. Innlent 21.11.2005 06:24
Ofdrykkja unglinga vaxandi vandi í Danmörku Alltof margir danskir unglingar þjást oft og illa af timburmönnum að mati danskra heilbrigðisyfirvalda. Sjötti hver karl og sjöunda hver kona á aldrinum fimmtán til nítján ára innbyrða of mikið áfengi og hafa þurft læknishjálp vegna áfengiseitrunar. Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa reynt að sporna við ofdrykkju með látlausum auglýsingum undanfarin ár en segja það lítið gagn gera því á umliðnum tíu árum hafa áttatíu þúsund danir verið hætt komnir vegna áfengiseitrunar. Innlent 21.11.2005 06:39
Karlmaður dæmdur fyrir líkamsárás á fyrrum sambýliskonu Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjanes í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa veitt fyrrum sambýliskonu sinni líkamlega áverka, hótað henni lífláti og meinað henni að yfirgefa íbúð hans. Haldi hann skilorði í þrjú ár, fellur refsingin niður. Innlent 21.11.2005 18:07
Fram sigraði ÍR Fram vann góðan sigur á ÍR í DHL-deild karla í handbolta í Austurbergi í kvöld, 38-32. Sergiy Serenko skoraði 8 mörk fyrir Fram og Haraldur Þorvarðarson og Jóhann Einarsson skoruðu 7 hvor, en hjá heimamönnum voru þeir Ólafur Sigurjónsson og Andri Númason með sex mörk hvor. HK sigraði FH í Digranesi 29-26. Sport 20.11.2005 21:01
Hitzfeld segir Manchester United hafa boðið sér starf Ottmar Hitzfeld, fyrrum þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern Munchen, segir að forráðamenn Manchester United hafi boðið sér starf hjá félaginu. Sport 20.11.2005 20:04
Lokadeginum aflýst og Wales sigraði Kylfingarnir Stephen Dodd og Bradley Dredge frá Wales höfðu sigur á heimsbikarmótinu í golfi sem var blásið af í dag vegna veðurs. Þetta var í annað skipti sem Wales vinnur sigur á mótinu, en síðast gerðist það fyrir um 20 árum síðan. Englendingarnir Luke Donald og David Howell urðu í öðru sæti á mótinu. Sport 20.11.2005 19:36
Eitt Íslandsmet á lokadeginum Meistaramóti Íslands í sundi lauk í Laugardalslauginni í dag, Fjögur Íslandsmet féllu á mótinu, þar af eitt í dag. Sigrún Brá Sverrisdóttir úr Fjölni bætti metið í 200 metra flugsundi þegar hún synti á 2 mínútum 20,23 sekúndum. Örn Arnarsson var ekki með á lokadeginum eftir að hafa þurft á sjúkrahús vegna hjartsláttartruflana eftir keppni á laugardag. Sport 20.11.2005 19:21
Chelsea kaupir ungling á metfé Ensku meistararnir Chelsea gengu í dag frá kaupum á serbneska varnarmanninum Slobodan Rajkovic frá OFK Belgrad á metfé, 3,5 milljónir punda. Þetta er hæsta upphæð sem greidd hefur verið fyrir leikmann undir 18 ára aldri. Fjöldi stórliða í Evrópu hefur lengi verið á höttunum eftir Rajkovic, sem er fastamaður í U-21 árs liði Serbíu og Svartfjallalands. Sport 20.11.2005 19:12
Næsti sólarhringur sker úr um framhaldið Knattspyrnugoðið George Best liggur enn þungt haldinn á Cromvell sjúkrahúsinu í London með sýkingu í lungum. Læknar gáfu það út nú fyrir stundu að væntanlega kæmi í ljós á næstu 24 tímum hvort Best lifði raunina af, en hann er í öndunarvél og er í bráðri lífshættu. Fjölskylda hans dvelur nú öll hjá honum á sjúkrahúsinu, en Best hefur ekki komið til meðvitundar í nokkurn tíma. Sport 20.11.2005 19:05
Stórsigur Fiorentina á Milan Fiorentina skaust í annað sæti ítölsku A deildarinnar í dag, þegar liðið vann stórsigur á AC Milan, 3-1. Ítalski landsliðsmaðurinn Luca Toni skoraði tvö marka Fiorentina, sem er í öðru sætinu ásamt Milan eftir sigurinn. Juventus hefur enn fimm stiga forskot í deildinni eftir sannfærandi 4-1 sigur á Roma í gær. Sport 20.11.2005 18:55
