Fréttir
Krefjast ekki afsagnar Jónasar Jónas Garðarsson var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Tveir létust þegar bátur hans steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í september. Innlent 6.6.2006 18:45
Grunuð um skipulagningu hryðjuverka í Kanada Sautján manns voru handteknir í Ontario-héraði í Kanada um helgina vegna gruns um aðild þeirra að skipulagningu á hryðjuverkum í landinu. Tólf hinna handteknu komu fyrir dómara í dag í borginni Brampton, vestur af Toronto, þar sem ákærurnar gegn þeim voru kunngjörðar. Erlent 6.6.2006 17:31
Tónleikaröð að Gljúfrasteini Heimili nóbelskáldsins á að vera sjálfsagður viðkomustaður ferðamanna og heimamanna. Forsvarsmenn Gljúfrasteins kynntu í gær skýrslu um stefnumótun og framtíðarsýn safnsins. Innlent 6.6.2006 17:19
Formennsku Íslands í Eystrasaltsráðinu lokið Leiðtogar ellefu ríkja Eystrasaltsráðsins auk Evrópusambandsins funda í Reykjavík á fimmtudag. Með því lýkur formennsku Íslands í ráðinu, sem það hefur gegnt síðan í júlí á síðasta ári. Það verður eitt af síðustu embættisverkum Halldórs Ásgrímssonar, að funda með forsætisráðherrum Rússlands og Póllands í tengslum við fundinn. Í formennsku sinni hafa Íslendingar lagt áherslu á umhverfis- og orkumál og mun þessi mál bera hvað hæst á leiðtogafundinum. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, sem situr áfram í því embætti þar til ný stjórn hefur verið skipuð, mun leiða fundi ráðsins. Auk sameiginlegra funda mun Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, eiga tvíhliða fundi með Fradkov, forsætisráðherra Rússlands og Marcinkiewicz, nýjum forsætisráðherra Póllands, og Geir H. Haarde mun eiga fund með utanríkisráðherra Þýskalands. Eystrasaltsráðið er skipað 11 löndum, - Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Rússlandi, Póllandi og Rússlandi, auk Íslands. Ráðið var stofnað árið 1992 en Ísland gekk í ráðið árið 1995. Innlent 6.6.2006 17:21
Hamas-samtökin fá frest til fimmtudags Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, ákvað í dag að veita Hamas-samtökunum lengri frest til að taka afstöðu til þjóðaratkvæðagreiðslu um viðurkenningu á tilvist Ísraels. Erlent 6.6.2006 17:20
Féll um sjö metra ofan í húsgrunn Karlmaður féll um það bil sjö metra ofan í húsgrunn í Borgartúni í dag. Neyðarlínunni barst tilkynningin um klukkan 14:36 og voru sjúkraflutninga- og slökkviliðsmenn sendir á staðinn. Aðstæður til björgunar voru talsvert erfiðar að sögn vaktstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er maðurinn mjög slasaður með höfuðmeiðsl, fótbrot og aðra áverka. Ekki er viðtað hvernig slysið bar að en málið er í rannsókn. Innlent 6.6.2006 16:33
Boðið í breska flugvelli Stjórn breska fyrirtækisins BAA Group, sem rekur sjö flugvelli í Bretlandi, m.a. Heathrow og Gatwick auk þess sem fyrirtækið hefur starfsemi á nokkrum flugvöllum í öðrum löndum í Evrópu, hefur lýst yfir samþykki við yfirtökutilboð spænska fyrirtækisins Grupo Ferrovial í fyrirtækið. Tilboðið hljóðar upp á 950,25 pens á hlut eða 10,3 milljarða punda, jafnvirði 1.408 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 6.6.2006 15:34
Málverkið við góðaheilsu á Norðurlöndum Málverkið er við góða heilsu á Norðurlöndum. Það leiðir sýningin Carnegie Art Award í ljós en hún verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur á morgun Carnegie Art Award eru í senn verðlaun og sýning sem komið var á fót fyrir átta árum. Markmið verðlaunanna, sem eru ein þau stærstu í heimi á sviði lista, er að styðja við framúrskarandi listamenn á Norðurlöndum og efla norræna samtímalist. Því er farið með Carnegie Art sýninguna um öll norrænu ríkin og í ár verður einnig farið til Lundúna og Nice í Frakklandi. Verkin sem til sýnis eru í Hafnarhúsinu eru eftir 21 listamann en þeir voru valdir úr