Fréttir
Neitar ásökunum um aðild að fangaflutningum Forsætisráðherra Póllands neitaði í dag staðfastlega þeim ásökunum að pólsk stjórnvöld hafi komið að leynilegum fangaflutningum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Í nýrri skýrslu Evrópuráðsins eru fjórtán Evrópulönd, en Ísland er ekki þar á meðal, sögð tengjast flutningum á grunuðum hryðjuverkamönnum til landa þar sem pyntingar eru ekki ólöglegar. Erlent 7.6.2006 19:11
Engin sérstök rök fyrir því að einkaaðilar leggi Sundabraut Engin sérstök rök mæla með því að einkaaðilar leggi og reki Sundabraut fremur en ríkið þar sem lítil óvissa er um verkið og kostnað við það. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um mat á kostum og göllum einkaframkvæmdar. Innlent 7.6.2006 15:46
Viðskipti stöðvuð í Kauphöllinni Alvarleg truflun varð í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands klukkan 14:48 í dag og voru öll viðskipti stöðvuð í kjölfarið. Ekki er nákvæmlega vitað hvað olli truflunninni sem varð í samnorrænu Saxes viðskiptakerfi kauphallarinnar. Kauphallir á Norðurlöndunum nota sama kerfi og kom truflunin upp í kerfi þeirra sömuleiðis. Viðskipti innlent 7.6.2006 15:15
Eigendur Pennans kaupa hlut í AN Office Eigendur Pennans hafa fest kaup á 73 prósent hlut í lettneska rekstarvörufyrirtækinu AN Office, (Aigas Nams) sem er þriðja stærsta rekstrarfyrirtækið á Eystrasaltssvæðinu. Velta AN Office var um 1,5 milljarðar íslenskra króna á síðasta ári. Viðskipti innlent 7.6.2006 14:33
Vilja að Siv og Guðni víki Öll Framsóknarfélög í kjördæmi Halldórs Ásgrímssonar, Reykjavík norður, vilja að Guðni Ágústsson og Siv Friðleifsdóttir víki líka úr forystusveit flokksins til þess að binda enda á áralanga togstreitu í flokknum. Innlent 7.6.2006 14:12
Aðalmeðferð í meiðyrðamáli vegna Skerjafjarðarskýrslu Aðalmeðferð var í morgun í meiðyrðamáli Friðriks Þór Guðmundssonar á hendur Sigurði Líndal lagaprófessor vegna ummæla Sigurðar í tenglsum við rannsókn flugslyssins í Skerjafirði. Sigurður Líndal var formaður nefndar sem rannsakaði rannsóknina á flugslysinu og fleiri skýrslur því tengdu og skilaði skýrslu um málið. Innlent 7.6.2006 12:24
Sjúklingum mismunað eftir sjúkdómum og efnum Formaður Læknafélags Íslands, Sigurbjörn Sveinsson, segir fólk sem þurfi að leita til hjartalækna ekki hafa sömu fjárhagslegu stöðu og aðra sem þurfi að leita sér lækninga. Það fyrirkomulag sem nú er í gildi mismuni fólki eftir sjúkdómi þeirra og efnum. Til útskýringar bendir Sigurbjörn á að erfitt geti reynst öldruðum og efnalitlu fólki að leggja út fyrir þeim rannsóknum sem það þarf að ganga í gegnum. Sigurbjörn bendir einnig á að þó sjúklingar geti fengið endurgreiðslu frá Tryggingastofnun eftir að hafa fengið greiðsluheimild frá heimilislækni geti falist í því mikil fyrirhöfn fyrir aldraða eða sjúka einstaklinga. Stjórn Læknafélags Íslands fer fram á það við stjórnvöld að hyggist þau koma á tvöföldu heilbrigðiskerfi, þá verði þær fyrirætlanir gerðar opinberar og ræddar undanbragðalaust með þátttöku þjóðarinnar. Stjórn Læknafélags Íslands lýsti í ályktun sem gerð var í gær yfir áhyggjum sínum yfir að heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra skuli ekki geta boðið landsmönnum þjónustu samningsbundinna hjartalækna. Ástæður þeirra stöðu sem hjartalæknar og sjúklingar þeirra eru nú komir í segir Sigurbjörn þá að hjartalæknar vildu ekki starfa lengur undir þeim samningum sem þeim voru gerðir. Ekki hafi verið ágreiningur um taxta heldur afsláttarákvæði sem fól í sér að læknum voru ætluð ákveðið mörg verk á ári og ef þeir fóru fram úr þeim fjölda áttu þeir að gefa ríkinu afslátt af verulegum hluta af andvirði verka þeirra. Litlar sem engar viðræður hafi verið til að rétta hlut þeirra. Innlent 7.6.2006 12:37