Ólöf lék betur í dag Ólöf María Jónsdóttir lék annan hringinn á úrtökumótinu fyrir evrópsku mótaröðina í golfi á þremur höggum yfir pari í dag og er því alls á tíu höggum yfir pari. Ólöf lék hringinn í dag á 76 höggum og er í 62.-67. sæti, en 50 bestu kylfingarnir vinna sér inn þáttökurétt á mótaröðinni á næsta ári. Sport 20.11.2005 18:50
Mayweather stóð við stóru orðin Hnefaleikarinn Floyd Mayweather stóð við stóru orðin í gær og lumbraði auðveldlega á Sharmba Mitchell, en það tók hann aðeins sex lotur að láta dómarann stöðva bardagann, svo vel saumaði hann að andstæðingi sínum. Mayweather hefur unnið alla 35 bardaga sína á ferlinum. Sport 20.11.2005 18:27
Woods sigraði í bráðabana Tiger Woods vann sjöunda golfmót sitt á árinu í nótt þegar hann tryggði sér sigur í bráðabana á Dunlop Phoenix mótinu í golfi sem fram fór í Japan. Woods og heimamaðurinn Kaname Yokoo voru efstir og jafnir á 8 höggum undir pari eftir lokahringinn, en Woods tryggði sér sigurinn með öruggu golfi í bráðabananum eftir að hafa verið klaufi á síðustu holunum á lokahringnum. Sport 20.11.2005 18:14
Baráttusigur Middlesbrough Middlesbrough vann 3-2 baráttusigur á Fulham á heimavelli sínum í dag, í síðari leiknum í ensku úrvalsdeildinni. Boro lenti tvisvar undir í leiknum en náði að tryggja sér sigurinn í lokin með marki Jimmy Floyd Hasselbaink. Sport 20.11.2005 18:08
Cleveland vann sjöunda leik sinn í röð Cleveland Cavaliers vann sigur á Philadelphia 76ers í NBA í nótt í æsilegum leik sem endaði 123-120 fyrir Cleveland. Larry Hughes hjá Cleveland og Allen Iverson hjá Philadelphia skoruðu báðir 37 stig í leiknum, en LeBron James náði þrennu með 36 stigum, 11 fráköstum og 10 stoðsendingum. Sport 20.11.2005 17:44
Samþykkt að slíta samstarfi við Likud-bandalagið Miðstjórn Verkamannaflokksins í Ísrael samþykkti í dag að slíta stjórnarsamstarfi við Likud-bandalagið sem Ariel Sharon, forsætisráðherra landsins, fer fyrir. Er þetta í samræmi við yfirlýsingar formanns Verkamannaflokksins, Amirs Peretz, sem bar óvænt sigur af Shimoni Peres í formannskosningunum á dögunum. Erlent 20.11.2005 17:27
Við vorum óheppnir Martin Jol, stjóri Tottenham var ekki sáttur við að missa leikinn gegn West Ham niður í jafntefli á síðustu andartökunum í dag, en liðin skildu jöfn á White Hart Lane 1-1. Sport 20.11.2005 17:29
Bush hvatti kínversk stjórnvöld til að auka frelsi George Bush, forseti Bandaríkjanna, hvatti í dag kínversk yfirvöld til að auka frelsi á sviði stjórnmála, félagsmála og trúmála, en hann er nú í heimsókn í Kína. Bush ræddi við Hu Jintao, kínverskan starfsbróður sinn, en auk fyrrgreindra mála ræddu þeir viðskipti Kína og Bandaríkjanna. Erlent 20.11.2005 17:07
Ólafur Guðmundsson læknir fékk viðurkenningu Barnaheilla Viðurkenning Barnaheilla fyrir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra voru afhent í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Í þetta sinn var hún veitt Ólafi Guðmundssyni, yfirlækni á Barna- og unglingeðdeild, fyrir að hafa um margra ára skeið verið ötull talsmaður barna og unglinga sem þurfa á geðheilbrigðisþjónustu að halda. Innlent 20.11.2005 16:23
Vaxandi hálka víða á vegum Á Vestfjörðum er éljagangur og vaxandi hálka er á vegum, einkum á heiðum. Á Hrafseyrarheiði er færð farin að spillast, þar er þæfingsfærð. Kólnandi veður er um allt land og vaxandi hálka er mjög víða á vegum. Innlent 20.11.2005 16:22