hópi 115 listamanna sem tilnefndir voru til þátttöku í sýningunni. Íslendingar eiga fjóra fulltrúa á sýningunni, þá Finnboga Pétursson, Steingrím Eyfjörð, Jón Óskar og Eggert Pétursson. Hafþór Yngvason forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur segir sýninguna sanna að málverkið hafi sterka stöðu á Norðurlöndum. Hann bendir á að í fyrsta sinn sé hljóðverk á sýningunni en það er einmitt eftir Finnboga Pétursson. Þegar fréttastofu bar að garði var einn listamannanna að leggja lokahönd á verk sitt. Það var hin 33 ára Josefine Lyche frá Noregi en hún málar nýtt verk á hverjum sýningarstað. Hún hefur stritað í tíu tíma á dag síðan á föstudag og er nokkuð ánægð með niðurstöðuna. Lyche segir að málverkið samanstandi af sparsli og blönduðum akrýllitum. "Ég málaði alls níu lög á vegginn og pússaði þau svo niður með slípara svo yfirborðið yrði alveg slétt. Ég nota mismunandi liti á hverjum stað og litirnir hér tákna græna náttúru landsins." Með verkinu segir Lyche vilja fá fólk til að velta fyrir sér málverkinu sem miðli. Það gerir hún á óvenjulegan hátt því ólíkt því sem gengur og gerist á söfnum má snerta verkið hennar "Þetta er skemmtilegt en maður má ekki snerta öll verkin, bara þetta. Þetta er tímabundið verk, það verður fjarlægt, málað yfir það, og því er gott að geta þreifað á því þann tíma sem það verður á veggnum," segir listakonan. Sem fyrr segir verður sýniningin opnuð á morgun en hún stendur til 20. ágúst. Innlent 6.6.2006 15:28
Barist við skógarelda í Portúgal Um tvö hundruð slökkviliðsmenn berjast nú við mikla skógarelda sem geisa í norðurhluta Portúgals. Stjórnvöld segja að eldhafið sé um þrjátíu kílómetra breitt og miklir sviptivindar og hátt hitastig geri að verkum að sífellt stærra landsvæði verði nú eldinum að bráð. Engum hefur þó orðið meint af né tjón orðið á mannvirkjum, enn sem komið er í það minnsta. Eldurinn kviknaði í Barcelos í Norður-Portúgal á sunnudaginn, rúmlega 350 kílómetra norður af höfuðborginni, Lissabon. Á síðasta ári beið tuttugu og einn bana í Portúgal af völdum skógarelda og um 800 þúsund ekrur af skóglendi eyðilögðust. Erlent 6.6.2006 15:25
Vélarbilun varð í flugtaki Betur fór en á horfðist þegar lítil flugvél, af gerðinni Cessna 180, missti afl mótors í flugtaki síðdegis í gær með þeim afleiðingum að vélin lenti í Fljótavatni. Einn maður var um borð í vélinni og sakaði hann ekki. Upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar Íslands segir að Rannsóknarnefnd flugslysa hafi farið af staðinn í gær og málið sé nú í rannsókn. Innlent 6.6.2006 13:48
Hagnaður Ryanair umfram væntingar Hagnaður írska lággjaldaflugfélagsins Ryanair nam 302 milljónum evra á síðasta rekstrarári, sem lauk í mars, og er það 12 prósentum meiri hagnaður en árið á undan. Þá er hagnaðurinn sjö milljónum evrum meiri en stjórn flugfélagsins hafði búist við. Viðskipti erlent 6.6.2006 13:44
Jónas Garðarsson dæmdur í þriggja ára fangelsi Jónas Garðarsson formaður Sjómannafélags Reykjavíkur var nú áðan dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir manndráp af gáleysi. Jónas var ákærður fyrir að hafa þann tíunda september síðastliðinn, stýrt skemmtibátnum Hörpu undir áhrifum áfengis, en báturinn steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi með þeim afleiðingum að tveir létust. Jónas var ekki viðstaddur uppkvaðningu dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur en fullvíst má telja að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Innlent 6.6.2006 13:03
Óvissa í efnahagsmálum gæti aukist Óvissa í efnahagsmálum getur aukist vegna afsagnar Halldórs Ásgrímssonar og stöðunnar sem komin er upp í stjórn landsins. Úrvalsvísitalan lækkaði í morgun um 1,8 prósent og gengi bréfa í viðskiptabönkunum sömuleiðis. Innlent 6.6.2006 12:22
