Fréttir
Bónus fékk Neytendaverðlaunin Handhafi Neytendaverðlauna Neytendasamtakanna og Bylgjunnar 2006 er verslunin Bónus. Verðlaunin voru afhent í gær í tilefni af alþjóðadegi neytendaréttar. Innlent 16.3.2006 11:00
SAS hefur ekki keypt í Icelandair SAS hefur neitað þeirri frétt sem birtist í tímaritinu Travel People að félagið hafi eignast hlut í Icelandair en játar að samstarf félagsins við Icelandair verði haldið áfram. „Það eru engar viðræður yfirhöfuð í gangi um að við verðum eigendur í Icelandair. Þetta eru algjörlega rangar upplýsingar,“ segir Bertil Ternert, upplýsingafulltrúi SAS við Dagens Industri. Viðskipti erlent 16.3.2006 11:01
Dómsmálaráðherra spurður hvað Baugsmálið kostaði Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, var spurður að því á Alþingi í morgun hvort hann gæti svarað til um hvað málareksturinn í Baugsmálinu hefði kostað ríkið. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingar, spurði hvort ráðherra gæti svarða því hve mikill tími og mannafli hefði farið í málið og hvaða önnur mál hefðu beðið hjá Ríkislögreglustjóra á meðan rannsóknin stóð. Innlent 16.3.2006 10:48
Íranar vilja ræða við Bandaríkjamenn um Írak Íranar eru reiðubúnir til að hefja viðræður við Bandaríkjamenn um ástandið í Írak. Þetta sagði Larijani, ein helsti samningamaður Írana. Yfirlýsing hans er svar við beiðni eins helsta leiðtoga sjía-múslima í Írak um að Íranar tækju upp viðræður við stjórnvöld í Washington. Erlent 16.3.2006 10:10
Baugsmálið rætt á þingi Sigurjón Þórðarsons, þingmaður Frjálslynda flokksins, ynnti dómsmálaráðherra við upphaf þings í morgun eftir viðbrögðum við sýknudómi í Baugsmálinu. Hann taldi rétt að farið yrði yfir málið enda hafi kostnaður vegna þess verið gríðarlegur. Hann spurði dómsmálaráðherra hvort hann myndi axla pólitíska ábyrgð vegna málsins. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sagði ræðu Sigurjóns vera fyrir neðan virðingu þingsins og að hann myndi ekki ræða Baugsmálið í sölum Alþingis. Innlent 16.3.2006 10:41
Usen kaupir í Livedoor Yasuhide Uno, forseti japanska kapalfyrirtækisins, Usen Corp. ákvað í dag að kaupa sjálfur allan hlut Fuji Television Network í japanska netfyrirtækinu Livedoor fyrir 9,5 miljarða jena, jafnvirði 5,7 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 16.3.2006 10:32
Mótmælendur meðhöndlaðir eins og hryðjuverkamenn Stjórnandstaðan í Hvíta-Rússlandi leggur á ráðinu um valdarán í landinu og dylja það með andstöðu við tilraunir Lukashenkos, forseta landsins, til að ná endurkjöri. Þetta sagði yfirmaður leyniþjónustu landsins í dag. Erlent 16.3.2006 09:59
Óvissa með verð fyrir grásleppuhrogn Það er af sem áður var þegar allir trillukarlar, sem vettlingi gátu valdið, lögðu net sín strax á fyrsta degi grásleppuvertíðar, í von um gull og græna skóga. Aðeins einn bátur réri til dæmis frá Húsavík, þegar vertíðin hófst á noðrausturlandi um helgina, og á öllu svæðinu frá Grenivík austur til Vopnafjarðar, réru aðeins fjórir bátar. Innlent 16.3.2006 09:40
Stærstu eigendur Livedoor íhuga sölu Forsvarsmenn Fuji Television Network, eins stærsta hluthafa í japanska netfyrirtækinu Livedoor, eru sagðir vera að íhuga að selja 12,5 prósenta hlut sinn í fyrirtækinu. Lokað varð fyrir öll viðskipti í kauphöllinni í Tókýó í Japan 18. janúar á þessu ári þegar grunur vaknaði um misferli hjá fyrirtækinu. Viðskipti erlent 16.3.2006 10:07
Utanríkisráðherra gefur Alþingi skýrslu Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, mun gera þingheimi grein fyrir stöðu varnarmála á þingfundi sem hefst á Alþingi kl. 10:30 í dag. Á fundinum mun ráðherra gefa munnlega skýrslu um varnarviðræður Íslands og Bandaríkjanna í ljósi þeirra frétta frá í gær að Bandaríkjamenn ætli að flytja þotur sínar og þyrlur frá Keflavíkurflugvelli í síðasta lagi í september og draga verulega úr starfsemi varnarliðsins þar. Innlent 16.3.2006 09:17
