Ekkert smit en fólki í sóttkví fjölgar Enn greinist ekkert nýtt kórónuveirusmit á Íslandi, fjórða daginn í röð. Fólki í sóttkví fjölgaði hins vegar um 67 á milli daga. 3.6.2020 13:07
Viðurkennir að Svíar hefðu átt að gera betur Sænsk stjórnvöld hefðu átt að taka kórónuveirufaraldurinn fastari tökum en þau gerðu eftir á að hyggja. Þetta viðurkennir Anders Tegnell, sóttvarnalæknir Svíþjóðar. Að ráðleggingum hans gengu Svíar mun skemur í aðgerðum til að hefta útbreiðslu veirunnar en flestar aðrar þjóðir og er dánartíðnin í Svíþjóð með þeirri hæstu í heiminum. 3.6.2020 11:47
Umdeildum þingmanni hafnað og Biden við það að sigra Kjósendur Repúblikanaflokksins í Iowa höfnuðu umdeildum þingmanni sínum sem sóttist eftir tíunda kjörtímabili sínu í forvali í gær. Joe Biden, fyrrverandi varaforseti, er við það að tryggja sér útnefningu demókrata sem forsetaframbjóðandi eftir kosningarnar sem fóru fram í skugga kórónuveirufaraldurs og mótmælaöldu vegna dráps á blökkumanni í haldi lögreglu. 3.6.2020 11:04
Þjóðverjar afnema ferðatakmarkanir til Íslands Ferðatakmörkunum sem hafa verið í gildi í Þýskalandi vegna kórónuveirufaraldursins gagnvart Evrópusambandslöndum, Bretlandi auk Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss verður aflétt með fyrirvörum frá og með 15. júní. 3.6.2020 09:36
Biden segir Bandaríkin þurfa að taka á kerfisbundnum rasisma Bandaríkin skortir forystu á tíma þegar þau þurfa að taka á kerfisbundinni kynþáttahyggju í kjölfar dauða blökkumanns í haldi lögreglu í síðustu viku, að sögn Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. Í fyrstu í Fíladelfíu deildi Biden hart á Donald Trump forseta fyrir viðbrögð hans við mótmælum undanfarinna daga. 2.6.2020 16:39
Skimun á landamærunum lágmarkar áhættu en eyðir henni ekki Sóttvarnalæknir mælir með því að stefnt verði að því að hefja skimun ferðamanna fyrir kórónuveiru á Keflavíkurflugvelli sem fyrst til að reynsla fáist af henni á meðan ferðamannastraumur er enn ekki mikill. Í minnisblaði til heilbrigðisráðherra segir sóttvarnalæknir skimunina draga úr áhættu á að smitaðir ferðamenn komi til landsins en komi ekki algerlega í veg fyrir það. 2.6.2020 15:36
Fimm lögreglumenn skotnir í mótmælum vestanhafs Að minnsta kosti fimm lögreglumenn eru sagðir hafa orðið fyrir byssukúlum í mótmælum vegna dauða blökkumanns í haldi lögreglu í gærkvöldi. Lögreglumennirnir eru ekki taldir lífshættulega særðir. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að beita hernum til að stöðva mótmæli og óeirðir. 2.6.2020 13:39
Engin breyting á fjölda smitaðra Ekkert nýtt tilfelli kórónuveiru greindist á Íslandi síðasta sólarhringinn samkvæmt nýjum tölum landlæknis og almannavarna. Þetta var þriðji dagurinn í röð sem ekkert nýtt smit greindist en aðeins einstaka smit hafa greinst undanfarnar vikur. 2.6.2020 13:13
Evrópusambandið lýsir áhyggjum af morðinu á George Floyd Utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir það slegið yfir dauða George Floyd, blökkumanns sem var myrtur í haldi lögreglu í Bandaríkjunum. Hann varar við því að ríki beiti óhóflegu valdi og segir drápið á Floyd misbeitingu valds. 2.6.2020 12:07
Starfsmenn Facebook ósáttir við afskiptaleysi af færslum Trump Megnrar óánægju gætir hjá sumum starfsmönnum samfélagsmiðlarisans Facebook vegna þess hvernig Mark Zuckerberg forstjóri hefur haldið að sér höndum varðandi umdeildar færslur Donald Trump Bandaríkjaforseta. Zuckerberg og Trump ræddu saman í síma á föstudag. 2.6.2020 10:58