Tilboð sem á að fá Írana til að hætta auðgun úrans Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, er kominn til Írans með tilboð frá vesturlöndum, sem á að fá Írana til að hætta við auðgun úrans. Tilboðið sem Solana hefur í farteskinu, hefur ekki verið gert opinbert. Frumdrög að því benda hinsvegar til þess að ef Íranar fallist á að hætta auðgun úrans muni þeir fá aðstoð við að reisa kjarnorkuver, þeim verði tryggt eldsneyti og þeir fái að kaupa evrópskar Airbus flugvélar. Bandaríkin bættu í pottinn með því að aflétta ýmsum viðskiptahömlum af Íran, meðal annars heimila þeim að kaupa Boeing farþegaþotur og varahluti í vélar af þeirri tegund, sem þeir eiga þegar. Í tilboðinu er hinsvegar einnig að finna hótun um að ef Íranar haldi áfram að auðga úran, muni öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkja refsiaðgerðir. Viðbrögð Írana hafa verið misvísandi. Æðsti leiðtogi þeirra, klerkurinn Ali Khameini hefur hótað að trufla olíuframleiðslu, ef Íran verður beitt viðskiptaþvingunum. Mahmóud Ama-dine-jad, forseti landsins hefur hinsvegar fagnað komu Solanas og lofar því að tilboð vesturlanda verði skoðað vandlega. Erlent 6.6.2006 11:41
Guðni gefur lítið fyrir vantraust Valgerðar Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, gefur ekki mikið fyrir vantraust flokkssystur hans Valgerðar Sverrisdóttur á hann í embætti formanns flokksins. Hann ætlar að kanna vilja stuðningsmanna sinna áður en hann ákveður hvort hann býður sig fram, en segist ekki muni þvælast fyrir í flokknum, ef hann njóti ekki stuðnings til formennsku. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar voru fámálir þegar þeir mættu á ríkisstjórnarfund í morgun. Stóra spurningin er auðvitað sú hver tekur við af Halldóri Ásgrímssyni þegar hann lætur af formennsku í Framsóknarflokknum á landsþingi í haust. Guðni Ágústsson er varafromaður flokksins, en ljóst er að ekki er eining innan þingflokksins um hver eigi að taka við af Halldóri. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sagði í Ríkisútvarpinu í morgun að hún treysti Guðna ekki til formennsku. En skoðum aðeins myndir af því þegar ráðherrar mættu á ríkisstjórnarfund í morgun. KOMMENT Halldór Ásgrímsson sagði á Þingvöllum í gær að hann og Guðni hefðu báðir sæst á að láta af embættum sínum í fælokknum. Guðni sendi hins vegar frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi, þar sem hann gefur sterkelga til kynna að hann kunni að verða í framboði til formennsku í flokknum. Ríkisstjórnarfundi lauk um klukkan hálf ellefu og gaf Guðni þá kost á stuttu viðtali. Innlent 6.6.2006 11:16
Hjólað um landið til styrktar langveikum börnum Fjórir lögreglu- og slökkviliðsmenn af Suðurnesjum hjóla nú um landið til að vekja athygli að söfnun fyrir langveik börn. Innlent 6.6.2006 10:55
Umferð gekk vel í gær Umferð gekk vel á vegum landsins í gær og er ekki vitað um slys eða meiri háttar óhöpp. Umferðarþunginn fór að aukast til muna upp úr hádegi en dreifðist svo alveg fram á kvöld. Innlent 6.6.2006 10:10
Gistinóttum fjölgar um fjögur prósent milli ára Gistinóttum fjölgaði um fjögur prósent í apríl síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi, eða um fjórðung, en þeim fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem þeim fækkaði um 13,5 prósent. Innlent 6.6.2006 10:07
Farið yfir feril Halldórs Ferill Halldórs Ásgrímssonar spannar yfir þrjátíu ár í stjórnmálum. Halldór settist fyrst á þing í Austurlandskjördæmi árið 1974, en hann er fæddur á Vopnafirði. Hann hefur setið á þingi nær óslitiði síðan þá, en flutti sig um set fyrir síðustu alþingiskosningar og leiddi lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Innlent 6.6.2006 10:10