Hlutabréf lækkuðu í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð í kauphöllinni í Japan í dag í kjölfar þess að fjárfestar settu inn í áætlanir sínar yfirvofandi hækkun stýrivaxta í landinu. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,37 prósent og endaði í 16.096,21 stigi. Í gær hækkaði gengi hlutabréfanna hins vegar um hálf prósent. Viðskipti erlent 16.3.2006 09:35
8 mánaða dómur fyrir líkamsárás og bílþjófnað Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær karlmann á þrítugsaldri í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás og bílþjófnað. Maðurinn hafði áður komist í kast við lögin. Honum er einnig gert að greiða fórnarlambi skaðabætur og allan málskostnað. Innlent 16.3.2006 08:58
Íslensk teiknimyndaþáttaröð fjármögnuð Breska fyrirtækið Upland Entertainment Investments og Brú Venture Capital hafa hvor um sig keypt 10% hlut í fyrirtækinu CAOZ, sem sérhæfir sig í framleiðslu tölvugerðra teiknimynda fyrir alþjóðamarkað. Auk þess munu fyrirtækin taka þátt í fjármögnun sjónvarpsþáttaraðar sem CAOZ er með í undirbúningi. Innlent 16.3.2006 08:44
H&M ætlar að hækka verð Og hér er slæm frétt fyrir alla íslensku aðdáendur H&M verslananna sem eru fjölmargir því forsvarsmenn verslunarkeðjunnar sænsku eru sagðir hafa ákveðið að hækka vöruverð í búðum sínum á næstu þremur árum. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten. Ekki verður þó gefin út opinber yfirlýsing um málið en ársfjórðungsuppgjör fyrirtækisins verður birt þann 29. mars og er þá búist við tilkynningunni. Verðlag í verslunum H&M hefur farið lækkandi síðastliðin tólf ár. Erlent 16.3.2006 08:03
Réttarhöldunum yfir Saddam frestað á ný Réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, var í gær frestað til 5. apríl. Saddam bar vitni við réttarhöldin í gær og sagði þau vera hreinan gamanleik. Þegar dómarinn hafði fengið nóg lét hann rýma blaðamannastúkuna og tilkynnti skömmu síðar að réttarhöldunum hefði verið frestað. Erlent 16.3.2006 08:00
Féllu í skothríð í Kaliforníu Tveir féllu þegar maður hóf skothríð á veitingastað í suður Kaliforníu í gær. Þá særðist par í árásinni en fókið eru ekki í lífshættu. Eftir að árásarmaðurinn hafði lokið sér af, tók hann eigið líf. Fimmtán manns voru inni þegar skothríðin hófst en ástæða fyrir árásinni er enn ókunn. Málið er í rannsókn. Erlent 16.3.2006 07:56
Lík Milosevic komið til Belgrad Lík Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu er komið til Belgrad í Serbíu. Þjóðernissinnaðir Serbar og aðrir stuðningsmenn Milosevic ætla að fjölmenna við útförina og er talið að þar kunni allt að ein miljón manna að koma saman. Enn er óvíst hvort serbnesk stjórnvöld muni veita honum heiðursútför en það er þó talið ólíklegt. Erlent 16.3.2006 07:53
Íraksþing kemur saman Íraksþing verður sett með formlegum hætti í fyrsta sinn í dag, þremur mánuðum eftir fyrstu þingkosningarnar í landinu. Þingsetningarathöfnin verður haldinn á sama tíma og trúarátök í landinu stigmagnast dag frá degi, en margir segja að Írak sé á barmi borgarastyrjaldar. Geore Bush Bandaríkjaforseti segir þó enga hættu á borgarastyrjöld og að aðeins tímaspursmál sé hvenær friður komist á í Írak. Erlent 16.3.2006 07:58
Viðræður Öryggisráðsins þokast ekkert Enn þokast ekkert í viðræðum fastafulltrúa í Öryggisráðinu um kjarnorkuáætlanir Írana. Jean Marc de La Sabliere, sendiherra Frakka í ráðinu sagði í gær, nauðsynlegt að Öryggisráðið kæmist fljótlega að niðustöðu um málið en á meðan Bandaríkjamenn, Frakkar og Bretar vilja beita Írana refsiaðgerðum, segja Rússar og Kínverjar það ekki tímabært enda myndu þær ekki skila öðru en frekari vandamálum. Erlent 16.3.2006 07:50
Maður dæmdur til dauða í Flórída Maður á fertugsaldri var í gær dæmdur til dauða í Flórída fyrir að hafa numið ellefu ára stúlku á brott, nauðgað henni og síðan myrt. Brottnámið náðist á myndband eftirlitsmyndavélar og leiddi það til þess að maðurinn var handtekinn. Í síðasta mánuði baðst maðurinn fyrirgefningar á glæpum sínum. Hann sagðist hafa neytt heróíns og kókaíns í því skyni að fyrirfara sér, áður en hann nam stúlkuna á brott. Erlent 16.3.2006 07:48