Þurfa að endurskoða frístundabyggð við Úlfljótsvatn Orkuveita Reykjavíkur og fasteignafélagið Klasi þurfa að endurskoða hugmyndir sínar um frístundabyggð við Úlfljótsvatn vegna óskar borgarstjórnar Reykjavíkur þar um. Endurskoðunin hefst þó væntanlega ekki fyrr en ný stjórn Orkuveitunnar hefur verið kosin. Innlent 7.6.2006 12:09
Von á svari á tilboði Samtaka avinnulífsins um launahækkanir Alþýðusamband Íslands mun að öllum líkindum svara tilboði Samtaka atvinnulífsins um taxta- og launahækkanir í kringum helgina. Tilboðið miðar að því að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga um næstu áramót, en miðað við verðbólguhorfur í landinu eru forsendur kjarasamninga að óbreyttu brostnar. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, segir aðildarfélög sambandsins enn að skoða hugmyndir Samtaka atvinnulífsins en svör ættu að liggja fyrir í kringum helgina. Innlent 7.6.2006 12:11
Íslensku menntaverðlaunin afhent Íslensku menntaverðlaunin verða veitt annað sinni í kvöld. Athöfnin fer fram í Hjallaskóla og er það Ólafur Ragnar Grímsson sem afhendir verðlaunahöfum þau. Innlent 7.6.2006 11:38
Hlutabréf lækkuðu í Japan Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð í kauphöllinni í Tókýó í Japan vegna ótta fjárfesta um yfirvofandi hækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum. Gengi bréfanna hefur ekki verið lægra síðan í nóvember á síðasta ári. Viðskipti erlent 7.6.2006 10:30
Kortanotkun eykst á milli ára Kreditkortavelta heimilanna var 19,9 prósentum meiri á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs og debetkortavelta jókst um 10,3 prósent frá sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 7.6.2006 10:14
Orri verður framkvæmdastjóri Frumherja Orri Hlöðversson, fráfarandi bæjarstjóri í Hveragerði, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Frumherja í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Á fréttavefnum suðurland.is kemur fram að Orra hafi verið boðin staða bæjarstjóra í mörgum nýmynduðum meirihlutum á landinu, meðal annars Árborg, Mosfellsbæ og Fjarðarbyggð. Innlent 7.6.2006 07:50
Stórtónleikar í München vegna HM Fótboltamenn og áhugamenn fengu fullt fangið af tónlist á upphitunartónleikum fyrir HM sem haldnir voru í München í gær. Placido Domingo söng fyrir gestina og hafði heilar þrjár hljómsveitir sér til halds og trausts. Erlent 7.6.2006 07:47
Ólína formaður Vestfjarðaakademíunnar Ólína Þorvarðardóttir, fráfarandi skólameistari Menntaskólans á Ísafirði, var kjörin formaður Vestfjarðaakademíunnar á fyrsta aðalfundi félagsins fyrir helgi. Þetta kemur fram á fréttavef Bæjarins besta í dag. Innlent 7.6.2006 07:43
Rusl eykst um 78 kíló á ári með tilkomu fríblaða Rusl á dönskum heimilum mun aukast um 78 kíló á ári með tilkomu tveggja fríblaða í landinu. Þetta kemur fram í Jótlandspóstinum. Þar er fjallað um boðaða útgáfu 365 Medier á fríblaði og sams konar blað í útgáfu JP og Politiken. Erlent 7.6.2006 07:54
Ölvaður í hraðakstri í Ártúnsbrekkunni Lögreglan í Reykjavík stöðvaði í nótt ökumann sem mælst hafði á yfir hundrað og tuttugu kílómetra hraða í Ártúnsbrekku, þar sem hámarkshraði er áttatíu. Kom þá í ljós að hann var talsvert ölvaður og var því bundinn endir á ferðarlag hans. Innlent 7.6.2006 07:53
Sögð hafa greitt fyrir fangaflutningum Nokkur Evrópulönd eru sökuð um að hafa aðstoðað við leynilega fangaflutninga bandarísku leyniþjónustunnar CIA í nýrri skýrslu Evrópuráðsins. Fangaflutningarnir komust í hámæli á síðasta ári þegar greint var frá því að CIA hefði flogið með grunaða hryðjuverkamenn til landa þar sem pyntingar væru leyfilegar. Erlent 7.6.2006 07:57
Frjáls markaður að bregðast á sviði lyfjainnflutnings Halda má því fram með fullum rétti að frjáls markaður sé að bregðast landsmönnum á sviði lyfjainnflutnings, ef innflutningur á ódýrum samheitalyfjum verður ekki stór aukinn, segir Sigurður Guðmundsson landlæknir í grein í Morgunblaðinu í morgun. Innlent 7.6.2006 07:45