Dómur kveðinn upp í dag vegna Viðeyjarslyss Dómur verður kveðinn upp í máli Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan eitt í dag. Jónas er sakaður um að hafa þann tíunda september síðastliðinni stýrt skemmtibátnum Hörpu undir áhrifum áfengis, en báturinn steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi með þeim afleiðingum að tveir létust. Innlent 6.6.2006 10:00
4 prósentum fleiri gistinætur Gistinætur á hótelum í apríl voru 80.300 eða 3.000 fleiri en á sama tíma fyrir ári sem jafngildir 4 prósenta aukningu á milli ára. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinætur fóru úr 1.800 í 2.200 milli ára. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fjölgaði gistinóttum úr 5.800 í 6.500, sem jafngildir 13 prósenta aukningu. Viðskipti innlent 6.6.2006 09:55
Óbreytt lánshæfismat Glitnis Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor’s tilkynnti í gær að lánshæfismat Glitnis (A-/Stable/A-2) héldist óbreytt þrátt fyrir að lánshæfismatsfyrirtækið hefði breytt horfum fyrir íslenska ríkið í neikvæðar úr stöðugum (Lánshæfiseinkunn íslenska lýðveldisins í erlendri mynt'AA-/A-1+'; í íslenskum krónum 'AA+/A-1+'). Viðskipti innlent 6.6.2006 09:45
Í hættu eftir að bátur varð eldsneytislaus Tveir fullorðnir menn og tvö börn voru í hættu þegar lítill skemmtibátur, sem þau voru á, varð eldsneytislaus skammt út af Kjalarnesi í gærkvöldi og tók að reka í átt að grýttri fjöru. Innlent 6.6.2006 08:16
Yfirlýsing frá Guðna Ágústssyni Guðni Ágústsson, vara formaður Framsóknarflokksins, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna orða Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, í tengslum við afsögn Halldórs í gær. Innlent 6.6.2006 08:57
Næstu ár gætu orðið enn mannskæðari Meira en eitt hundrað milljónir gætu látist af völdum alnæmis í Afríku einni saman á næstu tuttugu og fimm árum, gangi svartsýnustu spádómar Sameinuðu Þjóðanna eftir. Nú eru liðin tuttugu og fimm ár síðan alnæmi greindist fyrst og síðan þá hafa tuttugu og fimm milljónir látið lífið af völdum sjúkdómsins í heiminum. Margt bendir til að næstu tuttugu og fimm ár gætu orðið enn mannskæðari. Miðað við mannfjöldaspár og útbreiðslu sjúkdómsins gætu meira en þrjátíu milljónir fallið á Indlandi og meira en eitt hundrað milljónir í Afríku einni. Erlent 6.6.2006 08:51
Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort viðurkenna eigi Ísrael Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur ákveðið að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Palestínumenn eigi að viðurkenna Ísraelsríki. Erlent 6.6.2006 08:13
Ekki mynduð ný ríkisstjórn Geir H. Haarde verðandi forsætisráðherra segir að þótt mannabreytingar blasi við í ríkisstjórninni verði ekki mynduð ný ríkisstjórn enda þýði afsögn Halldórs ekki slit á stjórnarsamstarfinu. Innlent 6.6.2006 08:10
Ekkert liggur fyrir um afsögn Guðna Halldór Ásgrímsson hefur ákveðið að segja af sér sem forsætisráðherra en Geir H. Haarde tekur við forsætisráðherraembættinu. Hann situr áfram sem formaður Framsóknarflokksins fram á haust. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir ekkert liggja fyrir um afsögn sína. Innlent 6.6.2006 08:07
Ekkert liggur fyrir um afsögn mína Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér fyrir stundu að ekkert liggi fyrir um afsögn hans. Guðni segir að hann hafi á fundi með forsætisráðherra og hans nánustu samstarfsmönnum fallist á ákveðnar tillögur sem miðuðu að því að ný forysta tæki við flokknum strax í sumar. Innlent 5.6.2006 23:50
Hyggst draga sig í hlé frá stjórnmálum Halldór Ásgrímsson tilkynnti nú fyrir stundu að hann hefði ákveðið að draga sig í hlé frá amstri stjórnmálanna. Hann hyggst segja af sér forsætisráðherraembætti en mun sitja áfram sem formaður Framsóknarflokksins fram að flokksþingi í haust. Hann mun ekki sækjast eftir endurkjöri. Jafnframt mun Guðni Ágústsson víkja úr stjórn flokksins á sama tíma. Innlent 5.6.2006 21:01