Fréttir
Eldur í kjallara fjölbýlishúss Slökkvilið höfuðborgasvæðisins var kallað út eftir að mikils reyks var vart í kjallara í fjölbýlishúsi að Háaleitisbraut um klukkan hálf fimm í gær. Eldur hafði komið upp í þvottavél og þurfti reykkafara til að komast að honum. Innlent 13.10.2005 19:15
Skildu síamstvíburasystur að Læknar í Singapúr skildu í morgun að indónesískar tvíburasystur sem voru samvaxnar á mjöðm. Þeir segja ástand þeirra stöðugt. Systurnar voru með ýmis sameiginleg líffæri og voru með samtals þrjá fætur. Þær eru tæplega eins og hálfs árs en aðgerðin tók tíu klukkustundir. Erlent 13.10.2005 19:15
Tjónþolar fá hlut sinn bættan Tryggingafélögin eru bótaskyld ef byggingarstjórar vanrækja skyldur sínar og gerast sekir um brot í starfi. Íbúar í fjölbýlishúsi í Grafarholti segjast hafa orðið fyrir tjóni sem þeir rekja til vanefnda verktakanna sem byggðu húsið og byggingarstjóri gerði ekki athugasemdir við. Innlent 13.10.2005 19:15
Fækkar í sænskum framhaldsskólum Svíar hafa vaxandi áhyggjur af því að ungmennum sem ekki ljúka framhaldsskólanámi fer stöðugt fjölgandi. Erlent 13.10.2005 19:15
Á fimmta tug beið bana í gær Flugumenn al-Kaída í Írak réðu hátt settan embættismann af dögum í Bagdad í gær. Auk þess beið á fimmta tug Íraka bana í árásum víðsvegar um landið. Í Rúmeníu fögnuðu menn hins vegar frelsun þarlendra blaðamanna sem haldið hafði verið í gíslingu í tæpa tvo mánuði. Erlent 13.10.2005 19:15
Frusu í hel Leit stendur enn yfir í hlíðum Andesfjalla af nítján hermönnum sem talið er að hafi orðið úti í mikilli stórhríð í fjöllunum í síðustu viku. 26 lík félaga þeirra hafa þegar fundist. Erlent 13.10.2005 19:15
Vilja afnema stimpilgjöld Tæplega 95 prósent þáttakenda í vefkönnun sem fram hefur farið á vef Neytendasamtakanna telja að afnemi eigi stimpilgjöld og lýsa samtökin undrun yfir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi á Alþingi í vetur. Innlent 13.10.2005 19:15
Sprengjuárás á bæjarskrifstofu Að minnsta kosti fimm létust og 18 særðust þegar sprengja sprakk fyrir utan skrifstofu bæjarstjóra í bænum Tuz Khurmatu í Írak í morgun. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í bíl sem lagt hafði verið fyrir framan bæjarstjórnarskrifstofurnar en bæjarstjórann sjálfan sakaði þó ekki. Erlent 13.10.2005 19:15
Alífuglar bólusettir í Kína Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að bólusetja þrjár milljónir alífugla í Quinghai-héraði í vesturhluta landsins eftir að næstum 200 gæsir fundust þar dauðar líklega að völdum fuglaflensu. Enn hefur þó enginn maður látist vegna fuglaflensu í Kína. Erlent 13.10.2005 19:15
Föt 50% dýrari en í nágrannaríkjum Fatnaður og skór eru tæplega fimmtíu prósentum dýrari hér á landi en í öðrum Evrópuríkjum. Þetta kemur fram í tölum sem hagstofa Evrópusambandsins birti nýverið. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:15
Fuglaflensa dregur einn til dauða Yfirvöld í Víetnam tilkynntu í morgun um að 46 ára gamall maður hefði látist af völdum fuglaflensu þar í landi. Alls hafa nú alls 54 manns látist af völdum veikinnar í Víetnam. Maðurinn veiktist mjög skyndilega og var lagður inn á sjúkrahús og þremur þremur dögum síðar lést hann. Erlent 13.10.2005 19:15
