Fréttir

Fréttamynd

Ellefu menn verði í nefnd um alþjóðlega fjármálastarfsemi

Ellefu menn verða í nefnd, sem á að fjalla um uppbyggingu alþjóðlegrar fjármálastarfssemi hér á landi, að því er Viðskiptablaðið greinir frá. Forsætisráðherra mun væntanlega skipa nefndina í dag en Sigurður Einarsson stjórnarformaður KB banka hefur þegar verið útnefndur formaður.

Innlent
Fréttamynd

Ríkissaksóknari áfrýjar dómi yfir Ramsey

Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjaness yfir Scott Ramsey til Hæstaréttar og krefst þyngri refsingar. Ramsey var í síðasta mánuði dæmdur í 18 mánaða fangelsi, þar af 15 skilorðsbundna, fyrir að slá danskan hermann í höfuðið með þeim afleiðingum að hann lét lífið.

Innlent
Fréttamynd

Merkel tekin við völdum

Angela Merkel, formaður Kristilega demókrataflokksins í Þýskalandi, er tekin við embætti kanslara Þýskalands af Gerard Schröder. Hún er áttundi kanslari Þýskalands frá stríðslokum og fyrsta konan sem gegnir embætti þessu. Þýska þingið, Bundestag, valdi hana með 397 atkvæðum af 614.

Erlent
Fréttamynd

Lokað fyrir vatn í Harbin vegna sprengingar í efnaverksmiðju

Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa í Harbin, einni af stærstu borgum Kína, þegar ákveðið var að loka fyrir vatnsrennsli vegna sprengingar í efnaverksmiðju á dögunum sem varð fimm manns að bana. Til þess ð tryggja öryggi íbúa borgarinnar var ákveðið að skrúfa fyrir vatnið í fjóra daga.

Erlent
Fréttamynd

Mildi að ekki fór verr þegar tundurdufl kom í veiðarfæri

Mikil mildi þykir að ekki skyldi fara verr þegar að þýskur togari fékk tundurdufl í veiðafæri sín. Áhöfn togarans kom með tundurduflið upp á bryggju á Eskifirði um í gær og voru sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar kvaddir á vettvang.

Innlent
Fréttamynd

LeBron James sýnir listir sínar

Leikur Cleveland Cavaliers og Boston Celtics verður sýndur beint á NBA TV á miðnætti í kvöld. Cleveland er heitasta liðið í NBA í dag og hefur unnið sjö leiki í röð og hefur enn ekki tapað á heimavelli sínum. Þarna gefst körfuboltaunnendum gott tækifæri á að sjá sjálfan LeBron James hjá Cleveland sýna listir sínar, en hann hefur verið sjóðandi heitur undanfarið.

Sport
Fréttamynd

Fá tuttug og tvö þúsund krónur

Þeir öryrkjar sem sviptir voru öllum bótum frá Tryggingastofnun það sem eftir lifir árs, fá samkvæmt því sem heilbrigðisráðherra ákvað í dag, 22 þúsund krónur bæði í nóvember og desember. Formaður Öryrkjabandalagsins er þó ekki sáttur.

Innlent
Fréttamynd

Markalaust á Old Trafford

Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið. Manchester United náði ekki að leggja vængbrotið lið Villareal á heimavelli sínum og því eru möguleikar liðsins ekki glæsilegir í riðlinum. Bayern Munchen burstaði Rapid Vín 4-0 og Arsenal stal sigrinum gegn Thun í blálokin.

Sport
Fréttamynd

Útboð Íbúðalánasjóðs

Íbúðalánasjóður efndi í dag til útboðs á íbúðabréfum sem nema allt að þremur milljörðum króna að nafnverði. Sjóðurinn sendi tilkynningu þessa efnis til Kauphallar Íslands í dag. Áskilur sjóðurinn sér rétt til að hækka útboðsfjárhæðina eða að hafna öllum tilboðum. Lágmarkstilboð er að fjárhæð tvöhundruð milljónir fyrir hvern flokk.

Innlent
Fréttamynd

Ricky Hatton í besta formi á ferlinum

Hnefaleikarinn Ricky Hatton segist vera í besta formi sem hann hafi verið í á ævi sinni og hlakkar til að verja IBF titil sinn gegn Carlos Maussa á laugardagskvöldið, en sá bardagi verður í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Íhugar að fella niður þjóðsöngva á landsleikjum

Sepp Blatter, forseti FIFA, segist vera að hugsa um að leggja fyrir stjórn sambandsins tillögu um að leggja niður þann sið að flytja þjóðsöngva fyrir landsleiki í knattspyrnu vegna þeirrar vanvirðingar sem þjóðir séu farnar að sýna hvor annari við flutning söngvanna í dag.

Sport
Fréttamynd

Sex marka tap gegn Ítölum

Íslenska kvennalandsliðið tapaði 25-19 fyrir því ítalska í undankeppni EM í kvöld. Staðan var 14-11 í hálfleik fyrir ítalska liðið, sem hafði yfir allan leikinn. Hanna G. Stefánsdóttir var markahæst íslensku stúlknanna með 6 mörk, en Berglind Hansdóttir fór á kostum í markinu og varði 25 skot. Íslenska liðið mætir Belgum á morgun klukkan 16.

Sport
Fréttamynd

Enn óvissa um starfsemi nýrnadeildar

Enn ríkir óvissa um starfsemi nýrnadeildar Landspítala-Háskólasjúkrahús. Helmingur af hjúkrunarfræðingum deildarinnar hættir störfum á deildinni um árámótin að óbreyttu. Hjúkrunarforstjóri spítalans fundaði með hjúkrunarfræðingunum í dag.