Vaxandi tiltrú á íslensku krónunni Þýskur banki gaf í gær út skuldabréf í íslenskum krónum, svonefnd krónubréf, og er það fyrsta erlenda peningastofnunin sem það gerir síðan Fitch Ratings gaf út skýrslu sína um íslensk efnahagsmál, sem olli lækkun krónunnar og hlutabréfavísitölunnar. Bankinn gaf út bréf fyrir tvo milljarða króna og er þessháttar útgáfa þá komin upp í 213 milljarða frá því að hún hófst síðsumars í fyrra. Tiltrú á íslenskt efnahagslíf viðrist því fara vaxandi á ný. Erlent 16.3.2006 07:41
Veiktust lífshættulega af nýju lyfi Sex manns eru á gjörgæslu, þar af eru tveir í lífshættu, á sjúkrahúsi í Lundúnum eftir að hafa veikst af nýju lyfi sem verið er að gera tilraunir með. Sexmenningarnir voru allir við góða heilsu þegar þeir féllust á að taka þátt í prófun á nýju bólgueyðandi lyfi. Það var fyrirtækið Parelex sem stóð að tilraununum Erlent 16.3.2006 07:38
Groddalega staðið að brottflutningnum Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna segja það einstaklega groddalegt hvernig bandarísk stjórnvöld standa að brottflutningi varnarliðsins frá Íslandi. Niðurstaðan hafi þó legið lengi í loftinu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir tíðindi gærdagsins ekki koma sér á óvart. Innlent 16.3.2006 07:36
Ratsjárstöðvunum líklega lokað Margt bendir til þess að ratstjárstöðvunum hér á landi verði lokað innan tíðar því hernaðarlegum tilgangi þeirra lýkur í raun þegar herþoturnar verða fluttar frá Keflavíkurflugvelli í haust. Þegar stöðvarnar fjórar voru reistar með ærnum kostnaði undir lok níunda áratugar síðustu aldar var yfirlýstur tilgangur þeirra annars vegar að fylgjast með flugi óvinveittra flugvéla, sem eru hættar að koma hingað eftir fall Sovéttríkjanna, og hinsvegar að fylgjast með flugi herþotna frá Keflavíkurflugvelli, sem nú eru á förum. Innlent 16.3.2006 07:30
Rúmlega 200 þátttakendur á Glitnismótinu í hraðskák Rúmlega 200 manns á öllum aldri, áhugamenn jafnt sem stórmeistarar, höfðu skráð sig til þátttöku á Glitnismótinu í hraðskák sem hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Mótið er opið mót og haldið í minningu Haraldar Blöndal hæstaréttalögmanns, en mótinu lýkur á morgun. Innlent 15.3.2006 22:00
Íbúum hefur ekki fjölgað jafn mikið í rúm fjörtíu ár Á síðasta ári fjölgaði íbúum hér á landi meira en í rúm fjörtíu ár. Þar af fjölgaði íbúum hlutfallslega mest á Austurlandi og þar eru hvað mestu skekkjur í kynjahlutföllunum enda flestir nýbúar á Austurlandi karlmenn með erlent ríkisfang. Innlent 15.3.2006 21:41
Borgarholtshverfi án ADSL-sambands Borgarholtshverfi í Reykjavík og næsta nágrenni er án ADSL-sambands því ljósleiðari við Víkurveg rofnaði vegna framkvæmda sem þar standa yfir. Unnið er að viðgerð en henni lýkur líklega ekki fyrr en seint í kvöld. Innlent 15.3.2006 20:06
Vextir hæstir á Íslandi samkvæmt skýrslu Norðurlandaráðs Talsmaður neytenda segir að verði íbúðalánasjóður gerður að heildsölubanka verði að koma til mótvægisaðgerðir til að tryggja samkeppni á húsnæðislánamarkaði. Í skýrslu um norræna bankakerfið kemur fram að vextir á íbúðalánum og yfirdráttarlánum er miklu hærri á Íslandi en gerist á hinum Norðurlöndunum. Innlent 15.3.2006 19:10
Vill ræða varnarmál við nágrannaþjóðir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að Íslendingar þurfi að ræða varnarmál við nágrannaþjóðir eins og Norðurlöndin og Bretland í ljósi stöðunnar sem hefur komið upp í varnarmálum. Hann segir að varnarmál Íslands snerti ekki aðeins okkur heldur líka nágrannaþjóðir okkar. Innlent 15.3.2006 18:42
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald í hnífsstungumáli Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem grunaður er um að hafa stungið annan mann á skemmtistað í Reykjvík aðfaranótt 5. mars síðastliðinn. Maðurinn skal sitja í gæsluvarðhaldi þar til réttað hefur verið í máli hans, þó ekki lengur en til 21. apríl næstkomandi. Maðurinn liggur undir grun um að hafa veitt öðrum manni fimm stungusár með vasahníf. Innlent 15.3.2006 18:25
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent