Fréttir
Daniel Ortega líklegur til sigurs í Níkvaragva Erlent 31.10.2006 14:52 Stór hluti fiskafla á Sri Lanka spillist Talið er að 30 til 40% af fiskafla sem veiðist á Sri Lanka spillist frá því fiskurinn er veiddur þar til hann er kominn á borð neytenda. Rýrnun gæða fisks er vandamál í fiskiðnaði á Sri Lanka og er það eitt af þeim verkefnum sem fiskiðnaðurinn tekst nú á við. Innlent 31.10.2006 14:37 Bænastund við Óshyrnu á Óshlíðarvegi Haldin verður bænastund við Óshyrnu á Óshlíðarvegi annað kvöld klukkan átta. Biðja á fyrir vegfarendum sem keyra um Óshlíð og þeim sem taka ákvarðanir um endurbætur á vegasamgöngum milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Innlent 31.10.2006 14:20 Samráð um verð á vinnsluminnum Samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum rannsaka nú hvort suður-kóreska hátækniframleiðandinn Samsung og bandaríska fyrirtækið Cypress Semiconductor hafi haft með sér samráð um verðlagningu á vinnsluminnum af gerðinni SRAM, sem þau seldu Sony á síðasta ári. Talsmenn Sony segja að fyrirtækið muni vinna með yfirvöldum að lausn málsins. Viðskipti erlent 31.10.2006 13:43 Hyldýpi örvæntingarinnar blasti við forsætisráðherranum Erlent 31.10.2006 13:38 Tveggja mánaða fangelsi fyrir að hefna framhjáhalds Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tuttugu og sex ára karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, þar af tvo mánuði skilorðsbundið. Innlent 31.10.2006 13:21 Hafa kært árásir til lögreglu Hjónin sem lentu í árás á veitingastað í miðborginni um helgina, þar sem fyrrverandi lögreglumaður réðst að hópi manna sem gerðu tilraun til að nauðga konu hans, hafa kært málið til lögreglu. Innlent 31.10.2006 12:26 40 Írökum rænt Meira en 40 Írökum hefur verið rænt í árás á strætisvagna sem voru á leið til Bagdad um hádegisbil í dag samkvæmt fregnum frá lögreglunni í Tíkrít. Erlent 31.10.2006 12:59 Fyrsta hrefnan veidd eftir að veiðar í atvinnuskyni voru heimilaðar Skipverjar á bátnum Halldóri Sigurðurssyni veiddu í dag fyrstu hrefnuna frá því að veiðar í atvinnuskyni voru heimilaðar fyrir tveimur vikum. Að sögn Konráðs Eggertssonar skipstjóra veidist hrefnan á Ísafjarðardjúpi um klukkan hálftólf og verður komið með kjötið af henni til Ísafjarðar síðar í dag, en fyrst þarf að taka sýni úr hrefnunni og sinna ýmsum rannsóknarstörfum eins og Konráð orðar það. Innlent 31.10.2006 12:55 KB banki greiðir langhæstu opinberu gjöldin Kaupþing banki greiðir langhæstu opinberu gjöld allra lögaðila, samkvæmt álagningaskrá Skattstjórans í Reykjavík fyrir þetta ár. Reykjavíkurborg er komin niður í sjötta sæti, en Kópavogsbær er hins vegar hæsti greiðandi í Reykjanesumdæmi. Innlent 31.10.2006 12:07 Samstaða um Halldór meðal ráðherra Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, verður næsti framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Forsætisráðherrar norrænu ríkjanna sammæltust um þetta á fundi sínum í Kaupmannahöfn í morgun. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að samstaða hafi orðið um hann, meðal annars vegna þess að Íslendingur hafi aldrei áður gegnt starfinu. Innlent 31.10.2006 12:20 « ‹ ›
Herinn á Sri Lanka gerir árásir á Tamíltígra Flugherinn á Sri Lanka gerði í morgun árás á búðir Tamíltígra í austurhluta landsins. Erlent 1.11.2006 08:41
Norskan olíuborpall rekur stjórnlaust um Norðursjó Norska olíuborpallinn Bredford Dolphin rekur nú stjórnlaust um Norðursjó með um 75 manns um borð. Ofsaveður var á svæðinu þegar borpallurinn losnaði frá dráttarbáti,sem var með hann í togi. Erlent 1.11.2006 08:16
Herinn hugsanlega sendur til Napólí Stjórnvöld á Ítalíu ræða nú þann mögleika að senda herlið til Napólí til þess stilla til friðar í borginni. Ofbeldisglæpum hefur fjölgað þar á síðastliðnum dögum og vilja ráðamenn grípa í taumana fyrr en síðar. Erlent 31.10.2006 17:55
Bjargað með gervifrjóvgun Kóalabirnir, sem urðu til með gervifrjóvgun, voru kynntir í dýragarði í Queensland í Ástralíu í gær. Birnirnir eru átta en þrír þeirra voru sýndir almenningi. Þeir eru á bilinu 10 til 12 mánaða. Vísindamenn vilja fara þessa leið til að tryggja viðhald stofnsins. Erlent 31.10.2006 17:58
Aftur að samningaborðinu Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa ákveðið að setjast aftur að samningaborðinu og reyna að finna lausn á kjarnorkudeilu sinni við nágrannaríki sín og Vesturveldin. Þetta var ákveðið á óformlegum fundi embættismanna frá Bandaríkjunum, Kína og Norður-Kóreu í dag. Viðræðurnar sigldu í strand fyrir um ári. Erlent 31.10.2006 17:49
Sjö þegar yfirheyrðir vegna hlerana Rannsókn sýslumannsins á Akranesi í hlerunarmálinu er langt komin en skýrslur hafa verið teknar af sjö mönnum vegna málsins. Rannsóknin snýr að meintum hlerunum á símum Jóns Baldvins Hannibalssonar og starfsmanns hans í utanríkisráðuneytinu. Maðurinn sem á að hafa hlerað Jón Baldvin hefur verið nafngreindur og upplýsingar um hann eru í höndum sýslumanns. Innlent 31.10.2006 19:15
Pólverjar vinna mál gegn starfsmannaleigu Tólf Pólverjar sem störfuðu við Kárahnjúka unnu í dag dómsmál gegn starfsmannaleigu og fengu viðurkennt að þeir voru hlunnfarnir um á annað hundrað þúsund krónur á mánuði. Þetta er afar mikilvægur dómur, að mati verkalýðshreyfingarinnar. Innlent 31.10.2006 19:09
Bretar vilja samkomulag til framtíðar Bresk stjórnvöld leggja áherslu á að nýr samningur um losun gróðurhúsalofttegunda verði tilbúinn eigi síðar en árið 2008. Kyoto-bókunin um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda gildi aðeins til ársins 2012. Erlent 31.10.2006 15:33
25 ríki mótmæla hvalveiðum Íslendinga 25 ríki mótmæla á morgun hvalveiðum Íslendinga í atvinnuskyni með formlegum hætti. Alp Mehmet, sendiherra Breta á Íslandi, mun afhenda mótmælaskjal fyrir hönd ríkjanna í utanríkisráðuneytinu klukkan 10 í fyrramálið. Innlent 31.10.2006 18:26
Veik tengsl milli pólskra innflytjenda Ný íslensk rannsókn sýnir að dæmi eru um að Pólverjum sé boðin vinna á lægra kaupi eingöngu á grundvelli þjóðernis. Sömuleiðis bendir hún til þess að pólskir innflytjendur hafi lítil samskipti sín á milli. Innlent 31.10.2006 17:53
KB banki borgar 7 milljarða í skatta Kaupþing banki greiðir nú í fyrsta skipti meira í opinber gjöld en Fjársýsla ríkisins. Bankinn greiðir langhæstu opinberu gjöldin á þessu ári - nærri sjö milljarða króna, rúmum fimm milljörðum meira en í fyrra. Tekjuskattur lögaðila hefur hækkað um 46% frá síðasta ári. Innlent 31.10.2006 17:48
Leigubílar geta ekið á sérakreinum Strætó Leigubílum verður innan skamms heimilt að aka á sérakreinum Strætó. Framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á síðasta fundi sínum að heimila leigubílstjórum akstur á þessum akreinum. Sett er sem skilyrði að leigubílar nýti eingöngu akreinarnar þegar um farþegaflutninga gegn gjaldi er að ræða. Innlent 31.10.2006 16:30
Djúpstraumur sem "hikstaði" Hafrannsóknarstofnun segir að það hafi ekki verið Golfstraumurinn sem slíkur, sem stoppaði í tíu daga í nóvember árið 2004, heldur djúpstraumur sem hefur engin svipuð áhrif og Golfstraumurinn. Innlent 31.10.2006 16:25
Aðeins á eftir að veiða tvær langreyðar Hvalur 9 er nú á leið í land með tvær sextíu feta langreyðar. Búið er að skjóta sjö langreyðar af þeim níu sem heimild fékkst til að veiða. Af dýrunum sem hafa verið veidd eru fjórar kýr og þrír tarfar. Kristján Loftsson, stjórnarformaður Hvals, segir að ef veðrið haldist áfram eins og það er nú þá klári þeir kvótann. Innlent 31.10.2006 15:50
Gæsluvarðhald framlengt yfir múslimum í Danmörku Gæsluvarðhald var í dag framlengt um fjórar vikir, yfir fimm múslimum sem voru handteknir í Óðinsvéum, í Danmörku, í byrjun september. Erlent 31.10.2006 15:49
Sniglarnir vilja losna við ný vegrið Bifhjólasamtökin Sniglarnir hafa hafið undirskriftasöfnun til að mótmæla uppsetningu nýrrar tegundar vegriða. Um er að ræða svokölluð víravegrið og segja Sniglarnir þau stórhættuleg bifhjólafólki. Samtökin skora á Sturlu Böðvarsson, samgönguráðherra að taka nýju vegriðin strax niður. Innlent 31.10.2006 15:39
