Tvöfalda tölu látinna í faraldrinum í Moskvu Yfirvöld í Moskvu segja nú að meira en tvöfalt fleiri hafi látið lífið úr Covid-19 en þau hafa haldið fram til þessa. Fréttamenn sem hafa sagt opinberar tölur vanmeta mannskaðann hafa verið sakaðir um að dreifa falsfréttum. 29.5.2020 15:52
Vesturveldi mótmæla tilburðum Kína gagnvart Hong Kong Ríkisstjórnir Bretlands, Bandaríkjanna, Ástralíu og Kanada fordæmdu kínversk stjórnvöld vegna nýrra laga sem þau hafa samþykkt sem þrengja að frelsi íbúa Hong Kong. Lögin stangist einnig á við alþjóðlegar skuldbindingar Kína gagnvart sjálfstjórnarsvæðinu. 28.5.2020 14:19
Telja ráðgjafa Johnson hafa brotið reglur en aðhafast ekkert Breska lögreglan telur að Dominic Cummings, einn nánasti ráðgjafi Boris Johnson forsætisráðherra, gæti hafi gerst sekur um „minniháttar“ brot á fyrirmælum yfirvalda um að fólk héldi sig heima vegna kórónuveirufaraldursins. Hún ætlar þó ekkert að aðhafast í málinu. 28.5.2020 13:20
Samfélagsmiðlarisar ósammála um ábyrgð sína Forstjórar Facebook og Twitter eru ekki á einu máli um hvaða ábyrgð samfélagsmiðlarnir bera á upplýsingafalsi sem þeir eru notaðir til þess að dreifa. Hvíta húsið heldur því fram að Donald Trump Bandaríkjaforseti ætli að gefa út tilskipun um samfélagsmiðla eftir að Twitter setti fyrirvara við fullyrðingar sem hann setti fram í tísti í vikunni. 28.5.2020 12:13
Beiðnum namibískra yfirvalda miðar áfram hjá héraðssaksóknara Embætti héraðssaksóknara á í samskiptum við ríkissaksóknara í Namibíu sem rannsakar meint brot í Samherjamálinu svonefnda og framvinda hefur orðið í réttarbeiðnum sem hafa borist að utan, að sögn héraðssaksóknara. Einn namibísku rannsakendanna kvartaði undan því að Ísland og þrjú önnur ríki hefðu enn ekki verið hjálpleg við rannsóknina í vikunni. 28.5.2020 11:07
Flugumferðarstjórar buðust til að taka á sig launaskerðingu Engar eiginlegar viðræður áttu sér stað á milli Isavia ANS og Félags íslenskra flugumferðarstjóra áður en gripið var til uppsagna hundrað flugumferðarstjóra í dag, að sögn formanns félagsins. Isavia ANS hafi ekki svarað tilboði félagsins um breytingar á launalið kjarasamninga. 27.5.2020 17:00
Dótturfélag Isavia segir upp öllum flugumferðarstjórum sínum Öllum hundrað flugumferðarstjórunum sem stýra umferð um íslenska flugstjórnarsvæðið fyrir dótturfélag Isavia var sagt upp störfum í dag. Þeim verður boðinn nýr ráðningarsamningur með skertu starfshlutfalli í takt við minnkun í flugumferð. 27.5.2020 15:29
Trump hótar að loka samfélagsmiðlum Ákvörðun Twitter um að setja fyrirvara við tíst Donalds Trump Bandaríkjaforseta um meint kosningasvik í gær urðu forsetanum tilefni til þess að hóta því að loka samfélagsmiðlum eða setja reglur á þá í dag. Þetta var í fyrsta skipti sem Twitter beitti slíkri merkingu á ósannindi sem Trump dreifði á miðlinum. 27.5.2020 14:51
Trump hunsaði óskir ekkils um frið fyrir samsæriskenningum Óskir ekkils konu sem lést af slysförum fyrir tveimur áratugum um að Donald Trump hætti að dreifa samsæriskenningum um dauða hennar féllu á dauf eyru hjá Bandaríkjaforseta, framboði hans og blaðafulltrúa Hvíta hússins í gær. 27.5.2020 11:25
Egypskir læknar kenna stjórnvöldum um dauða félaga sinna Dauði lækna í kórónuveirufaraldrinum er á ábyrgð egypskra heilbrigðisyfirvalda, að sögn þarlendra læknasamtaka. Þau saka yfirvöld um vanrækslu og vara við því að heilbrigðiskerfið gæti kiknað undan álagi. 26.5.2020 16:50