Fjör í fjárhúsum landsins Það er mikið líf og fjör í fjárhúsum landsins á þessum tíma árs því nú stendur fengitíminn yfir. Passað er vel upp á að velja bestu hrútana á ærnar þannig að það komi falleg og vel gerð lömb í heiminn næsta vor. 21.12.2021 20:05
Glæsilegt sjóminjasafn hjá Rabba í Vestmannaeyjum Eitt allra glæsilegasta sjóminjasafn í einkaeigu er í Vestmannaeyjum en þar er að finna fjölda bátalíkana og um sjö hundruð safngripi. 19.12.2021 20:11
Gamla fólkið á Höfn látið bíða inn á baðherbergi á meðan herbergisfélaginn deyr Íbúar á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn í Hornafirði þurfa að deila herbergi og salerni með öðrum. Þá geta íbúarnir ekki tekið á móti aðstandendum í herbergin sín því þau eru svo lítil og vilji íbúarnir komast í sturtu þarf að panta það fyrir fram. „Þegar við liggjum svo banaleguna er herbergisfélagi okkar færður inn á baðherbergi svo við getum átt næði síðustu ævistundirnar með okkar ástvinum,“ segja íbúarnir meðal annars í opnu bréfi til heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnarinnar. 19.12.2021 12:16
Bjarni Harðar með 32 nýjar bækur fyrir jól „Það er ekki hægt að líka því saman hvað það er miklu skemmtilegra að vera bóksali heldur en alþingismaður“, segir Bjarni Harðarson á Selfossi en hann er að gefa út 32 titla af nýjum bókum fyrir jól. Bjarni, eða Bjarni Harðar eins og hann er alltaf kallaður, og Elín Gunnlaugsdóttir, eiginkona hans fengu í vikunni menningarverðlaun Árborgar fyrir árið 2021. 18.12.2021 14:00
Sterk systkini á Selfossi sem æfa þrjá tíma á dag Þau kalla ekki allt ömmu sína systkinin á Selfossi þegar kemur að kröftum því þau hafa breytt bílskúrnum heima hjá sér í kraftlyftingaskúr. Hann, sem er 18 ára er nýkrýndur Norðurlandameistari í Ólympískum lyftingum og hún, sem er 14 ára hreppti silfrið í sínum flokki. Systkinin æfa að meðaltali í þrjá klukkutíma á dag. 15.12.2021 20:15
Ekki mokað á þriðjudögum og laugardögum í Uppsveitum Árnessýslu Íbúar í Uppsveitum Árnessýslu eru margir hverjir óánægðir með það staðreynd að Vegagerðin mokar ekki nokkra fjölfarna vegi svæðisins á þriðjudögum og laugardögum þó að það kafsnjói á þeim dögum. Sveitarstjóri Bláskógabyggðar segist ekki trúa öðru en að Vegagerðin breyti þessu verklagi sínu. 12.12.2021 13:15
Jólapóstkassar og alvöru jólasleðar á Vestfjörðum Vestfirðingar ætla sér að taka jólin alla leið þetta árið því búið er að setja á laggirnar jólaverkefni, sem kallast „Jólalestin“ en það er frumkvöðlaverkefni. Smíðaðir verða 12 jólasleðar og 12 jólapóstkassar, eitt sett fyrir hvert bæjarfélag á Vestfjörðum. Þá geta börnin skrifað jólasveininum bréf og fengið svar til baka. 11.12.2021 13:17
Töfratálgari í Hveragerði Útskurðarhnífar Andrínu Guðrúnar í Hveragerði hljóta að vera einhverskonar töfrahnífar því fuglarnir, sem hún tálgar verða svo fallegir í höndunum á henni. Mesta áskorun Andrínu er að tálga hrafninn. 7.12.2021 10:08
Ekkert spurt um aðbúnað dýra í útlöndum Formaður Bændasamtakanna segir íslenska neytendur ekki hafa hugmynd um hvernig farið er með þau dýr í útlöndum og við hvernig aðbúnað þau lifa þegar kjöt af gripunum eru flutt inn til Íslands. Hann krefst þess að sömu kröfur verði gerðar til innfluttra matvæla eins og gert er til innlendrar matvælaframleiðslu þegar aðbúnaðarreglugerð dýra er annars vegar. 5.12.2021 13:16
35 íbúðir afhentar á Selfossi í dag í hæsta húsnæði á Suðurlandi Það eru ánægðir íbúðaeigendur, sem taka á móti lyklum sínum í dag í 35 nýjum íbúðum á Selfossi en blokkin, sem fólkið er að flytja í er hæsta húsnæði á Suðurlandi upp á sex hæðir. Allar íbúðirnar í blokkinni seldust án auglýsinga. Byggingarverktakinn er byrjaður að byggja aðra blokk við hlið þeirra nýju. 4.12.2021 13:03