Ný stjórn Samkeppniseftirlitsins Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hefur skipað nýja stjórn Samkeppniseftirlitsins sem tekur til starfa samkvæmt nýjum lögum þann 1. júlí. Innlent 13.10.2005 19:15
N-Kóreumenn við samningaborðið Norður-Kórea hefur staðfest að hafa átt í viðræðum við Bandaríkin um kjarnorkuvopnaframleiðslu. Vonast til að viðræðurnar geti leitt til þess að Norður-Kórea hætti við áform sín um að hefja framleiðslu á slíkum vopnum. Lönd í kringum Norður-Kóreu hafa verið áhyggjufull að undanförnu yfir því að Norður-Kóreumenn hefji prófanir á kjarnorkuvopnum en yfirvöld í Pyongyang hafa lýst því yfir vilja til þess. Erlent 13.10.2005 19:15
Hart sótt að Schröder Jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröders, kanslara, beið afhroð í fylkiskosningum í Nordrhein-Westfalen á sunnudaginn en flokkurinn hefur haldið þar um stjórnartaumana síðan 1966. Erlent 13.10.2005 19:15
Elgir valda vandræðum í Þrándheimi Tveir elgir ollu nokkrum usla í morgunumferðinni í Þrándheimi í dag en svo virðist sem dýrin hafi villst inn í borgina. Samkvæmt <em>Aftenposten</em> fékk lögreglan í Þrándheimi fjölmargar tilkynningar frá fólki snemma í morgun um ferðir elganna tveggja á vegum sunnan miðbæjarins og munaði minnstu nokkrum sinnum að ekið yrði á þá. Erlent 13.10.2005 19:15
Þrír handteknir á Selfossi Þrír menn voru handteknir á Selfossi á fimmtudaginn eftir að nokkurt magn af amfetamíni, kannabisefnum og -plöntum fannst við húsleit lögreglunnar. Innlent 13.10.2005 19:15
Hreyfing og hollmeti lykillinn Hundruðum milljóna króna er varið á hverju ári í að finna út hvert leyndarmálið að háum aldri sé. Það kemur eflaust ekki á óvart að hollur matur og nægileg hreyfing sé rétta svarið en í þorpinu Bama í Kína, þar sem þessi tvö atriði eru í hávegum höfð, eru yfir 70 manns yfir eitt hundrað ára gamlir. Erlent 13.10.2005 19:15
Rífa hús við Borgartún 17 Þessa dagana er unnið við að rífa niður hús sem stendur við Borgartún 17 en til stendur að tvöfalda höfuðstöðvar Kaupþings banka. Í húsinu voru verkfræði- og arkitektaskrifstofur og í fyrstu stóð til að gera brú á milli hússins og núverandi höfuðstöðva. Húsið sem er 27 ára þykir hins vegar barn síns tíma en lofthæðin þykir ekki næg fyrir tilhlýðilegt loftræstikerfi. Innlent 13.10.2005 19:15
Göran Persson gegn klámvæðingu Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, vill skera upp herör gegn klámvæðingu sænskra fjölmiðla. Hefur hugmyndum hans verið fálega tekið af fjölmiðlum, sem fullyrða að þetta sé ekkert annað en ósvífin tilraun til ritskoðunar. Erlent 13.10.2005 19:15
Frá Siglufirði til borgar á hjóli Tíu starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar hjóluðu til Reykjavíkur til að taka við viðurkenningu í keppninni <em>Hjólað í vinnuna</em>. Innlent 13.10.2005 19:15
Fer ekki út vegna flugfélagsreglna Gylfi Baldursson talmeinafræðingur fékk ekki að kaupa ferð til Króatíu með Heimsferðum. Flugfélagið sem ferðaskrifstofan skiptir við neitaði að útvega honum súrefniskút meðan á ferðinni stæði. Þá var honum meinað að koma með sinn eigin kút. Innlent 13.10.2005 19:15