Danskt herlið eins lengi og Írakar vilja Danskt herlið verður eins lengi í Írak og ríkisstjórn Íraka fer fram á og Sameinuðu þjóðirnar samþykkja. Andres Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkru sagði þetta á blaðamannafundi í gær í Kaupmannahöfn. Írakar hafa óskað eftir því að vera herliðsbandamanna í landinu verði framlengd um ár. Erlent 31.10.2006 15:06
Framsóknarmönnum fjölgaði eftir að póstkosning var ákveðin Framsóknarmönnum í Norðvesturkjördæmi hefur fjölgað um fjórðung frá því að ákveðið var að efna til póstkosningar um skipan framboðslista flokksins í kjördæminu. Frá þessu er greint á fréttavef Skessuhorns. Innlent 31.10.2006 15:01
Avion Group kaupir í Atlas Avion Group hefur fyrir hönd dótturfélags síns Eimskips Atlas Canada, Inc. eignast 85,8 prósent hlutafjár í kanadíska frystigeymslufyrirtækinu Atlas Cold Storage Income Trust eða samtals 56,2 milljónir bréfa að nafnverði á genginu 7,5 kanadíska dali á hlut. Viðskipti innlent 31.10.2006 14:59
Stór hluti fiskafla á Sri Lanka spillist Talið er að 30 til 40% af fiskafla sem veiðist á Sri Lanka spillist frá því fiskurinn er veiddur þar til hann er kominn á borð neytenda. Rýrnun gæða fisks er vandamál í fiskiðnaði á Sri Lanka og er það eitt af þeim verkefnum sem fiskiðnaðurinn tekst nú á við. Innlent 31.10.2006 14:37
Bænastund við Óshyrnu á Óshlíðarvegi Haldin verður bænastund við Óshyrnu á Óshlíðarvegi annað kvöld klukkan átta. Biðja á fyrir vegfarendum sem keyra um Óshlíð og þeim sem taka ákvarðanir um endurbætur á vegasamgöngum milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Innlent 31.10.2006 14:20
Samráð um verð á vinnsluminnum Samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum rannsaka nú hvort suður-kóreska hátækniframleiðandinn Samsung og bandaríska fyrirtækið Cypress Semiconductor hafi haft með sér samráð um verðlagningu á vinnsluminnum af gerðinni SRAM, sem þau seldu Sony á síðasta ári. Talsmenn Sony segja að fyrirtækið muni vinna með yfirvöldum að lausn málsins. Viðskipti erlent 31.10.2006 13:43
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að hefna framhjáhalds Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tuttugu og sex ára karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, þar af tvo mánuði skilorðsbundið. Innlent 31.10.2006 13:21
Hafa kært árásir til lögreglu Hjónin sem lentu í árás á veitingastað í miðborginni um helgina, þar sem fyrrverandi lögreglumaður réðst að hópi manna sem gerðu tilraun til að nauðga konu hans, hafa kært málið til lögreglu. Innlent 31.10.2006 12:26
40 Írökum rænt Meira en 40 Írökum hefur verið rænt í árás á strætisvagna sem voru á leið til Bagdad um hádegisbil í dag samkvæmt fregnum frá lögreglunni í Tíkrít. Erlent 31.10.2006 12:59
Fyrsta hrefnan veidd eftir að veiðar í atvinnuskyni voru heimilaðar Skipverjar á bátnum Halldóri Sigurðurssyni veiddu í dag fyrstu hrefnuna frá því að veiðar í atvinnuskyni voru heimilaðar fyrir tveimur vikum. Að sögn Konráðs Eggertssonar skipstjóra veidist hrefnan á Ísafjarðardjúpi um klukkan hálftólf og verður komið með kjötið af henni til Ísafjarðar síðar í dag, en fyrst þarf að taka sýni úr hrefnunni og sinna ýmsum rannsóknarstörfum eins og Konráð orðar það. Innlent 31.10.2006 12:55
KB banki greiðir langhæstu opinberu gjöldin Kaupþing banki greiðir langhæstu opinberu gjöld allra lögaðila, samkvæmt álagningaskrá Skattstjórans í Reykjavík fyrir þetta ár. Reykjavíkurborg er komin niður í sjötta sæti, en Kópavogsbær er hins vegar hæsti greiðandi í Reykjanesumdæmi. Innlent 31.10.2006 12:07
Samstaða um Halldór meðal ráðherra Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, verður næsti framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Forsætisráðherrar norrænu ríkjanna sammæltust um þetta á fundi sínum í Kaupmannahöfn í morgun. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að samstaða hafi orðið um hann, meðal annars vegna þess að Íslendingur hafi aldrei áður gegnt starfinu. Innlent 31.10.2006 12:20