Bændur ruddust inn í brasilíska þingið Hundruð brasilískra bænda sem ekki hafa landnæði réðust inn í brasilíska þingið í gær til að krefjast úrbóta í landbúnaðarkerfinu. Tuttugu slösuðust í klukkutíma langri baráttu bændanna við lögreglu og öryggisverði en bændurnir köstuðu steinum og öðru lauslegu og börðu mann og annan með prikum. Erlent 7.6.2006 07:40
Féll af vélhjóli og slasaðist á Reykjavíkurvegi Ökumaður mótorhjóls slasaðist þegar hann féll af hjólinu á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í gærkvöldi og veltist eftir götunni en hjólið hafnaði mannlaust framan á bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Innlent 7.6.2006 07:37
Líkur á harðri lendingu vaxandi að mati Danske Bank Danske Bank telur að líkur á harðri lendingu í íslensku efnahagslífi fari vaxandi og telur að mat Standard og Poors frá í fyrradag um horfur á versnandi lánshæfismati sé slæmt fyrir íslenskt efnahagslíf. Innlent 7.6.2006 07:35
Viðskiptahalli aldrei meiri á fyrsta ársfjórðungi Viðskiptahalli Íslands gagnvart útlöndum hefur aldrei verið meiri en á fyrsta fjórðungi þessa árs. Bæði viðskiptahalli og vöruskiptajöfnuður eru tvöfalt meiri en á sama tíma í fyrra. Viðskiptahalli við útlönd nam rúmum 66 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi en stóð 32 komma 6 milljörðum á sama tíma í fyrra. Innlent 7.6.2006 07:34
Banaslys á Elliðavatnsvegi í gærkvöld Maður á þrítugsaldri beið bana þegar bíll hans fór út af Elliðavatnsvegi við gatnamótin að Kaldárselsvegi og valt, á tólfta tímanum í gærkvöldi. Annar maður á svipuðum aldri, sem var farþegi í bílnum, slasaðist og var fluttur á slysadeild Landspítalans en mun ekki vera í lífshættu. Innlent 7.6.2006 07:32
Ítalskir hermenn ekki kallaðir fyrr heim Ítalir munu ekki kalla herlið sitt fyrr heim frá Írak en áður var áætlað. Romano Prodi, sem tók við forsætisráðherraembættinu á Ítalíu í síðasta mánuði, tilkynnti þetta á ítalska þinginu í dag. Erlent 6.6.2006 22:51
Vilja forystursveit sem stillir til friðar innan Framsóknar Stjórn Kjördæmissambands framsóknamanna í Reykjavíkurkjördæmi norður, stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis norður og stjórn félags ungra framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi norður, harma þá ákvörðun Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra að hverfa brátt af vettvangi stjórnmálanna eftir áratuga farsælt starf. Innlent 6.6.2006 21:27
Orri ráðinn framkvæmdastjóri Frumherja Orri Hlöðversson, fráfarandi bæjarstjóri í Hveragerði, hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri Frumherja í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Á fréttavefnum suðurland punktur is kemur fram að Orra hafi verið boðin staða bæjarstjóri í mörgum nýmynduðum meirihlutum á landinu meðal annars Árborg, Mosfellsbæ og Fjarðarbyggð. Innlent 6.6.2006 20:50
Gengi krónunnar heldur áfram að lækka Gengi krónunnar heldur áfram að lækka og er Evran nú komin í um 94 krónur. Þá lækkaði gengi hlutabréfa í Kauphöllinni í dag. Innlent 6.6.2006 19:53
Unnið að því að bæta hagkvæmni og skilvirkni í íslenska stjórnkerfinu Einfaldara Ísland var yfirskrift ráðstefnu um gagnsæjara stjórnkerfi og reglugerðasetningu sem haldin var á hótel Nordica í dag. Ráðstefnan er liður í vinnu starfshóps sem vinnur að því að bæta hagkvæmni og skilvirkni reglugerðarsetningar í íslensku stjórnkerfi. Innlent 6.6.2006 19:48
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisafbrot Tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa þvingað stúlku til að hafa við sig munnmök og að hafa reynt að þröngva henni til samræðis. Innlent 6.6.2006 18:57