Innlent
Fréttamynd

Úrslitakeppni Skekks sýnd á Netinu

Úrslitakeppni Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna hófst klukkan átta. Alls eru það sex grunnskólar sem keppa í úrslitunum en þau verða kynnt síðar í kvöld. Hægt er að fylgjast með keppninni á Netinu en þaðan er keppnin sýnt beint.

Innlent
Fréttamynd

Stórleikir á Sýn í kvöld

Tveir stórleikir verða sýndir í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Bein útsending frá leik Manchester United og Villareal hefst klukkan 19:30 á Sýn, en klukkan 19:35 fer í loftið bein útsending á Sýn Extra frá leik Barcelona og Werder Bremen.

Sport
Fréttamynd

Makelele verður frá í þrjár vikur

Hinn öflugi miðjumaður Claude Makelele verður ekki með Chelsea í leiknum gegn Anderlecht í Meistaradeildinni annað kvöld og talið er að hann verði frá keppni í um þrjár vikur eftir að hafa meiðst á hné í leiknum gegn Newcastle um helgina.

Sport
Fréttamynd

Ný stjórn Árvakurs

Ragnhildur Geirsdóttir og Skúli Valberg Ólafsson eru ný í stjórn Árvakurs hf. útgáfufélags Morgunblaðsins en þau eru fulltrúar nýrra hluthafa. Á hluthafafundi félagsins í dag var ný stjórn skipuð og var hún sjálfkjörin.

Innlent
Fréttamynd

Nýr patríarki rétttrúnaðarkirkjunnar

Theofilos þriðji varð í dag nýr patríarki grísku rétttrúnaðarkirkjunnar með viðhöfn í hinni helgu borg Jerúsalem. Theofilos tekur við af Irineos, sem neyddist til að hætta í maí, eftir ásakanir um að hann hefði leigt landskika í Jerúsalem í eigu kirkjunnar til gyðingahóps. Theofilos hlaut öll greidd atkvæði í vali um arftaka Irineosar.

Erlent
Fréttamynd

Hizbollah ætla að sýna fulla hörku

Hundruð söfnuðust saman í þorpinu Siskin í suðurhluta Líbanon til að vera við útför bardagamanns Hizbollah-samtakanna, sem féll í átökum við Ísraela við landamæri landanna tveggja í gær.

Erlent
Fréttamynd

Næstu þrír mánuðir ráða miklu

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að næstu þrír mánuðir komi til með að hafa úrslitaþýðingu um það hvort Thierry Henry verði áfram hjá félaginu, en hann hefur sem kunnugt er neitað að ræða framlengingu á samningi sínum við Arsenal þangað til á næsta ári og margir slá því föstu að hann fari frá Englandi.

Sport
Fréttamynd

Rannsaka fangaflug í Evrópu

Sérstök samevrópsk rannsóknarnefnd um leynifangelsi CIA kannar nú tugi grunsamlegra flugferða sem hafa lent í Evrópu undanfarin ár.

Erlent
Fréttamynd

Tekur ekki þátt í Evrópumeistaramótinu

Í tilkynningu frá Sundsambandi Íslands hefur Brian Marshall landsliðsþjálfari tilkynnt að Örn Arnarson sundkappi muni ekki taka þátt í Evrópumeistaramótinu í sundi sem fram fer á Ítalíu í næsta mánuði af heilsufarsástæðum. Örn var greindur með hjartsláttartruflanir um helgina og því þykir ekki ráðlegt að hann verði með á mótinu.

Sport
Fréttamynd

KEA félagar fá sexþúsund króna inneign

Átta þúsund félagar KEA fá senda inneignarmiða upp á sexþúsund krónur senda heim á næstunni. Í ljósi góðs gengis félagsins á árinu 2004 ákvað stjórn félagsins síðastliðið vor að fjármunirnir yrðu notaðir til að leita viðskiptakjara fyrir félagsmenn.

Innlent
Fréttamynd

Ísland mætir Ítalíu í dag

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik mætir Ítölum í fyrsta leiknum í undankeppni EM á Ítalíu í dag. Íslenska liðið leikur í riðli með Ítölum, Belgum, Svisslendingum, Tyrkjum og Búlgörum, en fjögur þessara liða komast áfram í keppninni. Leikurinn hefst klukkan 18 að íslenskum tíma.

Sport
Fréttamynd

Maður verður fyrir lest -í annað sinn

Maður varð fyrir lest í New York um síðustu helgi. Maðurinn slasaðist á höfði en ástand hans er stöðugt. Þetta er í annað sinn sem maðurinn verður fyrir lest en hann varð fyrir lest og slasaðist á höfði fyrir þremur árum.

Erlent
Fréttamynd

Riquelme verður ekki með Villareal

Leikstjórnandinn snjalli Juan Roman Riquelme verður ekki með liði sínu Villareal í leiknum gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu í kvöld, vegna meiðsla á læri. Þetta eru góð tíðindi fyrir enska liðið, því Riquelme hefur farið á kostum með spænska liðinu í vetur, sem og landsliði Argentínu.

Sport
Fréttamynd

Tundurdufl á bryggjunni á Eskifirði

Óskað hefur verið eftir aðstoð sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar vegna tundurdufls sem áhöfn þýsks togara setti upp á bryggjunni á Eskifirði.  TF-SYN, flugvél Landhelgisgæslunnar, er nú á leið þangað með tvo sprengjusérfræðinga um borð.

Innlent