Rekinn frá Herthu Berlin fyrir homma- og útlendingahatur Þýska úrvalsdeildarliðið Hertha Berlin hefur rekið markvarðaþjálfarann Zsolt Petry fyrir homma- og útlendingahatur. 6.4.2021 14:46
Líkti fremstu mönnum Arsenal við litla mafíu Gary Neville líkti sóknarmönnum Arsenal við litla mafíu sem hefðu snúist gegn stjóra liðsins, Mikel Arteta. 6.4.2021 13:30
Fyrrverandi leikmaður Southampton og Portsmouth dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir að smygla kókaíni Jhon Viáfara, fyrrverandi leikmaður Southampton og Portsmouth, hefur verið dæmdur í ellefu ára fangelsi fyrir að smygla rúmlega tveimur tonnum af kókaíni frá heimalandi sínu, Kólumbíu, til Bandaríkjanna. 6.4.2021 13:00
Neville og Carragher héldu áfram að rífast úti á bílastæði og í leigubílnum Gary Neville og Jamie Carragher var ansi heitt í hamsi í Monday Night Football á Sky Sports í gær. Þeir héldu áfram að rífast eftir þáttinn, á bílastæðinu fyrir utan höfuðstöðvar Sky og í leigubíl á leið heim á hótel. 6.4.2021 12:31
Varane með veiruna og missir af leikjunum gegn Liverpool Raphaël Varane, miðvörður Real Madrid, er með kórónuveiruna og missir af leiknum gegn Liverpool í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Real Madrid staðfesti þetta í morgun. 6.4.2021 11:44
Paul Pierce rekinn frá ESPN eftir partí með fatafellum Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að gamla Boston Celtics-hetjan Paul Pierce hafi verið rekinn frá ESPN. 6.4.2021 11:01
„Ef maður hefur ekki gaman, til hvers að vera að þessu?“ Tækniskólinn og Verslunarskóli Íslands eigast við í fyrri undanúrslitaviðureigninni á Framhaldsskólaleikunum í rafíþróttum í dag. Í seinni undanúrslitaviðureigninni eftir viku mætast Menntaskólinn í Kópavogi og Menntaskólinn við Hamrahlíð. 1.4.2021 11:00
„Aldrei gaman fyrir lið eða markvörð að fá mark á sig úr horni“ Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, var svekktur með markið sem Ísland fékk á sig gegn Liechtenstein í undankeppni HM 2022 í kvöld. 31.3.2021 22:38
Umfjöllun: Liechtenstein - Ísland 1-4 | Kærkominn sigur í Vaduz Ísland vann kærkominn sigur á Liechtenstein, 1-4, þegar liðin áttust við á Rheinpark Stadion í Vaduz í kvöld. Birkir Már Sævarsson, Birkir Bjarnason, Guðlaugur Victor Pálsson og Rúnar Már Sigurjónsson (víti) skoruðu mörk Íslendinga. Yanik Frick skoraði mark Liechtensteina beint úr hornspyrnu. 31.3.2021 20:30
„Gáfum Frökkum góðan leik“ Róbert Orri Þorkelsson lék allan leikinn þegar íslenska U-21 árs landsliðið tapaði 0-2 fyrir Frökkum í lokaleik sínum á EM í dag. 31.3.2021 19:01