Guðmundur Árni verður sendiherra Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, verður sendiherra og hættir á Alþingi eftir því sem háttsettar heimildir fréttastofu Byllgjunnar í stjórnkerfinu herma. Talið er að Guðmundur Árni verði sendiherra í Svíþjóð og taki við af Svavari Gestssyni. Hann er sagður flytjast til Danmerkur. Guðmundur Árni hefur ekki viljað tjá sig um málið og svaraði öllum spurningum fréttamanna með því að segja að hann kæmi af fjöllum. Innlent 13.10.2005 19:15
Stórsókn gegn uppreisnarmönnum Bandarískar og afganskar sveitir hafa hrundið af stað þremur viðamiklum aðgerðum í suður- og austurhluta Afganistans til þess að reyna að binda enda á árásir uppreisnarmanna í landinu og auka öryggi borgaranna. Frá þessu greindi Bandaríkjaher í dag. Herinn telur að baráttuþrek uppreisnarmanna úr röðum talibana og bandamanna þeirra sé að þverra og því var ákveðið að hefja stórsókn til þess að hrekja þá úr fylgsnum sínum. Erlent 13.10.2005 19:15
Starfsmenn BBC í verkfalli Ellefuþúsund frétta- og tæknimenn breska ríkisútvarpsins BBC lögðu niður störf í sólarhring í gær til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði og einkavæðingu hluta stofnunarinnar. Til stendur að segja upp um 4 þúsund starfsmönnum og spara með því móti rúmlega 350 milljónir pund árlega. Erlent 13.10.2005 19:15
Háskólar semja um nemendaskipti Á næstu árum mun íslenskum háskólanemendum fjölga til mikilla muna, en bæði Viðskiptaháskólinn á Bifröst og Háskólinn í Reykjavík hafa náð samningum við skóla í Shanghai um að skiptast á nemendum. Innlent 13.10.2005 19:15
Vetrarfærð fyrir norðan og austan Vorið virðist víðs fjarri á Norðaustur- og Austurlandi því samkvæmt Vegagerðinni er vetrarfærð þar víða, hálka eða hálkublettir, einkum á heiðum. Á Vestfjörðum eru hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði og verið að moka Þorskafjarðarheiði. Á Tröllatunguheiði er þæfingur. Innlent 13.10.2005 19:15
Hyggjast stofna Vestfjarðaakademíu Til stendur að stofna félag fræðimanna á Vestfjörðum um næstu mánaðamót og hefur það fengið vinnuheitið Vestfjarðaakademían. Að stofnun félagsins standa Ólína Þorvarðardóttir, rektor Menntaskólans á Ísafirði, og Anna Guðrún Edvardsdóttir hjá Náttúrustofu Vestfjarða. Innlent 13.10.2005 19:15
Þjást enn af áfallastreitu Tjón af Suðurlandsskjálftunum sumarið 2000 gæti verið helmingi meira en áður var talið. Sérfræðingar telja í nýrri úttekt að rannsaka verði burðarvirki og undirstöður allt að tvö þúsund húsa nærri upptökunum. Fimm árum eftir skjálftana er talið að allt að þúsund manns búi enn við áfallastreitu. Innlent 13.10.2005 19:15
Fimm látnir úr hermannaveiki Fimm Norðmenn eru látnir úr hermannaveiki sem blossaði upp í Fredrikstad í Noregi. Tuttugu og fjórir í viðbót hafa greinst með sjúkdóminn. Enn er ekki vitað hvernig hann barst milli manna. Erlent 13.10.2005 19:15
Vanefndir í Hveragerði Verktakafyrirtækið, sem annaðist framkvæmdir á fjölbýlishúsinu í Grafarholti, hefur nú verið tekið til gjaldþrotaskipta og hefur Guðjón Ægir Sigurjónsson lögmaður verið skipaður skiptastjóri í þrotabúinu. Innlent 13.10.2005 19:15